Þjóðviljinn - 24.10.1980, Síða 3
Föstudagur 24. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Blaðberabíó
Ef ég væri rikur, sprenghlægileg gaman-
mynd i litum og með isl. texta.
Sýnd i Hafnarbiói á laugardag kl. 1.00.
Þjóðviljinn.
Blikkiðjan
Asgarði 7, Garöabæ
onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíði.
Gerum föst verötilboð
SÍMI 53468
Magnús Kjartansson les úr sagnfræbiriti Þorkels Hansens. — Mynd: —gei.
„Opið hús”
Það var ánægjuleg stund sem
menn áttu i „Opnu húsi” hjá Al-
þýðubandalaginu I fyrra kvöld.
Þar las Magnús Kjartansson,
fyrrverandi ráöherra, kafla úr
sagnfræðiriti eftir Þorkel Han-
sen, en bókin fjallar um Jens
Munk, sem var nafnkenndastur
norrænna landkönnuða á sinni tíð,
eða um aldamótin 1600. Magnús
Kjartansson þýddi bókina, sem
kemur út hjá forlagi Menningar-
sjóðs á næsta ári.
Þá söng Gunnar Guttormsson
nokkrar skemmtilegar visur við
undirleik konu sinnar, Sigrúnar
Jóhannesdóttur. Upp úr þvi hófst
svo almennur söngur.
Ekki hefði, með auðveldu móti,
öllu fleiri verið komið fyrir i ris-
inu á Grettisgötunni.
— mhg
1950 30 ár 1980
í tilefni af því,að á þessu ári eru liðin 30 ár f rá því
kvikmyndin var f rumsýnd, verður hún sýnd í Regn-
boganum á morgun laugardag kl. 3, og einnig á
sunnudag 26. okt. kl. 3. Verð aðgöngumiða kr. 1500.
Mynd fyrir alla f jölskylduna.
óskar Gíslason
Halldór Laxness skrifar unu
Síðasti bærinn í dalnum
Verðmunur á ærgildum
Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur ákveöið að við uppgjör kinda-
kjöts samkvæmt búmarki i þessu verðlagsári veröi ærgildi i 1., 2. og 3.
verðflokki metið á kr. 16.8 kg. En i 4., 5. og 6. verðflokki verði 40 kg.
kjöts metin eitt ærgildi.
BARATTUSÖNGUR:
Þorlákur Kristinsson
Tómas J. Sigurðsson
Baráttuhópur
farandverkamanna
W
4 Æ
Halldór Laxness
Grikklandsárið er komið
út, f jórða bindi af frásögn-
um og athugasemdum
Halldórs Laxness um æsku
og unglingsár. Bókin snýst
um „yndislegasta ár lífs-
ins, nítjánda árið".
Asgeir
Kristjánsson,
Húsavik
er látinn
I fyrrinótt andaðist á sjúkrahúsi
Asgeir Kristjánsson á Húsavík.
Asgeir var lengi einn helsti for-
ystumaður sósialista á Húsavik.
Hann átti lengi sæti i bæjarstjórn
Húsavikur og var forystumaður I
verkaiýðsmálum I sinni heima-
byggð.
Þjóðviljinn vottar aðstandend-
um Ásgeirs samúð við andlát
hans. Asgeirs veröur minnst hér i
blaðinu siðar.
Fundur á Lækjartorgi í dag kl. 5
Almennur fundur um samningamálin verður
i dag kl. 5 á Lækjartorgi. Gengið verður að
húsi Vinnuveitendasambands íslands að lok-
inni dagskrá og mótmæli fundarins afhent.
Fundarstjóri: Rúnar Guðbrandsson.
RÆÐUMENN:
Valur Valsson, sjdmaður, Vestmannaeyj-
Sigurbjörg Arnadóttir, leikari.
Hiidur Jónsdóttir, skrstm.
Margrét óskarsdóttir, verkakona, ísa-
firöi.
Tilkynning frá
Bifreiðaeftirliti ríkisins
Aðalskoðun bifreiða fyrir þetta ár er lokið.
Til að forðast frekari óþægindi er þeim
sem eiga óskoðaðar bifreiðar bent á, að
færa þær nú þegar til skoðunar.
Reykjavik, 22. október 1980
Bifreiðaeftirlit rikisins.
Yndislegasta
ár lífsins ...
Halldór kemur heim frá Höfn,
hann er á æskuslóöum, fer sem
heimiliskennari austur I Horna-
fjörð, heimsækir Flatey og leggur
út i heim aftur. Hér er að finna
margar „góðlátlegar fyndnar
mannlýsingar” eins og segir i
bókarkynningu — þar koma við
sögu Óskar sildarkóngur Hall-
dórsson, Jóhann skáld Jónsson,
Helgi Pjeturss spekimaður,
Einar Ólafur Sveinsson, séra
Halldór Kolbeinsson og margir
ágætir menn aðrir. Einnig segir
meira frá Erlendi og Unuhúsi og
gestum þess.
1 kynningu segir að sagan sé
„full af lifandi myndum úr lifi
sins tima” og sé hún „dýrleg
heimild um marga tisku i máli og
hugmyndum fyrr á öldinni”. Þar
segir einnig, að af þeim mannlýs-
ingum sem fyrr voru nefndar sé
„sjálfslýsing höfundarins fyndn-
ust og jafnfram hlifðarlausari en
aðrar”.
Sáttafundur
í gærkveldi
Menn bjartsýnni
að nú þokist til
samkomulags
Guðlaugur Þorvalds-
son sáttasemjari boðaði
samninganefndir ASí og
VSÍ á samningafund kl.
21.30 i gærkveldi.
Eru menn nú heldur bjartsýnni
en áður um að eitthvað fari að
þokast i samkomulagsátt, bæði
vegna þess klofnings, sem
kominn er upp i röðum atvinnu-
rekenda og eins vegna þess að
samkomulag hefur tekist um
tæknimálin i prentaradeilunni. A
sinum tima var þaö eitt af þvi
sem atvinnurekendur báru fyrir
sig þegar þeir neituðu viðræðum
við ASI aö samkomulag næöist
um þetta atriði i prentaradeil-
unni.
Þegar Þjóðviljinn fór i prentun
var engar nýjar fréttir að fá af
sáttafundinum sem hófst i
gærkveldi.
— S.dór.
— mhg