Þjóðviljinn - 31.10.1980, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 31.10.1980, Blaðsíða 9
Föstudagur 31. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 8 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. október 1980 Sú fullyrðing að vinstri menn kunni ekkert með fjármál að fara hefur verið æði fyrirferðarmikil i islenskri stjórnmálabar- áttu, og var ásamt glundroðakenningunni eitt meginstefið í kosningabar- áttu Sjálfstæðisf lokksins fyrir siðustu borgar- stjórnarkosningar. Þjóð- viljinn ræddi fyrir skemmstu við Sigurjón Pétursson forseta borgar- stjórnar um fjármál borgarinnar undir stjórn vinstri manna og fleira og spurði hann fyrst hvort þessi gamla fullyrðing hefði sannast á meirihlut- anum í borgarstjórn Reykjavikur. „Fyrir siöustu kosningar og reyndar allar aðrar borgar- stjórnarkosningar sem ég man eftir, hefur það veriö viðkvæðið hjá Sjálfstæðismönnum að ef þeir misstu meirihlutann myndi taka við alger óreiða i fjármálum og Reykjavikurborg myndi sökkva i skuldafen”, sagði Sigurjón. „Þessar raddir héyrðust einnig eftir siðustu kosningar og sér- staklega er mér minnisstætt þegar Reykjavikurborg ákvað aö greiða starfsmönnum borgar- innar i samræmi við samninga 1978, en það var talið sérstakt dæmi um óstjórn vinstri meiri- hlutans i peningamálum. Þessar raddir hafa nú algerlega þagnað og hvernig sem ég leita i ræðu og riti stjórnarandstæðinga nú, finn ég hvergi stafkrók um óreiðu nú- verandi meirihluta i fjármálum. Allir vita hvernig fárhagsstaðan var þegar við tókum viö borginni og þær breytingar sem oröið hafa i þvi efni nú rúmlega tveimur ár- um siöar. Þæ;r upplýsingar ásamt og með þögn minnihlutans held ég svari þessari spurningu fullkom- lega”. Stórbætt staða — Nú var mikiö rætt um viö- skilnað Sjálfstæðisflokksins 1978. Ef þið ættuð að skila af ykkur i dag, hvernig yröi ykkar viðskiln- aður? „Hann myndi vera góður. Ég hygg aö jafnvel krónulega séð, þá skuldi borgin nú færri krónur en á miðju ári 1978 og lausafjárstaðan er verulega betri en hún var fyrir tveimur árum siðan. Almennt má segja að fjárhagsstaða borgar- innar sé mjög þokkalep um þessar mundir og það er veruleg breyt- ing frá þvi sem við tókum við”. — Hverju þakkiö þið þessa bættu stöðu? Eru þaö auknar álögur á borgarbúa sem valda? „Forsendunum fyrir bættri fjárhagsstöðu má skipta i tvennt. Annars vegarhöfum við aukið við tekjustofna borgarinnar og þar meö fengið auknar tekjur og hins vegar höfum við sýnt meira aö- hald i rekstri stofnana og fyrir- tækjá borgarinnar en áður var, þó þar megi samt gera mun meira. Þá hefur varfærni við gerð fjár- hagsáætlana verið meiri og reynt hefur verið að meta áhrif verö hækkana og taka þær með i áætl- unargerðina, sem er mikil breyt- ing frá þvi sem áður var,en þá var eins og við byggjum i þjóðfélagi sem hefði algerlega stöðugt og óumbreytanlegt verðlag”. — Hvort vegur þyngra i bættri fjármálastjórn, auknar álögur eða aukið aðhald í rekstri? „Hvorttveggja hefurhaft mikil áhrif. A siðustu stjórnarárum ihaidsins gerðu tekjur borgar- innar tæpast meira en að duga fyrir rekstrarútgjöldum þannig að borgin var að sökkva i eitt alls- herjar skuldafen. Það má rifja upp að þegar fjárhagsúttektin var gerð á miðju ári 1978 þá vantaði um tvo milljarða króna til þess að borgin gæti innt af hendi þær skuldbindingar sem hún var búin, að taka á