Þjóðviljinn - 01.07.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 01.07.1981, Side 7
Miðvikudagur 1. júli 1981. ÞJópyiLJINN — SIDA 7 Keppendur á helgarmótinu á leið til lands með Drangi. Á slóðum Daniel W. Fiske Það voru ekki aðeins skákmenn sem heimsóttu Grimsey um síðustu helgi, heldur f jöldi annarra gesta sem höfðu nægan tíma til að skoða náttúruundur eyj- arinnar og þeir sem sátu að tafli höfðu einnig ýmsu að sinna á milli leikja. Helgarmótið i Grimsey er hið tiunda i röðinni sem Jóhann Þórir Jónsson hefur staðið fyrir á u.þ.b. einu ári. Þátttakendur hafa verið u.þ.b. 500 og það sem meira er, i fyrsta sinn um langt skeið hefur snjöllustu skákmönnum lands- byggðarinnar gefist kostur á aö tefla við sterkustu meistara heimsóttu Grimsey voru þing- mennirnir, Halldór Blöndal og Guðmundur G. Þórarinsson og Menntamálaráöherra, Ingvar Gislason kom fljúgandi með vél flugmálastjórnar, setti mótið og styrkti það af rýrum sjóðum ráðuneytisins, eins og hann orð- aði það. Jóhann Þórir lætur ekki staðar numið, þvi hann hefur i bi- gerð fimm helgarmót i viðbót á þessu ári enda er svo komið að mót þessi eru ekki siður vinsæl hjá bæjaryfirvöldum en t.d. nýr skuttogari. Myndir: Einar Karlsson Texti: Helgi Ólafsson *S1II! mmm Menntamálaráðherra Ingvar Gislason leikur fyrsta leikinn i skák Friöriks Ólafssonar og Heimis Bessasonar. Leikur Ingvars var: 1. d2-d4. Það er ekki að ósekju að sá gamli baráttujaxl Benóný Benedikts- son heldur hér á priki. Kriu- skömmin var nefnilega ansi að- gangshörð i Grimsey og betra að hafa prik sér til varnar. Þessir myndalegu menn eru frá vinstri: Guðmundur Sigurjóns- son, stórmeistari, Stefán Þormar Guðmundsson, útibússtjóri, Gunnar Gunnarsson, útibússtjóri og Óttar Felix Hauksson,' sölumaður og hljómleikahaldari. - ♦' ' ■.-= ilAa;.* . : : i'-■*■•■-> . ' ' - V:•-. . 4 í *~ , ■ * '>'■ ■ Asmundur Asgeirsson hefur ekki tefit á opinberu skákmóti I nærfellt þrjátfu ár. 1 Grlmsey hafði hann ekki minni áhuga á lifinu við sjóinn en skákinni. Jóhann Þórir Jónsson færir Bjarna Jóhannessyni gjöf frá keppendum helgarmótsins, áritaða útgáfu Skákar sem kom út meöfram eigvigi Fischers og >SpasskIs, sumarið 1972.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.