Þjóðviljinn - 03.02.1981, Síða 3

Þjóðviljinn - 03.02.1981, Síða 3
Þriðjudagur 3. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Nýjung hjá kaup félögum t dag taka kaupfélögin upp nýtt fyrirkomulag með afsláttar- og tilboðsvörur. Standa rökstuddar vonir til að það muni leiða til verulegrar og varanlegrar lækk- unar vöruverðs i matvörubúðum þeirra. Hefur starfsemi þessari veriðgefiðnafnið: GRUNNVARA A GRUNNVERÐI. Við spurðum örn Ingólfsson hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga að þvi i hverju þetta nýja fyrirkomulag væri fólgið og á hverju kaupfélagsmenn byggðu þær von- ir sinar, að geta lækkað vöruverð- ið. — Það er kannski rétt að benda fyrst á það, sagði örn, — að áður vorum við með vörur á svonefndu tilboðsverði. A þeim vörutegund- um voru hinsvegar nokkuð ör skipti, sem leiddu af sér, að magn hverrar vörutegundar, yfir lengri tima, var minna. Með þvi að taka ákveðnar vörutegundir út úr og halda sig við þær, opnuðust möguleikar á hagkvæmari inn- kaupum vegna þess, að meira var keypt i einu og einnig náðust betri samningar við skipa- og trygg- ingafélögin. Að þessu höfum við verið að vinna siðan i okt.-nóv. i fyrra og árangurinn orðið umtalsverður. Svo við tökum eina vörutegund sem dæmi þá höfum viö veriö með strásykur i 2ja kg. pakkningum á kr. 21,20. Nú er verðið kr. 16,95. — Hverjar eru þessar „grunn- vörutegundir”? — Þær eru sykur, 6x2 kg og 10 kg., hveiti, 5x5 og 10x2,5 kg., hafragrjón, grænmeti, epli, appelsinur, rauðkál, tekex, kex, saltkex, eldhúsrúllur, wc-pappir ljósaperur, þvottalögur, þvotta- -vam -verf) efni og smjörliki. Ef I ljós kemur, aö við höfum að einhverju leyti ekki valið réttar vörutegundir, þá verður vörulistinn endurskoð- aður. Við gerum okkur vonir um það, sagði örn Ingólfsson, — að þetta muni leiða til umtalsverðrar lækkunar á matarreikningi þeirra, sem við kaupfélags- búðirnar skipta, félagsmanna sem annarra. — mhg Taka fóstrur samningamálin i eigin hendur? Kjararáðstefna um næstu helgi Hafa sagt upp í stærstu bæjunum Um næstu helgi halda fóstrur kjaramálaráðstefnu þar sem m.a. verðurrætt um þá stöðu sem upp er komin eftir að fóstrur i öllum fjölmennustu byggðar- lögum landsins hafa sagt upp störfum. Sagði Kristin Kvaran formaður Fóstrufélags íslands i gær að á ráðstefnunni yrði einnig rætt um samræmingu á kjörum og launakröfum fóstra og reifaðar hugmyndir um að Fóstrufélagið taki sjálft við gerð sérkjarasamninga, sem nú eru i höndum starfsmannafélaga við- komandi sveitarfélaga. Kjör og kröfur fóstra i stærstu bæjarfélögunum eru mjög mis- munandi. Sem dæmi má nefna að fóstrur á Akureyri hafa siðustu árin byrjað i 11. launaflokki meðan fóstrur i Reykjavik byrjuðu i þeim 10. Sérkjarasamn- Manntalið gekk vel Mjög fáir neituðu að svara Manntalinu árið 1981 er að mestu lokið og gekk vel að sögn Klemensar Tryggvasonar Hag- stofustjóra. Enn er eftir að ná til hluta Reykvfkinga sem ekki voru heima þegar teljarar börðu upp á, en siðar I vikunni verður haft samband við það fólk. Klemens sagði að samkvæmt þeim upplýsingum, sem honum hefðu borist.hefði allt gengið vel, einkum úti á landi, þar sem taln- ing hófst á laugardag. Það hefði komið i ljós að sums