sig þá. Þetta jafngildir á núvirði tæplega fimm miljörðum króna. Til að snúa þessari þróun við var óhjákvæmilegt að auka tekjustofna borgarinnar, og þaö má segja að hin aukna skatt- heimta hafi orðiö til þess aö skuldasöfnun var hætt og borgin nær nú að standa i skilum, en aukið aðhald i rekstrinum hefir einnig skilað auknum tekjum”. Aukið aðhald og hagræðing — Hvers konar aðhald áttu viö? „Segja má að það hafi verið framkvæmt með tvennum hætti, annars vegar með þvi að rikt er eftir þvi gengið að þær stofnanir sem sjá fram á að upphafleg fjár- veiting til þeirra dugir ekki til, veröa aö óska eftir sérstakri aukafjárveitingu sem þá er metin, miðað viö þau verkefni sem stofnunin hefur við að glima. Þaö er þvi ekkert sem heitir lengur að fara einfaldlega fram úr upphaflegri áætlun. Stofnun sérstakrar fjármáladeildar hjá börginni hefur einnig orðið til þess að auka daglegt aðhald og bæta áætlanagerð stofnana. Hins vegar hafa verið framkvæmd sérstök hagræðingarverkefni hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækj- um borgarinnar. Þessi hagræð- ingarverkefni hafa viðast hvar skilað mjög ánægjulegum árangri, þannig aö saman fer aukin virkni, og þjónusta stofn- unarinnar, hærri laun starfsfólks og lækkaður heildarkostnaöur fyrir borgina”. — Geturðu nefnt dæmi um slikan árangur? „Bæjarútgerð Reykjaikur, sem alltaf var olnbogabarn i valdatið Sjálfstæöisflokksins, er gott dæmi. Þar hefur verið unnið mikið verk við hagræðingu i fisk- iðjuveri og fiskmóttöku sem orðiö hefur til þess að afköst frystihúss- ins hafa stórlega aukist, laun starfsfólks hafa stórhækkað, vinnutimi styst og orðið reglu- bundnari. Þetta þýðir að á þessu ári hefur rekstur Bæjarútgerðar- innar ekki þurft að fá fé úr borgarsjóði, hann stendur undir sér, og framlag borgarsjóös til fyrirtækisins er eingöngu bundið við fjárfestingai; aðallega vegna togarakaupa en einnig litillega i landi. Varðandi hagræöingarverkefn- in aö öðru leyti, á ég von á að borgarstjóri gefi skýrslu um þau innan tiðar og að hún verði þá gerð opinber”. Fjölmargar nýjar stofn- anir á næsta ári — Hefur tekist að draga úr hlut- fallslegum rekstrarkostnaði borgarinnar? „Rekstur borgarinnar þyngist frá ári til árs þar sem stöðugt er veriöaö taka i notkun nýjar stofn- anir og auka þjónustu viö borgar- búa. Það kallar á aukiö húsnæði, fjölgun starfsfólks og annan kostnað sem þvi fylgir. Rekstur- inn dregst þvi ekki saman, þegar á heildina er litið. Til að gefa innsýn i þetta má benda á nokkra þætti sem á næsta ári koma til rekstrar umfram það sem var á þessu ári. Þar er til aö nefna rekstur þriggja nýrra dag- vistarstofnana, rekstur nýrrar heilsugæslustöðvar i Borgar- spitalanum, rekstur nýrrar sund- laugar i Breiðholti, rekstur nýs útibús Félagsmálastofnunar i Austurbæ og rekstur nýs æsku- lýðsheimilis inni I Sundum sem kom I gagnið siðla þetta ár. Auk þess kallar sifelld lenging gatna- og holræsakerfis borgarinnar á »- ” - : - £ ' ' „ ; Slfellt er verið að auka þjónustu við borgarbúa og við það þenst rekstur borgarbáknsins út. A næsta ári bætast við reksturinn þrjár nýjar dag- vistarstofnanir, heilsugæslustöð og sundlaug i Breiðholtinu, svo dæmi séu nefnd. Rœtt viö Sigurjón Pétursson, forseta borgarstjórnar aukið viðhald frá ári til árs. Ég gæti nefnt fleiri dæmi, eins og t.d. starfslaun til listamanns sem frá 1. nóvember