Þjóðviljinn - 01.07.1981, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 1. júli 1981.
Garðabær —
^ lóðaúthlutun
Úthlutað verður um 30 einbýlishúsalóðum
á svæðinu austan Silfurtúns.
Umsóknarfrestur er til 15. júli n.k.
Umsóknareyðublöð afhent á bæjarskrif-
stofunni.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Upplýsingar gefur byggingarfulltrúi i
sima 42311.
Bæjarritari.
Laus staða
Umsóknarfrestur um lausa kennarastöðu i sérgreinum
heilsugæslubrautar við Flensborgarskólann i Hafnarfirði,
fjölbrautaskóla, sem auglýst var i Lögbirtingablaði nr.
46/1981, er hér með framlengdur til 13. júli n.k. Til greina
kemur 1/2 starf eða 2/3 starfs.
Umsóknareyðublöð fást i menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Raykjavik.
Menntamálaráðuneytið
29. júni 1981.
d Lögtaksúrskurður
Samkvæmt beiðni Gjaldheimtunnar á Sel-
tjarnarnesi úrskurðast hér með, að lögtök
geti farið fram fyrir vangreiddum fyrir-
framgreiðslum opinberra gjalda, sem
féllu i gjalddaga 1. febrúar, 1. mars, 1.
april, 1. mai og 1. júni 1981 og fyrir van-
greiddum eftirstöðvum fyrri ára.
Lögtök til tryggingar framangreindum
gjöldum auk dráttarvaxta og kostnaðar
geta farið fram að liðnum átta dögum frá
birtingu úrskurðar þessa, verði ekki gerð
skil fyrir þann tima.
Seltjarnarnesi, 16. júni 1981
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Rafmagnsveitur
ríkisins
auglýsa laust til umsóknar starf Inn-
heimtustjóra. Laun eru samkvæmt kjara-
samningiB.S.R.B. og rikisins, launaflokk-
ur B-16. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun, aldur og fyrri störf sendist
starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118, Rvk.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
Auglýsinga- og áskriftarsíí
81333 DJODVIUINS
80 tóku
lokapróf frá
Vélskólanum
Um 400 vélstjórar með
réttindi á ýmsum stigum
voru útskrifaðir á þessu
vori frá Vélskóla Islands.
Um 350 nemendur stund-
uðu nám við skólann í
Reykjavík/ en auk þess fór
fram kennsla í Vélskóla-
deildum á Akureyri, isa-
firði, Vestmannaeyjum,
Keflavik og Akranesi. 80
nemendur gengu undir
lokapróf í Reykjavík.
Starfsvika er orðin fastur liður i
skólastarfinu. Þá eru nemendur
sendir i náms- og kynnisferðir
undir leiðsögn kennara til ýmissa
fyrirtækja og stofnana. Heimsótt
voru m.a. Hitaveita Reykjavikur,
Sementsverksmiðjan, Áburðar-
verksmiðjan, Rannsóknarstofa
iðnaðarins að Keldnaholti,
Landhelgisgæslan, bjóðminja-
safnið, Handritastofnun, Veður-
stofa tslands og fjölmörg einka-
fyrirtæki. 4. stigs vélstjórar fóru i
náms-og kynnisferð til Danmerk-
ur, Noregs og Englands. Þá voru
haldin námskeið i skyndihjálp á
vegum RKt i eldvörnum á vegum
Slökkviliðs Reykjavikur og i með-
ferð gúmbjörgunarbáta og flug-
linubyssa á vegum SVFt.
t vor hafa verið haldín nám-
skeið fyrir eldri vélstjóra sem
lokið hafa 4. stigs prófi og er ætl-
unin að þetta verði fastur liður i
starfi skólans framvegis. Um 75
manns hafa sótt námskeiðin, sem
Sveinn G. Sigurjónsson afhendir Andrési Guðjónssyni skólastjóra
höggmynd af fyrrverandi skólastjóra, Gunnari Bjarnasyni, fyrir hönd
10 ára afmælisárgangs.
