Þjóðviljinn - 27.02.1981, Page 5

Þjóðviljinn - 27.02.1981, Page 5
Föstudagur 27. febrúar 1981 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5 Castro er hærra skrifaður en aðrir menn erlendir. Veigamikið útleggingar- atriði á þingum sovéska kommúnistaf lokksins eru ræður fulltrúa erlendra flokka: bæði röðin á þeim og inntak þeirra. Því vekur það nokkra athygli að á því 26. flokksþingi, sem hófst í Moskvu á mánudag, talaði fyrstur útlendra gesta Fidel Castro frá Kúbu og fyrstur Vesturlandagesta Gaston Plissonier frá Kommúnistaflokki Frakk- lands. Sjálfgert er að lita svo á að þessi röð beri vott um sérstaka velþóknun eða virðingu sovéskra ráðamanna fyrir viðkomandi flokkum. Formfesta. Eins og alloft er fram tekið eru þing Kommúnistaflokks Sovét- rikjanna mjög formföst. Þar munu allir helstu ráðamenn flokksins, sem sæti eiga i póli- tisku nefndinni svonefndu, taka til máls, og hver um sig leggja helstar áherslur á sinn mála- flokk. Ennfremur tala formenn kommúnistaflokka einstakra lýð- velda og segja þeir einkum fram- leiðslutiðindi hver úr sinum landshluta. Þá tala og fulltrúar Á flokksþinginu í Moskvu: Castro talaði fyrstur hinna erlendu gesta Brésjnéf i ræöustól við opnun þingsins. helstu iðnaðarborga og héraöa, ennfremur fulltrúar mikilvægra starfsgreina — stálbræöslu- maður, samyrkjukona, rithöf- undur og þar fram eftir götum. Venjuleg uppbygging þeirra ræðna er sú að segja nokkur þau tiðindi af starfsvettvangi hvers og eins, sem hægt er að koma á skýrslur, og lýsa i leiðinni yfir stuðningi við meginlinur þær sem koma fram i stefnuræðu aöal- ritarans. Röðunarga Idur Ræður erlendra fulltrúa eru og allfastmótaðar i formi. Þar eru sögð nokkur tiðindi úr landi ræöu- manns og siðan vikið að alþjóða- málum og þá oftast að einhverju sem Sovétrikin hafa haft fram að færa og lofsamlegt er talið. Og sem fyrr segir, þá skiptir röðin veruiegu máli. Fyrst tala fulltrúar flokka sem um leið eru stjórnarflokkar. Einu sinni þótti eðlilegt að fyrsti er- lendi ræðumaðurinn væri frá Kina, en sá timi er vitaskuld löngu liðinn. Sem fyrr segir kom Fidel Castro fyrstur en honum næstur var Le Duan frá Kommúnistaflokki Vietnams. 1 þriðja sæti var svo Stanislaw Kania frá Póllandi — af þeim eðlilegu ástæðum, að Pólland er nú efst á baugi (Fréttaskýrendur hafa haft ærinn starfa að undan- förnu við að lesa úr þvi sem ræðu- menn segja um Pólland og fá ýmist út vonir um að Pólverjar leysi sinn vanda sjálfir eða dul- búnar hótanir um að þeir skuli halda sig á mottunni). A eftir Kania komu i þessari röð: Honecker frá Þýska lýðveldinu, Husak forseti Tékkóslóvakiu Kadar frá Ungver jalandi, Zhivkov frá Búlgariu og Ceaucescu frá Rúmeniu, — sið- astur, enda stundum nokkuð þversum við Sovétmenn. Frakkar. En áður en þessum hring er lokið og fulltrúar Mongóliu, Norður-Kóreu, Laos og Kampútseu hafa tekið til máls hefur formanni miðstjórnar Kommúnistaflokks Frakklands verið skotið inn, fyrstum Vestur- landabúa. Það stafar bersýnilega af þvi, að sá flokkur hefur á undanförnum tveim-þrem árum færst jafnt og þétt frá „evrópu- kommúniskum” viðhorfum og þar meö samstöðu með Kommún- istaflokki Italiu og tekið aftur upp mikinn vinskap við Sovétmenn. Meðal annars hafa franskir kommúnistar gengið alllangt i að fallast á ihlutun sovéska hersins i Afganistan. Marchais, formaður flokksins, er að sönnu ekki mættur til leiks, en það stafar af þvi, að hann á nú i kosningaslag i Frakklandi. Berlinguer formaður Kommún- istaflokks ttaliu er heldur ekki i Moskvu, en milli Sovétmanna og italska flokksins hafa undanfarið misseri farið ýmis heldur harðorð skeyti, bæði út af Afganistan og Póllandi. Carillo hinn spænski, sem hefur mjög komið við sögu i gagnrýni vestrænna kommúnista á Sovétrikin, er heldur ekki mættur á þingið i Moskvu, þótt flokkur hans eigi þar fulltrúa. Ekki munu allir erlendir gestir tala i þinghöllinni i Kreml, til þess eru þeir of margir. Hinir létt- vægari munu koma fram á fund- um sem haldnir eru i verksmiðj- um og fyrirtækjum. En það er fastur siður að prenta öll ávörp þeirra i flokksmálgagninu Prövdu. Misjöfn forvitni. Ræður hinna erlendu gesta á flokksþinginu eru aö sjálfsögðu misjafnlega forvitnilegar. Ef að likum lætur hafa menn mestan áhuga á þeim sem áherslu leggja á sérstöðu sina meðal kommún- istaflokka. Fyrir fimm árum vakti ræða Berlinguers, for- manns italskra kommúnista, sér- staka athygli, vegna þess hve rækilega hann itrekaði andóf sins flokks gegn öllum hugmynd- um um sérstakt forystuhlutverk einsflokks— m.