Þjóðviljinn - 12.05.1981, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 12. mai 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
Pabbi segir aö fölk sé búiö til úr ryki,
erum viö aö safna hérna?
hvern
Afmælisbörnin illa
svikin:
/
Attu að
borga 150
kr. sænskar
fyrir
gjafimar
Þau fóru heldur betur á mis
við afmælisgjafirnar sinar tvö
ömmubörn i Svfþjóð nýlega og
ekkí verður betur séð en þar sé
lélegri upplýsingagjöf póstþjón-
ustunnar um að kenna. Amman
leit við hér á Þjóðviljanum fyrir
skemmstu og sagði sinar farir
ekki sléttar. Hinn 9. febrúar s.l.
scndi hún tveimur sonarbörnum
sinum i Sviþjóð úlpu og sam-
festing i afmælisgjöf og iét
hangikjötsbita fylgja handa for-
eldrunum sem eru við nám úti.
Kassinn var um þrjú kiló að
þyngd og burðargjaldið var
rúmar fimmtíu krónur.
ömmunni var sagt á póstin-
um að ekki þyrfti að greiða
neinn toll af sendingunni, en
þegar pakkinn kom til Sviþjóðar
fylgdi honum rukkun upp á 150
krónur sænskar. Auraráð náms-
manna eru ekki mikil og úr varð
að pakkinn skyldi endursendur
og börnin fengju aímælisgjaf-
irnar þegar þau koma heim i
sumar án þess að þurfa að
Helgi /
gegn \
lesendum
I dag er peðum þeytt áfram.
Lesendur léku 20. -f7-f5,og þvi
svarar Helgi með 21. h3-h4
—eik—
L.
Þarna sjást afmælisgjafirnar
sem biða sumarfrisins hér uppi
á tsiandi. Ljósm. —Ella.
borga stórfé fyrir þær. Heim
var pakkinn ekki kominn fyrr en
1. april þvi endursendingar fara
allar i skipapóst. Er nema von
að amman spyrji hvernig standi
á slikri þjónustu. „Ég hefði
aldrei farið að senda þetta ef ég
hefði fengið upplýsingar um að
þau þyrftu aöborga svona mikiö
fyrir pakkann”, sagði hún. ,,Og
það versta er að ég spurði og
fékkröngsvör. Hjá póstþjónust-l
unni ættu auðvitað að liggja!
frammi leiðbeiningar um þessa
hluti”. Undir það geta áreiðan-
lega allir tekið. — AI
vidtalið
Rætt við Inga Hans
Jónsson um
blaðaútgáfu
í Grundarfirði
Gamall
draumur
rætist
Vestur i Grundarfirði er farið
að gefa út blað. Nefnist það
Birting og kemur út á vegum
Aiþýðubandalagsfélags Grund-
arfjarðar. Blaðið er i ritlings-
formi, offsetprentað, og
abyrgðarmaður þess er Krist-
berg Jónsson.
I ávarpsorðum Inga Hans
segir m.a.:
„Við Alþýöubandalagsmenn
höfum talið að fólk almennt
fylgist ekki nægjanlega vel með
málum byggðarlagsins og litið
sé gert til þess að gera þvi það
kleift. Við álitum, að ef vel tekst
til með útgáfu Birtingar, verði
auðveldara fyrir fólk aö kynnast
málunum, a.m.k. frá sjónarhóli
okkar Alþýðubandalags-
manna”.
Og svo hringdum við I Inga
Hans:
— Og þiö eruð bara farnir að
gefa út blaö?
— Já, við höfum ráöist i þessa
útgáfu. Það er nú eiginlega
gamall draumur okkar að reyna
að gefa hér út blað. I lögum
Alþýðubandalagsfélags Grund-
arfjaröar, sem stofnað var 2.
okt. 1959, segir m.a.:
„Tilgangur félagsins er að
vinna að málefnum Alþýðu-
bandalagsins og sveitar-
stjórnarmálum, með þvi m.a.
að halda uppi félagslegri og
pólitiskri starfsemi, svo sem
fundahöldum, blaðaútgáfu
o.fl.”.
Þessi hugmynd, sem nú er
reynt að gera að veruleika, er
þvi jafn gömul félaginu.
