Þjóðviljinn - 20.06.1981, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.06.1981, Blaðsíða 2
ÞJÓÐVILJINN Helgin 20.-21. júnl 1981 Helgin 20.-21, júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN 1 leikhús Þjóðleikhúsið Sittustusýningar leikársins verða nú um helgina. og i næstu viku. I kvöld laugardag er La Bdiéme á fjölunum með þeim Garðari Cortes og ólöfu K. Harðardóttur i hlutverkum elskendanna Rudolfo og Mimi. Þessi ópera er einkar ljúf, með hæfilegri blöndu af léttleika, gleði og sorg og tónlistin er fyrsta flokks eins og Puccini var von og visa. A sunnudagskvöld verður sýning á „Sölumaður deyr” eftir Arthur Miller, en þessi sýning hefur fengið fádæma góðar viðtökur áhorfenda og gagnrýn- enda. iÆÍkfélag Reykjavikur Siðustu sýningar á Skornum skömmtum og Rommy veröa nú um helgina. Skornir skammtar . annað kvöld en þar er þjóðlifiö eins og þaö leggur sig dregið inn á veitinga- húsið Frón, sem eins og þjóðarbúið er alltaf á hausnum. Jón Sigurðsson áhugavert reynir hvað hann getur til að auka gróðanna og það gengur á ýmsu. Það eru þeir Þórarinn Eldjárn og Jón Hjartarson settu saman þessa skammta sem fólk hefur skemmt sér við í vetur. Rommy er á laugardags- kvöld en þar sjá þau Sigriður Hagalin og Gisli Halldórsson um hituna. Þar meö lokar Iðnó fram á haust. sýningar Kjarvalsstaðir: 1 vestursal sýna 13 listamenn leir- list, gler, textil, silfur og gull. Þessi sýning var áður i Hásselbyhöll i Svi- þjóð og fékk þar afar góða dóma. Sýn- ingin er geysifalleg og f jölbreytt og i fyrsta sinn getur að lita blásið gler meðal islenskrar nytjalistar. í Austursalnum hefur verkum meistara Kjarvals verið komið fyrir. Norræna húsið Um helgina lýkur sýningu á hug- myndum danska skopteiknarans Storm P. Hann sýnir þar á sinn hátt hvernig hægt er að auðvelda mönnum lifið með hugkvæmni. Einnig eru á sýningunni myndir sem kallast'.börn og dýr. f anddyrinu sýnir Náttúru- fræðistofnun islenska steina. Norræna húsið er opið daglega frá kl. 11—19, og kjallarinn frá kl. 14—19. Nvlistasafnið v. Vatnsstip Þeir Arni Ingólfsson, Helgi Þ. Frið- jónsson og Niels Hafstein sýna verk sin sem árið 1980 voru á alþjóðlegri sýningu i Paris. Galleii Langbrók Guðbergur Auðunsson sýnir verk sin. Galleriið er opið virka daga frá kl. 12—18 og um helgar frá kl. 14—18. Torfan í veitingahúsinu Torfunni stendur yfir sýning á leikmyndum eftir Messi- önu Tómasdóttur. Messiana hefur gert búninga og leikmyndir við fjölda verka, má þar siðast nefna Gust sem sýndur er i þjóðleikhúsinu. Djúpið í kjallara Hornsins á mörkum Hafnarstrætis og Pósthússtrætis sýna þeir Björn Ardal Jónsson og Gestur Friðrik Guðmundsson verk sin. 1 Stuck*chr«ib«r F«**bí Háskólabió Mánudagsmyndin er eftir Reiner Werner Fassbinder og nefnist á is- lensku þriðja kynslóðin. Hún er nýleg og fjallar um ungmenni af borgara- stétt sem gerast hryðjuverkamenn. Þegar dregur að lokum myndarinnar vaknar sú spurning hver þaö sé sem raunverulega stendur að baki þeirra hryðjuverka sem framin hafa verið i Þýskalandi og viðar. Fassbinder hefur sinar skoðanir á þvi og þær falla vald- höfum ekki beinliinis i geö. Fassbinder byggir myndina