Þjóðviljinn - 26.01.1980, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 26.01.1980, Blaðsíða 17
Laugardagur 26. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Þurfum Framhald af bls. 7 verður ekki nema jafnréttishug- sjöninni sé fylgt eftir i öllu starfi — og hún mætir andbyr. 1 þeim efnum hefur okkar flokkur ekki staðið sig betur i framkvæmd en aðrir. þegar frá ertalin hlutdeild kvenna i sveitastjórnum. en þar hefur hann tvimælalaust staðið sig betur. Ef viðætlum að verða jafnmik- ils megandi og karlar verðum við að komast inn i sjálfa stjórnsýsl- una. lagði Adda áherslu á. Það er alrangt mat að ætla að biða eftir að þjóðfélagið allt lagist. til að svo verði þarf ma. róttækar konur á þing. Til þess eigum við nógu margar hæfar konur, sem við þurfum að ýta fram jafnhliða þvi sem við stefnum að endur- bótum á þjóðfélaginu. Hún rakti hvernig konur i hreyfingunm unnu áður. Þær tóku fullan þátt i flokksstarfinu. unnu i kvenfélagi sósialista og innan KRFt, „skildu" að það voru erf- iðir timar og flokkurinn i lægð, o.s.frv. — og sættu sið þarmeð við sæti neðarlega á framboðslistun- um, endahefðum efstu sætin: Nr. 1 flokksformaðurinn, nr. 2 fulltrúi Dagsbrúnar, nr. 3 samstarfsaðili o.s.frv. Eftir að Alþýðubandalagið verður flokkur hyggja konur á nýjar leiðir. Þær láta ekki ein- angrasig i kvenfélagi, fá fulltrúa i æðstu stjórn (varaformann) og hlutfall þeirra i bæjar- og s veitar- stjórnum eykst talsvert. Við skulum samt passa okkur á að segja, að okkar flokkur hafi hampað konum meira en aðrir, sagði Adda og lagði áherslu á nauðsyn þess nú, þegar timi upp- stillinganefnda er liðinn og i stað- inn komið forval eða prófkjör i einhverri mynd, að átta sig á á- standinu og finna nýjar baráttu- aðferðir. 1 þvi sambandi nefndi hún ma. hugmyndina um óraðaða lista, þannig að kjósandi velur sjálfur röð frambjóðenda i kjörklefanum. Hún itrekaði þörf fyrir sterk þverpólitisk kvenna- samtök sem sköpuðu þrýsting og ennfremur fyrir bein opin samtök innan flokks um að koma konum áfram, velja tilteknar konur og styðja þær. Þvi séð er, að við komumst ekki áfram á góð- mennskunni og verðum sjálfar að fara á þing og i sveitastjórnir og fá þar vaxandi hóp karla til að standa með okkur. — vh. Agi Framhald af bls 8. Þróunarsjóður Þáttur i starfsemi Sölustofn- unar lagmetis er svokallaður þróunarsjóður, sem heyrir und- ir stjórn stofnunarinnar, en er undir yfirumsjón iðnaöar- ráöherra. Honum er heimilt aö verja sinu fé til ýmiskonar þróunarverkefna, markaðsmála o.fl. sem tiltekiðer i lögunum. Til sjóðsins rennur ákveðinn tekju- stofn og ráðstöfun fjárins er háð samþykki ráðuneytisins hverju sinni. Stjórn stofnunarinnar er einmitt þessa dagana að undir- búa slikar áætlanir, sem hún mun fyrst fjalla um sjálf og leggja siðan fyrir iönaöarráöu- neytið. — Hvernig leggst þaö I þig aö taka viö starfi stjórnarfor- manns á þessum viösjárveröu timum? — Þaö hafa blásið kaldir vind- ar um þessa stofnun og ég álit aö það sé mjög mikils virði fyrir stofnunina og þessa atvinnu- grein að skapa frið um hana og traust inn á við og út á viö. Viö verðum að ávinna okkur það traust á erlendum mörkuðum að hér sé framleidd fyrsta flokks vara, sem er grundvöllur þess Pípulagnir Nýlagnir, breyting ar, hitaveitutenging- ar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin) að það megi takast að byggja þessa atvinnugrein upp. .eös Viljum Framhald af bls. 9 afstöðu i dagblöðum, án þess