Þjóðviljinn - 27.02.1981, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 27.02.1981, Blaðsíða 7
Arni Valdimarsson leikur Þórð í leikritinu Stalin er ekki hér. Myndin var tekin á æfingu. Stalín er ekki á Selfossi t dag frumisýnir Leikfélag Selfoss leikritið „Stalin er ekki hér” eftir Véstein Lúð- víksson. Æfingar hafa staðið yfir undanfarnar vikur og hefur leikurunum ætið tekist að brjótast gegnum skafla og ófærð á æfingar i Selfossbíó, en sem kunnugt er hafa veðurguðir ekki verið Sel- fyssingum jafnóbliðir svo langt sem elstu menn muna. Leikstjóri er Asdis Skúla- dóttir, leikmynd gerir Hildi- gunnur Daviðsdóttir, og leik- enúr eru: Árni Valdimars- son, Heiðdis Gunnarsdóttir, Katrin Karlsdóttir, Ketill Högnason, Björk Mýrdal og Arni Pétursson. Leikfélagið mun aö lokn- um sýningum i Selfossbió sækja nokkrar nágranna- byggöir heim með verkið og einnig verður skotist til Reykjavikur mánudaginn 9. mars og sýnd ein sýning i Hafnarbiói, leikhúsi Alþýöu- leikhússins. A Selfossi biða menn þess með mikilli eftir- væntingu að fá úr þvi skorið hvort Stalin sé staddur i bænum og hvort Kremlbónd- inn er yfirleitt nokkursstaðar finnanlegur á meðal okkar enn þann dag i dag. En úr þvi fæst skoriö i Selfossbiói i kvöld. Borgarráð vegna óveðursins: Tjónið metið Borgarráð samþykkti i gær að óska eftir þvi við yfirborgar- dómarann í Reykjavik að hann skipi tvo matsmenn til að kanna og meta tjón á fasteignum i óveðrinu 16.—17. febrúar sl. Var þessi samþykkt gerö i fram- haldi af ákvörðun borgar- stjórnar frá þvi á fimmtudaginn var um að tjón Reykvikinga yröi kannað. — AI Gjafir til krabba- meins- félagsins Krabbameinsfélagi tslands 'hafa borist tvær rausnarlegar gjafir.önnui frá Kvenfélaginu Hringnum að fjárhæð 30.000,00 kr og hin frá Vina- hjálp — Handavinnuklúbbnum að fjárhæð 20.000.00 kr. til tækjakaupa. Undanfarið hefur félagið haft i hyggju að kaupa tæki „diap- hanography” sem auðvelda greiningu á brjóstkrabbameini. Hefur nú eitt slikt tæki verið pantaö frá Sviþjóð. Er það von lækna að með komu tækisins verði bæði auðveldari og örugg- ari greining á þessum sjúkdómi, en sem kunnugt er ferð tiðni brjóstakrabbameins stöðugt vaxandi bæöi hér á landi sem annars staðar. Föstudagur 27. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Landssmiöjan og Stál h/f á Seyðisfirði taka upp samvinnu: Orkusparnaðar- og mengunar- varnartæki Stöndum nágrannaþjóðum ekkert að baki varðandi hönnun, smíði og ráðgjöf í þessum iðnaði Forsvarsmenn Nýtis h/f, frá v.: Theódór Blöndal tæknifr. Agúst Þor- steinsson framkvst. Landsmiðjunnar, Jón Levi Hilmarsson vélavcrk- fræðingur og framkvst. Nýtis og Pétur Blöndat framkvst. vélsmiðj- unnar Stál á Seyðisfiröi. Mynd-eik. „Erlendir aðilar hafa keppst um að leggja undir sig markaðinn hér á landi, varðandi nýsmiðar fyrir fiskimjölsiönaöinn, en við teljum að islensk járniðnaðar- fyrirtæki get vel framleitt öll þau tæki, sem þessar verksmiðjur