staðar þyrfti að bæta úr gloppum og þaö yrði gert. Mestu skiptir að fá upplýs- ingar um það hvar fólk var niður- komið og skráð á sjálfan mann- talsdaginn 31. janúar. Klemens sagði aö það hefðu margir kvartað yfir spurningun- um á eyðublöðunum, en þegar á reyndi væru mjög fáir sem neit- uðu að svara. Mikill kostnaður hefur verið lagður i' manntaliö. A fjárhags- áætlun Reykjavikurborgar voru 75 milj. gkr. ætlaðar til skráningarinnar og þvi er mikil- vægt að vel takist til. — ká. íngarnir sem Starfsmannafélag Reykjavikur geröi i byrjun þessa árs tryggja fóstrum byrjun i 11. launaflokki meðan fóstrum á Akureyri er boðinn 12. og 13. launaflokkur og fóstrum i Kópa- vogi sá 12. Kröfur fóstra i Reykja- vik og Kópavogi eru að fá byrjunarlaunskv. 13. launaflokki, færast i 14. eftir tvö ár og i 15. eftir 4 ár. Fóstrur á Akureyri krefjast þess aftur á móti að taka byrjunarlaun i 14. launaflokki. Á ráðstefnunni sem haldin verður i húsnæði BSRB 7.,8. og 9. febrúar verður þessi munur ræddur með það fyrir augum að móta samræmda stefnu. Sagði Arna Jónsdóttir annar tveggja ráðstefnustjóra að fyrirlesarar bæði utan og innan BSRB myndu á ráðstefnunni ræöa starfsemi stéttarfélaga og fagfélaga eins og Fóstrufélagsins sem á enga aðild að gerð kjarasamninga. Eins og skýrt var frá i Þjóð- viljanum fyrir helgi hafa fóstrur i Reykjavik, Kópavogi, Hafnar- firði, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Akureyri nú lausa samninga. Fóstrur á Akureyri frestuðu upp- sögnum, sem koma áttu til íram- kvæmda 1. febrúar s.l.,um óákveðinn tima. Fóstrur i Kópa- vogi fjölluðu á fundi sinum i gær um tilboð bæjarins um 12. launa- flokk en þær geta hætt störfum eftir 4 vikur. Fóstrur i öörum bæjarfélögum sögðu upp frá 1. febrúar og koma uppsagnirnar til framkvæmda eftir 3 mánuði ef bæjarfélögin notfæra sér ekki þann rétt sinn að framlegja frest- inum um þrjá mánuði til við- bótar. Borgarráð Reykjavikur sam- þykkti I siöustu viku breytta Kristin Kvaran, formaður Fóstrufélags tslands. Ljósm. — gel—. vinnutilhögun fóstra utan kjara- samninga og fá þær nú tvo tima á viku i undirbúningsstörí. Eru fóstrur að sögn örnu Jónsdóttur ánægðar með þá niðurstöðu mála sem þó hefur engin áhrif á upp- sagnir þeirra sem byggjast á óánægju með launaflokkana. Til glöggvunar á þessu dæmi og kröfum fóstra er hér launatafla BSRB um þá flokka sem um ræðir. Fremst eru byrjunarlaun, næst eftir tvö ár og þriðji flokkur miðast við 5 ára starf eða 32ja ára aldur: 11. 4.679 5.050 5.240 12. 4.865 5.240 5.432 13. 5.050 5.432 5.623 14. 5.240 5.623 5.814 15. 5.432 5.814 6.006 —AI Síðustu fréttir: Seint i gærkvöldi fregnaði Þjóð- viljinn eftir áreiðanlegum heim- ildum að fóstrur hafi ákveðið að una ekki nýgerðum sérkjara- samningi. Allt útlit er þvi fyrir að þær gangi út af vinnustöðum hinn 20. febrúar nk., veröi ekki orðið við kröfum þeirra. 35 UTSO LUMARKAÐUR Skúlaaötu 30, (hús J. Þorláksson & Norðmann) Verð kr. 99.- Mikið úrval af Buxum - peysum — úlpum — jökkum skyrtum — bolum — o fl. o.fl. Stórkostleg verðlækkun Póstsendum Vinnufatabúðin Verð kr. 99 Laugavegi 76,simi 15425 Hverfisgötu 26/ simi 28550

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.