að koma með nokkrar gagntillögur inn á viðræðuborðiö. Ritari Framsóknarflokksins Tómas Arnason hafði t.d. ekki haft til- lögurnar i höndum nema sólar- hring, þegar hann lét Morgun- blaðið hafa eftir sér afar neikvæð ummæli, tillögurnar væru ófullnægjandi og „alls ekki til þess fallnar að leysa þann vanda sem viö er aö glima”. Forsiðufrétt i Timanum sama dag byggð á viðtali við Guömund G. Þórarinsson, gjald- kera flokksins, bar fyrirsögn- ina: „óraunhæfur óskalisti”. Þannig lá það fyrir strax i upp- hafi að áhrifamiklir aðilar i Framsóknarflokknum vildu hindra að stjórnarmyndunartil- raun Svavars Gestssonar gæti leitt til jákvæörar niöurstöðu. Ég efa að visu ekki að formaður flokksins Steingrimur Hermannsson hafi haft áhuga á að stuðla að myndun vinstri stjórnar, en hann virtist i þessum viðræöum ekki átta sig á, aðþaryrðu málefni og skýrar tillögui aö tala en ekki frómar óskir. Slikra tillagna vænti Al- þýðubandalagið, en þær bárust ekki, og var þó öllum hlut- aðeigandi ljóst, að jákvæð viðbrögð eða breytingartillögur yrðu að koma fram ekki siðar en siðastliðinn mánudag. Harmatölur Steingrims eftir aö upp var staðiö komu um seinan. Ástæða væri til aö fjalla hér nánar um einstaka þætti, sem ágreiningur var um i þessum viðræðum, en það biður betri tima. Reykjavík 24. jan. 1980. Hjörleifur Guttormsson. Raunvextir Framhald af bls. 10 samkeppnishæfni fyrirtækjanna út á viðog auka svigrúm þeirra til kjarabóta. Engin hætta er á lána- misvægi af þessum sökum, eins og stundum er látið i veðri vaka. Jafnframt ættu bankarnir að bjóða viðskiptamönnum gengis- tengd spariskirteini. Sýnt hefir verið fram á, hvernig þau megi fjármagna.” Hagrád og einkaráðgjöf 10. Hvernig telur þú eölilegast, aðunniösé aö efnahagsráögjöf og settir upp valkostir I efnahags- stefnu fyrir stjórnmálamenn aö vega og meta og velja úr? „Rætt hefir verið um efnahags- málaráðuneyti, sem kann að vera lausnin. Hins vegar hefi ég aðhyllst hagráð a.m.k. fimm til sjö manna, er saman stæði af læröum hagfræðingum með ólik sjónarmið og jafnframt athafna- mönnum með reynslu. Slikt hag- ráð gæti hugsanlega starfað inn- an Þjóðhagsstofnunar eða, öllu fremur, sem stjórn hennar, Einnig er æskilegt, að rikisstjórn leiti til einka-fyrirtækja i ráð- gjafaþjónustu, einsog nú gerist æ algengara ytra.” Raunvextir ráði ekki blint 11. Hvað vilt þú segja I lokin? „Raunvextir eru hugtak, sem ekki má ráða ferðinni blint i pen- ingamálum. Þannig hefir t.d. Kanada, þar sem ég gerþekki til, haft neikvæða raunvexti veltíinn- lánaallan þennan áratug, án þess aðtil mála hafi komið að umbylta öllu peningakerfinu. Raunvextir bundinna spariinnlána hafa verið á bilinu 2—5% p.a. Heilbrigö pen- inga-pólitik tekur fyrst og fremst mið af atvinnuástandi á hverjum tfma. samkeppnishæfni atvinnu- veganna út á viö og greiðslugetu þeirra.” — ekh Samkeppni Framhald af bls. 20 fulltrúar frá Reykjavikurborg, þeir Þórður Þorbjarnarson borgarverkfræðingur, sem er for- maður nefndarinnar, Aðalsteinn Richter arkitekt og Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt. Af hálfu Arkitektafélags Islands eiga tveir fulltrúar sæti i nefndinni arki- tektarnir Hilmir Þór Björnsson og Njörður Geirdal. SkÚafrestur i samkeppninni er 1. april n.k. og er vonast til að úrslit liggi fyrir fljótlega nú i vor. Aætlað er að siðar á þessu ári verði úthlutað lóðum undir 100 ibúðir i fjölbýlishúsunum sem borgarstjórn hefur heimilað Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik byggingu á. -ig. Alþýðubandalagið: Árshátið ABK. Arshátið Alþýðubandalagsins I Kópavogi verður haldin i Þinghól laugardaginn 2. febr. n.k. Þorramatur. Hljómsveit Jóns Sigurössonar leikur fyrir dansi. Ensöngur: Ingveldur Hjaltested. Miðasala verður n.k. þriöjudagskvöld i Þinghól kl. 20-22 (simi 41746) og borö tekin frá um leið. Stjórn ABK. Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nærsveitum Leshringur um stefnuskrá Alþýðubandalagsins fer af staö mánudaginn 28. jan. n.k. kl. 20.30 i húsnæði félagsins aö Kveldúlfsgötu 25. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Alþýðubandalagið Akranesi Abl. Akranesi heldur fund mánudaginn 28. jan- uar i Rein og hefst hann kl. 20.30 Skúli Alexandersson alþingismaður hefur fram- sögu um stjórnmálaviðhorfið. Blaðanefnd skilar áliti önnur mál. Stjórnin Skúli Alþýðubandalagið Akureyri Arshátið ABA verður haldin I Alþýðuhúsinu laugardaginn 26. janúar og hefst kl. 19.30. Þorramatur — Skemmtiatriði. Pantanir i sima 23871, 23397 og 21875. Strætisvagnagjöld Framhald af bls. 20 ráðuneytinu samanburð við árið 1970, þegar sótt var um þessa hækkun. Fargjaldið var þá 11 krónur og hafði þrettánfaldast. Launin höfðu nítjánfaldast, og oliuverðið hafði margfaldast svo, að það var orðið 41 sinni hærra á þessum sama tima. „Svona hefur þróunin orðið, allir liðir hafa hækkaö, en fargjaldið hefur ekki haldiðsama hlutfalli.” sagði Karl. „En auðvitað er það engin lausn að hækka alltaf fargjald- ið,” sagöi hann. „Við viljum al- veg eins fá einhverja aðra fyrir- greiðslu.” Þess má geta, aö Landleiöir hf. selja fargjaldið frá Lækjar- götu i Reykjavik og á Kópavogs- háls á 190 krónur. Talað hefur verið um að LandleiÖir fái enn hækkun um 9% f viðbót. -eös Alþýöubandalagsfélag Keflavíkur Fundur verður haldinn laugardaginn 26. jan. kl. 2 i Tjarnarlundi. Dagskrá: 1. Kosning ritnefndar. 2. Efnahagstillögur Alþýðubandalagsins. Félagar á Suðurnesjum fjölmennið. Stjór nin. Alþýðubandalagið i Hafnarfirði Fundur i bæjarmálaráöi mánudaginn 28. jan. kl. 20.30 i Skálanum. Dagskrá: Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar. önnur mál. Allir velkomnir Stjórnin Frá borgarmálaráði Alþýðubandalagsins i Reykja- vik Borgarfulltrúar og fulltrúar ABR (aöal- og varamenn) i ráöum og nefndum Reykjavikurborgar eru boðaðir til fundar á Grettisgötu 3 laugardaginn 2. febrúar kl. 14. Fundarefni: Stjórnkerfi sveitarfélaga. Frummælendur Hailgrimur Guðmundsson, stjórnmálafræöingur og Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi. Borgarinálaráð ABR. Alþýöubandalagid í Reykjavlk: Vidtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa I dag, laugardaginn 26. janúar kl. 10-12 verða ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður og Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi til viðtals fyrir borgarbúa á skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3. Eru borgarbúar hvattir til að nota sér þessa viðtalstíma með þvi að koma á skrifstofuna á umræddum tima eða hringja i síma 17500. Ólafur Ragnar Sigurjón KALLI KLUNNI — Hann er dálltið lengi aö koma — Já. en tappinn liggur þarna, — Púhú, ég týndi tappanum og — Jæja, þá gerum viö aöra til- tappanum I! flýttu þér aö draga Kalla upp! fann hann ekki aftur, hvernig átti raun. Þaö hlýtur aö ganga betur ^ ég aö vita aö hann flýtur upp! þetta sinn, nú hefur hann fengiö æfingu!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.