Þjóðviljinn - 27.02.1981, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 27.02.1981, Qupperneq 16
DMVIUINN Föstudagur 27. febrúar 1981 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná i afgreiöslu blaösins I sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Launasjóður rithöfunda: 86 fengu starfslaun Lokið er úthlutun starfslauna úr Launasjóði rithöfunda fyrir ár- ið 1981. Fjárveiting til sjóðsins árið 1981 er kr. 1.725.530,00. Voru að þessu sinni veitt 291 mánaðarlaun. Stjórnin hefur nú lokið úthlut- un. Hafa 5 rithöfundar fengið starfslaun i 7 mánuði, 13 rithöfundar hafa fengið starfs- laun i 5 mánuði, 15 hara fengið starfslaun i 4 mánuði., 25 hafa fengið þriggja mánaða starfslaun og 28 tveggja mánaða. Alls hefur þvi verið úthlutað starfslaunum til 86 rithöfunda. Nöfn þeirra rithöfunda sem starfslaun hlutu verða birt i dag. 1 lögum og reglugerð sjóðsins segir að árstekjum hans skuli varið til að greiða islenskum rit- höfundum starfslaun samkvæmt byrjunarlaunum menntaskóla- kennara. Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa islenskir rithöfund- ar oghöfundar fræðirita. Þá er og heimilt að greiða úr sjóðnum fyrir þýðingar á islensku. Starfslaun eru veitt eftir umsóknum. Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun þrjá mánuði eða lengur, skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfs- launa. Tveggja mánaða starfslaun skulu eingöngu veitt vegna verka, sem birst hafa á næsta almanaks- ári á undan og þeim fylgir ekki kvöð um að gegna ekki fastlaun- uðu starfi. Fóstrur í Kópavogi: Samningar í nánd? Hreyfing komst á samningamál fóstra i Kópavogi i gær, þegar Starfsmannafélag Kópavogs braut isinn og sendi bæjarráði til- boð um samninga fyrir fóstrur. Samningafundur hófst kl. 17.30 og stóð hann enn þegar Þjóðviljinn fdr i prentun um miðnættið. Eftir þvi sem næst verður kom- ist er tilboð starfsmannafélagsins i samræmi við samkomulagið sem gert var norður á Akureyri. Bæjarráð hafði komist að þeirri niðurstöðu að það gæti ekki gert fóstrum frekari tilboð eða rætt um launaflokkahækkun beint ofan i nýgerða kjarasamninga við starfsmannafélagið og lýsti for- maður bæjarráðsins þvi yfir i gær að boltinn væri nú hjá félaginu. Spurningin snýst um hvort einhverjir hópar hyggjast feta i fótspor fóstranna, fái þær kröfum sinum framgengt. Félagsmálaráð Kópavogs hélt i gær fund þar sem samþykkt var einróma áskorun á bæjarráð og starfsmannafélagið um að leysa hið skjótasta ágreining um kjara- mál fóstra, en félagsmálaráöið rekur dagheimilin og gegnir störfum barnaverndarnefndar. Lagði ráðið þunga áherslu á að viö áskorun þess yrði orðið. — AI Konur í morgunkaffi Guðrún Asmundsdóttir leik- stjóriætlarað mæta i morgun- kaffi Rauðsokka i hádeginu á morgun og spjalla við við- stadda um konur og leikhús og sýningu Alþýðuleikhússins á leikritinu „Konu” eftir Dario Fo. Morgunkaffið verður kl. 12. i Sokkholti, Skólavörðustig 12. — ih Herstöðvaandstæðingar i nýjum húsakynnum Sigurborg Arnadóttir og Páll Jónsson yfir kaffibolla i nýjum húsakynnum Samtaka herstöðvaandstæðinga Ljósm: Ella. Opið hús á laugardag Samtök herstöðvaandstæð- inga bjóða öllum stuðnings- mönnuin að heimsækja húsa- kynni samtakanna á laugardag eftir kl. 2, f tilefni þess að inn- réttingu hins nýja húsnæðis að Skólavörðustig 1 er lokið. A laugardag frá 4—5 verður efnt til dagskrár, þar sem skáld og trúbadúrar skemmta og selt verður kaffi. 