Þjóðviljinn - 10.04.1981, Page 11
Föstudagur 10. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
A morgun, laugardag kl. 14.00
veröur væntanlega fyrsti leikur
Reykjavikurmótsins I knatt-
spyrnu, en þó spila K.R. og
Víkingur! Upphaflega átti mótiö
aö hefjast siöastliöinn mánudag
meö leik Þróttar og Vals, en
vegna votviöris aö undanförnu
hafa vellir borgarinnar veriö
ókeppnishæfir.
Góður þurrkur var i gær og ef
hann helst md búast viö að knatt-
spyrnumenn geti hafið sina
alvöru keppnisvertið mjög fljót-
lega. Jón Mgnússon aðstoðar-
vallarstjóri sagði i gær, að Mela-
völlurinn væri orðinn sæmilegur
og að öllum likindum keppnishæf-
ur nú um helgina.
Um ástand Laugardalsvallar er
litið hægt að fullyrða nú. Hann er
orðinn þurr, en kalskemmdir
koma ekki fram fyrr en fer að
grænka.
— Eya.
Borðtennislandsliðið
er tilbúið í slaginn
Landsliö tslands i borötennis
hcldur nú næstu daga áleiöis til
Jifgóslavlu, hvar þaö mun taka
þátt I Heimsmeistaramótinu.
Strakarnir leika gegn Kanada,
Pakistan, Jórdaniu, Kýpur,
Brasiliu, Möltu og Uruguay.
Stelpurnar leika gegn Macao,
Nigeriu, Kólombiu, Skotlandi og
Sómalíu.
Landsliðskrakkarnir hafa æft
af kappi upp á slðkastið og á æf-
ingu I þessari viku smellti —gel
mynd af þeim: Strákar f.v.:
Hilmar Konráðsson, Einar
Einarsson og Hjálmtýr Haf-
steinsson. Stelpur f.v.: Ragn-
hildur Sigurðardóttir, Guðbjörg
Stefánsdóttir og Ásta Urbancic.
Þaö er fyllsta ástæöa til aö hvetja alla áhugamenn um sklöagöngu aö
taka þátt I Bláfjallagöngunni.
/
Viðavangshlaup Islands á Selfossi
Mætið á stígvélum
Viöavangshlaup tslands fer
fram á svonefndu Merkilandstúni
á Selfossi næstkomandi sunnudag
kl. 14. Keppt veröur I sjö flokkum
og hljóta þrir fyrstu I hverjum
flokki verðlaun. Þá veröa og veitt
verölaun fyrir fljótustu 4 og 10
manna sveitir og elstu 5 manna
sveit karla. Einnig veröur elsti
keppandi er lýkur hlaupinu
verölaunaður.
Hér á eftir fer svo timaseðill og
vegaleagdihverjum flokki: kl. 14
stelpur (l,5km), 14:15 strákar
(l,5km), 14:30 telpur (l,5km),
14:45 piltar (l,5km), 15:00 konur
(3,0km), 15:20 sveinar og drengir
(3,0km), 15:40 karlar (8,0km).
Þvi má svo hér viö bæta, að'
áhorfendur-, starfsmenn og
blaðamenn eru beðnir um að
koma vel búnir til fótanna þvi að
votlent er á staðnum.
— G
Arni Indriöason át tistórgóöan leik meö Vlkingsliöinu I gærkvöldi og skoraöi 4 mörk.
Laufléttur sigur
Víkrnga 27-19
Víkingur áttickki i ýkjamiklum
vandræöum meö að tryggja sér
sæti I úrslitum bikarkeppni HSl I
gærkvöldi þegar liöiö lagöi Fram
aö velli meö 8 marka mun, 27—19.
Leikurinn var jafn og spenn-
andi i byrjun og virtust
Framararnir liklegir til þess að
veita hinum harðskeyttu Viking-
um harða keppni, 1—1, 3—3, og
0—6. Vikingur komst i 8—6, Fram
minnkaði muninn strax, 8—7. Nú
hreinlega sprakk Framblaðran,
Vi'kingurbreyttistöðunni úr 8—7 i
13—8 á skömmum tima. Leikhlé.
Bilið var einum of mikið til þess
að Fram tækist að brúa það aö
ráði og 4—6 marka munur hélst
lengi frameftir hálfleiknum,
16—10, 18—14 og 21—16. Lokatölur
urðu siðan 27—19 fyrir Viking.
Markhæstir voru: Vikingur:
Þorbergur 6, Páll 5, Ólafur 4 og
Ami 4. Fram: Atli 4 og Hannes 4.
Páll og Arni léku nánast óað-
finnanlega i Vikingsliðinu. Þá átti
Ólafur góða spretti. Sigurður
Þorsteinsson, markvörður bar
nokkuð af i Framliðinu: Atli barð-
ist vel og Theodór kom nokkuð á
óvart.
