Þjóðviljinn - 13.02.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.02.1981, Blaðsíða 16
NOÐVIUINN Föstudagur 13. febrúar 1981 I Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i afgreiðslu blaösins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsímf afgreiðslu 81663 Stokkseyri-Eyrarbakki: Þegar blaöamaöur og ljósmyndari frá Þjóöviljanum brugöu sér austur i Hveragerði á dögunum mættu þeir þessum görpum rétt fyrir ofan Varmána. Tveir þeirra, Halldór Asgeirsson og Guð_- mundur Sigurðsson (situr á sieðanum) voru á leið upp I fjall að prófa sleðafærið, en sá með handklæðið undir handleggnum, Guðmundur Nielsson, hugðist fá sér sundsprett i iauginni við l.augarskarð. Mynd: —eik. i Utgerðarfyrirtœkið telur sig ekki hafa efni á því að láta skipið landa hér á landi allra versta móti siðan I haust og er ástæðan sú að togarinn sem hreppar þessara bæja ásamt Sel- fyssingum eiga, Bjarni Herjólfs- son, hefur verið iátinn landa afla sinum erlendis. Að sjálfsögðu var togarinn keyptur á sinum tima til að auka á atvinnuöryggi Ibúa þessara bæja, en útgerðarfyrir- tækið Arborg h.f. segir fjárhags- stöðu togarans með þeim hætti að hann verði að sigla með aflann, þar eð hærra verð fæst fyrir hann ytra en hér heima. Björgvin Sigurðsson á Stokks- eyri sagði að atvinnuástandið þar hefði verið með allra versta móti i haust. Það hefði eitthvað skánað eftir að vetrarvertið hófst, en gæftir hefðu verið slæmar hjá Stokkseyrarbátum. Frystihúsið er eins og víðar aðal vinnuveit- andinn á staðnum, en þar sem togarinn hefur siglt með aflann hefur skort hráefni til vinnslu. 1 desember var 60 manns á at- vinnuleysisskrá á Stokkseyri, en um þessar mundir munu þeir vera um 30. Frá Eyrarbakka er svipaða sögu að segja. Kjartan Guðjóns- son sagði að i allt haust og það sem af væri þessu á'ri hefði at- vinnuleysi verið viðloðandi á Bakkanum. Verst hefði ástandið verið i desember en nú væru 13 á atvinnuleysisskrá, flest konur úr frystihúsinu. Astæðuna fyrir at- vinnuleysinu nú sagði Kjartan vera þá fyrst og fremst að togar- inn væri látinn sigla með aflann og eins ætti gæftaleysi hjá ver- tiðarbátum þab sem af væri vetrarvertið sinn þátt I þessu. Sagði Kjartan að útgerðar- aðilar togarans bæru fyrir sig Atvinnuástand á Stokkseyri og Eyrarbakka hefur verið með lón L. Amason skák- melstari Reykjavíkur slæmri fjárhagsstöðu hans og að þeir fái ekki þá fyrirgreiðslu, sem þeir hafi farið framá til að leysa fjárhagsvanda hans. Sagði Kjartan augljóst að þetta ástand myndi keðjuverka. Minni atvinna þýðir vitaskuld minna útsvar til hreppanna, sem aftur á móti hefðu lagt fram stór-fé úr fátæk- legum sjóðum sinum i þennan togara og þau fjárútlát orðið til þess að minnka opinberar fram- kvæmdir á þessum stöðum, sem aftur þýddi enn minni atvinnu. — Hór verður eitthvað að gera i þessu máli ef ekki á illa að fara, sagði Kjartan Guðjónsson að lok- um. Þjóðviljanum tókst ekki að ná tali af Asgrimi Pálssyni fram- kvæmdastjóra útgerðarfélags togarans i gær, þrátt fyrir itrek- aðar tilraunir. — S.dór Stööugt fundað hjá sáttasemjara Miöar heldur hægt ar frestað Fundi yfirnefndar verðlags- ráðs sjávarútvegsins, sem halda átti i gærkvöldi, var frestað á sið- ustu stundu til kl. 10.30 i dag. Er fastlega búist við að á fundinum i dag verði nýtt fiskverð endanlega ákveðið, en búist var viö að það kæmi á kvöldfundinum sem fyrir- hugaöur var