1 framtiðinni er ætlunin að bjóða herstöðvaand- stæðingum upp á kaffi hvern dag, svo að þeir geti rabbað saman og lagt á ráðin þegar þeir eiga leið um bæinn. Á Skólavörðustignum er á boð- stólum lesefni það sem sam- tökin hafa gefið út og þar er starfsmaður til viðtals alla virka daga frá kl. 3—7. Það er margt á döfinni hjá Herstöðvaandstæðingum. Hinn 30. mars verður samkoma i Há- skólabió og er undirbúningur hennar i fullum gangi. 7. mai verða liðin 30 ár frá komu Bandariska hersins (i annað sinn) og verður þess atburðar minnst með aðgerðum svo sem götuleikhúsi og öðrum uppá- komum. Keflavikurganga er fyrirhuguð siðari hluta mai- mánaðar og þegar liður að hausti er ætlunin að halda ráð- stefnu um afvopnunarmál, gjör- eyðingarhættuna og hin nýju viðhorf sem komin eru upp i hermálum. Væntanlega munu erlendir fyrirlesarar koma til þeirrar ráðstefnu, en ekki er ljóst enn þá hverjir það verða. Herstöðvaandstæðingar búast við þvi að nýja húsnæðið verði öllu starfinu sem vitamin- sprauta; nú gefst öllum sem vilja berjast gegn her i landi tækifæri til að lita þar inn og hitta samherjana, og einnig er hægt að fá húsnæðið til funda- halda. —ká Þórshaf nartogarinn: gær Málalok í Ríkisstjórnin féllst á þá leið sem Framkvæmdastofnunin lagði til Það mál sem valdið hefur hvað mestum óróa i skapi manna, jafn- velhinna rólyndustu, undanfarna daga, kaupin á togara til Þórs- hafnar, var leitt til lykta f gær á þann hátt að togarinn verður keyptur. Það var rikisstjórnin sem leiddi . málið til lykta á fundi sinum i gær. Þar féllst hún á þá leið sem Framkvæmdastofnun lagði til, þ.e. að Framkvæmdasjóður láni 10% af 28 miljón kr. norskum til kaupa á togaranum, en þó taldi rikisstjórnin æskilegra, að sögn Ragnars Arnalds, fjármálaráð- herra, að fyrri ákvörðun Framkvæmdastofnunaryröi látin gilda, en þd var talað um lán uppá 20% af 21 miljón kr. norskri. Þá er talið að uppá kaupverðið vanti um 200 miljónir gkr. og er ákveðið aö þær verði fengnar af sérstöku f járframlagi, sem Byggðasjóður fékk um áramótin sem nam 1500 milj. gkr. Þar með virðist ljóst að þeir sem þóttust vera að tapa ærunni og þeir sem leysa átti niður um málsins vegna, fái aö halda bæði æru og buxum og að þetta mikla skammdegismál sé úr_sögunni, en Þórshafnarbúar komi nú at- vinnulífisínu i eðlilegt horf innan tiðar. — S.dór. VESTMANNAEYJAR: Yfirvinnubaiuii aflétt Samningar hafa tekist um öll helstu atriðin Yfirvinnubanni þvi sem Verka- lýðsfélagið i Vestmannaeyjum boðaði til og hófst sl. miðviku- dagskvöld, hefur nú verið aflétt þar sem samningar þeir, sem málið snérust um hafa verið undirritaðir. Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélagsins i Eyjunvsagöi að undirritaðir hefðu verið tvennir samningar. Annarsvegar samningar fyrir menn sem vinna vaktavinnu i fiskimjölsverk- smiðjum og fyrir þá sem vinna vaktavinnu við loðnu og sild i frystihúsum. Þá eru sérstakir samningar fyrir hafnarverka- menn tilbúnir til undirritunar og bjóst Jón við að þeir yrðu undir- ritaðir i dag. Samningurinn um vaktavinnu, varð að taka breytingum eftir lögunum um fridaga frá sl. vori. Samiö var um að á hverju 7 daga timabili skuli vaktavinnumenn fá amk, einn fridag og skal hann að öðru jöfnu vera á sunnudegi. Ef nauösyn