Þjóðviljinn - 26.01.1980, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. janúar 1980
Grunnvextir hafa hækkað um 100%, en verðbólga samt hraðvaxið:
Forsenda verðtryggingar fbúðarlána er su að verðtryggja þarf vinnulaun að fullu jafnframt, svo að lántakendur geti staðið í skilum.
Tveim sfðustu rikiss tjórnum okkar hefur orðið hált á þvi aö vcrðtryggja fjárskuldbindingar og reyna um leið að skerða kaupgjalds visitölu.
Raunvextir eiga ekki
að ráða ferðinni
Dr Magni Guðmundsson hagfræðingur hefur í ýmsum
blaðagreinum gagnrýnt þá efnahagsstef nu sem i megin-
dráttum hefur verið fylgt hér síðastliðin 20 ár. Hafa
sumar kenningar dr. Magna komið mjög þvert á megin-
skoðanir helstu efnahagsráðgjafa. Meðal þess sem dr.
Magni hefur gagnrýnt opinberlega er stefnan og ýmsar
kenningar i peninga- vaxta- og skattamálum.
Um miðjan september á sl. ári fólu Svavar Gestsson
þáverandi viðskiptaráðherra og Tómas Arnason
þáverandi f jármálaráðherra dr. Magna Guðmyndssyni
að taka saman greinargerð um vaxtamál með tilliti til
verðbólguþróunar, stefnu i peningamálum og stöðu
sparifjáreigenda. Jafnframt var honum falið að taka
saman greinargerð um þau verðlagsáhrif er samfara
yrðu jnnleiðslu virðisaukaskatts í stað núverandi sölu-
skatts.
Dr. Magni skilaði fyrri greinargerðinni um peninga-
mál og vaxtamál um síðustu áramót eins og ráð var f yrir
gert, en þá höfðu orðið stjórnarskipti eins og kunnugt er.
Núverandi f jármálaráðherra, Sighvatur Björgvinsson,
og viðskiptaráðherra, Kjartan Jóhannsson, hafa ekki séð
ástæðu til þess að birta skýrslu Magna, þótt raunar sé
f ull ástæða til þess vegna þess hve peningamál almennt
og vaxtamál sérstaklega eru umdeild meðal stjórnmála-
flokka í stjórnsýslunni og innan hagfræðinnar sem
fræðigreinar. Sjónarmiðog niðurstöður dr. Magna hljóta
að vera mikilvægt innlegg í þessa umræðu á íslandi og
þessvegna ærið tilefni fyrir stjórnvöld að leyfa efni
hennar að koma fyrir almennings sjónir.
Þjóðviljinn fór þessá leitviðdr. Magna Guðmundsson
að hann svaraði nokkrum spurningum blaðsins í tilefni
þeirrar greinargerðar um peninga- og vaxtamál sem
hann hefur þegar skilað. Fara spurningar blaðsins og
svör hans hér á eftir:
Asókn i lán hefur
aukist
1. Uverjar eru megin röksemd-
ir þinar gegn þeirri hávaxta-
stefnu. sem hér hefir rikt undan-
gengin ár?
„Ég tek fram, að ég kýs að
vinna störf min i kyrrþey og án
hávaða, en vil þó ekki skorast
undan að svara fáeinum spurn-
ingum Þjóðviljans.
Vextirhafa hækkað hérlendis á
kerfisbundinn hátt frá miðju ári
1977. Nemur hækkun grunnvaxta
á timabilinu um 100%, sem er
óvenjulegt stökk. Hinn yfirlýsti
tilgangur var að minnka eftir-
spurn eftir lánum og draga með
þeim hætti úr verðþenslu. Hefi ég
i Morgunblaðsgreinum dregið i
efa, að sli'kum árangri yrði náð,
meöan haldið er áfram að auka
fjármagn i umferð meðerlendum
lántökum og skuldasöfnun nkis-
sjóðs- hjá Seðlabanka. Orð min
reyndust rfett, þvi að verðbólga
hefir ekki hjaðnað heldur þvert á
móti vaxið og er nú i hámarki.
Skv. upplýsingum viðskipta-
bankanna hefir ásókn i lán
beinlinis aukist. Ástæðan er
einfaldlega sú, að menn geta ekki
greitt hina háu vexti og verð-
tryggingu og biðja um frest eða
ný lán til að fleyta sér fram að
næsta gjalddaga.”
Tekjur ráda
heildarsparnaði
2. Hvað ræður sparnaði
manna?
,,Það hefir lengi verið hald
manna, að sparnaður væri kom-
inn undir vöxtum, og sil var
einmitt önnur aöal-röksemdin
fyrir hávaxtastefnunni. Ekki hef-
ir þó tekist að finna neitt sannan-
legt samband þarna á
milli.Kannanir, sem geröar hafa
verið, benda til beggja átta. Hins
vegar geta mismunandi ávöxt-
unartækifæri haft áhrif á það,
hvaða sparnaðarform menn
velja. Tilfærslum milli sparn-
aðarforma má ekki rugla saman
við heildarsparnað, sem er fyrst
og fremst háður tekjum manna.”
Kostnaðarverðbólga
eykst
3. Hvereruáhrif vaxtahækkana
á framleiðsluna?
„Það er nú mergurinn málsins.
Vaxtahækkanir ýta undir kostn-
aðarverðbólgu. Okkar „frjálsi
markaður” er meira eða minna
ófullkominn i þeim skilningi, að
bæði stórfyrirtæki og launaþega-
samtök að ógleymdum opinber-
um rekstri hafa bolmagn til þess
að ráða verði vöru og þjónustu án
tillits til eftirspurnar. Kostnaðar-
auka i formi efnivara, vinnu-
launa, leigugjalds og vaxta er
gjarnan þryst út I verðlagiö.”
