Þjóðviljinn - 08.11.1980, Qupperneq 29

Þjóðviljinn - 08.11.1980, Qupperneq 29
Helgin 8.-9. nóvember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 29 um hclgina Aðstandendur sýningarinnar eru þarna að skoða förukonu, sem lika gæti heitið furukona. Ljósm. —eik— Sýning á tréskurði •t kjallara Iðnaðarhússins við Hallveigarstig verður i dag opnuð sýning á útskornum munum úr tré. Iðnaðarmanna- Célagið i Reykjavik átti hug- myndina að þessari sýningu og fékk til liðs við sig samstarfs- nefnd um Ar trésins, enda er sýningin hugsuð sem einskonar endahnútur á þá kynningar- starfsemi sem fram hefur farið á ári trésins. Margir eiga muni á sýningunni, bæði lærðir og leik- menn, og má þar nefna t.d. listamennina Asmund Sveins- son og Sigurjón Ólafsson. A sýningunni kennir ýmissa grasa, bæði af nytjalist og skúip túr. Munirnir á sýningunni eru talsvert á annað hundrað tals- ins, og að sögn forráðamanna hennar safnaðist meira af mun- um en hægt var að koma fyrir i salnum. Sýningin verður opin kl. 4-10 virka daga og kl. 2-10 um helg- ar. Henni lýkur 24. nóvember. ih. „The Platters” í Háskólabíói Hinn heimsfrægi sönghópur „The Platters” ásamt hljóm- sveit Jimmy Saharas halda tón- leika i Háskólabiói á mánudags- kvöldið, 10. nóv. kl. 21. Þetta tónlistarfólk er hingað komið fyrir tilstilli Þorsteins Viggó- sonar, og er Islandsferðin liöur I hljómleikaför um Norðurlönd. Forsöngvari The Platters er Herb Reed, en aðrir i hópnum eru: Regina Shearer, Nate Nel- son, Robert Moore og Duke Daniels. Forsala aðgöngumiða ogupplýsingar eru i versluninni Moons, simi 29030. — ih Stórmarkaður og vöflukaffi Kvennadeild Skagfirðinga- ilagsins i Reykjavik heldur órmarkaö og vöfflukaffi i rangey, Skagfirðingaheim- inu að Siöumúla 35, nú um helgina. Idag veröur opnaökl. 3 og á morgun kl. 2. Ágóðinn rennur til Sögufélags Skag- firðinga. — ih Tryggvi í Landlyst Tryggvi Ólafsson sýnir i Landlyst, Vestmannaeyjum, um þessa helgi. Sýningin var opnuð á fimmtudaginn og henni lýkur annaö kvöld. Hún er opin kl. 14-22 i dag og á morgun. A sýningunni eru 17 verk, 10 málverk unnin með acryllitum á léreft og 7 klippimyndir. Flest eru verkin unnin á siðastliðnu sumri. —ih FRÍM ’80 Mánudagurinn 10. nóvember er Dagur frimerkisins. 1 ár halda frimerkjasafnarar upp á 20 ára afmæli þessa dags, og af þvi tilefni stendur nú yfir stór frimerkjasýning að Kjarvals- stöðum, „FRIM 80”. Sýningin var opnuð á fimmtu- daginn og stendur til mánu- dagskvölds. Hún verður opin kl. 2-8 i dag, laugardag, og kl. 2-10 á morgun og á mánudaginn. Hægt er að fá stimplað alla sýningar- dagana, en á mánudaginn verður sérstakur stimpill fyrir Dag frimerkisins. Það er Félag frimerkjasafnara i Reykjavik sem stendur fyrir sýningunni. Meðal sýningargripa eru mörg sjaldgæf og gömul umslög úr bréfasafni Þjóðminjasafnins, auk frimerkja sem félagsmenn eiga. -ih. Og Jóhann í Félagsbíói Magnús og Jóhann halda hljómleika ásamt Graham Smith fiöluleikara i Félagsbiói i Keflavik I kvöld, laugardags- kvöld kl. 9. Þetta eru fyrstu hljómleikar sem þeir félagar halda i nokkur ár, en þeir eru báðir frá Keflavík. Flutt verður efni af nýútkominni plötu þeirra ásamt öörum lögum, bæði gömlum og nýjum. — eös að Kjarvalsstöðum Refilsaumur og augnsaumur ívar í r Asmundarsal Skúlptúrar og málverk 1 kvöld opnar Ivar Valgarðs- son sýningu á verkum sinum i Ásmundarsal á Skólavöröuholti. Ivar lauk prófi frá Myndlista- og handiðaskóla tslands 1975 en stundaði siðan framhaldsnám i Hollandi. Þetta er fyrsta einka- sýning hans, en hann hefur tekið þátt i mörgum samsýningum frá þvi 1974, nú siðast á Experi- mental Environment II að Korpúlfsstöðum. Sýningin i Asmundarsal samanstendur af 5 verkum, skúlptúrum og málverkum, sem mynda heild i landslagsformum og litum. Sýningin verður opin daglega frá kl. 4-9, henni lýkur 17. nóvember. Magnús 2x5 aura Chr. IX Sent frá HafsteinastöCum Eitt af gömlu umslögunum úr bréfasafni Þjóðminjasafnsins, stilað á Tryggva Gunnarsson bankastjóra. Ljósm. -eik-. tgær var opnuð á vesturgangi Kjarvalsstaöa sýning á Islensk- um heimilisiðnaði. Það er Heimilisiönaðarfélag tsiands sem sýninguna heldur, en hún var sett upp I Tromsö I Noregi f sumar. A sýningunni eru sýnishorn af gerð hins forna islenska refil- saums og augnsaums, og eru verkin bæöi ný og gömul. Til- efnið er, að sögn forráðamanna Heimilisiönaöarfélagsins, að vekja athygli á þessum fornu Is- lensku saumum. Nýrri verkin á sýningunni eru ýmist saumuð eftir munstrum af Þjóöminjasafninu eöa sér- staklega teiknuð, einsog t.d. það sem hér birtist mynd af: Vorkoman, sem Anna Höskuldsdóttir prestsfrú að Reynivöllum i Kjós saumaöi eftir teikningu Sigrúnar Guð- jónsdóttur (Rúnu). —-ih Gunniaugur Stefán Gislason opnar f dag sýningu i FlM-saln- um, Laugarnesvegi 112, og verður hún opin til 23. nóv., kl. 14-20 virka daga og kl. 14-22 um helgar. Þetta er önnur einkasýning Gunnlaugs, en sú fyrri var i Norræna húsinu 1977. Auk þess hefur hann tekið þátt i fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Gunnlaugur er fæddur árið 1944 og nam við Myndlista- og handiðaskólann, þar sem hann starfar nú sem kennari. Að sögn Gunnlaugs hefur hann á undanförnum árum ein- göngu unnið vatnslitamyndir, og þá ósjaldan leitað fanga i þeim forgengileika, sem birtist okkur m.a. i gömlu amboði eða öðrum ummerkjum um það lif, sem lifað var. ih. Handavinnusala á Hrafnistu Vistfólk á Hrafnistu efnir til sölu á munum sem það hefur sjálft unnið i dag, laugardag,og hefst hún kl. 13.30 I matsal starfsfólks á jaröhæð Hrafnistu (gengið inn aö vestanveröu). Þar verður hægt að kaupa marga góða og nytsama hluti: sokka, vettlinga, peysur, dúka, púðaosfrv. — ih Gunnlaugur í FÍM-salnum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.