Við getum sagt, að þetta
fyrsta tbl. sé einskonar
tilraunaútgáfa. Stjórn félagsins
var falið að sjá um efnisöflun i
blaöiö og vinnslu á þvi og siöan
var kosin þriggja manna rit-
nefnd henni til ráðuneytis. A
fundi, sem væntanlega verður
haldinn n.k. sunnudag (10.
mai), verður svo fjallað frekar
um fyrirkomulag þessarar
útgáfustarfsemi.
— Hvað hafið þið hugsað
ykkur að gefa út mörg tbl. á ári?
— Þaö er alveg einhugur um
það að gefa blaðið út á þriggja
mánaða fresti.
— Og þið hugsiö ykkur þetta
sem alhliöa blaö þar sem fjallað
verður um málefni byggðar-
lagsins jafnframt þvi, að litiö
verður til pólitikurinnar?
— Já, fyrst og fremst hugsum
við okkur aö ræða þarna og reifa
mál, sem sérstaklega snerta
byggöarlagið og svo þjóömál
almennt, eftir þvi sem rúm og
önnur aöstaða leyfir. Buröar-
greinarnar i þessu fyrsta tbl.
mega teljast vera fjórar:
Sigurður Lárusson ritar um
verkalýðsmál, Ragnar Elbergs-
son um hreppsmál, Jóhann
Asmundsson um upphaf verka-
lýðshreyfingar I Grundarfirði
og Skúli Alexandersson,
alþingimaður, um sitthvaö
snertandi Snæfellsnesið, eink-
um noröanvert. Ætlunin er, að i
hverju tbl. birtist grein eftir ein-
hvern þingmann Alþýðubanda-
lagsins.
— Hver annast prentun á
blaöinu?
— Það gerir Stensill við
Óöinsgötuna i Reykjavik.
— Er þetta ekki I fyrsta sinn
sem blað er gefið út i
Grundarfirði?
— Jú, þetta er fyrsti visir að
reglulegri blaðaútgáfu hér.
— Og hvernig viðtökur fékk
blaðið?
— Afskaplega góöar viötökur.
Undan þeim þarf svo sannar-
lega ekki að kvarta.
— Svo þið eruð ekki hræddir
um aö halli verði á fjárlögun-
um?
— Þetta fyrsta tbl. kom út
meö mátulega miklu tapi. Það
sagði nefnilega einn af okkar
góðu mönnum hér á Grundar-
firöi, þegar ráðist var i þessa
útgáfu, að hann tæki sér i munn
þau orð Magnúsar
Kjartanssonar, sem hann
viðhafði einhverntima á afmæli
Þjóðviljans, að hann vonaði að
það blað yrði aldrei rekið með
hagnaði. En að þvi slepptu þá
held ég að við þurfum svona 300
eintök til þess að blaðið beri sig.
Við höfum fulla möguleika á að
dreifa 200 eintökum, þannig að
við leggjum svona hæfilega
mikið með þessu sjálfir.
— mhg
Fjölskyldulifið á áreiðanlega
mikla framtíð fyrir sér. Nú þora
ungiingarnir ekki lengur út af
ótta viðaðkarlinn og kerlingin
detti i það, og foreldrarnir þora
ekki út af ótta við að börnin
komist I klámmyndirnar. Ailir
eru hcima!
Bjarni Guðmundsson túbuleikari og William Gregory básúnuleikari
halda tónleika að Kjarvalsstöðum I kvöld kl. 20.30. Þeir leika verk
eftir Hindemith, Krenek, Vaughan Williams og fieiri og með þeim
koma fram Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Þorkell Sigurbjörnsson,
David Johnson og Nora Kornblue.
Um bágindi ÓLA JÖ
Þessar vísur urðu til fyrir nokkrum vikum, þegar
flugstöðvarbyggingin var til umfjöllunar á Alþingi.
Höfundur lætur ekki nafns síns getið:
óli Jó á orðið bágt,
orðið fátt til vina.
Ansi flýgur andinn lágt
um f lugherstöðina.
Kominn er í krappan dans
klærnar alþjóð sýnir.
Uta nr íki sráðher ra ns
raustu dimma brýnir.
Herfræðileg heimsmynd skýr
hreinum línum dregin:
Óli Jó sem orðinn nýr,
orðinn hei laþveginn.
AAargt í kusu kolli er skrýtið
kynlegt mjög á þingi tal.
Fyrir kappann lagðist lítið,
lengi manninn reyna skal.
'i
< [i i
Q
t
O
ÞL, 11