Þjóðviljinn - 09.08.1980, Page 29
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 2 9
DER BFIEGEL
Forslöumynd af þvi hefti Spiegeis, þar sem fjallaö er um stórsókn
japanska bilsins, sérstaklega I Vestur-Evrópu, þar sem Vestur-Þjóð-
verjar eru mestu bilaframleiöendurnir.
Verkamenn hjá Toyota — lénsaldarhollusta viö fyrirtækiö igildi.
Leiftursókn j apanska bílsins
Aöeins fimmtán ár eru liöin
siöan Japanir fóru aö flytja út
bila svo nokkru næmi. Engu aö
siður er Japan nú orðið mesta
bilaframleiösluland heims —
komið þar upp fyrir Bandarikin,
sem lengi höfðu veriö langt fyrir
ofan öll lönd önnur á þeim vett-
vangi. Japan flytur lika út meira
af bflum en nokkurt riki annaö,
komst i þvi fram úr Vest-
ur-Þýskalandi þegar áriö 1974.
Síðan i siðari heimsstyrjöld hefur
engin japönsk sókn vakið svo
mikla athygli sem leiftursókn
japanska bilsins.
Japanir gerðu fyrstu hikandi
tilraunirnar með bilaframleiðslu
þegar árið 1912, en markaðurinn
var lengi takmarkaður heima-
fyrir og verulegur kraftur komst
ekki I framleiðsluna fyrr en
mörgum árum eftir lok siðari
heimsstyrjaldar. Fyrstu bilarnir,
sem Japanir fluttu út, urðu fyrir
háði og spotti i Norður-Ameriku
og Vestur-Evrópu, þar sem þeir
voru kallaðir frumstæðar blikk-
dósir. En hér sannaðist það forn-
kveðna, að sá hlær best sem
siðast hlær, Japanir voru fljótir
að átta sig á vanköntum bifreiða
sinna, stældu miskunnarlaust
vestrænar fyrirmyndir en komu
einnig, einkum þegar á leið, fram
meö nýjungar sem náðu vinsæld-
um. 1 vestur-þýska timaritinu
Der Spiegel er sigurför japanska
bilsins likt við ævintýri úr Þúsund
og einni nótt og sagt að jafnvel
árangur Henrys Ford, sem inn-
leiddi færibandið, og Heinrichs
Nordhoff, sem reisti Volkswagen-
verksmiðjurnar þýsku úr rústum
striðsins, sé smáræði i saman-
burðinum. x
Fjórði hver bill i Norð-
ur-Ameriku
Fyrst til þess að kaupa útflutta
japanska bfla svo um munaði
urðu Ástralia og ýmis Asiulönd.
Siðan beindist útflutningssókn
Japana á þessu sviði að Norður-
og Mið-Ameriku, og i lok sjöunda
áratugsins hófu þeir i stórum stil
bifreiðaútflutning til Vest-
ur-Evrópu.
Fjórði hver bill, sem nú er seld-1
ur i Norður-Ameriku, er
japanskur. Og á vestur-evrópska
markaðnum eru japanskir bila-
framleiðendur i stórsókn. Best
hefur þeim orðið þar ágengt i
smærri rikjum, sem ekki fram-
leiða bila sjálf. Um fjórðungur
allra bila, sem selst i Irlandi,
Noregi og Finnlandi er japanskur
og 16-19% i Hollandi, Belgiu, Dan-
mörku og Sviss. (Og á íslandi slá
japanskir bilar öllum öðrum við i
sölu.)
Der Spiegel telur að þrennt sé
það er einkum skýri yfirburði
japanskra bflaframleiðenda fram
yfir evrópska keppinauta. I fyrsta
lagi sé það háþróuð tækni, eink-
um á sviði sjálfvirkninnar, f öðru
lagi séu verkamennirnir i
japönsku bilaverksmiðjunum
ekki euningis verr launaðir en að
minnsta kosti vestur-þýskir
starfsbræður þeirra, heldur og
öllu hæfari starfskraftar og i
þriðja lagi sé japanska jenið haft
á mjög lágu gengi gagnvart
vestur-evrópskum gjaldmiðli.