ö.o. hins sovéska. Það var lika fróðlegt að sjá slika ræðu á prenti i hinu sovéska flokksmálgagni — þvi þar er þess getið sérstaklega hvenær er klappað. Og um leið sést hvenær flokksþingfulltrúar láta sér fátt um finnast. — AB tók saman. Róstusamt í Vestur-Berlín: Ungt fólk sest að í auðum húsum Átök um húsnæðisstefnu og lóðabrask Margar borgir i Vestur-Evrópu hafa að undanf örnu séð upphlaup og átök milli ungs fólks i lögreglu i rikari mæli en um hrið hefur sést. Einatt brýst hér fram mikil gremja nýrrar kynslóðar sem fær að vita það strax áður en hún stigur út úr skóla, að henni séu flest- ar bjargir bannaðar á vinnumarkaði sem gerist æ þrengri. í Vestur-Berlin hafa átökin einkum tengst við hreyfingu húsnæðis- leysingja, sem hafa lagt undir sig auðar ibúðir. Haft er fyrir satt að i Vestur-Berlin skorti um 65.000 ibúðir, og að þar hafi að undan- förnu um 27 þúsundir ibúða stað- ið auðar. Þetta misræmi er tengt stórgallaðri stefnu i endurnýjun ibúðahverfa og spekúlasjónum ýmiskonar. Allstór svæði eru rifin niöur i heilu lagi til að vikja fyrir nýjum. 1 nýjum ibúðum verður húsaleiga einatt þrisvar sinnum hærri en i eldri húsum. Um leið kemur það einatt fyrir, að hús sem búiðeraðreka leigjendur úr, standa auð i 3—4 ár eða lengur. ýmist i sambandi við lóðabrask eða þá vegna þess að breytingar hafa verið gerðar á aðalskipulagi áður samþykktu. Lagfæra sjálf Síðan i byrjun siðasta árs hefur þetta ástand orðið til þess, að þvi ungu fólki hefur fjölgað sem hefur tekið málin i sinar hendur og reynt að leysa sinn húsnæðis- vanda með þvi að setjast að i auðum húsum og ibúðum. Þessi upptaka húsnæðis hefur ekki hvað sist átt sér stað i borgarhverfinu Kreuzberg, sem skemmdist litið i striðinu og standa þar þvi uppi allmörg hús sem komin eru til ára sinna. Húsum þeim, sem auð standa, hefur einatt ekki verið við haldið lengi og auk þess hafa. eigendurn- ir viljað setja undir leka með þvi að eyðileggja i þeim vatnslagnir, raflagnir osfrv. Hreyfing þeirra sem setjast að i slikum húsakynn- um kennir sig við „standsetningu' —m.ö.o. meðlimir hennar setjast ekki aðeins að i ibúðunum heldur koma þeim i lag sjálfir, i stað þess að þær séu gerðar nýtisku- legar fyrir morð fjár eða þá rifn- ar. Fyrir um það bil mánuði var talið að 25 hús hefðu verið tekin „leigunámi” með þessum máta. tbúar hvers húss eða stigagangs kjósa sér fulltrúa til „leigutöku- ráðs” sem reynir siðan að komast að samkomulagi við stjórn Vestur-Berlinar um framhaldið. Barist á götum En siðan um miðjan desember hefur staðið strið milli húsnæðis- leysingja og yfirvalda með ýms- um hléum og hafa æsingablöð Springerhringsins komið mjög við sögu i þvi striði. Atökin hófust á þvi, að lögreglan ruddi fólki út úr húsi sem það hafði lagt undir Framhald á bls. 13 Mehringhof i Vestur-Berlin: Hér var áður verksmiöja, en nú einskonar miðstöð vinstrihópa. lallt undir einu þaki þú verslar í „ húsgagnadeild og/eða teppadeild og/eöa og/eöa rafdeild þúfærð allt á einn og sama kaupsamninginn/skuldabréf og þú borgar allt rtiður i 20% SEM ÚTBORGUN, og eftirstöðvarnar færðu lánaðar allt að 9 MÁNUÐUM. Nú er að hrökkva eða stökkva. óvist er hvað þetta tilboð stendur lengi fokkur getur snúist hugur hvenær sem er). Þegar þú hefur reitt af hendi útborgunina og ritað nafn þitt undir KAUPSAMNINGINN, kemur þú auðvitað við i .MATVÖRUMARKAÐNUM og' birgir þig upp af ódýrum og góöum vörum. Opið til kl. 22 á föstudögum og til hádegis á laugardögum I Matvörumarkaðnum og Rafdeild. JIS Jón Loftsson hf. fA A ▲ A A ▲ Hringbraut 121 Sími 10600

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.