Áfangakerfi tekið
upp næsta haust
standa vikutima hVert. Hver
maður má sækja allt að þrjú
námskeið og má velja milli 8 mis-
munandi námskeiða, þ.e. i stýri-
tækni, stillitækni, rafmagnsfræði
(4) kælitækni og svartoliu-
brennslu.
t haust er ætlunin að skólanum
verði breytt i áfangakerfi og 1.
stig byrji þá samkvæmt þvi, að
þvi er formaður skólanefndar
Ingvar Ásmundsson skýrði frá
við skólaslit. Skólastjóri Vélskól-
ans er Andrés Guðiónsson.
Émm .
'
Þrir fjögurra nemenda sem enn eru á lffi úr hópi þeirra 13 sem luku vélstjóranámi fyrir 60 árum voru
viðstaddir skólaslit: Þórður Runólfsson, Guðjón Benediktsson og Ebeneser Ebenesersson.
Kaupfélag Króksfiarðar
Aðalfundur Kaupfélags Króks-
fjaröar fyrir árið 1980 var haldinn
að Króksfjarðarnesi, laugardag
inn 13. þ.m.. Vörusala félagsins
var alls á árinu 688 milj. og hafði
aukist frá árinu áöur um 201 milj.
Fyrir landbúnaöarafurðir voru
viðskiptamönnum greiddar á ár-
inu 572 milj.. Tekjuafgangur varð
939 þús. og var honum öllum ráð-
stafað i varasjóð félagsins. Vextir
af stofnsjóði félagsins voru 35%.
Auk aðalverslunar i Króksfjarð-
arnesi eru starfrækt útibú.annaö
á Reykhólum en hitt á Skálanesi,
Gufudalssveit. A fundinum var
mættur Gunnlaugur Björnsson
aðstoðarframkvæmdarstjóri Bú-
vörudeildar S.I.S., og flutti hann
fróðlegt erindi um sölu og sölu-
horfur landbúnaðarafurða og
svaraði fyrirspurnum fundar-
I manna. Þá var ennfremur mætt-
70 ára
ur á fundinum Olafur E. Ólafsson
fyrrverandi kaupfélagsstjóri og
flutti hann ávarp og hamingju-
óskir i garð félagsins er i ár varð
70 ára. Þá minntist fundarstjóri
Grimur Arnórsson afmælisins
meö ræðu þar sem hann rakti i
stórum dráttum helstu og merk-
ustu atriði úr sögu félagsins og
greindi frá hverjir hefðu verið i
stjórn þess og kaupfélagsstjórar
frá upphafi. Hann minntist þeirra
með virðingu og þakklæti. Þá
greindi formaður frá þeirri
ákvörðun stjórnar að I stað þess
að halda nú samkvæmi til þess að
minnast afmælisins hefði hún
ákveðið að leggja fram tillögu á
fundinum, þess efnis aö féiagið
skyldi i tilefni af afmælinu leggja
fram 2 milj. gkr. til styrktar
byggingarheimilis fyrir aldraða i
héraðinu og var það samþykkt
einríma. Félagsmenn Kaupfélags
Króksfjarðar eru nú 104.
Stjórn kaupfélagsins skipa
þessir félagsmenn: Jens
Guðmundsson, kennari, Reykhól-
um, form. Þóröur Jónsson, bóndi,
Arbæ. Jón Snæbjörnsson, bóndi,
Mýrartungu. Kristján Magnús-
son, bóndi Gautsdal. Reynir
Bergsveinsson, bóndi, Fr. Gufu-
dal. Endurskoðendur: Ómar
Haraldsson, forstj. Reykhólum.
Guðjón D. Gunnarsson, bóndi,
Mýrartungu.
Kaupfélagsstjóraskipti urðu á
árinu Eirikur Ásmundsson lét af
störfum en við tók Friðbjörn
Níelsson frá Siglufirði.