Þjóðviljinn - 08.11.1980, Síða 9

Þjóðviljinn - 08.11.1980, Síða 9
i'fft "M,n t- ni’jfsH vr/!iijr/aów — Aaia 8 þeirra verulega lægri aö raungildi en á yfirstandandi ári. d) Aformaö er aö uppgjör innheimtustofnunar sveitar- félaga viö Tryggingastofnun rikisins veröi tiöari en nú er og Tryggingastofnun og rikis- sjóöur veriö ekki fyrir beinum fjárútlátum vegna meölags- greiöslna. e) Veriö er að kanna leiöir til aö draga úr kostnaði viö rekstur tilraunabúa landbúnaðarins. f) Aformaö er aö taka upp þá reglu, aö innheimtumenn rikissjóös skili öllum innheimtum tekjum jafnóöum til rikissjóös en fái fjárveit- ingar úr rikissjóði til reksturs embætta sinna. g) Unnið veröur að endurskipu- lagningu á Bifreiöaeftirliti rikisins meö það fyrir augum aö draga úr kostnaöi viö skoöun bifreiöa i samræmi við álit nefndar sem skilaði tillög- um um breytta starfsemi Bifreiðaeftirlits á s.l. vetri. h) Akvæöi laga um styrki til jarðræktar, framræslu og búfjárræktar verða tekin til athugunar i tengslum við nýja stefnumótun i landbúnðarmál- um. i) Haldið verður áfram úttekt á starfsemi ýmissa rikisstofn- ana, m.a. á rekstri Orkustofn- unar, rekstri Pósts og sima, Jarðvarmaveitna rikisins, Jarðborana rikisins, Rikisút- varpsins og fleiri stofnana. j) Athuga verður um sameiningu stofnana, sem hafa með hönd- um skylda starfsemi, i þvi skyni að draga úr stjórnunar- kostnaði, og á þetta t.d. við um Landmælingar íslands og Sjómælingar Islands, embætti yfirdýralæknis og Sauöíjárveikivarnir. Aukin þjónusta — bætt gœði Sparnaöur og hagræðing i rikis- kerfinu er fyrst og fremst nauðsyn til að unnt sé að auka félagslega þjónustu rfkisins og bæta gæði hennar án þess að hækka þurfi skatta. Þær aöhaldsaðgerðir sem i frumvarpinu felast skapa svig- rúm til að auka við á öðrum sviöum, og verða hér nefnd örfá dæmi að endingu: Heilbrigðisþjónustan er aukin og efld með ýmsum hætti, sbr. rekstur Geðdeildar Lands- spitalans og miklar framkvæmd- ir á þessu svið. Aðstoð við þorskahefta er verulega aukin og m.a. hækkar framlag til Framkvæmdasjóðs öryrkja og þroskaheftra milli ára um 90%. Félagslegar ibúöarbyggingar fá sérstakan forgang og framlag til Byggingarsjóðs verkamanna hækkar úr 500 miljónum króna i 7500 miljónir króna. Tekjutrygging öryrkja og aldr- aðra hækkar um 10% á einu ári til viðbótar við hækkanir af völdum verðlagsbreytinga. Lánasjóöur islenskra náms- manna fær fjármagn til að brúa 90% af umframfjárþörf náms- manna i stað 85% sem verið hefur um mjög langt skeið og tekur þessi hækkun raunar gildi þegar i haust. Framkvæmdir i vegamálum voru auknar um 50% með f járlög- um 1980 og verður leitast við að halda þeirri sókn áfram, en framkvæmdir i vegamálum drógust gifurlega á siðari hluta seinasta áratugs. Rafmagnsveitur rikisinsfá 1500 milj. kr. framlag úr rikissjóði sem ætlað er til að bæta f járhags- stöðu fyrirtækisins og jafna raforkuverði i landinu. Miklar orkuframkvæmdir, virkjanir, hitaveitur, linulagnir og rannsóknir einkenna framkvæmdaáætlun opinberra aöila. Framlög til lista eru verulega aukin i þessu frumvarpi annaö áriö i röð i samræmi við þá stefnu * rikisstjórnarinnar að hlúa að innlendri lista- og menningar- starfsemi. Liðurinn „listir, framlög” hækkar úr 480 miljón- um króna i fjárlögum ársins 1980 i 859 miljónir króna i þessu frumvarpi eða um 79%. Helgin 8.-9. nóvember 1980 ÞJÓDVILJINN — SIDA 9 Reagan og stjömu- spárnar Þegar Ronald Reagan, nýkjör- inn forseti Bandarikjanna, var fyrst kosinn rikisstjóri I Kaliforn- iu vakti það athygli að innsetn- ingarathöfnin var ákveðin 2. janúar 1967 ki. 0.10 eftir miðnætti. Þetta vakti að sjálfsögðu mikiö umtai og sumir töldu að hann hlyti að vera á valdi stjörnuspek- inga. „Hann trúir alls ekki á stjörnu- spár”, sagöi blaöafulltrúi Reagans vegna umtalsins. „Hann ráöfærir sig ekki viö stjörnuspek- inga og er ekki undir áhrifum frá stjörnumerkjunum. Viö álitum ekki heldur aö hann muni hafa stjörnusjónauka á stjórnarskrif- stofunum.” En þá voru allir búnir aö stein- gleyma — jafnvel Reagan sjálfur — eftirfarandi klausu á bls. 249 i sjálfsævisögu hans, sem haföi komiö út nokkrum árum áöur: „Einn af ágætum vinum okkar er stjörnuspekingurinn Caroll Richter. Hvern morgun heimsótt- um við Nancy hann til þess aö fá vitneskju um hvaö stjörnurnar segöu.” Lætur Ronald Reagan stjörnuspá segja sér fyrir verkum? Mámdísir eftir Mary Stewart Út er komin skáldsagan Mána- disirnar eftir breska höfundinn Mary Stewart. Þetta er fimmta saga hennar sem út kemur á is- lensku. Hinar heita: t skjóli nætur, örlagarikt sumar, Tvifar- inn og Kristalshellirinn. Efni nýju sögunnar, Mánadis- anna, er kynnt svo á kápubaki: „Þessi saga gerist á Krit. Ung kona, Nikola Ferris, er þar á ferð og af tilviljun kemst hún i kynni viö tvo unga Englendinga. Þeir verða að faru huldu höfði eins og veiðidýrin þvi aö þeir hafa komist á snoðir um atburöi sem ekki máttu vitnast. Lif þeirra er i hættu. En getur Nikola oröiö þeim aö liöi....? Mánadisirnar þýddi Alfheiöur Kjartansdóttir. Bókin er 214 blað- siður. Sendum um allan heim! til að minna á að ... Núer rétti tíminn til að láta Rammagerðina ganga frá jólasendingum til vina og ættingja erlendis Allar sendingar tryggðar k RAMMAGERÐIN / \____________ Hafnarstræti 19 FURUHUSGÖGIM falleg og sterk Einsmannsrúm Hjónarúm Veggsamstædur 4 mism. einingar Sófasett Sófabord Skrifborö Kommóöur Hornskápar Kistlar Borðstofubord og stólar Eldhúsbord og bekkir íslensk hönnun og framleidsla. Selt af vinnusta^. Húsgagnavinnustofa n _ Smiðshöfða 13. Braga Eggertssonar simissiso

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.