á raunverulegum at- burðum, en fer nú sem áður sinar eigin leiðir. Þetta er mynd sem enginn ætti að m issa af. HUn er i ekta Fassbinder- stíl. um helgina Menningarvaka Strandamanna A morgun, sunnudag, hefst Menningarvaka i Strandasýslu og stendur út vikuna til sunnu- dagsins 28. júni. Þetta er i annað sinn sém slik vaka er haldin og verður hún með fjölbreyttu efni sem áður. Forseti íslands Vigdis Finn- bogadóttirsetur vökuna kl. 16.30 i Grunnskólanum i Hólmavik með opnun sýningar á verkum Isleifs heitins Konráössonar, en hann var borinn og barnfæddur Strandamaður. Kirkjukór Hólmavikur syngur. Þjóðleikhúsið kemur i heim- sókn meö sýningu á leikriti Jökuls Jakobssonar „I öruggri borg” á sunnudagskvöld og á föstudag koma listamennirnir Sigriður Ella Magnúsdóttir, Simon Vaughan og Jónas Ingi- mundarson og halda söng- skemmtun. Af heimatilbúnu efni má nefna skemmtikvöld sem leik- félag Hólmavikur, kirkjukór Hólmavikur og hinn vinsæli söngflokkur Hvítabandið úr Bjarnarfirði standa að. Þriðjudag i Arnesi og miðviku- dag i Sævangi. Þar veröur flutt leikritið Ruddinn eftir Tsékoff og er þetta frumraun leikfélags- ins. Þá verða á vökunni sýndar kvikmyndirnar Frændi og frænka eftir Jean—Claude Tacella og hin merka mynd Fassbinders, Hjónaband Mariu Braun. Héröasmót HSS verður haldið á laugardag 27. júni og dansleikur i Sævangi um kvöldið. Menningarvökunefnd Strandamanna skipa þau Hjör- dis Hákonardóttir, Matthias Lýðsson og Guðfinnur Finn- bogason. Islandsmótið 1. deild 7.umferð um helgina Heil umferð veröur leikin i 1. deild islandsmótsins i knatt- spyrnu um helgina. i dag laug- ardag, eru fjórir leikir á dag- skrá. Á Akranesi ieika Skaga- menn við Viking, á Kaplakrika- velli leika FH-ingar við Fram, á Akureyri leikur KA við ÍBV og á Laugardalsvelli leikur KR við Þór frá Akureyri. A sunnudeginum er svo mikil- vægasti leikur umferðarinnar þvi þá leika tvö af toppliðum deildarinnar, Valur og Breiða- blik á Laugardalsvellinum. A laugardaginn hefjast allir leikirnir kl. 14 nema leikur IA og Vikings sem hefst kl. 15. Vals- menn og Blikar hefja sinn leik klukkan 20. 12. deild fer 6. umferöin fram. A laugardag leika Völsungar við IBt, IBK leikur við Þrótt frá Neskaupstaö og Skallagrimur mætir Þróttifrá Reykjavik. A sur.nudaginn er einn leikur á dagskrá. Þá leika Haukar við lið Selfoss og á mánudaginn fer svo fram siðasti leikur 6. um- feröar. Þá leika Fylkismenn við Reyni frá Sandgerði. Leikirnir á laugardaginn hefjast allir kl. 14 en hinir leikirnir tveir kl. 20. Samhygð með út- breiðsluherferð Arstföarfundir Samhygðar, félags sem vinnur að jafnvægi og þróun mannsins verða á morgun inánudag með svipuöu sniði og venjulegir vikufundir Samhygðar. Fluttir verða stuttir fyrirlestrar um megin viðfangsefnin og fólki gefst kostur á reynslu af hugaræfing- um. A fundinum fer fram inn- ganga virkra félaga og að lokum verða kaffiveitingar og imræður. Fundirnir eru tileink- aðir útbreiðsiuherferö Sam- hygöar i sumar þar sem lands- mönnum verður gefinn kostur á að kynna sér kenningar og hafa reynslu af aðferðum sem hjálpa mönnum að auka trú á sjálfa sig, aðra og lifið, að brjótast út