Skýringin á tiltölulega mikilli
hæfni japanskra bilaverkamanna
er að nokkru leyti að minnsta
kosti sú að þar i landi eru storf i
bflaiðnaðinum eftirsótt og bila-
verksmiðjurnar geta valið úr
þeim ungmennum, sem hætta i
skóla eftir skyldunámið. Gerólik-
ar samfélagserfðir eiga hér
einnig hlut að máli. Stéttarvitund
af þvi tagi,- sem þróast hefur
meðal vestrænna verkamanna er
næsta takmörkuð i Japan og ein-
staklingshyggja i vestrænum
skilningi þess orðs Japönum
nánast óskiljanleg, sem og Asiu-
mönnum yfirleitt. Hið iðnvædda
Japan hefur og i heiðri mikilvæg
ar erfðir frá lénstimanum. Gert
er ráð fyrir þvi að fyrirtækin og
yfirmennirnir i þeim tryggi
verkamönnunum visst afkomu-
öryggi og hlunnindi, en i staðinn
vinni verkamaðurinn fyrirtækinu
af jafn mikilli elju og áhuga og
hann ætti það sjálfur. Hliðstæða
hollustu bar lénsdrottnum og
undirmönnum þeirra áður fyrr að
sýna hver öðrum.
Takmarkað atvinnu-
öryggi — mikill vinnu-
hraði
Atvinnuöryggi japanskra bif-
reiðaverkamanna er að visu tak-
markað i raun — aðeins um
helmingur þeirra er fastráðinn.
hinum má segja upp fyrirvara-
laust — og aðbúnaður og vinnu-
skilyrði oft ekki upp á það besta
en þeir virðast þó yfirleitt sætta
sig við sitt kerfi. Verkföll eru þar
harla fátið og verkalýðsfélög
áhrifalitil. Fridagar eru miklu
færri en á Vesturlöndum (246
dagar á ári á móti 205 hjá verka-
manni i vestur-þýska bflaiðnaðin-
um) og lika miklu minna um fjar-
vistir af völdum veikinda og ann-
ars. Þjóðverjar hafa orð á sér
fyrir að vera flestum þjóðum
duglegri og vinnuglaðari (aðrar
þjóðir vinna til þess að lifa, Þjóð-
verjar lifa til þess að vinna, segir
máltækið), en þó segir Spiegel að
ekki mundi þýða að bjóða verka-
mönnum i vestur-þýska bila-
iðnaðinum þann vinnuhraða sem
japönskum starfsbræðrum þeirra
hefur tekist að temja sér.
Ein ástæðan til þess, að
japanskir bilar náðu fljótt vin-
sældum erlendis, var sú að til-
tölulega auðvelt þótti að gera við
þá og að þeir þoldu vel hita og
kulda: þetta kvað hafa gert þá
vinsæla á Norðurlöndum og i Af-
riku. En mestur hraði komst i
þessa japönsku sókn eftir að olia
og bensin fór að stórhækka i verði
um og eftir miðjan áttunda ára-
tuginn. Bandarikjamenn og Vest-
ur-Evrópumenn sneru þá unn-
vörpum baki við eigin bilafram-
leiðendum og keyptu i staðinn
minni og sparneytnari japanska
bila, sem þar að auki voru að
sumra áliti orðnir á ýmsan hátt
fullkomnari en þeir vestrænu.
Vesturlandamönnum
órótt
Afleiðingarnar á Vesturlöndum
hafa meðal annars orðið þær, að i
Detroit, höfuðborg bandarisku
bilaframleiðslunnar, standa tugir
verksmiðja tómar og eru til sölu,
300.000 bandariskir bilaiðnaðar-
verkamenn eru atvinnulausir og
Chrysler, þriðji stærsti bilahring-
ur landsins, rambar á barmi
gjaldþrots. Þeir bilar
vestur-þýskir, sem helst standa i
þeim japönsku hvað sölu snertir,
eru Mercedes og Volkswagen en
þeir dragast þó allhratt aftur úr.
