Þjóðviljinn - 01.07.1981, Síða 1

Þjóðviljinn - 01.07.1981, Síða 1
Erlendir steinaþjófar D/OÐVUIINN Miðvikudagur 1. júli 1981 —145. tbl. 46. árg. Nota jafn- vel dýnamít Sjá 3. siðu //Því er ekki að neita að á ákveðnum stöðum hafa verið unnin spjöll. Einkum er það áberandi á af- mörkuðum viðkvæmum svæðum sem eru sérstök að náttúrufari á einhvern hátt. Mér hafa sagt menn, aðtilfæringar alltuppi dýna- mit hafi þessir hópar haft með í ránsferðum til að auðvelda sér leikinn. Ef slíku heldur fram þá þarf ekki að spyrja frekar um spjöll og eyðileggingu á landi"/ segir Einar Þórar- insson jarðf ræðingur i Neskaupstað í samtali við Þjóðviljann. Einar var ráðinn með styrk frá Náttúruverndarráði og Þjóð- hátiðarsjóði til að kanna steina- þjófnað erlendra ferðamanna á Austfjörðum á siðastliðnu sumri. Einar er ekki i vafa um að hér Zeolitar eða geislasteinar einsog þeir heita á isiensku eru eftir- sóttir af útlendingum. sé stolið árlega miklu af fágætum steintegundum, einkum, zeólitum eða geislasteinum, ópölum og silfurbergi, sem sióan er flutt úr landi og~þá aðallega i gegnum Smyril frá Seyðisfirði. ■ — lg. David Bronstein ✓ til Islands: Þjálfar íslenska David Bronstein röð sovéskra skákmanna um ára- tuga skeið. Hæst ber þó einvigi hans við Botvinik, þáverandi heimsmeistara, sem teflt var 1951. Þá var Botvinik talinn ger- samlega óvinnandi vigi, en Bron- stein kom á óvart meö þvi að ná jöfnum vinningafjölda, 12 vinn - ingum. Botvinik hélt þannig titl- inum á jöfnu. Bronstein er talinn einn hug- myndarikasti skákmaður seinni tima, og hafa nýjungar hans i byrjunum margar haft mikil áhrif. —eik— [ílfjettuleg | naglaskot ' sem sprínga eins og hvellhettur „Það eru hvellhcttur á þessum skotum og þau springa eins og patrónur ef lamið er á þau”, sagði Þórir Oddsson hjá rannsóknarlög- reglunni þegar hann var spurður um hugsanlega hættu sem börnum og öðrum óvitum gæti stafað af nagla- skotunum sem stolið var úr Seljaskóla i Breiðholti i fyrrinótt. Þórir kvað 300 skotum hafa verið stolið en skot þessi eru notuð i svo kallaðar hiltibyssur. Úr þeim er skotið til að festa planka i steinsteypu. Sér- Istakt leyfi þarf til að fara með þannig byssu. Þórir sagði mikinn voða á feröum , ef börn færu að lemja á þessi Iskot, þau gætu sprungið með hörmulegum afleiðingum. Vildi hann hvetja foreldra og , aðra forráðamenn barna að Ivera vel á verði og láta lög- regluna vita ef þeir hefðu grun um að börn þeirra væru , að fikta með þetta. Sjúkdómavarnir í athugun hjá landlækni Tvelr flugmenn í einangrun Ekki ljóst hvað veldur sýkingunni Tveir flugmenn Flug- leiða eru nú i einangrun vegna hitabeltissjúkdóma. Er annar þeirra í einangr- un á Landspítalanum, og er hann þungt haldinn. Hinn er í einangrun í Lond- on, og að sögn Sveins Sæ- mundssonar, blaðafulltrúa Flugleiðív er hann á bata- vegi. Sveinn sagði að flugmaðurinn, sem liggur á Landspitalanum hefði veikst i Nigeriu og fyrst legið þar. Honum hefði siðan batnað og þá haldið hingað heim, en siðan versnað á ný. Ekki er ljóst hvað veldur sjúk- dómi flugmannsins. Flugmaðurinn, sem er i sóttkvi i London veiktist i Libýu, en sem fyrr segir er hann á batavegi. Ekki hefur heldur tekist að greina hvaðveldurveikindumhans. Skv. upplýsingum Sveins Sæmunds- sonar er liklegt að hann verði hafður i sóttkvi i tvær vikur. Eitt tilfelli áður „Allt okkar starfsfólk gengur undir þær ónæmisaðgerðir sem nauðsynlegar eru taldar, og oft- ast meira til”, sagði Sveinn. „Við höfum alllengi flogið á svæðum þar sem hættan er fyrir hendi, og það var trú manna að með var- kárni myndum við sleppa. Við höfum aðeins fengið eitt tilfelli af alvarlegum hitabeltissjúkdómi áður. En i svona flugi er auðvitað mikið atriði að vera á eigin veg- um með mat og drykk og annað þess háttar. Það er alltaf viss áhætta i svona flugi, og með nútima samgöngum eiga sjúkdómar greiðari leið. En ég vona bara að ástæða sýk- ingarinnar hjá flugmönnunum finnist og að þeim batni fljótt og vel”, sagði Sveinn að lokum. Menn passi sig Hjá Arnarflugi sagði Hildur Reykdal að allt það starfsfólk sem þeir sendu út i heim væri með nauðsynlegar bólusetningar gegn kóleru, taugaveiki, gulu og fleiri þeim sjúkdómum sem hætta væri á. Allir flugliðar væru áminntir um að endurnýja bólu- setninguna reglulega, auk þess sem menn væru áminntir um að hafa með sér malariutöflur, þar sem þeirra væri þörf. Auk þess "væri lögð á það áhersla við starfslið að passa sig t.d. i mataræði. Málin i athugun Hjá landlækni fékk Þjóöviljinn Framhald á blaðsiðu 14. Grimsey er mikið sæluríki fyrir börn, ekki sist þau sem af mal- bikinu koma, tilað leika sér frjáls i náttúrunni. Fuglalif i Grimsey er gifurlega fjölbreytt, þótt mest beri á skegglu, öðru nafni ritu. A myndinni sést Svanhildur Harðardóttir við sjúkrabeð skegglu, sem hún hjúkrar þessa dagana i Grlmsey. Vonandi kemsthún aftur til góðrar heilsu. Ljósm .: —eik— Skáksambandi islands hefur borist skeyti frá So- véska skáksambandinu þess efnis að hinn þekkti sovéski stórmeistari, David Bronstein, muni koma til landsins aðfara- nótt föstudags n.k. Heimsókn þessi hefur staðið fyrir dyrum í nokk- urn tíma, en óvissa hefur verið um hvort af henni gæti orðið, en nú virðist það Ijóst að hann kemur. Bronstein mun dvelja hér á landi i u.þ.b. mánuð. Hann mun m.a. þjálfa yngri meistara okkar og halda námskeið fyrir skák- kennara, sem siðan fara á vegum Skáksambands íslands út um land. Aö sögn Ingimars Jónssonar, forseta Skáksamband$ins, er koma Bronsteins mikill ávinning- ur fyrir islenska skákmenn, og gæti orðiö islensku skáklifi lyfti- stöng. Vonir standa til að meistarinn haldi opna fyrirlestra fyrir al- menning. Ferill Bronsteins er glæstur mjög. Hann hefur staðiö i fremstu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.