krefur er heimilt að fresta vikulegum fridegi og gefa þá fri aðra hverja helgi, laugar- dag og sunnudag. Falli fridagar aftur á móti á virka daga vegna ófyrirséðra orsaka, skulu þeir njóta samninga um fast vikukaup og halda dagvinnulaunum þá daga. 1 fyrstu vildu atvinnurek- endur i Eyjum ekki fallast á þetta, þóttsvo segöi i lögunum, en töldu að nýgerðir kjarasamn- ingar hljóöuðu uppá annað. En nú hafa þeir sum sé fallist á kröfur Verkalýðsfélagsins. Enn stendur þó deila um þaö at- riði að Verkalýðsfélagið heldur þvi fram að hver maöur égi rétt á 10 tima hvild ef unnin er eftir- vinna en atvinnurekendur segja 8 tima. Sagði Jón að haldið yrði áfram samningaumleitunum um þetta mál. — S.dór Er unnt að sameina Garðyrkju og fiskeldi? Er hægt að sameina rekstur gróðurhúsa og fiskrækt og byggja það á innlendum aðföngum og orku: jarðhita, rafmagni, áburði °g eggjahvitufóðri? Arni G. Pétursson, hlunnindaráðunautur, beindi þvi til Búnaðarþings að kynna sér þá möguleika. Kom fram hjá Arna að i des. sl. hafi verið staddur hér Sigurbjörn Hallsson, verkfræðingur og arki- tekt, við að kynna sér þessi mál, en Sigurbjörn vinnur hjá Simon- sen-ráðgjafarstofnuninni i Kaup- mannahöfn. SimonSen hefur gert likön og skipulagt uppbyggingu að atvinnurekstri á ýmsum svið- um hjá þróunarlöndunum og viðar. I tillögu frá Sigurbirni er gert ráð fyrir sameiginlegum rekstri gróðurhusa og fiskirækt. Telur hann að með gróðurhúsafram- leiðslunni sé t.d. mjög hentugt að hafa álarækt. Og Arni spyr, hvort ekki væri athugandi ,,að koma upp álarækt i yfirgefnum pen- ingshúsum á jörðum, þar sem jarðhiti er til staðar. Sigurbjörn fór vitt um land og ræddi m.a. við Ræktunarfélag Norðurlands, Gisla á Hofi, SÍS., Veiðimála- stofnun, Orkustofnun, landbún- aðarráðuneytið og Fram- kvæmdastofnun. Búnaðarþing tók hugmyndinni tveim höndum og „beinir þeim tilmælum til Veiðimálastofnunar- innar að hún láti kanna mögu- leika á nytingu afrennslisvatns frá garðyrkjustöðvum til þess að nota til fiskeldis. — mhg Sennileg hækkun búvöru- verös um 6-9% Að fullu bætt með verðbótum 1. júní Um næstu mánaðamót eiga landbúnaðarvörur að hækka i verði samkvæmt venju. Tölu- verðar umræður hafa verið I sex- mannanefnd um túlkun á núgildandi verðstöðvunarlögum og á fundi sinum i gær fól rikis- stjórnin þremur ráðherrum, Pálma Jónssyni, Svavari Gests- syni og Steingrimi Hermannssyni að fjalla um þessi mál. Að réttu lagi hefðu búvörur átt að hækka um 15 til 20% i útsölu- verði, en að þvi er Þjóðviljinn komst næst mun niðurstaðan verða sú að þær hækka i útsölu- veröi um 6 til 9%. Altaf hefur leg- ið fyrir aö einhver hækkun yrði á búvöru, vegna þess að kaup bóndans i verðlagsgrundvelli búvara hækkar I samræmi við hækkun verðbóta á laun sem verða 5.95% 1. mars. Sérstök ástæða er til þess að vekja athygli á þvi að með bráða- birgðalögunum frá áramótum eru skerðingarákvæði ólafslaga afnumin út árið, og þar með svo- kallaöur búvöruliður, sem er launaliður bóndans i verðlags- grundvelli búvöru. Þessvegna fá almennir launþegar þá búvöru- hækkun sem veröur 1. mars að fullubætta 1. júni i þeim verðbót- um sem þá koma á laun. Hefðu Ólafslögin gilt áfram hefði sú hækkun búvara sem leiðrétting á launalið bóndans 1. mars hefur I för með sér ekki verið bætt i kaupi. — ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.