Þjóðviljinn - 10.04.1981, Qupperneq 5
Föstudagur 10. aprll 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
„Bókin er unnin i óþökk þeirra sem um er fjallaö”. —Frlmúrari á leiö
til fundar.
Saga áhrifa-
mikils leyni-
félagsskapar
Ot er komið fyrra bindi
bókar sem hefur drjúga
Morgunkaffi
Rauðsokka
Kjaramál
fóstra
Gestur í morgunkaffi
RauBsokka á laugardag
veröur að þessu sinni Kristin
Kvaran formaður Fóstru-
félagsins. Það hefur mikið
verið um að vera hjá fóstrum
undanfarna mánuði. Þær
hafa náð nokkrum árangri
úti á iandi, en hér i Reykja-
vík standa mál þannig að
fóstrur hafa sagt upp frá og
með 1. maí. Hvað er að ger-
ast hjá fóstrum, aö hverju
stefna þær, hvers konar upp-
eldi viljum við veita börnum
á dagvistarstofnunum?
Þessi mál verða rædd á
laugardag kl. 12 á hádegi i
Sokkholti Skólavörðustfg 12
og þar verður kaffi og með-
læti á boðstólum.
Fundur um
máefni
þroska-
heftra
i kvöld kl. 20 verður hald-
inn á K jarvalsstöðum á veg-
um Junior Chamber kynn-
ingarfundur um málefni
þi-oskahcftra og verður þar
fjallaö um atyínnu- og
mcnntunarmál þörskaheftra
og uppbyggingu' þjónustu-
stofnana.
Andrés B. Sigurðsson
landsforseti JC setur fundinn,
Friðjón Þóröarson dóms-
málaráðherra flytur ávarp,
Egill Sktlli Ingibergsson
borgarstjóri fjallar um at-
vinnumálin, Eggert Jó-
hannesson læknir um þjón-
ustustofnanir og Magnús
Magnússon sérkennari um
menntunarmálin, en siðan
verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri verður Asgeir
Gunnarsson.
möguleika á að valda þó
nokkru f jaðrafoki með því
hún fjallar um
„viðkvæmt" efni, eins og
það heitir, m.ö.o.: leyni-
félagsskapinn Frímúrara-
regluna. Bókin heitir
Bræðrabönd og er eftir
Olfar Þormóðsson, sem
áður hefur gefið út fjórar
skáldsögur. Höfundur
hefur þegar vakið athygli
blaða á því, að svo virðist
sem nokkur hrollur fari
um menn í nálægð slíkrar
bókar — að minnsta kosti
treystu bókaf orlög sér ekki
ti! að taka hana til út-
gáfuog gefur Úlfar bókina
út sjálfur.
I formála segir Olfar m.a.:
„Frimúrareglan er heims-
hreyfing. Hún er hvorki skáta-
félag né hjálpræðisher. Hún er
heldur ekki glæpamafia. Hún er
félagsskapur allra valdamestu
manna hérlendis og erlendis.
Innan hennar raða er að finna
æðstu menn framkvæmdavalds,
löggjafarvalds og dómsvalds.
Allir valdaþræðir þjóðllfsins
tvinnast saman innan hennar.
Með frímúrurum hafa verið tekn-
ar stjórnmálalegar ákvaröanir,
sem djúpt markar fyrir enn I
islensku þjóölifi og reyndar
mannkynssögunni allri”.
I fyrra bindi bókarinnar er
fyrst rakin veraldarsaga Fri-
múrarahreyfingarinnar og gefin
sýnishorn af heimspeki hennar og
helgisiðum. Þá er kafli um sögu
islenskrar Frimúrarahreyfingar
allt til ársins 1945. Siðan er skrá
(myndskreytt) yfir þá sem gerst
höföu frimúrarar fyrir 1960 og
siöan kafli um mannaskipti i
forystusveit og embættismanna-
tal reglunnar.
í seinna bindi verður saga is-
lenskra frlmúrara 1945—80,
nafnaskrá yfir þá sem gengið
hafa i regluna eftir 1960. 1 sér-
stökum kafla „verður sagt frá
samskiptum frimúrara viö aðra
heima”. Þar verður og grein frá
öðrum „karlaklúbbum”, svo sem
Oddfellow, Rotary ofl. og dregnar
saman ályktanir af verkinu. Von
er á seinna bindi eftir 6—8 vikur.
„Otgáfan er þó bundin þvi, að
ekki verði brugðið fyrir hana fæti
með einum eða öðrum hætti,”
segir höfundur i formála.
Fyrra bindið er 216 bls.
Fyllt upp í fjöruna við
Faxaskjiol
Ibúunum kynnt málið á næstunni
Einhvern næstu daga mun
ibúum i vesturbænum veröa
kynnt hugmynd sem uppi er um
stórfellda uppfyllingu I fjörunni á
mótum Ægissiöu og Faxaskjóls.
Umhverfismálaráð hefur lagt tö
aö mold sem hlaðist hefur upp
vegna byggingaframkvæmdanna
við Eiösgranda verði notuö til að
fylla upp i heldur óhrjálega fjör-
una meö það fyrir augum að það
verði útivistarsvæöi.
Umhverfismálaráð ákvaö að
láta gera uppdrætti af svæðinu og
kynna þá siöan ibúunum i
grenndinni Er nú verið að vinna
það verk hjá Borgarverkfræðingi
og I framhaldi af þvi verða
hengdir upp uppdrættir i
verslúnum i vesturbænum til að
ibúunum gefist kostur á að
mynda sér skoöanir á fram-
kvæmdunum og koma athuga-
semdum sinum og tillögum um
það sem betur mætti fara á fram-
færi. Skrifstofa Borgarverk-
fræðings veitir öllum athuga-
semdum viðtöku.
