Þjóðviljinn - 24.10.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.10.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 24. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Blaðberabíó Ef ég væri rikur, sprenghlægileg gaman- mynd i litum og með isl. texta. Sýnd i Hafnarbiói á laugardag kl. 1.00. Þjóðviljinn. Blikkiðjan Asgarði 7, Garöabæ onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar biikksmíði. Gerum föst verötilboð SÍMI 53468 Magnús Kjartansson les úr sagnfræbiriti Þorkels Hansens. — Mynd: —gei. „Opið hús” Það var ánægjuleg stund sem menn áttu i „Opnu húsi” hjá Al- þýðubandalaginu I fyrra kvöld. Þar las Magnús Kjartansson, fyrrverandi ráöherra, kafla úr sagnfræðiriti eftir Þorkel Han- sen, en bókin fjallar um Jens Munk, sem var nafnkenndastur norrænna landkönnuða á sinni tíð, eða um aldamótin 1600. Magnús Kjartansson þýddi bókina, sem kemur út hjá forlagi Menningar- sjóðs á næsta ári. Þá söng Gunnar Guttormsson nokkrar skemmtilegar visur við undirleik konu sinnar, Sigrúnar Jóhannesdóttur. Upp úr þvi hófst svo almennur söngur. Ekki hefði, með auðveldu móti, öllu fleiri verið komið fyrir i ris- inu á Grettisgötunni. — mhg 1950 30 ár 1980 í tilefni af því,að á þessu ári eru liðin 30 ár f rá því kvikmyndin var f rumsýnd, verður hún sýnd í Regn- boganum á morgun laugardag kl. 3, og einnig á sunnudag 26. okt. kl. 3. Verð aðgöngumiða kr. 1500. Mynd fyrir alla f jölskylduna. óskar Gíslason Halldór Laxness skrifar unu Síðasti bærinn í dalnum Verðmunur á ærgildum Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur ákveöið að við uppgjör kinda- kjöts samkvæmt búmarki i þessu verðlagsári veröi ærgildi i 1., 2. og 3. verðflokki metið á kr. 16.8 kg. En i 4., 5. og 6. verðflokki verði 40 kg. kjöts metin eitt ærgildi. BARATTUSÖNGUR: Þorlákur Kristinsson Tómas J. Sigurðsson Baráttuhópur farandverkamanna W 4 Æ Halldór Laxness Grikklandsárið er komið út, f jórða bindi af frásögn- um og athugasemdum Halldórs Laxness um æsku og unglingsár. Bókin snýst um „yndislegasta ár lífs- ins, nítjánda árið". Asgeir Kristjánsson, Húsavik er látinn I fyrrinótt andaðist á sjúkrahúsi Asgeir Kristjánsson á Húsavík. Asgeir var lengi einn helsti for- ystumaður sósialista á Húsavik. Hann átti lengi sæti i bæjarstjórn Húsavikur og var forystumaður I verkaiýðsmálum I sinni heima- byggð. Þjóðviljinn vottar aðstandend- um Ásgeirs samúð við andlát hans. Asgeirs veröur minnst hér i blaðinu siðar. Fundur á Lækjartorgi í dag kl. 5 Almennur fundur um samningamálin verður i dag kl. 5 á Lækjartorgi. Gengið verður að húsi Vinnuveitendasambands íslands að lok- inni dagskrá og mótmæli fundarins afhent. Fundarstjóri: Rúnar Guðbrandsson. RÆÐUMENN: Valur Valsson, sjdmaður, Vestmannaeyj- Sigurbjörg Arnadóttir, leikari. Hiidur Jónsdóttir, skrstm. Margrét óskarsdóttir, verkakona, ísa- firöi. Tilkynning frá Bifreiðaeftirliti ríkisins Aðalskoðun bifreiða fyrir þetta ár er lokið. Til að forðast frekari óþægindi er þeim sem eiga óskoðaðar bifreiðar bent á, að færa þær nú þegar til skoðunar. Reykjavik, 22. október 1980 Bifreiðaeftirlit rikisins. Yndislegasta ár lífsins ... Halldór kemur heim frá Höfn, hann er á æskuslóöum, fer sem heimiliskennari austur I Horna- fjörð, heimsækir Flatey og leggur út i heim aftur. Hér er að finna margar „góðlátlegar fyndnar mannlýsingar” eins og segir i bókarkynningu — þar koma við sögu Óskar sildarkóngur Hall- dórsson, Jóhann skáld Jónsson, Helgi Pjeturss spekimaður, Einar Ólafur Sveinsson, séra Halldór Kolbeinsson og margir ágætir menn aðrir. Einnig segir meira frá Erlendi og Unuhúsi og gestum þess. 1 kynningu segir að sagan sé „full af lifandi myndum úr lifi sins tima” og sé hún „dýrleg heimild um marga tisku i máli og hugmyndum fyrr á öldinni”. Þar segir einnig, að af þeim mannlýs- ingum sem fyrr voru nefndar sé „sjálfslýsing höfundarins fyndn- ust og jafnfram hlifðarlausari en aðrar”. Sáttafundur í gærkveldi Menn bjartsýnni að nú þokist til samkomulags Guðlaugur Þorvalds- son sáttasemjari boðaði samninganefndir ASí og VSÍ á samningafund kl. 21.30 i gærkveldi. Eru menn nú heldur bjartsýnni en áður um að eitthvað fari að þokast i samkomulagsátt, bæði vegna þess klofnings, sem kominn er upp i röðum atvinnu- rekenda og eins vegna þess að samkomulag hefur tekist um tæknimálin i prentaradeilunni. A sinum tima var þaö eitt af þvi sem atvinnurekendur báru fyrir sig þegar þeir neituðu viðræðum við ASI aö samkomulag næöist um þetta atriði i prentaradeil- unni. Þegar Þjóðviljinn fór i prentun var engar nýjar fréttir að fá af sáttafundinum sem hófst i gærkveldi. — S.dór. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.