n.k. verður fastur út- gjaldaliður borgarinnar, landa- kaup i Selási og Reynisvatnslandi o.f 1., en þetta gefur visbendingu um hvernig reksturinn eykst og þenst út frá ári til árs”. — Hvernig er útlitið fyrir næsta ár og næstu fjárhagsáætlun? „Vinna viö fjárhagsáætlun næsta árs er nú að hefjast og stofnanir eru að skila inn sinum tillögum og áætlunum. Eins og ég gat um, bætast við á næsta ári ýmsar nýjar stofnanir sem kalla á aukið rekstrarfé, þannig að minna verður eftir til almennra framkvæmda. Eigi aö siður sýnist mér að ef ekki veröur slakað á i þvi aðhaldi sem upp hefur veriö tekið og komi ekki til af hálfu stjórnvalda nýjar kvaðir á sveitarfélögin, — þá muni verða hægt að halda uppi eðlilegum 'f m * Skuldasöfnun hætt og miklar breytingar í stiórnun Borgarstjórinn i Reykjavik er nú ekki allt i senn, pólitlskur oddviti meirihluta og æðsti embættismaður borgarinnar, heldur er hann framkvæmdastjóri borgarkerfisins og hefur það að fullu starfi. Þessi mynd er tekin af Agli Skúla Ingibergssyni, borgarstjóra, I ræöustól ( borgarstjórnarsalnum. framkvæmdum og rekstri á næsta ári með óbreyttum tekju- stofnum.” Margt breytt í stjórnun borgarinnar — Þú minntist á aðhald og hag- ræðingu, en hvað með meiri háttar uppstokkun á kerfinu, sem margir höfðu búist við?; „Stjórnkerfisbreyting hefur engin átt sér stað, enda er nær ómögulegt að gera hana nema i tengslum við borgarstjórnar- kosningar. Nú hefur þó verið skipuð stjórnkerfisnefnd til að gera tillögur um breytingar og ég vænti þess að þar muni koma fram okkar vilji til að auka og virkja lýðræðið i borginni. Þó stjórnkerfisbreyting hafi ekki verið gerð, þá hafa orðið margar og veigamiklar breyt- ingar i stjórnun borgarinnar og þær hafa haft mikil áhrif. Þar vil ég fyrst til nefna að nú er það af sem áður var.að æðstu embættis- menn borgarinnar séu a 11 - ir flokksbundnir Sjálfstæðis- flokksmenn. Þetta tel ég þýðingarmikið vegna þess aö þegar saman fór áður meirihluta- aðstaða eins flokks og það að allir lykilembættismenn tilheyröu þessum sama stjórnmálaflokki, þá skorti i kerfinu alla innri gagn- rýni. Þetta hverfur ekki við það eitt að nýr pólitiskur og kjörinn meirihluti borgarfulltrúa kemur til, heldur hverfur þaö alfarið um leið og allir embættismennirnir aðhyliast ekki lengur einn og sama flokkinn. 1 þessu sambandi skiptir einnig miklu máli að borgarstjórinn i Reykjavik er nú ekki lengur allt i senn, pólitiskur oddviti meiri- hlutans og æösti embættismaður borgarinnar, heldur er hann ein- göngu framkvæmdast jóri borgarkerfisins og hefur það að fullu starfi, enda teljum viö að ekki veiti af. Mörg önnur atriði mætti nefna, sem hafa haft veruleg áhrif á breytta stjórnun i borginni. Kosning sérstaks framkvæmda- ráðs sem hefur yfirstjórn meö verklegum framkvæmdum þýðir að nú fjalla pólitiskt kjörnir full- trúar i raun i fyrsta skipti um það mikla svið sem verklegar fram- kvæmdir borgarinnar eru. Bein aðild starfsmanna að stjórnum Þá má einnig nefna aö nú i fyrsta sinn eiga starfsmenn borgarstofnana beina aöild að stjórn þeirra margra hverra, sem þýðir að tengsl starfsmanna og stjórnar hafa batnaö verulega. Þá hafa verið settar reglur um verklok aldraðra starfmanna, sem milda mjög þau erfiðu tima- mót þegar menn veröa að yfir- gefa sitt starf fyrir aldurs sakir. Hér mætti lika nefna til reglur um úthlutun byggingalóða