úr skel sinni og gefa það besta af sjálfum sér segir i fréttatil- kynningu. Fundirnir verða haldnir I Reykjavik i Siðumúla 23 og Skipholti 70 kl. 20.30, Brautar- holti 4 og Siðumúla 31 kl. 21 og i Safnaöarheimilinu i Garðabæ kl. 20.30. Myndir á sýningu Helga. Sýning í Hveragerði V opnf iröingu rinn Helgi Jósefsson myndlistarmaður opnari'dag, laugardag,sýningu i Eden i Hverageröi. Þetta er þriðja einkasýning Helga; hinar tvær fyrri hefur hann haldið á Vopnafirði. y’” v tjtíi ím0 $■ Á fjm Víctn 1 i\m c$ fuojf tji itta Jtmhn i rtfrm it>$ títjfn^odfL nfc 1)h tlft Jm íff tjatlínjtr epf f Handritasýning í Árnagarði: Jónsbók 700 ára Stofnun Árna Magnússonar hefur opnað nýja handritasýn- ingu f Árnagaröi. Sýningin er í senn helguð 10 ára afmæli hand- ritaheimtar og 700 ára afmæli Jónsbókar. A sýningunni eru handritin tvö sem heim komu 21. aprll 1971: Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók, og einnig mörg handrit Jónsbókar, auk litmynda og veggspjalda með skreytingum úr handritum. Jónsbók nefnistlögbók sú sem gerð var að frumkvæði Magn- úsar konungs lagabætis og lög- tekin á Alþingi árið 1281. Hún er kennd við Jón lögmann Einars- son sem átti þátt i gerö hennar og flutti hana til Islands. Deilur voru um Jónsbók í öndveröu, og voru tslendingar tregir til að samþykkja ýmis nýmæli hennar, en siðan varð hún mjög vinsæl og undirstaöa islensks réttarfars i margar aldir. Hún er varöveitt i fleiri handritum en nokkurt annað islenskt mið- aldarit. Mörg Jónsbókarhandrit eru fagurlega myndskreytt, svo sem mönnum gefur að h'ta á sýningunni i Arnagarði. Handritasýningin veröur opin i sumar á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 2—4. BOCCTRHOBJIE rEPOHHECKOr TftnMHrpj a,lc» I'IEUIH tr 40 ár frá innrás nasista í Sovét Heimildarkvik; myndir hjá MÍR Kvikmyndasýning verður í MlR-salnum, Lindargötu 48, 2. hæð, mánudagskvöldiö 22. júní kl. 20.30 i tilefni þess að rétt 40 ár eru liðin frá innrás þýsku nasistaherjanna i Sovétrikin. Sýndar veröa nýjar sovéskar heimildarkvikmyndir með ensku tali, tvær fyrstu mynd- irnar úr nýrri myndaröö um ógnir stríðsins og endurreisn og uppbyggingu i Sovétríkjunum eftir að sigur vannst. Mynda flokkurinn i heild nefnist „Það sem okkur er kærast”. 1 kvikmyndinni lýsa margir eigin reynslu og sagt er frá þvi, hvernig endurreisnarstarfið hófst viöa jafnskjótt og inn- rásarliðið hafði verið hrakið á brott. Myndirnar eru settar saman úr gömlum og nýjum fréttamyndum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. 1 Eden eru verk unnin pastel, og oli'u. leir, Sýning Storm P. að ljúka Sýningu Norræna hússins á skopteikningum danska teiknarans STORM P, sem veriö hefur i sýningarsölum frá 30.mai lýkur nú um helgina. Hún hefur verið vel sótt og áhorf endur skemmt sér yfir kostu legum teikningum og upp finningum Storm P. Rokk- tónleik- ar í Háskólabíói Rokktónleikar verða haldnir i Háskólabiói i dag, laugardag kl. 2 e.h. Þar koma fram þrjár hljómsveitir og kynna væntan- legar smáski'fur sinar, Tauga- deildin, Þungarokkshljómsveit- in Tivoli með plötuna ..