þurfa á að halda á næstu árum, og boðið uppá ekki iakari kjör og af- greiðslufrest en hinir erlendu aðilar”, sagði Jón Levi Hiimars- son, framkvstj. Nýtis h/f á fundi með fréttamönnum i gær. Nýtir h/f var stofnað i nóvem- ber á siðasta ári af Landssmiðj- unni i Reykjavik, Vélsmiðiunni Stál á Seyðisfirði og Jóni Levi Hilmarssyni vélaverkfræðingi. Markmið félagsins er að hanna og selja orkusparnandi tæki og búnað til mengunarvarna fyrir fiskimjölsiðnaðinn auk þess sem fyrirtækið hyggst framleiða véla- samstæður fyrir frystihús til fiskimjölsframleiðslu. Landssmiðjan og Stál á Seyðis- firði hafa yfir að ráða um 100 starfsmönnum alls og er sam- starf sem þetta áður óþekkt hér- lendis. A blaðamannafundinum kom fram að lega fyrirtækjanna i sitt hvorum landsfjórðungnum muni auka og bæta þá þjónustu sem þau geta veitt. Gott samstarf hefur verið haft við Iðntæknistofnun og iðnaðar- ráðuneytið, sem hafa fylgst vel með þróun þessa samstarfs og verið fyrirtækinu innan handar. Iðnaðarráðuneytið er nú að kanna með hvaða hætti fyrirtækið getur veitt ámóta lánskjör til fiski- mjölsverksmiðjanna og hinir er- lendu aðilar hafa getað boðið upp á. Nýtir h/f hefur þegar lokið hönnun á sérstökum hráefnisfor- hitara fyrir fiskim jölsverk- smiðjur, sem mun svo nýta þann afgangsvarma, sem annars er hleypt beint út i loftið frá verk- smiðjunum i dag. Er talið að með þessum nýja útbúnaði megi stór- minnka oliueyðslu verksmiðj- anna. Stjórnarmenn Nýtis h/f sögðu, að allt of stór hluti af orku fiski- mjölsverksmiðjanna i landinu færi aftur ónotaður út um stromp- ana. Ljóst væri að á næstu árum yrði að gera stórátak i að endur- nýja og bæta búnað þessara verk- smiðja, auk þess að bæta allar mengunarvarnir. tslendingar væru i raun langt á eftir timanum i þessum efnum, hefðu ekki tekið við sér fyrr en áhrifa oliukreppunnar fór veru- lega að gæta. Meðal-oliueyðslan i fiskimjöls- verksmiðjunum i landinu hefur minnkað úr 80 tonnum á sólar- hring i 60 tonn nú á siðustu árum eingöngu vegna aðhaldssemi og stórbættrar einangrunar á brenn- urum. Hins vegar væri hægt að minnka oliueyðsluna enn meira jafnvel niður i 30 tonn á sólar- hring meö þeim tækjabúnaði, sem Nýtir hefði þegar hannað og væri með i hönnun. „Það, sem skiptir kannski mestu máli i þessu sambandi, er, að við tslendingar verðum okkur nógir i þessum efnum. Með þessu samstarfi erum viö að reyna að tryggja stöðu islensks iðnaöar og sýna fram á að við stöndum ná- grannaþjóðunum sist að baki i hönnun, smiði og ráðgjöf i þessum þætti járnsmiða- iðnaðar”, sagði Pétur Blöndal, framkvstj. Vélsmiðjunnar Stáls á Seyðisfirði. Agúst Þorsteinsson, framkvstj. Landssmiöjunnar, benti á að fjár- festing i þeim tækjabúnaði, sem fyrirtækið hefði uppá að bjóða og gæti þýtt allt að 45% sparnað i oliueyðslu myndi borga sig upp á 3—4 árum miðaö viö að viðkom- andi verksmiðja bræddi að meðaltali 30 þúsund. tonn af loðnu á ári. — »g Guðbergur