Þjóðviljinn - 18.08.1981, Qupperneq 3
Þriöjudagur 18. ágúst 1981 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 3
✓
I þágu þroskaheftra:
Umhverfis
landlð
afturábak!
Timaritið Samúel og ökuþórinn
Hallgrimur Marinósson hafa að
sögn unnið i allan vetur að undir-
búningi að einstöku uppátæki.
Hallgrimur ætlar að bakka i
kringum landið á Skodabifreið,
sem bifreiöaumboðið Jöfur hef-
ur boðiö til þessara afnota. „Er
þetta i fyrsta sinn sem einn öku-
maður reynir að bakka þá vega-
lengd. Hringur Hallgrims er um
1560 kflómetrar. Fer hann aö
sjálfsögðu öfugt I hringinn, ,,öf-
ugan sólargang”, eins og segir i
fréttatilkynningu Samúels um at-
buröinn. Það er ráðgert að ferðin
taki um 11 daga og að Hallgrimur
bakki 90 — 190 kflómetra dag
hvern.
Aöspuröur sagöist Hallgrimur
ekki hafa neinar áhyggjur af
hálsrig eða öðrum óþægindum
meðan á ferðinni stæði, þvi hann
væri þaulreyndur bilaiþrótta-
maður og auk þess i góöri þjálfun
um þessar mundir.
Hallgrimur og forráðamenn
Samúels ákváðu er liöa tók á
undirbúning bakkferðarinnar aö
helga hana einhverjum góöum
málstað og sú varð raunin á, að
þeir buðu forráðamönnum sam-
takanna Þroskahjálp að bakka i
þeirra þágu, til þess að vekja at-
hygli á málstaö þeirra.
Landsamtökin Þroskahjálp
voru stofnuð 16. oktðber 1976 i
þeim tilgangi að sameina i eina
heild þau félög sem vinna að mál-
efnum þroskaheftra, meö það að
markmiöi að tryggja þroskaheft-
um jafnréttisstööu á viö aðra
þjóðfélagsþegna. Þroskaheftur er
hver sá maöur, sem þannig er
ástatt um, að hann geti ekki án
sérstakrar aðstoöar náö eðlileg-
um likamlegum eða andlegum
þroska, — eins og segir I dreifi-
bréfi samtakanna.
Eitt af helstu baráttumálum
Hallgrimur til ( slaginn
Þroskahjálpar um þessar mundir
er bygging orlofsbúöa eða sumar-
dvalarheimilis meö fullkominni
þjónustu fyrir þroskahefta, sem
kæmu bæði frá stofnunum, skól-
um og einkaheimilum og dveldu
j>ar i 1—4 mánuöi.
Það kom fram á blaöamanna-
fundi meö forráðamönnum
Þroskahjálpar, aö rými fyrir al-
variega þroskaheft börn á stofn-
unum er mjög ábótavant þó
ástandið almennt séö hér á landi i
málefnum þessa fólks sem minna
má sin i llfsbaráttunni, sé að þvi
er virðist ekki verra en þekkist á
Noröurlöndunum.
Einnig kom það fram i viöræð-
um við aöstandendur Þroska-
hjálpar, að þeir teldu mest um
vert að þroskaheftir fengju tæki-
færi til þess að taka þátt i eðlilegu
samfélagslifi og þvi takmarki
mætti ná meö rekstri fleiri dag-
heimila og sérstakra vinnustaða
fyrir þá, sem eitthvaö gætu unniö.
Eggert Jóhannesson, einn af
stjórnarmeðlimum Þroskahjálp-
ar, tjáöi blaðamönnum, að sam-
tökin heföu þegiö boöið um að
landsbakkið væri fariö i þeirra
nafni bæði vegna þess auglýsing-
argildis sem það heföi á mál-
staönum og vegna þess aö ágóö-
inn af sölu þeirra auglýsinga sem
málaðar eru á Skódann rynnu i
byggingarsjóð orlofsheimilisins
og að seld yrðu merki á vegum
samtakanna meðan á aftur-
ábakskeyrslunni stæöi.