Þarna gefst Ibúunum sem sagt
kostur á að kynna sér skipulags-
hugmyndir varðandi næsia um-
hverfi þeirra á frumstigi og ætti
að vera óþarft að hvet ja þá til að
nota sér það.
Framleiðsla steypustáls
Getur skilað arði
„Ef stjórnvöld eru reiðubúin að
vernda framleiðsluna timabundið
fyrir verðfellingu (dumping)
erlendra framleiðenda þannig að
verksmiðjan búi við svipað af-
urðaverð og erlendir fram-
leiðendur i sinum heimalöndum
cr rekstrargrundvöllur verk-
smiðjunnar tryggöur. Að öðrum
kosti gæti orðið um timabundna
erfiðleika að ræða”.
Svo segir I skýrslu, sem verk-
efnastjórn iiðnaöarráðuneytisins
um stálbræðslu hefur nýlega sent
frá sér. í verkefnisstjórninni áttu
sæti: Haukur Sævaldsson frá
Stálfélaginu hf., Jafet Ólafsson
frá iðnaðarráðuneytinu, Sveinn
Erling Sigurðsson frá Seðlabank-
anum og Friðrik Danielsson frá
Iöntæknistofnun Islands.
I skýrslunni er gerö grein fyrir
áætlun um islenska steypu-
styrktarstálframleiðslu. Innan-
landsmarkaður fyrir steypu-
styrktarstál er talinn vera nú um
13þús. tonn á ári. Reiknað er með
2,1% árlegri aukningu hérlendis á
notkun stálsins næsta áratug, en
hún var 5% á árunum 1970—1980
og aö markaöshlutdeild verk-
smiðjunnar innanlands veröi um
90%. Ef framleiösla hæfist 1983
yrði framleiöslumagnið fyrsta
árið 12700 tonn. Ekki er reiknað
með útflutningi.
Fyrstu árin, á meðan innlend
brotajárnsframleiðsla er aö
komast á skrið, er reiknað með að
verksmiðjan kaupi 40% af brota-
járninu erlendis frá. Þaö hlutfall
á siöan að lækka jafnt og þétt og á
milli áranna 1988 og 2000 er
áætlað að til falli hérlendis að
meðaltali 15 þús. tonn af nýtilegu
brotajámi árlega.
Meöan á byggingu verksmiðj-
unnar stendur er hugsanlegt að
keyptar yrðu birgðir af innlendu
brotajárni sem myndu gera inn-
flutning óþarfan t.d. fyrstu3árin.
Stofnfjárþörf verksmiðjunnar
er áætluö 67,7 milj. S.kr. Gerðar
eru kröfur til að fjárfestingin skili
sér á 15 árum, (endingartimi
verksmiðjunnar veröi 15 ár) og að
meðaisöluverð stálsins verði 2187
S.kr. /tonnið, frá verksmiðju.
Afkastavextir fjárfestingarinnar
á 15 ára rekstrartimabili eru
áætlaöir um 10,6% á föstu verð-
lagi. Haldist meðalverð siðustu 2
ára allt rekstrartimabilið verða
afkastavextir 8% en ráö er fyrir
þvi gert, að stálmarkaðurinn,
sem nú býr við offramleiðslu og
lágt verð, nái jafnvægi um miðjan
áratug. Muni verð þvi hækka_ á
alþjóðam arkaði og þá um léið
afkastavextir verksmiðjunnar.
Verkefnisstjórnin segir kosti
verksmiðjunnar, þá, sem ekki
hafi verið metnir til fjár i áætlun-
inni vera m.a. þessa:
1. Umhvefisbætandi áhrif, þ.e.
nýtir brotajárn, sem annars
safnast fyrir.
2. Aukin atvinna i landinu.
3. Eykur öryggi hvað varðar
aðdrætti grundvallar-byggingar-
efnis.
4. Gjaldeyrissparandi áhrif.
5. Eykur fjölbreytni atvinnu-
lifsins og inn flyst þekking um
grundvallar iönaðarstarfsemi.
Ókosti innlendrar framleiösiu
telur verkefnisstjórnin fyrst og
fremst geta^orðið þá, aö þegar
erlendur sta'liðnaður á I erfið-
leikum, gæti um skeið orðiö
hærra verðlag á innanlands-
markaöi miðað viö það sem yrði
ef um væri að ræða verðfellingu
erlendra framleiðenda. Ef stjórn-
völd gripu til verndunaraðgeröa
myndi verð þannig hækka eða
haldast hátt en þó trúlega aðeins
um takmarkaðan tima.
Niðurstöður verkefnisstjórnar-
innar eru þær að verksmiðja þvi-
lik sem hér um ræðir, geti skilað
v i ð u n a n d i arði
og reynst býsna stöðugt
fyrirtæki.
—mhg
VlÐ
S'
tv.kkuMör\J-
Nýr og stærri Matvörumarkaður á 50% stærri gólffleti en áður.
Stóraukið kælirými fyrir ferskar kjötvörur og meira vöruúrval
á flestum sviðum. Tvöfalt fleiri afgreiðsluborð þýðir skjótari og
betri afgreiðslu.
í tilefni stækunarinnar bjóðum við sérstakt
PÁSKATILBOÐ
Páskaegg með 20% aislætti
T.d. páskaegg, sem venjulega kosta kr. 105.00, kosta
nú hjá okkur aðeins kr. 84.00.
BJÓÐUM ALLAR VÖRUR MARKAÐSVERÐI
FÖSTUDAGSKYNNING:
í dag kl. 2—8 kynnum við Sanitasdrykkina og a nerisku
DELUXE kökurnar.
Opið til kl. 10 i kvöld og til hádegis á morgun.
MAT V ORUM ARK AÐUR
Hringbraut 121 s. 10600/28602