Þjóðviljinn - 01.07.1981, Side 12

Þjóðviljinn - 01.07.1981, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 1. júli 1981. Garðabær — ^ lóðaúthlutun Úthlutað verður um 30 einbýlishúsalóðum á svæðinu austan Silfurtúns. Umsóknarfrestur er til 15. júli n.k. Umsóknareyðublöð afhent á bæjarskrif- stofunni. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Upplýsingar gefur byggingarfulltrúi i sima 42311. Bæjarritari. Laus staða Umsóknarfrestur um lausa kennarastöðu i sérgreinum heilsugæslubrautar við Flensborgarskólann i Hafnarfirði, fjölbrautaskóla, sem auglýst var i Lögbirtingablaði nr. 46/1981, er hér með framlengdur til 13. júli n.k. Til greina kemur 1/2 starf eða 2/3 starfs. Umsóknareyðublöð fást i menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Raykjavik. Menntamálaráðuneytið 29. júni 1981. d Lögtaksúrskurður Samkvæmt beiðni Gjaldheimtunnar á Sel- tjarnarnesi úrskurðast hér með, að lögtök geti farið fram fyrir vangreiddum fyrir- framgreiðslum opinberra gjalda, sem féllu i gjalddaga 1. febrúar, 1. mars, 1. april, 1. mai og 1. júni 1981 og fyrir van- greiddum eftirstöðvum fyrri ára. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum auk dráttarvaxta og kostnaðar geta farið fram að liðnum átta dögum frá birtingu úrskurðar þessa, verði ekki gerð skil fyrir þann tima. Seltjarnarnesi, 16. júni 1981 Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar starf Inn- heimtustjóra. Laun eru samkvæmt kjara- samningiB.S.R.B. og rikisins, launaflokk- ur B-16. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra. Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 118, Rvk. Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garðabæ Onnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö SÍMI53468 Auglýsinga- og áskriftarsíí 81333 DJODVIUINS 80 tóku lokapróf frá Vélskólanum Um 400 vélstjórar með réttindi á ýmsum stigum voru útskrifaðir á þessu vori frá Vélskóla Islands. Um 350 nemendur stund- uðu nám við skólann í Reykjavík/ en auk þess fór fram kennsla í Vélskóla- deildum á Akureyri, isa- firði, Vestmannaeyjum, Keflavik og Akranesi. 80 nemendur gengu undir lokapróf í Reykjavík. Starfsvika er orðin fastur liður i skólastarfinu. Þá eru nemendur sendir i náms- og kynnisferðir undir leiðsögn kennara til ýmissa fyrirtækja og stofnana. Heimsótt voru m.a. Hitaveita Reykjavikur, Sementsverksmiðjan, Áburðar- verksmiðjan, Rannsóknarstofa iðnaðarins að Keldnaholti, Landhelgisgæslan, bjóðminja- safnið, Handritastofnun, Veður- stofa tslands og fjölmörg einka- fyrirtæki. 4. stigs vélstjórar fóru i náms-og kynnisferð til Danmerk- ur, Noregs og Englands. Þá voru haldin námskeið i skyndihjálp á vegum RKt i eldvörnum á vegum Slökkviliðs Reykjavikur og i með- ferð gúmbjörgunarbáta og flug- linubyssa á vegum SVFt. t vor hafa verið haldín nám- skeið fyrir eldri vélstjóra sem lokið hafa 4. stigs prófi og er ætl- unin að þetta verði fastur liður i starfi skólans framvegis. Um 75 manns hafa sótt námskeiðin, sem Sveinn G. Sigurjónsson afhendir Andrési Guðjónssyni skólastjóra höggmynd af fyrrverandi skólastjóra, Gunnari Bjarnasyni, fyrir hönd 10 ára afmælisárgangs. Áfangakerfi tekið upp næsta haust standa vikutima hVert. Hver maður má sækja allt að þrjú námskeið og má velja milli 8 mis- munandi námskeiða, þ.e. i stýri- tækni, stillitækni, rafmagnsfræði (4) kælitækni og svartoliu- brennslu. t haust er ætlunin að skólanum verði breytt i áfangakerfi og 1. stig byrji þá samkvæmt þvi, að þvi er formaður skólanefndar Ingvar Ásmundsson skýrði frá við skólaslit. Skólastjóri Vélskól- ans er Andrés Guðiónsson. Émm . ' Þrir fjögurra nemenda sem enn eru á lffi úr hópi þeirra 13 sem luku vélstjóranámi fyrir 60 árum voru viðstaddir skólaslit: Þórður Runólfsson, Guðjón Benediktsson og Ebeneser Ebenesersson. Kaupfélag Króksfiarðar Aðalfundur Kaupfélags Króks- fjaröar fyrir árið 1980 var haldinn að Króksfjarðarnesi, laugardag inn 13. þ.m.. Vörusala félagsins var alls á árinu 688 milj. og hafði aukist frá árinu áöur um 201 milj. Fyrir landbúnaöarafurðir voru viðskiptamönnum greiddar á ár- inu 572 milj.. Tekjuafgangur varð 939 þús. og var honum öllum ráð- stafað i varasjóð félagsins. Vextir af stofnsjóði félagsins voru 35%. Auk aðalverslunar i Króksfjarð- arnesi eru starfrækt útibú.annaö á Reykhólum en hitt á Skálanesi, Gufudalssveit. A fundinum var mættur Gunnlaugur Björnsson aðstoðarframkvæmdarstjóri Bú- vörudeildar S.I.S., og flutti hann fróðlegt erindi um sölu og sölu- horfur landbúnaðarafurða og svaraði fyrirspurnum fundar- I manna. Þá var ennfremur mætt- 70 ára ur á fundinum Olafur E. Ólafsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri og flutti hann ávarp og hamingju- óskir i garð félagsins er i ár varð 70 ára. Þá minntist fundarstjóri Grimur Arnórsson afmælisins meö ræðu þar sem hann rakti i stórum dráttum helstu og merk- ustu atriði úr sögu félagsins og greindi frá hverjir hefðu verið i stjórn þess og kaupfélagsstjórar frá upphafi. Hann minntist þeirra með virðingu og þakklæti. Þá greindi formaður frá þeirri ákvörðun stjórnar að I stað þess að halda nú samkvæmi til þess að minnast afmælisins hefði hún ákveðið að leggja fram tillögu á fundinum, þess efnis aö féiagið skyldi i tilefni af afmælinu leggja fram 2 milj. gkr. til styrktar byggingarheimilis fyrir aldraða i héraðinu og var það samþykkt einríma. Félagsmenn Kaupfélags Króksfjarðar eru nú 104. Stjórn kaupfélagsins skipa þessir félagsmenn: Jens Guðmundsson, kennari, Reykhól- um, form. Þóröur Jónsson, bóndi, Arbæ. Jón Snæbjörnsson, bóndi, Mýrartungu. Kristján Magnús- son, bóndi Gautsdal. Reynir Bergsveinsson, bóndi, Fr. Gufu- dal. Endurskoðendur: Ómar Haraldsson, forstj. Reykhólum. Guðjón D. Gunnarsson, bóndi, Mýrartungu. Kaupfélagsstjóraskipti urðu á árinu Eirikur Ásmundsson lét af störfum en við tók Friðbjörn Níelsson frá Siglufirði.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.