Þrumu- vagninn” og Fræbbblarnir með „Bjór”. Sólstöðu- tónleikar í Háskólabíói Sólstöðutónleikar veröa I Há- skólabiói sunnudagskvöldið 21. júnfkl. 23.30. Þar veröa flutttvö verk eftir Snorra Sigfús Birgis- Frumflutt verður verk sem kallast Æfingar fyrir pianó og flytur höfundurinn það sjálfur. Hitt verkið sem er á efnis- skránni er Tontundum og er það einleiksverk fyrir klarinett. Þaö leikur Óskar Ingólfsson. Bæöi þessi verk eru ný af nál- inni. Rontundum var samið haustiö 1978 og var frumflutt i Anísterdam. Orðið þýðir sér- staka kristöllun sem verður i til- raunaglösum þegar stunduð er gullgeröarlist. Æfingar fyrir pianó voru samdar 1980 og i byrjun þessa árs. Norskur kór á ferðinni St. Laurentinuskórinn frá Lörenskog i Noregi er nú staddur hér i boði Tónlistar- skóla Rangæinga og mun halda ferna lónleika, fyrst i Skálholts- kirkju á inorgun, sunnudag, kl. 16, þá að Ilvoli 22. júni kl. 21, i Leikskálum Vik rniðvikudaginn 24. júní kl. 8.30 og að lokum i Há- teigskirkju fimmtudaginn 25. júnf kl. 20. St. Laurentiuskórinn hefur á 16 ára starfsferli sinum farið viða um lönd i tónleikaferðir, sungið í útvarp og sjónvarp og á hljómplötur. Söngskráin i ts- landsferðinni er fjölbreytt og spannar yfir bæði andlegt og veraldlegt efni. 1 kórnum eru yfir 80 manns, einsöngvari er Elisabeth Misvær Jahr og stjórnandi Kjell W. Christensen, undirleikari Robert Robertsen. Söngdagar ’81 Tónleikar í Skálholti Söngdögum i Skálholti'81 sem staðiö hafa siðan á fimmtudag- inn sl. lýkur annað kvöld, sunnudaginn 21. júni, með óformlegum tónléikum i Skál- holtskirkju. Auk þess tekur hópurinn sem staðið hefur að söngdögunum þátt i guðsþjón ustu i kirkjunni kl. 2 sd. Þaö er Missa Brevis eftir John Speight sem hópurinn hefur glimt við að þessu sinni, svo og hluti úr Requiem eftir Maurice Duruflee og fleiri smærri verk. Forráðamenn Rafmagnsveitu Reykjavlkur á svölum félagsheimilis fyrirtækisins. Rafmagnsveita Reykjavíkur 60 ára Þann 27. júni n.k. verða liðin 60 ár frá þvi að rafveitan við Elliðaár var formlega vigö af sjálfum kónginum yfir Islandi, Kristjáni ti'unda. Telst þvi Raf- magnsveita Reykjavikur sextug þann dag. 1921 var stærð virkj- unarinnar viö Elliðaár 1032 kw og heimtaugafjöldi 773. Siðan hefur viða verið viritjað af Raf- veitunni, næst á eftir Elliðaár- virkjuninni kom Ljósafossvirkj- un sem var tekin i notkun 1937, 1953 var trafossvirkjun tekin i notkun, Steingrimsstöð var svo vigð 1960. Ýmsar framkvæmdir eru á döfinni hjá rafveitunni nú við þessi ti'mamót. Byggingafram- kvæmdir standa yfir viö eigiö húsnæði fyrirtækisins og i undirbúningi eru framkvæmdir við lagningu 132 kw jarð- strengja með oryggi aðveitu- kerfisins fyrir augum. Þá er i undirbúningi uppsetning nýs tölvubúnaöar. 1 árslok 1980 voru starfsmenn Rafmagnsveitu Reykjavíkur 239. Orkuveitu svæöið nær yfir Reykjavik, Kópavog ogSeltjarnarnes, Mos- fellshrepp, mestallan Kjalar- neshrepp, og meirihluta Garða- bæjar. Notendur voru 108.000 i árslok 1980. Byggingaframkvæmdir borgarinnar 1980: Eðlllegar skýringar á drætti framkvæmda Reikningar borgarsjóðs og stofnana borgarinnar fyrir árið 1980 voru samþykktir á borgar- stjórnarfundi á fimmtudag. Meðal þeirra