Rúnarsson: Hvenær á að virkja? Grein þessi er skrifuð sem bréf til iðnaðarráðherra. Hvenær á aö virkja? Þetta er spurning sem brennur á vörum flestra landsmanna i dag. En fá þeir einhver svör? Nei, málið er enn i athugun, þó búið sé að frumhanna 3 virkjanir með samt. 2.995 GWh/ári. að orku- getu. Til samanburðar framleiða allar virkjanir Landsvirkjunar samt. 3000 GWh/ári, að Hraun- eyjarfossi undanskildum. Staðan er þvi sú, að við sitjum uppi með 3 pappirsvirkjanir og almennan orkuskort i landinu. Töluvert af húsnæði sem enn er kynt með oliu og styrkt með fáránlegu millifærslukerfi, þ.e. oliustyrkurinn frá árinu 1974. Þá er Járnblendið stopp og Alverið 1 orkumegrun, ásamt Aburöar- verksmiðjunni. Orkuverin — Landvirkjun Ekki er staöa orkuveranna betri. Sigölduvirkjun er spöruð eins og hægt er til að halda uppi vatnshæð i Krókslóni og Þóris- vatni. Greinilegt er að miðlunar- lón þurfa að vera stærri og mun þéttari. Við Búrfell má búast við alls- konar ævintýrum vegna Istrufl- ananna og tapast þar nokkuð dýrt vatn vegna isskolunar. Astandið viö Búrfell lagast ekki fyrr en reistur hefur verið 1. áfangi aö 124 MW virkjun viö Sultartanga, sem nýtir 35,5m fallhæð, en nú er um 50 m óvirkjuð fallhæð milli Bjarnarlóns og Hrauneyjarfoss, sem er mjög ismyndandi. Orkuverin — RARIK A Austurlandi eru 3 smávirkj- anir eins og þér er kunnugt um. Stærð þeirra er i engu hlutfalli við þörf markaöarins hér, en eru þó mjög nauðsynlegar kerfiseining- ar, allavega á timum orkuskorts. Þrátt fyrir vatnsleysið framleiddi Lagarfljótsvirkjun 54GWh á sið- asta ári. Þaö jafngildir 7214 nýt- ingarstundum á ári. Ekkert hefur verið gert til að auka orkuvinnslu- getu virkjana hér. T.d. hefur há- markshæð Lagarins verið 20,50mys„ en æskileg vetrarhæö er á timum orkuskorts um 21,10 mys. 60 sm vatnshækkun gefur 50G1 aukavatnsmiðlun, sem i orkuvinnslu gefur 2GWh. Hefur RARIK efni á að nota sér ekki þessa orku? / A að vlrkja vlð Sultartanga? Þessa dagana velta menn þvi fyrir sér hver næsta stórvirkjun verður. Ljóst er, að 3 virkjanir koma tilgreina. Þráttfyrir þaö er Sultartangavirkjun haldið utan við allar umræöur. Engum hugs- andi manni dettur annað I hug, en það þurfi aö gera ráðstafanir vegna istruflana við Búrfell. Stiflan sem reist verður við Sultartanga getur sparað vatn við isskolun við Búrfell, auk þess að vera miðlunarlón. Talið er að orkuvinnslan við Búrfell geti auk- ist um allt að 150GWh/ári. Þ.e. 3 Lagarfljótsvirkjanir. Aætlaöur nýtingartimi Sultartangavirkj- unar er um 5850 h/ári. Af ofanrit- uðu er séð að kosturinn er góður, aöeins þarf að pota Sultartanga- virkjun út af eldvirku svæði. Talið er, að orkuvinnsla geti hafist haustið 1986. Eða Blöndu? Blönduvirkjun hefur oft verið talin besti nærtækasti virkj- unarkostur okkar. En vegna þess að öll fallhæöin 314m er ekki not- uð I núverandi áætlun, heldur að- eins 277,5m fallhæð og sparast við það inntaksskurður og jöfnunar- þró, er