Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 12.06.1981, Blaðsíða 11
Föstudagur 12. júní 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 i|>róttir [A íþróttir „Stjörnuhátíðin í Laugardal": Valur leikur gegn Stjömuliði Asgeirs „Þaö kom upp að knattspyrnu- deildin myndi sjá um eitthvert stórt og mikið atriði I 70 ára af- mlishátíö Vals og stefnan var fijótlega sett á að koma I kring leik meistaraflokks félagsins og atvinnumanna tslands erlendis. Þetta hefur slðan verið að mótast smátt og smátt I höndunum á okkur og nú má segja að nær öll smáatriðin séu komin á þurrt land,” sagöi Baldvin Jónsson, en hann á sæti I undirbúningsnefnd vegna fyrirhugaðrar „Stjörnuhá- tlðar I Laugardal” á vegum Vals- manna 17. júni. Aðalatriöið á hátlðinni verður leikur Vals og svokallaðs Stjörnu- liðs Asgeirs Sigurvinssonar, en Ásgeir hefur verið potturinn og pannan I mörgu þvi er litur að framkvæmdum vegna þessa leiks. Hann varð fyrir þvi óláni að meiða sig i úrslitaleiknum i belgisku bikarkeppninni fyrir skömmu og getur þvi ekki leikið sjálfurmeö. I staöinn mun Asgeir stjórna liöinu utan vallar. Stjörnulið Ásgeirs verður þann- ig skipað: Simon Tahamata, Standard Liege Ralf Edström, Standard Liege Dardenne, Standard Liege Jupp Pauli, Fortuna Köln Sænski landsliðsmaðurinn Ralf Edström er I Stjörnuliðinu, hér er hann i leik með Standard Liege allur vafinn i andlitinu vegna nefbrots. Asýndin er ekki beint frýnileg. Fleming Nilsen, Fortuna Köln Hans Joachim Wagner, Borussia Dortmund Teitur Þóröarson, Öster/Lens Janus Guðlaugsson, Fortuna Köln Atli Eðvaldsson, Borussia Dortmund Magniis Bergs, Borussia Dortmund Arnór Guðjohnsen, Lokeren Albert Guðmundsson, Drillers Karl Þóröarson, La Louviere/Laval Pétur Pétursson, Anderlecht Sigurður Dagsson, Val Þá kemur Arnór að öllum lik- indum meö vinstri bakvörð Lokeren-liðsins, en hann er belgi'skur unglingalandsliösmað- ur. E kki var fullvist I gæ r aö Pét ri takist að komast i leikinn, en það kemur I ljós um helgina. Eins og sjá má af upptalning- unni hér að ofan eru engir smá- karlar I Stjörnuliðinu. Edström og Tahamata eru lykilmenn I Standard, sá siðarnefndi einn af bestu Utherjum i Evrópu. Nilsen er danskur landsliðsmaður og lákur með Janusi hjá Fortuna Köln, Pauli er markvöröur liös- ins. Dardenne er fastamaöur i Standard. Sömu sögu er hægt aö segja um Wagner, hann er einn af miðjumönnum Dortmund. Um is- lensku strákana þarf vist ekki að fara mörgum orðum. Og þó, Siggi Dags tekur skóna (og mark- mannshanskana) fram aö nýju og verður varamarkvöröur. Stjörnuhátiðin hefst kl. 17.30 á Laugardalsvellinum með leik rokkhljómsveitarinnar Start. Þá kemur Laddi fram og tekur nokk- ur nýleg lög, m.a. eittglænýtt um Skiila okkar óskarsson. Um kl. 18.15 hefst slöan sjálfur stórleik- urinn. Forsala hefst i dag kl. 12 '’ið Karnabæ i'Austurstrætiog fá þeir sem kaupa miða fyrstu 2 timana fritt Kók, sem hinn nýi Kókheili framleiöir. Verð er kr. 60 I stiíku, 40 í stæði og 20 fyrir börn. — IngH Þórsarar með knattspyrnu- skóla Knattspyrnudeild Þórs á Akureyri starfrækir I sumar i annað sinn knattspyrnuskóla fyrir stráka og stelpur 10 ára og yngri. Aætlað er að halda fjögur námskeið i sumar og eru tvö fyrstu þegar hafin. Þau fóru mjög vel af stað — fullbókað er i bæði og komust færri að en vildu. Kennarar eru þrir iþróttakennarar, Þröstur Guð- jónsson, Valþór Þorgeirsson og hollendingurinn Cees van de Ven. Hannes, Björgvin, Geir og Ragnar á EM, en... Átta kylfingar keppa um tvö laus sætí Kapparnir hér að ofan, Björgvin, Geir og Ragnar eru þegar komnir I golflandsliðið ásamt Hannesi Eyvindssyni. Kjartan L. Pálsson, landsliðseinvaldur í golfi, tilkynnti í gær val sitt á 4 af 6 keppendum íslands á Evrópumeistaramótinu, sem f ram fer í St. Andrews vellinum í Skotlandi um aðra helgi. Hinir heppnu eru Hannes Eyvindsson, Geir Svansson, Ragnar Ólafsson og Björgvin Þor- steinsson. í islenska liðinu eiga að vera 6 kylfingar og þeir 2 keppendur sem eftir eru valdir um næstu helgi. Um þessi 2 lausu sæti keppa Sigurður Hafsteinsson, Siguröur Pétursson, Þorsteinn