hjá Reykjavikurborg en sú úthlutun var áður eins og öllum Reykvik- ingum var fullkunnugt um, ákaf- lega tengd kunningsskap eða þvi sem almennt hefur verið kallað á islensku klikuskapur og höfðu menn þvi mismikla aðstöðu og mismikið vald i þessum efnum. Þessar breytingar hafa gerst smám saman i okkar stjórnartíð, og hávaðalaust að mestu, enda eru þær allar til bóta, og áfram veröur haldið á þessari braut.” Klikuskapur eða reglur, — hvort vilja menn? — Að lokum, Sigurjón, Davið Oddsson kallar lóðaúthlutunar- reglurnar „lóðah a ppd ræ tti Reykjavikurborgar”. Hvernig hafa þessar reglur reynst? „Þessi nafngift Daviðs lýsir náttúrlega þvi einu að borgarfull- trúinn hefur engan skilning á þvi hvað eru reglur og hvað er happ- drætti. Þveröfugt við happdrætti þá er lóðaúthlutunin engri til- viljun háð, heldur eingöngu þvi hvaöa rétt menn hafa til lóöar i Reykjavik, óháö skoöunum eða kunningsskap Þvi fer fjarri að ég haldi þvi fram aö þessar reglur séu gallalausar. Þær hafa verið endurskoðaðar einu sinni og þá gerð á þeim nokkur breyting og þær veröa endurskoðaðar aftur nú i haust og að öllum likindum enn geröar á þeim breytingar. En þrátt fyrir þá galla sem fram hafa komið á lóðaúthlutunar- reglunum, þá hafa þær alltaf og i öllum tilvikum reynst betur en það handahóf og klikuskapur sem áöur rikti i lóðaúthlutunum. Við- brögð Sjálfstæðismanna við þessum reglum hafa bent mjög eindregiö til þess að þeir vilji af- nema þær og taka aftur upp gamla fyrirkomulagið. Það er rétt að hver Reykvikingur svari þvi fyrir sig, — hvort hann kýs heldur að öðlast rétt til lóöar samkvæmt ákveðnum reglum eöa ganga auðmjúkur með betli- staf til ráðamanna þegar hann þarf á lóð að halda. ég er ekki i vafa um aö þorri borgarbúa kýs fyrri kostinn”, sagði Sigurjón Pétursson. —Al á dagskrá Giftum aðila, sem hefur orðið fyrir þeirri ógæfu, að maki hans fatlast algjörlega, er þannig hegnt, með þessari tekjumillifærslu, þ.e.a.s. hann er látinn greiða niður tekju- tryggingu hins fatlaða maka síns. Kjaramál öryrkja Þar sem mér hefur fundist þaö einróma álit allra þeirra sem komið hafa nálægt yfirstandandi kaup- og kjarasamningum, að nú verði laun þeirra lægstlaunuðu fyrst og fremst aö hækka, þvi á þeim geti enginn lifaö i dag, — þá langar mig að koma á framfæri Elli og örorkulifeyrir Tekjutrygging........ Heimilisuppbót kr. 34.247 fær einstaklingur til viðbótar þessu, þvi aöeins, að hann hafi óskerta tekjutryggingu og njóti ekki hag- ræöis af sambýli við annan. Hjón njóta 90% af elli- og örorkulifeyri tveggja einstak- linga. Til samanburðar þessum tölum skulum við taka laun samkv. nýgerðum kjarasamningi BSRB og fjármálaráðuneytisins samkv. 1. launafl. 3. þrepi. Einnig skulum við hafa i huga, að þó að lágu launin i þessum samningi hefðu forgang og hækkuðu mest, þá lýstu fjármála- ráðherra og form. BSRB þvi oft Lifeyrir einhleypings er .. Lifeyr. sama m/heim.uppb Lifeyrir hjóna ........... Skyldu nú öryrkjar vera of- saddir af þessum lifeyri þessa mánuði? Ætli þeim gangi vel að láta endana ná saman, eins og kallaö er, ef þess er nú gætt i leiðinni, að stór hópur þeirra hefur engar aörar tekjur en þessar? Margir þeirra hafa sára- litla eða enga möguleika á þvi að auka tekjur sínar með miklu vinnuálagi, svo sem yfirvinnu, premium, bónus og þvi um líku, eins og það fólk raunar bjargar sér á, sem tekur laun