— IngH
Bláfjallagangan
Næstkomandi laugardag kl. 2
e.h. er ætlunin aö hafa skiða-
göngu fyrir almenning. Gengnir
veröa 16 km frá Bláfjöllum til
Hveradala um Þrengsli.
Þarna er um létta leið að ræða
og fólk eindregið hvatt til að
mæta. Þátttökugjald er 70 kr og
greiðist á innritunarstað, þ.e.a.s.
á skrifstofu Skiðafélags Reykja-
vikur að Amtmannsstig 2, föstu-
daginn 10. april kl. 18—21, eða i
allra siðasta lagi kl. 12 á laugar-
dag við Bláfjallaskála. —G
Danirnir
sigruðu
Danska liöið Virum sigraöi
Hauka i vináttuleik I handbolta I
Hafnarfiröi meö 24 mörkum gegn
22. Danskurinn haföi yfir I hálf-
leik 13-8. — IngH
Reykjavíkurmótið
hefst á morgun
jÞróttarsigur
Hinir ungu leikmenn HK úr
Kópavogi veittu Þrótturum
harða keppni, þegar liöin
mættust I undanúrslitum
bikarkeppni HSÍ i gærkvöldi.
Þrótti tókst samt aö merja
sigur, 15-11, og tryggja sér þar
meö þátttökurétt i Evrópu-
keppni bikarhafa aö ári, þvl
hitt liðið I úrslitunum, Vlking-
ur mun keppa i Evrópukeppni
meistaraliða.
Þróttur komst i 4-0 i byrjun
leiksins i gærkvöldi, en af
harðfylgi tókst HK að jafna 5-
5. Staðan i hálfleik var slðan 7-
6, Þrótti i vil.
Barningurinn hélst fram-
undir miðjan seinni hálfleik,
10-8, en þá skoraði Þróttur 3
mörk i röö, 13-8, og nánast
tryggði sér sigurinn, 15-11.
Siguröur Sveinsson (nei,
ekki sá) skoraði 5 mörk fyrir
HK og hann ásamt Einari,
markverði, voru bestir i HK-
liðinu. Páll skoraði 8 af mörk-
um Þróttar.
— G.
Unglmgarnir á NM-mót
Unglingalandsiiöiö i handknatt-
leik (18 ára og yngri) heldur i lok
aprilmánaðar til Sviþjóöar og
tekur þar þátt i Noröurlandamót-
inu. Liðið er þannig skipaö:
Markverðir:
Hallur Magnússon, Vikingi
Gisli F. Bjarnason, KR
Haraldur Ragnarsson, FH
Aðrir leikmenn:
Óskar Þorsteinsson, Vikingi
Einar Magnússon, Vikingi
Hermann Björnsson, Fram
Hinrik Ólafsson, Fram
Björgvin Guðmundsson, FH
Óttar Matthiesen, FH
Guðmundur Albertsson, KR
Aðalsteinn Jónsson, UBK
Asgeir Asgeirsson, Val
Geir Sveinsson, Val
Jakob Sigurðsson, Val
Þorsteinn Jóhannesson er aðal-
þjálfari liðsins og honum til að-
stoðar er Gústaf Björnsson.
Stór hópur á Kalott
Ar hvert velur Frjálsiþrótta-
sambands tslands landslið til
þátttöku m.a. I Kalott-kcppninni
og Norðurlandameistaramóti
unglinga. Þar sem timabil frjáls-
iþróttamanna er nú u.þ.b. aö hefj-
ast hafði Þjóöviljinn samband viö
Magnús Jakobsson stjórnarmann
FRl, og spurðist fyrir um þessi
mót.
Magnús sagði að Kalott-keppni
komandi sumars yrði haldin i
Finnlandi helgina 25.-26. júli.
Þar sem Norðurlandameistara-
mótunglinga yrði næstu helgi,þar
á eftir væri meiningin að sameina
þessar annars tvær ferðir i eina.
Með þvi móti ætti að draga tölu-
vert Ur kostnaði þessu samfara.
Aðspurður um fyrirkomulag
mótanna sagði Magnús, aö engin
breyting yrði á Kalott-keppninni.
Hinsvegar yrði væntanlega
breyting á þátttöku Islendinga i
Norðurlandameistaramóti ungl-
inga. Undanfarin ár hafa Islend-
ingar og Danir teflt fram sam-
eiginlegu liði og svo verður
áfram. Hinsvegar er nU ætlunin
að velja sterkasta, sameiginlega
lið þessara tveggja þjóða. Það er
þvi ekki lengur sjálfsagt að hvor
þjóðin eigi einn keppanda i grein.
Þessi breyting kynni þvi að verða
á kostnað tslendinga, ef miðað er
við árangur undanfarinna ára.
— G
S íþróttir|2 í