Þjóðviljinn - 06.08.1981, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.08.1981, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. ágúst 1981 KÆRLEIKSHEIMILIÐ vidtalid Mamma! Skrifar Matti Jó Reykjavikurbréfin með tánum? íslenskir lundar í Bandaríkjunum Upprennandi sjónvarpsstjörnur Framkvæmdastjóri Glen Oak dýragarðsins i Peoríu, Chuck Wilken- hauser, með pysjurnar sinar, en Chuck veiddi þær sjálfur I fyrra- sumar i Vestmannaeyjum. ;— Ljósm.: —LH. Það fór heldur illa fyrir lundapysjunum, sem áttu að fara i dýragarð i Bandarikjun- um fyrr i sumar, þegar þeim var stolið fyrir utan Hótel Loft- leiðir daginn fyrir brottför. Þeim fjölgar þvi ekki i ár islensku lundunum i Bandarikj- unum, en þar eru 17 fyrir, 8 i Baltimore og 9 i Peoriu, Illinois. í Lögbergi-Heimskringlu fyrr i sumar var sagt frá lundunum 17 og „föður” þeirra, Chuck Wilkenhauser, framkvæmda- stjóra Glen Oak dýragarðsins i Peoriu. Chuck var hér á ferð i fyrrasumar og með aðstoð tveggja Vestmannaeyinga varð hann sér úti um 20 pysjur i Eyjum. Sérstakur kassi hafði verið útbúinn fyrir fuglana enda var löng ferð framundan. í Glen Oak dýragarðinum beið þeirra sérhannað svæði meö sundpolli og holurruen þangað fengu þeir fyrstu að fara eftir 30 daga sótt- kvi. Þrjár pysjanna þoldu ekki flutninginn, en hinar 17 dafna vel. I Lögbergi-Heimskringlu seg- ir að ekki aðeins séu pysjurnar vinsælustu dýrin i dýragaröin- um þessa stundina, heldur séu meöal þeirra upprennandi sjón- varpsstjörnur. Sérstaklega er einn fugl tilnefndur, og heitir hann Eineygur gamli en hann missti augað vegna sýkingar. Chuck Wilkenhausen stjórnar fræðsluþáttum um dýrin i Glen Oak og heimkynni þeirra i sjón- varpinu og er Eineveur eamli orðinn fastur fylginautur hans i þáttunum. Hann hoppar ákafur upp á handlegg Chucks, étur úr lófa hans, spókar sig á herðum hans og höfði og dillar sér fram- an i myndavélina. Þess á miili situr hann prúður á borðinu og lætur fara litið fyrir sér. Pysjurnar verða kynþroska 5—6 ára gamlar og þá vonast Chuck eftir fjölgun i hópnum. A þjóðhátiðardegi Bandarikj- anna, 4. júli sl. var opnaður nýr dýragarður i Baltimore og þangað fóru 8 pysjur frá Peoriu fjórar af hvoru kyni. Þess má að lokum geta aö i Glen Oak dýra- garðinum var eitt islenskt dýr fyrir, hryssan Tinna 10 vetra gömul, sem nýtur mikilla vinsælda yngstu gestanna.- Byggt á Lögbergi- Heimskringlu Rætt við Gunnlaug Ragnarsson rekstrarstjóra Sogs__________________ Fjölskyldu- mót að Sogni Þaö er ekkert vafamál að af- staða fóiks til áfengisvanda- mála hefur breyst mjög á undanförnum árum. Hvort tveggja er að þessi eldgamli hluti af (ó)menningu okkar hefur verið ræddur frá nýju sjónarhorni og mikið átak hefur verið gert til hjálpar þeim sem þjást af áfengissýki. A þessum árstima er ekki nema von aö brennivinsmálin séu rædd, þar sem i útvarpi glymja varnaðar- orð vegna feröahelganna, en margur leggur upp i langferð með flösku i farangrinum. Um aðra helgi verður haldið útimót þeirra sem gist hafa Sogn, þar sem SAA rekur stofnun fyrir alkóhólista. Fyrr- verandi vistmenn ætla að koma þar saman og skemmta sér án áfengis eina helgi. Þjóðviljinn sló á þráðinn til Gunnlaugs Ragnarssonar rekstrarstjóra á Sogni, og spurði hann um starfsemina og mótið. Gunnlaugur sagði að um þessar mundir væru