Kærbo, Eirikur Jónsson, Sigurjón Glsla- son, Jón Haukur Guðlaugsson og Július Júllusson. Þessi föngulegi hópur mun keppa á Dunlop-mót- inu um helgina næstu og leika sið- an 18 holur I tvigang. Aö þvi búnu mun Kjartan tilkynna hverjir 2 kylfingar úr hópnum fara til Skot- lands... -IngH Kennd eru undirstööuatriði I knattspyrnu, fariö i almenna leiki, sýndar kvikmyndir og hressingar eru ávallt veittar á staðnum. Hverju námskeiöi lýkur þannig aö farið verður I eins dags ferö og keppt við jafn- aldra i einhverjum nágranna- bæjanna. Boltinn kemur úr háloftunum Fyrirhugað er að knötturinn sem leikið verður með I Stjörnu- leiknum komi af himnum ofan, i orðsins fyllstu merkingu. Siguröur Bjarklind fallhllfa- stökkvari mun henda sér út úr flugvél með boltann undir hend- inni nokkru áöur en leikurinn hefst og lenda á Laugardalsvell- inum. - — Valsmenn leika í Eyjum Stórleikur helgarinnar I fótbolt- anum verður I Vestmannaeyjum, á morgun, laugardag, þegar heimamenn leika gegn Val. Viö- ureignin hefst kl. 15 og er hægt að bóka skemmtilegan baráttuleik. A morgun leika einnig i 1. deild- inni Breiöablik og FH og sam- kvæmt siöustu leikjum ættu Blik- arnir að vinna sigur. Þó er vist aldrei hægt að bóka sigur fyrir- fram I fótboltanum. Leikurinn hefst kl. 14 á Kópavogsvelli. . Heil umferð verður i 2. deild og hefjast allir leikirnar þar kl. 14. I Borgarnesi leikur Skallagrimur gegn Völsungi frá Húsavik. Stór- leikur verður á Melavellinum þar sem Þróttur leikur gegn IBK, sem hefur unnið alla leiki sina til þessa. Á Neskaupstað mæta heimamenn Haukum og i Sand- geröi leikur Reynir gegn IBl, en bæöi liðin eru I toppbaráttunni. Loks fá Selfyssingar Fylkismenn i heimsókn austur fyrir fjall. A sunnudagskvöldiö leikur Vlk- ingur gegn KA á Laugardalsvelli og verður þar vafalitiö hvergi gefið eftir. A mánudagskvöldið veröur siöan siðasti leikur um- feröarinnar i Laugardalnum. „Lið hinna brostnu vona”, KR og Fram, leika. —IngH Ur einu í annað Atviimumaður í Dunlop- keppninni Dunlop-keppnin I golfi verður háð á Ilólmsvelli I Leiru um næstu helgi. Það telst til tiðinda, að á mótinu keppir enskur at- vinnumaöur, Barry Cattridge, en hann hefur kennt golf hér á landi undanfarið á vegum Dun- lop umboðsins. Mótið um helgina gefur stig til landsliðs og verða leiknar 36 holur, með og án forgjöf. Há- marksforgjöf verður 23 og eru væntanlegir keppendur áminnt- ir að taka meö sér félagsskir- teinin. —IngH Kokteilpartí Sá leikmaður sem fyrstur skorar mark I Stjörnuleiknum fær i verðlaun heljarmikiö kokteilpartý i Hollywood þar sem hann getur boðiö útvöldum. Þá fá þeir leikmenn sem skora mörk 10 kassa af Kók i verö- laun, fyrir 2 mörk koma 20 kass- ar I verölaun o.s.frv.. • Búið að bjóða Bolt Frjálsiþróttasambandið hefur gengið frá formlegu boði til kana- díska hástökkvarans Arnold Bolt um að keppa á Reykjavikurieik- unum í sumar. Bolt er einfættur, en hefur samt stokkið 2.04 m, sem er einstakt af- rek. Þaö yröi vissulega gaman ef af keppni hans viö islenska há- stökkvara verður. • Verðraætir fótboltamenn Stjörnulið Asgeirs er skipað mörgum af þekktustu knatt- spyrnumönnum Evrópu og er áætlað söluverð þeirra á milli 3 og 4 miljónir nýkr eöa 3 til 4 miljarðar gamalla króna. Leiftur i 16-liða úrslit Tiu leikir voru i 2. umferð Bikarkeppni KSII fyrrakvöld og urðu úrslit þeirra leikja þessi: Víðir—ÍK................3:0 Fylkir—Snæfell..........2:0 Haukar—UMFG.............2:3 Armann—Afturelding......1:3 ÍBK—Skallagrimur........7:0 Reynir—Þróttur..........0:3 Leiftur—Tindastóll......2:1 KS—Árroðinn.............1:2 Þróttur NK—Leinir.......8:0 Huginn—Austri...........3:0 Noröurlandsliðin Leiftur og Arroðinn eru þegar komin I 16.-liða úrslitin og er það I fyrsta sinn sem það tekst hjá þessum liöum. Oll hin sigurliðin hér að ofan eiga eftir að fara i gegnum eina umferð enn áður en í 16-liða úrslitin verður kom- ið. • Heimsmet Breski hlauparinn Sebastian Coe setti i fyrrakvöld nýtt heimsmet i 800 m hlaupi á frjálsiþróttamóti i Feneyjum á Italiu. Timi hans var 1:41.72 min.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.