Vextirnir skrúfa
upp verð
4. Hvernig spila vextirnir inn i
verðbólguþróunina ?
„Flestar atvinnugreinar hér á
landi liita þröngum verölags-
Dr. Magni Guðmundsson
Einar Karl
rœðir við
dr. Magna
Guðmundsson
um stefnuna
í peninga-
og vaxtamálum
ákvæðum, sem veita litið eða
ekkert svigrúm til að mæta aukn-
um rekstrarkostnaði, nema með
vöruverðshækkunum. Útflutn-
ingsframleiðslan er bundin af
erlendu markaðsverði, sem við
ráðum ekki yfir. Þar er vandi
fyrirtæk janna leystur með
gengissigi, sem hækkar verð inn-
fluttra vara. Vaxtahækkun gerir
ibúðarhúsnæði dýrara bæði fyrir
byggjendur og leigjendur og
þyngir með þeim hætti
framfærslubyrði fjölskyldunnar.
Það heröir á kaupkröfum, sem
aftur leiða til vöruverðshækk-
ana.”
Vaxtapóstur fyrir-
tækja aukist 50-250%
5. Hver er hlutur vaxtakostn-
aðar orðinn fhelstu atvinnugrein-
um og hvaða áhrif hefir hann á
rckstrarstöðu fyrirtækjanna?
„Vaxtapósturinn, útgjöldin, 1
ársreikningum fyrirtækja hefir
aukist sl. 2 ár frá 50% oe allt að
250% á árj — eftir atvinnugrein-
um. Rékstraraðstaða margra
fyrirtækja er þegar orðin óviðun-
andi, enmestu vaxtahækkanirnar
lögum samkvæmt eru þó ekki enn
fram komnar.”
r
Aróðursbragð verð-
tryggingarmanna
6. Hver er munurinn á verö-
tryggingarstefnu og hávaxta-
stefnu?
„Hvers konar gjöld, sem greidd
Verðtrygging
íbúðarlána hefur
ekki gefist vel
og f.d. hœttu
Finnar
og Israelar
við hana vegna
almenns
greiðsluþrots hjá
launþegum
eru fyrir notkun lánsfjár, skoöast
vextir. Verðbætur vaxta, verð-
trygging höfuðstóls o.fl. slik orð
visa til aðferðarinnar, sem notuð
er við útreikning á vöxtunum.
Nefna má t.d., að áhættuþóknun
er hluti vaxtaprósentu, enda þótt
ekki sé venja að geta hennar sér-
staklega bókhaldslega eða
skattalega. Að tala um „lága
vexti + verðtryggingu” er
áróðursbragð. Einn gallinn við
verötryggingu fjárskuldbindinga
er sá, að lántakandinn veit ekki
fyrirfram, hvaða vaxtafjárhæð
hann verður endanlega krafinn
um, þvi að hún ákvaröast af reik-
ulli visitölu. öll viðskiptaóvissa
lamar framtak og dregur úr hag-
vexti.”
Verðtrygging hefur
ekki gefist vel
— Hver eru áhrif núverndi
vaxtastefnu á húsnæðismark-
aðinum?
„Fjármagnskostnaður i bygg-
ingariðnaði hefir margfaldast á
undangengnum árum. Það er þó
aðeinsbrot þess, sem verðamun,
ef full verðtrygging ibúðarlána er
almennt tekin upp. Þegar hefir
dregið mjög af þessum sökum úr
ný-byggingum (building starts),
og minnkandi heildarframboö
ibúðarhúsnæðis á liklega drjúgan
hlut að þeirri stórfelldu
verðhækkun, sem orðið hefir sl.
þrjú ár á þessum markaði.
Eitt helsta vandamálið sam-
fara verðtryggingu ibúðarlána er
þaö, að verðtryggja þarf vinnu-
laun að fullu jafnframt, svo aö
lántakendur geti staðið I skilum.
Verðtryggingin hefir ekki gefist
vel erlendis. T.d. hættu bæði
Israelar og Finnar við hana
vegna almenns greiðsluþrots hjá
launþegum. Tveim siöustu rlkis-
stjórnum okkar hefir orðið hált á
þvi að verötryggja fjárskuldbind-
ingar og reyna um leið að skeröa
kaupgjaldsvisitölu. Ég vona að
næsta ríkisstjórn, hver svo sem
hún verður, falli ekki I sömu
gryfju.”
L ág vax tareksturslán
8. Hverjar eru I stuttu máli
niðurstöður þeirra athugana, sem
þú hefir gert?
„Þær taka talsvert rúm i minni
greinargerð og ekki unnt eða
heldur æskilegt að rekja I stuttu
blaðaviðtali.’”
9. Hverjar eru helstu tillögur
þinar um, hvernig sigrast megi á
efnahagsvandanum og komast
hjá frckari ógöngum?
„Ég hefi áður i fjölmiðlum gef-
ið mina forskrift að lausn verð-
bólgunnar, sem er í megin-
atriðum svona:
(I) Hætta erlendum lántiScum,
(II) Stöðva skuldasöfnun rikis-
sjóðs hjá Seðlabanka,
(III) Rétta við hallarekstur
rikisbúsins og bæjarfélaga,
(IV) Takmarka fjárfestingu i
landinu viö sparnað.
Þegar þessum áföngum hefir
verið náð, er timabært — og fyrr
ekki — að biðja launþega að stilla
kröfum sínum i' hóf.
Éghefieinnig talið, að gefa eigi
atvinnuvegunum kost á skamm-
tima rekstrarlánum með svip-
uöum kjörum og gilda I helstu
viöskiptalöndum okkar, jafnvel
þótt fjárfestingarlán veröi áfram
gengistengd um hrið. Lágvaxta
rekstrarlán munu efla
Framhald á bls. 13