þrjú ár liðin frá þvi að Sogn var tekinn i notkun. A þessum árum hafa 1200 manns gist stofnunina, en af þeim hafa 40 komið oftar en einu sinni. Það lætur nærri að konur séu rúmlega 1/4 vist- manna, en karlar 3/4. Gunnlaugur var þeirrar skoðunar að það væri erfitt að meta árangurinn og sýna með tölum, en þeir sem að rekstrinum stæðu vissu að árangurinn væri góður. Sogn er rekinn með tryggingargjöldum, eins og hver önnur sjúkrastofnun, en daggjöldin eru með þeim lægri, um 230 kr. Að Sogni vinna 10-11 manns að lækni meðtöldum. Gunnlaugur sagði að meðal- aldur vistmanna hefði lækkað frá þvi að starfið hófst, en það væri þvi að þakka að hugsunar- háttur fólks hefði breyst. Það væri ekkert nema jákvætt um það að segja að yngra fólk kæmi; það færi þá fyrr i með- ferð. Biðlistinn er ekki langur á Sogni, en hins vegar þarf að biða nokkuð til aö kömast inn á Silungapoll, sem er fyrsti áfangi meðferðarinnar. Það er flókið mál að lysa þvi hvernig með- ferðin fer fram, en að Sogni er dvalið i 28 daga. Varðandi mótið sagði Gunn- laugur að ætlunin væri að skemmta sér, tjalda á túninu, grilla og dansa, likt og gerist á öðrum sumarmótum. Þarna mæta þeir sem vilja lifa og skemmta sér án áfengis og það eru vistmennirnir sjálfir sem skipuleggja fjölskylduhátiðina. —ká. Hvað spörum við mikinn tíma? Arlega verða mörg slys i um- ferðinni, slys sem oft leiða til dauöa eða fötlunar af einu eða öðru tagi. í blaöi sem gefið var út á Suðurnesjum i tilefni af Ari fatlaðra er vakin athygli á þvi að mörg umfcrðarslys stafa af hraðakstri. Menn eru að flýta sér i vinnu, á fund, i bió. Kannski eru þeir bara ,,að gefa Frá 60 III 70: Þú sparar 86 sek- úndur, - sami timi og það tekur þig aö leggja bilnum í stæöi, losa bílbeltiö, læsa kveikjulásnum, stiga út úr bílnum og læsa dyr- unum. Frá 70 tll 80: Þú sparar 64 sek- úndur, - sami tími og það tekur I þig aö ganga frá bílnum aö skrif- | stofudyrunum. Frá 80 tll 90: Þú sparar 50 sek- úndur. - (fyrsta lagi ertu kominn í berhögg viö lögin, og tíminn sem þú sparar er sá sami og þaö tekur ] þig aö snúa þér til afgreiöslu- i manns og segja nafn þitt og | erindi. i” fyrir kunningjana. Um leið •eggja þcir sjálfa sig og aðra i óþarfa hættu. En hvað skyldi maður spara mikinn tima með þvi að auka meðalhraðann á 10 km kafla? Frá 90 tll 100: Þú sparar 40 sek- lúndur, - sami tími og þaö tekur Iþig aö hengja upp frakkann þinn |i fatageymslunni. Frá 100 tll 110: Þú sparar 33 Isekúndur, - saml tlmi og þaO I tekur a6 laga bindlO, renna grelö- lunni gegnum hárlö og berja aO | dyrum. 'Haföu þetta í huga næst þegar [ þú ekur af staö. Athugaöu þá um leiö, aö úr Keflavik til Hafnar- fjaröar eftir Reykjanesbraut sparar þú aöeins um 5 mínútur með því aö aka á 100 km/klst hraöa í staö 80. Ja, þessar prest- kosningar! „Margir Pétursmenn töldu sig eiga vis 7 atkvæði frá Heimismönnum og sú tala heyrðist lika frá einum Ólafs- manni. Eftir standa þá þrir Heimismenn. Bæði Péturs- menn og ólafsmenn töldu sig eiga von i tveimur þeirra. Hvorug fylkingin treysti sér til að eigna sér atkvæði eins. Dagblaðið 4. ágúst Úr fréttabréfi biskupsstofu: — Þegar ég spyr, af hverju ekkert þeirra komi til kirkju, svara þau, að það sé svo leið- inlegt að koma þegar engir komi.! < Q C

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.