Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 3
Aukaþing Sjálfsbjargar hefst á morgun: Útifund- ur á Lækjar- torgi á laugar- dag A morgun, laugardaginn 13. jUni' hefst tveggja daga aukaþing Sjálfsbjargar, landssambands fatlaöra í Reykjavik. í tengslum við þingið verður haldinn útifund- ur á Lækjartorgi á laugardag kl. 13.30. Meginmál þingsins verða, al- þjóðaár fatlaðra, með sérstakri áherslu á atvinnu- og lifeyrismál. Stefán Jdnsson, formaður tryggingaráðs, ræðir lifeyrismál og svarar fyrirspurnum. Framsögumenn verða Þórður Ingvi Guðmundsson, sem ræðir frumvarp til laga um málefni fatlaðra, Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, ræðir samstarf Sjálfs- bjargar og ASl og Theodór A. Jónsson, sem hefur framsögu um alþjdðaár fatlaðra. Norrænir skurðlæknar: Þinga í Reykjavík í gærmorgun hófst í Reykjavík 40. þing norrænna skurðlækna (Nordisk Kirurgist Forening). Setningarathöfnin fór fram 1 Þjóðleikhúsinu. Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir léku sam- an á flautu og sembal, Garðar Cortes og Ólöf K. Harðardóttir sungu en setningarræðu flutti Friðrik Einarsson, forseti Skurð- læknafélags Norðurlanda. A ráðstefnunni verða fluttir 108 fyrirlestrar um læknisfræðileg efni og auk þess verða fimm sinn- um pallborðsumræður. Norrænu gestimir komu til landsins með rússnesku skemmtiferðaskipi „Mikhail Lermontov” og á leiðinni til Is- lands fluttu dr. Gylfi Þ. Gislason og Páll Imsland jarðfræðingur erindi um islenska menningu og náttúru. Þátttakendurnir búa um borð i skipinu á meðan á dvöl þeirra stendur og sigla með þvi til Gautaborgar að ráðstefnunni lok- inni. Ný stjórn Sambandsins Á aðalfundi Sambands islenskra samvinnufélaga sem haldinn var nýlega var kosin ný stjórn. Valur Arnþórsson form. Akureyri var endurkjörinn með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða. Ólafur Sverrisson og Jón- as R. Jónsson voru einnig endur- kjörnir , en þessir þrir áttu að ganga úr stjórn. Aðrir i stjórninni eru Finnur Kristjánsson, Húsavik varaformaður, Gunnar Sveins- son, Keflavik, Hörður Zóponias- son, Hafnarfirði, Ingóifur ólafs- son, Reykjavik, Óskar Helgason, Höfn Hornafirði, og Þórarin Sigurjónsson Laugardælum. Varamenn i stjórn voru kosnir þeir Helgi Rafn Traustason, Sauðárkróki, Þorsteinn Sveins- son, Egilsstöðum, og Ólafur Ólafsson Hvolsvelli, allir kosnir til eins árs. Föstudagur 12. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Hátíðarhöldin 17. júní: Dansleikur í höllinni um kvöldið Strœtóferðir út í hverjin að honum loknum miðbænum og veröur skemmti- atriðum dreift um miðbæinn. I Arbæ og Breiöholti verða skemmtanir i samvinnu við ýmis félagasamtök I hverfun- um. Hin hefðbundu atriöi þjóð- hátiðarinnar eru fyrir hádegi i kirkjugarðinum við Suðurgötu og á Austurvelli. I guðsþjónust- unni i Dómkirkjunni predikar biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson. Þá leika lúðrasveitir við sjúkrastofnanir fyrir hádegið, en hátiðarhöldin i hverfunum hefjast kl. 13.00 með skrúðgöngum.Dagskrár hefjast kl. 13.45 viö Arbæjarskóla og kl. 14.00 við Fellaskóla. Kl. 14.00 hefst frjálsiþrótta- mót viö Laugardalsvöll og á sama tima Reykjavikurmótið i sundi I Laugardalssundlaug. 1 miðbænum verða skátar með leiki og útistörf við Tjarnarflöt- ina frá kl. 13.00-17.00, en kl. 15.00 er safnast saman við Hlemm- torg og siðan gengiö niður Laugaveg undir fánum. A torginu hefst skemmtidag- skrá kl. 16.00, en kl. 16.40 leikur skólalúðrasveit Arbæjar og Breiðholts við MR, Stjúpbræður syngja á Austurvelli kl. 16.45 og Jasshljómsveit úr Tónlistar- skóla FlH leikur á Hótel-tslandsplani kl. 16.50. Kl. 17.00 verður svo götuleikhús við Bernhöftstorfu. Um kvöldið verða hátiðartón- leikar i Bústaðarkirkju, en þá syngur Kór Langholtskirkju is- lensk lög. Hefjast tónleikarnir kl. 21.00, eða um leið og dans- leikurinn i Laugardalshöll. 