Enn verr gengur frönskumog
itölskum bilaframieiðendum i
samkeppni þessari.
Þar sem bilaframleiðsla er
meðal mikilvægustu iðngreina
má nærri geta hvort ekki aðeins
bilaframleiðendum og verka-
mönnum, heldur og stjórnarvöld-
um á Vesturlöndum erorðið órótt
út af þessu. Bandarikjamenn eru
farnir að reyna gagnsókn með
ýmsu móti: þeir sjá að ekki þýðir
lengur að bjóða fram sin frægu
bensinsvelgjandi keröld og fram-
leiða nú minni og sparneytnari
bfla, sem gætu látið til sin taka á
markaðnum næsta ár. Þetta hef-
ur orðið til þess að Japanir hafa
enn frekar einbeitt sér að
Evrópumarkaðnum. Bandarikja-
menn reyna lika að ná itökum i
japanska bilaiðnaðinum með þvi
að kaupa sig inn i stórfyrirtækin
þar og hefur i þvi efni orðið nokk-
uð ágengt.
Innflutningshöft
Bandarikin og Vestur-Þýska-
land, mestu bilaframleiðslulönd
Vesturlanda, hafa enn ekki gripið
til neinskonar innflutningshindr-
ana gegn japönskum bilum, þrátt
fyrir háværar kröfur um það að
minnsta kosti i Bandarikjunum.
önnur bilaframleiðsluriki, sem
ekki eru eins sterk á þeim vett-
vangi, hafa hinsvegar þegar
gripið til ýmisskonar hafta til
verndar sinum bilaiðnaði. Bret-
land ákvað þannig 1978 að
japanskur bilainnflutningur
þangað mætti ekki fara fram úr
þvi, sem var árið á undan, Frakk-
ar hafa náð leynisamningi við
Japani um að ekki meira, en 3%
seldra bila i Frakklandi megi
vera japanskir, Italir hafa enn
strangari innflutningshöft gegn
japönskum bilum og innflutning-
ur þeirra til Spánar er algerlega
bannaður. Bandariskir og vest-
ur-þýskir ráðamenn hafa lengi
reynt að hjálpa sinum bilaiðnaði
með þvi að reyna að fá Japani til
að draga úr bilainnflutningi sin-
um til Bandarikjanna og Vest-
ur-Þýskalands, en fengið daufleg-
ar undirtektir, enda myndi þaö
þýða samdrátt og aukið atvinnu-
leysi i Japan ef við þeim tilmæl-
um yrði orðið. Hér er um að ræða
harla viðkvæmt og erfitt mál i
samskiptum Vesturlanda og Jap-
ans, og má i þvi sambandi minna
á að það voru ekki hvað sist
viðskiptahagsmunir, sem ollu þvi
að Japan fór i striðið gegn vestur-
veldunum 1941.
UTBOÐ
Selfosskaupstaður óskar eftir tilboðum i
uppsteypu 3. áfanga félagsheimilis á Sel-
fossi útboðsverk 3.
Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Sel-
fosskaupstaðai; Eyrarvegi 8 Selfossi og
Verkfræðistofu Gunnars Torfasonar, Ar-
múla 26 Reykjavik gegn 40 þús. kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á Bæjarskrifstofu
Selfosskaupstaðar Eyrarvegi 8, þriðju-
daginn 19. ágúst 1980 kl. 14.00.
dþ.
ðSérlega siðprúðir og
fallegir kettlingar fást
gefins.
Upplýsingar að
Húsatóftum Grindavík
Sími: 92-8016
Stúdentakjjallarinn —
Klúbbur eff ess
Stúdentakjailarinn v/Hringbraut opin alla
daga, öll kvöld, veitingar.
ATH. Klúbbur eff ess
opið sunnudags- og fimmtudagskvöld.
Djass.