athugasemda, sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins gerðu við reikningana, voru ásakanir um dulinn niðurskurö a byggingaframkvæmdum og sagöi Birgir tsl. Gunnarsson að reikningarnir sýndu aö ekki hefði allt verið framkvæmt á siðasta ári sem til hefði staöið samkvæmt fjárhagsáællun. Sagði hann að ekki hcfði verið tekiu formleg ákvörðun um slik- an niðurskurð og rifjaði upp að fyirverandi minnihluti álasaði Sjálfstæðisflokknum gjarnan fyrir slik vinnubrögð. Adda Bára Sigfúsdóttir, full- trúii framkvæmdaráði, svaraði Birgi og benti honum á að nú- verandi meirihluti hefði stofnað sérstaka nefnd til þess að fylgj- ast með framkvæmdum borgar- innar. Þessi nefnd heitir fram- kvæmdaráð, sagði Adda, og það fær allt áriö reglulegar skýrslur um allar framkvæmdir svo og skýringar embættismanna ef þær gagna ekki. Kjörnir fulltrú- ar hefðu hins vegar ekki haft neina aðild aö eiginlegum fram- kvæmdum i tið Sjálfstæöis- flokksins og á það heföi verið réttilega deilt. Til þess hefði framkvæmdaráð veriö stofnaö. Búningsaðstaða i Laugardal Síðan svaraði Adda athuga- semdum Birgis um fjórar bygg- ingar sem ekki stóðust áætlun 1980. Hin fyrsta var bygging búningsklefa viö Sundlaugarnar i Laugardal sem áætlaö var aö hefja á siðasta ári. Astæðan fyr- ir þvi að það tókst ekki, sagði Adda, var sú aö þegar teikning- ar lágu fyrir, hafnaði borgarráð þeim. Þaö varð þvi að byrja að teikna upp á nýtt og þó það sé slæmt að framkvæmdir dragist er þó verra að hefja byggingu eftirslæmum teikningum, sagði hún. Teikningarnar hafa nú ver- ið samþykktar og eru fram- kvæmdir að hefjast. tþróttamiðstöð i Blá- fjöllum 1 öðru lagi benti Birgir á að framkvæmdir viö iþróttamið- stöð í Bláfjöllum hefðu tafist. Adda sagði að borgarráð heföi lengi velt þvi fyrir sér hvort byggja ætti eftir fyrirliggjandi teikningum eöa hvort flytja ætti inn tilbúið hús frá Noregi. Þetta hefði tafið málið en eftir að ákvörðun var tekin um að byggja eftir innlendum teikn- ingum hefðu framkvæmdir haf- ist strax. Menningarmiðstöðin 1 þriðja lagi nefndi Birgir Menningarmiðstööina við Gerðuberg og benti Adda Bára á að það væri ekki borgin, heldur Framkvæmdanefnd byggingaá- ætlunar sem byggði það hús. Ekki hefði staðiðá borginnimeð að uppfylla sinn hlut. B-álman 1 fjórað lagi nefndi Birgir B- álmu Borgarspitalans og sagði Adda að það nægði ekki að borg- insamþykkti að byggja sjúkra- hús. Rikið sem samkvæmt lög- um ætti aö greiða 85% bygg- ingakostnaðar þyrfti lika aö samþykkja það. Það tók of lang- an tima að fá rikið til að sam- þykkjaútboð á uppsteypu húss- ins, sagði hún. Skýringin er sú að ekki var aðeins um að ræða bindingu fjármagns úr rikis- sjóði fyrirárið 1981 heldur einn- ig fyrir áriö 1982. Þegar sam- þykki varfengið gat uppsteypan hafist og nú er áætlað að henni ljúki i febrúar 1982. Þá sagöi Adda að nú væri borgin aftur farin af stað með beiðni um út- boð sem myndi skuldbinda rikið 1982 á lögnum og innanhúss- múrun. Astæðan fyrir þvi að byggingin dróst á siðasta ári hefði verið sú aö ekki hefði feng- ist heimild til að fara af staö á réttum tíma. Dagheimilin Aö lokum benti Adda á að áætlanir um byggingu dagvist- arheimila