1 höllinni skemmta hljómsveitir- nar Brimkló og Grýlurnar, en að loknum dansleik kl. 01 um nóttina verða sérstakar strætis- vagnaferðir út i hverfin. Fram- kvæmdastjóri þjóðhátiðar- nefndar er ómar Einarsson. Sumarsýningar Kjarvalsstaða hefjast á morgun. t gær var unnið kappsamlega aö uppsetningu sýningar 13 listamanna I vestursalnum. Þar er listiðnaður á ferðinni, sýning sem er nýkomin til landsins eftir mikla sigurgöngu meðal Svia. A myndinni er Guðrún Auðunsdóttir að ganga frá einu verka sinna. Ljósm.:gel. Ýmis nýmæli eru i hátiðar- höldunum á 17. júni i ár og má þar fyrst geta kvölddansleiks sem verður i LaugardalshöII frá kl. 21-01. Er þetta I fyrsta sinn sem dansleikur er innánhúss á vegum þjóðhátiðarnefndar og er aðgangur ókeypis eins og að öðrum skemmtunum á vegum nefndarinnar. Formaður Þjóö- hátiðarnefndar er Þorsteinn Eggertsson og sagði hann á fundi með blaðamönnum að fjárhagur nefndarinnar hefði ekki leyft kvölddansleik i fyrra en i ár heföi verið ákveðið að halda dansieik og hafa hann innandyra. Þá eru einnig nokkur nýmæli i aðalskemmtuninni sem verður i Hluti af félagsheimilinu verður tekinn I notkun I sumar sem þjónustumiöstöö fyrir orlofsgesti. 1 sumar verður tekinn i not- kun hluti af félagsheimili sjó- manna sem verið er að ijúka smiði á að Hraunborgum i Grimsnesi. Heimilið er byggt af eigend- um orlofshúsa i Hraunborgum og sjómannadagssamtökunum, en það stendur skammt frá barnaheimili Sjómannadagsins. Húsin eru tvö og samtengd, samtals 250 ferm. að stærð, og verða nýtt sem þjónustumiðstöö fyrir orlofsgesti og fyrir margs konar félagsstarfsemi til funda og ráðstefnuhalds. Barnaheimili Sjómannadags- ins tekur til starfa i lok þessa mánaðar, og ennþá eru nokkur pláss laus. -lg. r------------------> jGöngudagur FI iá sunnudaginn I 40 norrænir gestir ganga með IGöngudagur Feröafél- ags Islands, hinn þriðji í , rööinni, verður á sunnu- Idaginn. Ungmennafélag islands var með almenn- an göngudag í fyrra- j sumar sem þótti takast vel, en í þetta sinn standa þessi félög að göngudegi • sameiginlega, Fl annast Iframkvæmdina í Reykja- vík, en ungmennafélögin . úti á landi með aðstoð Fl Iá þeim stöðum sem deild- ir þess eru starfandi. , Tilgangur beggja Ifélaganna mun vera hinn sami, að kenna fólki að lifa með þessu landi, sem þrátt fyrir kuldalegan svip á stundum er dýr- gripur sem við megum aldrei skemma. Göngudagurinn á að vera fyrir alla, unga sem aldna, ein- staklinga og fjölskyldur. Þess vegna eru þær leiðir sem valdar eru ekki erfiðar, heldur léttar. Fyrir okkur sem á Stór-Reykjavikursvæöinu búum hefur Ferðafélagið valið að þessu sinni afar fagurt land. Ekið verður suður fyrir Hafn- arfjörð, um Krísuvikurveg að Sveifluhálsi og farið suður með honum aö vestan þar til komiö er aö Djúpavatni. Hér eru næg bilastæði, enda veröa þeir skild- ir eftir hér bílarnir, hvort sem eru rúturnar eða einkabllar , sem fólki er frjálst að koma á. Gengið verður norður fyrir vatnið sem er afar fagurt inná milli hraungiga, upp á Grænavatnseggjar og um Sog og Spákonuvatn að Sogaselsgig þar sem verður áð. A þessarri leið er margt að sjá og skoða, litrik fjöll og merkilega giga, gömul hverasvæði og landslag i hrauni og mosa. Gangan að þessu sinni er dá- litið sérstök fyrir það að yfir 40 gestir frá norskum og sænskum feröafélögum taka þátt i henni og koma reyndar til landsins fyrst og fremst i þeim tilgangi. A Norðurlöndunum hefur slikur göngudagur fyrir löngu unnið sér fastan sess og taka þúsundir þátt i göngunum þar. Safnast verður saman á hin- um hefðbundna stað Ferðafél- agsins við Umferðarmiðstöðina að austanveröu, kl. 10.30 um morguninn og svo aftur klukkan 13.00. Þarna er semsé um tvær göngur að ræða og geta þátttak- endur þeir hinir árrisulu sem leggja af stað kl. 10.30 lengt ferðina og treint sér daginn og tekið seinni rúturnar til baka. Áætlaður göngutimi er 3 stundir. Varaforseti F.I., Sveinn Jakobsson jarðfræöingur, mun flytja stutt ávarp við upphaf Göngudags, 81 en siðan munu fararstjórar Ferðafélagsins taka við og leiða gönguna og fræða þátttakendur eftir föng- um um aðskiljanlegar náttúrar Reykjanesfjallanna. Mætum Öll, glöð og hress i gönguna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.