Aö lokum skal þess getið aö
Hallgrimur Marinóson leggur
upp I ferö sina i dag Þriöjudaginn
18. ágúst.
Verkamannasambandið:
Uppsögn fyrir
1. október nk.
Engar tölur enn frá Noregi
Fara minnst 10 þús.
lestir yfir kvótann
Verkamannasamband islands
hélt formanna- og sambands-
stjórnarfund að Laugarvatni um
siðustu helgi. Á fundinn mættu
um 50 manns, þar af rösklega 40
formenn verkalýðsfélaga eða
fulltriíar þeirra.
Eftirfarandi sainþykkt var
gerð á fundinum:
Formannafundur Verka-
mannasambands Islands, haldinn
að Laugarvatni 14.-16. ágúst 1981,
skorar á öll aðildarfélög Verka-
mannasambandsins að segja upp
gildandi samningum fyrir 1. októ-
ber n.k., þannig að þeir verði
lausir frá og með 1. nóvember
næstkomandi.
Fundurinn hvetur félög innan
sambandsins til eindreginnar
samstöðu i komandi kjara-
samningum. Jafnframt beinir
fundurinn þvi til sambandsstjórn-
Nýtt land heitir vikublaðið sem
fæddist i klofningnum hjá
krötum. Blaöið opnaði rit-
stjórnarskrifstofur sinar að
Laugavegi 40 i gærmorgun.
Blaðamenn og annað starfsfólk
hefur hafiö störf i nýja húsnæðinu
og vinnslan er þegar hafin af full-
um krafti.
Nýtt land var heitiö á blaði
Héöins Valdimarssonar eftir
kofninginn 1938 hjá krötum, en
það varð undanfari samrunans
við kommúnista og stofnunar
Sósialistaflokksins. Þá bar blað
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna heitið Nýtt land — frjáls
þjóð, eins og flestum er enn I
fersku minni. Það er þvi söguleg
tilhöfðun i heiti nýja blaðsins,
hvernig svo sem gengur að
standa undir þvi I framtiðinni.
Nýja blaðið veröur 24 siður að
stærð, byggist aðallega upp á
ar og einstakra aðildarfélaga, að
þau kanni meðal félagsmanna-.,
grundvöll viðtækari samstöðu
landssambanda og félaga innan
Alþýðusambandsins.
Fundurinn leggur áherslu á að i
komandi kjarasamningum verði
megináhersla lögð á atvinnu-
öryggi og varanlega aukningu
kaupmáttar, sem náð verði með
samtvinnun grunnlaunahækk-
ana, skattalækkana og hjöðnunar
verðbólgu.
I ljósi þeirrar reynslu sem
verkalýðshreyfingin hefur af i-
hlutun rikisvaldsins i gerða
kjarasamninga, hlýtur Verka-
mannasamband íslands að leita
eftir viðræðum við rikisstjórnina
með það fyrir augum að hún
ábyrgist þann kaupmátt, sem
samið verður um i komandi
kjarasamningum.
fréttaskýringum, innlendum og
erlendum. Gárungarnir á rit-
stjórnarskrifstofunum hjá Nýju
landi sögðu, að „anarko-krat-
iskum” straumum yrði sleppt
lausum á fimmtudaginn, en þá er
fyrirhugað að blaðið komi út.
Meöal efnis veröur úttekt á
„lokunarmáli” Alþýðublaðsins —
og að sjálfsögðu veröur mikið um
auglýsingar. Auk auglýsinga til
að fjármagna blaðið hefur verið
stofnað hlutafélag um það og er
hlutafjársöfnun þegar hafin.
Ritstjórar blaðsins eru Helgi
Már Arthúrsson og Vilmundur
Gylfason — en fastir starfsmenn
verða um tiu talsins. Blaöið er I
minna broti en dagblöðin og er
meiningin að þaö verði gefiö út
vikulega. Nýtt land hefur valið
sér einkunnarorð: Gegn flokks-
ræði, gegn ritskoðun.