hefðu staðist að fullu árið 1980. — AI Rauðsokkahreyfingin Allir í friðargönguna Rauðsokkahreyf- ingin lýsir yfir stuðn- ingi sinum við friðar- göngu Herstöðvaand- stæðinga 20. júni 1981. Vigbúnaðarkapphlaup risa- veldanna hlýtur aö vekja ugg i brjósti allra sem á annað borð þora að fylgjast með þróun þessara mála. Rauðsokkahreyf- ingin fagnar þeirri vakningu i friðarmálum sem nú verður vart víða um heim, en vill um leið benda á hvernig þessi friðarbarátta snertir Island. Fjölmargir friðarhópar berjast nú fyrir afvopnun undir kjör- oröinu „Kjarorkulaus Evrópa frá Póllandi til Portúgal”. Allt sem vinnst i þeirri baráttu skapar aukinn þrýsting á Island á meöan NATO fær afnot af landinu i hernaðarskyni. Krafan er þvi ekki bara „Kjarnorku- laus Evrópa frá Póllandi til Portúgal”, heldur einnig ,,ls- land úr NATO — herinn burt. ,,19. júní” komið: Helgað menntun kvenna 19. JÚNI ársrit Kvenréttinda- félags Islands, er komið út og er aðalefni þess i þetta sinn helgað menntun kvenna. Sigriður Erlendsdóttir sagn- fræðingur skrifar fróölega grein um upphaf skólagöngu is- lenskra kvenna. Siðan er reynt að kynna stööu þessara mála eins og hún er i dag, athugaö hvernig til hefur tekist aö koma á jafnrétti i grunnskólanum, lit- iö á aðsókn kvenna að fram- haldsskólum og Háskóla tslands og rætt við konur, sem hafa lagt fyrir sig aörar fiámsgreinar en þær, sem hingað til hafa verið taldar við þsefi fcvenna. Þá eruibl^inu viðtöl við Vig- disi Finnbogadóttur forseta Is- lands og verkalýðsleiötogann Jóhönnu JSgjisdóttur auk margskonar afcaars efnis. Rit- stjóri er Jóniflafct. Guönadóttir. Blaðiö verfcar tjí sölu i bóka- verslunum og rireift til aðildar- félaga KRFt. Nýtt hum- ar- og rækjuverð Yfirnefnd verölagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðiö nýtt lágmarksverð á hörpudiski og rækju frá 1. júni til 30, september n.k. Samkomulag var i nefndinni um verð á hörpudisk. Hörpu- diskur 7 cm á hæð og hærri kostar nú 2,18 kr. en hörpu- diskur 6—7 cm kostar 1.79 kr. Verö á rækju var ákveðið af oddamanni og kaupendum gegn atkvæðum seljenda. Rækja óskelflett i vinnsluhæfu ástandi, þar sem 160 stk. eöa færri fara i kg. kostar nú 7.23 kr og rækja af stæröinni 341 stk, eöa fleiri i kg. kostar 2.29 kr, en alls er um 8 verðflokka af rækju að ræða. Stjórn SÁÁ: Ekki stofn- andi Átaks Stjórn SAA, Samtaka áhuga- fólks um áfengisvandamálið sendi i gær frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er fram, að gefnu tilefni vegna fyrirhugaðrar starfrækslu Ataks i samvinnu við Útvegsbankann, aö stofnun og starfsemi Ataks sé ekki á vegum SAA og stjórn samtak- anna hafi engin afskipti haft af þeim málum. Hinsvegar sé ljóst, að fjölmargir einstakl- ingar, jafnt innan SAA sem utan, hafi lagt málefni Átaks liðsinni. Sýning í Þrastarlundi Um þessar mundir heldur Ás- geir Valdemarsson sýningu i Veitingastofunni Þrastalundi v/Sog. A sýningunni eru vatns- lita-, kritar- og oliumyndir. As- geir er félagi i myndlistaklúbbi Seltjarnarness og Hvassaleitis. Hannhefur tekið þátt i nokkrum samsýningum. Sýningin stendur til 23. júni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.