I gær. —s. dór Frumvarp um frádrátt vaxta- gjalda einstaklinga utan at- vinnurekstrar vegna skattlagn- ingar var samþykkt sem lög frá Alþingi í gær með atkvæðum stjórnarþingmanna og Alþýðu- flokksþingmanna, en breyt- ingartillögur stjórnarandstöð- unnar I Sjálfstæðisflokknum voru felldar. Samkvæmt lögunum hækkar hámark vaxtafrádráttar fyrir einhleyping i 3.625.000 gamlar krónur, en fer i 7.250.000 fyrir hjón.Eins og kunnugt er þá eru einungis vaxtagjöld vegna skulda sem til er stofnað vegna öflunar ibúðarhúsnæðis til eigin nota frádráttarbær. Þó eru verulegar endurbætur á ibúðar- húsnæði lagðar að jöfnu við ibúðarkaup og eru mörkin sett við að endurbæturnar nemi 7% eða meiru af fasteignamati ibúðarinnar. Breytingartillögur Sjálf- stæðismanna miðuðust við að vaxtafrádrátturinn væri ekki bara bundinn við húsakaup eöa húsabyggingu heldur gætu menn fengið almennan vaxta- frádrátt er ætti að nema 3 milj- ónum gamalla króna fyrir ein- hleyping og 6 miljónum fyrir hjón.Þó vildu þeir að slikt gilti einungis fyrir álagningu á ár- þ Skákþingi Reykjavikur er lokið og bar Jón L. Árnason sigur úr býtum, híaut 8,5 vinninga. Jón tefldi við Braga Halldórsson i sið- ustu umferð mótsins og fór skákin i bið, en eftir að Bragi hafði skoðað biðstöðuna nokkuð, gaf hann skákina án þess að tefla frekar. Elvar Guðmundsson varð i 2. sæti nokkuð óvænt, þar sem Helgi Ólafsson tapaði i siðustu umferð- inni fyrir Dan Hanssyni og varð Helgi þvi að gera sér 3ja sætið að góðu. Elvar hlau’f 8 vinninga, og hefur góð frammistaða hans á mótinu vakið verðskuldaða athygli, en Elvar er i hópi yngri skákmanna okkar. Helgi Ólafsson hlaut 7,5 vinninga en i 4. tiL5. sæti urðu þeir jafnir Dan Hansson og Bragi Halldórsson með 7 vinn- inga. í 6. til 7. sæti urðu jafnir Karl Þorsteinsson og Þórir ólafs- mjög vel I mótinu. Ljósm: — gel— son —S.dór Mikið er fundað i húsakynnum sáttasemjara um þessar mundir. i gær stóðu yfir stöðugir sátta- fundir i sjómannadeilunni, bæði sameiginiegir fundir, en einnig i nefndum: bátanefnd fyrir sjó- menn á bátum og minni togurum og önnur sem fjallaði um málefni stóru togaranna. Þá voru einnig viðræður viö undirmenn á far- skipum. Heldur taldi sáttasemjari, Guð- Fundi yfir- nefndarinn- laugur Þorvaldsson, óliklegt að til tiðinda dragi i sjómannadeilunni, enda biðu menn nú ákvörðunar fiskverös. Fundur vélstjóra og vinnu- málanefndar rikisins hófst ki. Framhald á bls. 13 Norömenn draga úr innflutningi dilkakjöts Besti markaðurinn fyrir islenskt dilkakjöt erlendis að undanförnu hefur verið i Noregi. Þangað hafa verið seld undanfarin ár 2000—2750 tonn af dilkakjöti árlega. En nú hefur nokkuð syrt i álinn. Norðmenn hafa lagt nokkurtkapp á að auka eigin framleiðslu á kindakjöti en þó hefur sú viðbót naumast farið til þessa fram úr auk- inni neyslu. En vegna veru- legra hækkana á verði til norskra bænda i lok siðasta árs og minnkandi niður- greiðslna i upphafi yfir- standandi árs, hefur smá- söluverð á kindakjöti hækkað verulega i Noregi. Er því gert ráð fyrir sam- drætti í sölu. Og i áætlun, sem Norðmenn hafa gert um innflutning á dilkakjöti eru þvi gerðir skórnir, að á árinu 1982 verði innflutningurinn ekki yfir 1300 tonnum og gæti jafnvel orðið innan við 500 tonn. —mhg Vaxtafrádrátturinn afgreiddur á Alþingi Togarinn látínn sigla og fólkið atyinnulaust

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.