—ög
Fyrsti farmurinn
Sama þurr-
efni, minna
fitumagn
Þurrefnisinnihald loðnunnar úr
fyrsta farminum sem landað var
á nýbyrjaöri haustvertið er 14,5%
og fituinnihald 15,6% samkvæmt
athugunum Rannsóknarstofn-
unar fiskiðnaðarins.
Þetta er nokkru minna fituinni-
hald en mældist í fyrsta loönu-
farminum á siðustu haustvertlð,
sem þá var 18%, en sú loðna var
ekki veidd fyrr en um miðjan
september, þegar loðnan er i sem
mestum holdum. Þurrefnisinni-
hald loðnunnar nú er hins vegar
nánast þaö sama og mældist I
byrjun vertiðar I fyrra. —lg
40 tíma stím í löndun
Veiðist vel
við Jan
Mayen
Nú hafa borist á land tæp 7000
tonn af loönu, þar af lönduðu fjög-
ur skip sem komu frá Jan Mayen
svæðinu rúmum 3200 tonnum um
helgina.
Gisli Ami landaöi á föstudag
630 tonnum á Raufarhöfn og á
laugardag lönduðu sjö skip.
Ljósfari 570 tonnum, Harpa 500
tonnum, Guðrún 650 tonnum,
Helga II 320 tonnum, Jón Kjart-
ansson 1150 tonnum, Pétur Jóns-
son 850 tonnum og Albert landaði i
annað sinn á vertiðinni 600 tonn-
um. Þrjú síðasttöldu skipin og
Gisli Arni að auki. komu af mið-
unum viö Jan Mayen en þaðan er
40 stunda stim á löndunarstaði á
norðurlandi.
Góð veiði hefur verið við Jan
Mayen og eru flestir loðnubátarn-
ir farnir þangað noröur eftir, en
alls eru 18skip komin á miðin, og
fleiri að tygja sig til farar.
„Við höfum ekki fengið neinar
tölur frá Norðmönnum, þetta bar
svo skjótt að, að þeir eru sjálfsagt
að reikna þetta nákvæmlega i
okkur,” sagði Jón B. Jónasson
skrifstofustjóri I sjávarútvegs-
ráðuneytinu aðspurður um afla-
tölur um loðnuveiðar Norðmanna
við Jan Mayen.
Samkvæmt upplýsingum frá
Harstad i Noregi er ljóst aö Norð-
menn hafa veitt minnst 10 þús
tonnum meira af loönu en þeim
var heimilt, samkvæmt samningi
við tslendinga.
„Við ræðum sjálfsagt eitthvað
óformlega við þá, en það liggur
alveg ljóst fyrir i samningnum aö
þetta dregst frá þeim við næstu
úthlutun.
A þessari haustvertiö var Norð-
mönnum úthlutað 82.615 lestum af
loðnu frá Jan Mayen svæðinu, en
þeir eru þegar búnir að landa i
Harstad nærri 92 þús. lestum og
eitt norskt loðnuskip er enn á
miöunum við Jan Mayen.
URfhaflega hafði Norðmönnum
verið úthlutað á þessari vertíð
105. þús. tonnum við Jan Mayen,
en sá kvóti var lækkaður vegna
30% lækkunar á heildarkvótanum
og að auki vegna ofveiði Norð-
manna á vertiðinni þar á undan.
Rannsóknarskipin Bjarni
Sæmundsson og Geo Sart eru
þessa dagana við loðnurann-
sóknir á Jan Mayensvæöinu, en
endanleg ákvörðun um hámarks-
afla á næstu vetrarvertið verður
tekin þegar bergmálsmælingum
á stofnsta>rð verður lokið i októ-
ber n.k. —lg.
Kratar iðnir við kolann
Vikublað á leiðinni
— Vilmundur ekki af baki dottinn
—ig.
Hun á afmæli í dag
1 tilefni af þvl að borgin á afmæli i dag hafa Pylsuvagninn ofl. haft
forgöngu um að Hornaflokkur Kópavogs komi I heimsókn I Austur-
strætiki. 18 i dag. Þar verður einkum ungu fólki boðið upp á pylsur,
sælgæti frá ópal og Kók....