hægt að sýna fram á lægri stofnkostnað á hverja kWh, en með virkjun hámarks hæðar. Enn fremur er allt tal um miðl- unarlón á heiðinni mjög við- kvæmt mál, og sýnist sitt hverj- um. Framleiösla virkjaös vatna- svæðis er um 1226,4Gil/ári, en við 100% orkuvinnslu þarf 2290Gl/ári. Uppsett afl er áætlaö 177MW sem er með 100% orkuvinnslu 1533GWh/ári. Orkuvinnslan er áætluð 835GWh/ári. Orkuvinnslunýtnin veröur þá 835/1533 = 0,544 eöa 54,4%. Athyglisvert er aö inntakslónið dugir aðeins 1 6 daga á fullri keyrslu. Fallhæðin frá miölunar- lóni að inntakslóni er 60m og gæti þvi komið upp Isvandamál, sem yröi að taka á, á þann hátt að stifla meira upp á heiöi og reyna að virkja eitthvað af 60m fallhæð- inni eins og ráðgert er við sultar- tanga. Hafa isvandamálin sem hugsanlega gætu komið upp við virkjun Blöndu, verið könnuð? Er hugsanlegt aö miðla til Blöndu- virkjunar meira vatni t.d. úr Vatnsdalsá? Ellegar Fljóts- dalsvirkjun? Fljótsdalsvirkjun er eflaust besti kosturinn af þessum 3 pappirsvirkjunum. Nú er svo komið að ekki má opna útvarpið án þess að heyra samþykktir úr Austurlandskjördæmi, þar sem skorað er á þig að ákveða strax virkjun i Fljótsdal. Þaö er þvi ekki ósamkomulag innan fjórð- ungsins um þessa virkjun. Virkj- unin er lika eitt stórkostlegasta mannvirki sem hannaö hefur ver- ið hér á landi og fyrsta stórvirkj- unin á Austurlandi. Ef helstu tölur eru skoöaðar eru áætlaö að uppsett afl verði 328MW i 4 áföng- um, og með miðlunarlónum upp á 745G;1. Þar af eru um 120G1 i inn- takslónum. Hægt er aö keyra vélarnar á fullum afköstum á inntakslðn- unum i 20 daga eða 1 vél i 90 daga. 1 vél er 82 MW. Vatnsvegir frá Eyjabakkalóni eru um 25,8km og fallhæðin i skurðinum er tiltölu- lega litil. Vatnsvegurinn fylgir nokkurveginn 650m hæðarlinunni. Isvandamál ættu þvi að vera litil eða engin. Orkuvinnslugetan er sögð vera 1470GWh/ári. Orku- vinnslunýtnin veröur þá 1470/ 2873= 0,51, eða 51%, litlu lægri en við Blöndu. Hugsanlegt er að bæta nýtnina með enn aukinni miðlun t.d. með Jökulsá á Brú, sem yrði þá 5. áfangi Fljótsdals- virkjunar. Samanber Austur- landsvirkjun. Fyrir Austfirðinga- fjórðung mundi þessi virkjun vera mikil lyftistöng ásamt stór- iðju við Reyðarfjörö. Eflaust munu bæir halda áfram að fara i eyði, sérstaklega á viðkvæmustu stöðunum. Hinvegar munu byggðirnar við Reyðarfjörð, Seyði' fjörð og Upphérað styrkj- ast mjög mikið. Flóðhætta i Lagarfljóti mun að sama skapi minnka. Fyrir fiskræktendur má geta þess að hitastigiö i Leginum mun að öllum likindum hækka ör- litið. Að lokum má gera ráð fyrir þvi að orkuvinnslunýtni við Lagar- fljótsvirkjun muni nálgast 100% ef af virkjunaráformum verður i Fljótsdal. Þetta stórvirki er nú i þinum höndum. Ætlar þú að láta hendur standa fram úr ermum og vinna kjördæmi þinu það gagn sem verður myndarlegasta atvinnuuppbyggingin á næstu 10—15 árum? Með kveöju.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.