samkvæmt þeim launaflokki sem ég miða við. Auk þessa vil ég nefna eitt atriöi sem aldrei er tekiö meö i reikninginn, en það er aö heilbrigt fólk vinnur sjálfu sér heilmikiö og drýgir þannig tekjur slnar I raun, með þvi t.d. að gera við og mála híbýli sln eöa ditta að bifreið eftir vinnutima, aö við minnumst nú ekki á vinnu fólks við eigin ibúö, þegar þaö er að reyna að eignast þak yfir höfuðiö. Þetta geta öryrkjar einfaldlega ekki, heldur veröa þeir að kaupa þessa þjónustu fullu verði frá öðrum. Þar sem ríkisstjórnin gekk nú á undan aö þessu sinni með samningum við opinbera starfs- menn, og þeir samningar voru látnir taka gildi 1. ágúst, hefði það þá ekki talist eðlilegt og sann- gjarnt, að launakjör þeirra allra lægstlaunuðu allra láglauna- manna, þ.e.a.s. bætur almanna- trygginga, heföu verið hækkaðar frá sama tima að minnsta kosti til samræmis við samningana, I stað þess að hækka þær aöeins um veröbótavlsitölu frá 1. septem- ber? Eöa var litið svo á að þessi hópur væri svo vel haldinn, að honum nægðu veröbættar gömlu greiöslurnar i september, októ- ber, og jafnvel nóvember, ef ekki tækjust samningar á hinum al- menna vinnumarkaði fyrr? Þar sem kjarabætur i hinum nokkrum atriðum varðandi launakjör öryrkja, og um leið elli- lifeyrisþega, en bætur til þeirra eru i dag, 20. okt. sem hér segir, eftir að hafa verið hækkaðar um verölagsuppbót 8,57% frá 1. september: Einstaklingur: Hjón: . Kr. 99.792 Kr. 179.626 . Kr. 96.248 Kr. 162.711 Kr. 196.040 Kr. 342.337 yfir, að af þeim væri enginn of- saddur. Umrædd laun eru i ágústbyrjun kr. 302.209, en hækka siðan um kr. 14.000, þar sem samningarnir tóku gildi frá 1. ágúst og verða þvi kr. 316.209. Ofan á þetta koma svo verðlagsbætur 1. sept. 8.57% og eru þvi launin kr. 343.308 frá þeim tima. Til frekari glöggvunar er best aö geta þess, aö ef fiskvinnslu- taxti samkvæmt hinum almennu kjarasamningum væri hækkaöur með sama hætti þá væri hann I dag kr. 337.188. Samanburðurinn lltur þvl þannig út nú: .. 196.040 eða 57,10% af kr. 343.308 .. 230.287 eða 67.08% afkr. 343.308 .. 342.337 eöa 99,72% af kr. 343.308 nýja kjarasamningi við BSRB fólust, auk launahækkunar, m.a. i tilfærslum og leiöréttingum innan samningsins, svo og I félags- legum réttindabótum, þá langar mig einnig til að vekja athygli á nokkrum sllkum atriöum, sem snerta hagi öryrkja, og kveöiö er á um I lögum nr. 67/1971 um almannatryggingar og tilheyr- andi reglugerðum. 1.111. grein laganna segir „Llf- eyrir hjóna sem bæði fá lífeyri, skal nema 90% af lifeyri tveggja einstaklinga.” Liklega er þessi skerðing sett á vegna þess hagræðis sem hjón hafa af þvi aö búa saman. Þó viröist svo sem þetta hagræði hafi farið vaxandi, þ.e. ef við skoðum tekjutrygginguna þá njóta hjón nú aöeins 84,53% af tekjutr. tveggja einstaklinga. Hvergi veit ég til þess aö umrætt sambýlis- hagræöi sé metið þannig til launalækkunar, og spur þvi: Má ekki þessi grein falla niður úr lögunum, þannig að hjónafólk fái notiö óskerts einstaklingslif- eyris? Ef mönnum finnst þetta hinsvegar réttmæt skerðing, hafandi I huga allt jafnréttistal, þá mætti ef til vill spyrja: Er ekki hægt að leysa kjaradeilurnar og ef til vill verðbólguna I leiðinni meö þeirri staðhæfingu, að lækka megi laun á giftu fólki, á hinum almenna vinnumarkaði, um 10% hjá hvoru fyrir sig, vegna þess hagræðis og þess sparnaöar sem af sambýlinu hlýst? 2. I 12. gr. laganna eru greind þau skilyrði, sem fyrir hendi þurfa að vera, svo maður öðlist rétt til örorkulifeyris, og segir þar orörétt: „b. séu öryrkjar á svo háu stigi, aö þeir eru ekki færir um að vinna sér inn i/4þess, sem andlega og llkamlega heilir menn eru vanir að vinna sér inn I þvl héraöi” o.s.frv. Getur það virkilega talist rétt- lætanlegt að setja manni sem metinn hefur verið 75% öryrki vegna þess likamlega og félags- lega skaða sem hann hefur orðiö fyrir, svo þröngar skoröur, aö hann megi ekki geta unniö sér inn meira en 1/4 af launum fullfrlsks manns, nema eiga á hættu aö felldur verði niður grunnllfeyrir hans? Lífeyri sem nú er kr. 99.792 á mán. og gerir ekkert meira en að bæta honum upp, aö einhverju leyti, þann aukakostnaö sem fötl- unin sjálf hefur I för með sér. Mætti þvi ekki þessi tekjuvið- miðun falla niöur? 3. I reglugerð nr. 116/ frá 29. mars 1974 um úthlutun örorku- styrkja segir I 1. gr. 4. málslið: „Ekki skal úthluta húsmóður örorkustyrk nema sannaö þyki aö um verulegan aukakostnað sé að ræöa við heimilishaldið, vegna örorku hennar, svo sem aðkeypt húshjálp eða atvinnuleysi maka af þeim sökum.” Þar sem örorkustyrkir eru nú einu sinni heimildarbætur, þá sé ég ekki hvaða þörf er á þvi aö setja þessi sérstöku útilokunar- ákvæði gagnvart húsmæðrum. Enda hlýtur greinin að vera i al- gjörri mótsögn viö hiö svonefnda jafnrétti kynjanna. 4. 1 reglugerð nr. 351 frá 30. sept. 1977 um tekjutryggingu o.fl. samkv. 19. gr. almanna- tryggingalaga, segir svo i 3. gc: „Ný nýtur annaö hjóna elli- eöa örorkulifeyris, en hitt ekki, skal þá helmingur samanlagðra tekna þeirra teljast tekjur lifeyrisþeg- ans” o.s.frv. Hér kemur all furöulegt skeröingarákvæði. Samkvæmt 12. gr. missti öryrkinn rétt til grunnlifeyrisins ef hann gat unnið fyrir 1/4 af launum frlsks manns. Hér fær hann skerðingu á tekjutrygg- ingunni þó hann geti ekkert unniö. Honum eru einfaldlega geröar tekjur af tekjum makans, sem auövitað reynir aö vinna eitthvaö og halda heimilinu á floti, ásamt þvi aö sjá um öryrkjann. Giftum aðila, sem hefur orðið fyrir þeirri ógæfu, að maki hans fatlast algörlega, er þannig hegnt, með þessari tekjumillifærslu þ.e.a.s. hann er látinn greiða niöur tekju- tryggingu hins fatlaða maka slns. Finnst mönnum I rauninni þetta réttlætanlegt skerðingarákvæði? Fleiri atriði ætla ég ekki að tlunda. En þar sem ég er nú maður fatlaður i hjólastól, þá visa ég I framhaldi á samþykktir 20. landsþings Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, sem birtar eru I ársritinu Sjálfsbjörg 1980, sem selt hefur veriö. Að lokum langar mig til að minnast hér á alveg óskylt atriöi, en það er auknefni það sem Alþjóðaári fatlaðra 1981 hefur veriögefið,þ.e.a.s. „ALFA áriö”. Ég er raunar hissa á þvl aö hin ýmsu samtök öryrkja skuli ekki vera búin að mótmæla þessu auk- nefni fyrir löngu, þvi þaö kemur nefnilega I veg fyrir aö fólk fái nokkra tilfinningu fyrir tilgangi árslns, er það heyrir þetta orö- skrlpi nefnt. Datt nokkrum t.d. til hugar að kalla hið Alþjóðlega barnaár, „ALBA áriö”? Nei, það held ég ekki. Getur þvl hagræöingin ekki gengið allt of langt? Þaö finnst mér I þessu tilfelli, og vona þvi að menn sjái sóma sinn I þvl að leggja umrætt auknefni niður. Ólafsfirði 20. okt. 1980 Bragi Halldórsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.