Þjóðviljinn - 18.08.1981, Page 7
Þriöjudagur 18. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Unniö er viö 2. áfanga leikhússins og sést þegar örla fyrir sérkenni-
legu svipmóti byggingarinnar.
Frá siðustu áramótum hefur verið unnið af mikl-
um krafti við byggingu Borgarleikhúss i Kringlu-
mýri. Unnið er að 2. áfanga byggingarinnar, sem
tekur til uppsteypu á kjallara hússins. Áætlað er, að
þessum áfanga ljúki á fyrri hluta næsta árs, og
verður þá tekið til við 3. áfanga, sem verður upp-
steypa á öllu húsinu og þakgerð.
Eins og þegar er kunnugt, eru
það Reykjavikurborg og Leik-
félag Reykjavikur, sem reisa
Borgarleikhúsið i sameiningu.
Framlag Reykjavikurborgar
fyrir árið 1981 er 1,5 millj. kr.,
en Leikfélagið leggur fram 2
millj. kr. Það er markmið
byggingaraöila að taka húsið i
notkun árið 1986, en i ágúst það
ár á Reykjavikurborg 200 ára
afmæli.
Byggingarnefnd Borgarleik-
húss er skipuð þeim Stefáni
Benediktssyni arkitekt, for-
manni, Guðmundi Pálssyni
leikara og Þóröi Þorbjarnarsyni
borgarverkfr æðingi.
Byggingameistari Borgarleikhússins er Sveinbjörn Sigurösson t.v.
og sést standa hér i veröandi anddyri leikhússins ásamt verk-
stjóranum, Arna Sveinbjörnssyni.
Fjörugir tónleikar voru haldnir á Lækjartorgi sl. föstudag. Þar tróöu upp hljómsveitirnar Kamarorghestar, Fræbbblarnir og Taugadeildin viö
mikla hrifningu viöstaddra ungmenna. A myndinni má sjá meölimi Taugadeildarinnar, ,,á öllu útopnuöu” eins og þaö heitir idag.
Besta varpár ama í 80 ár
Aö þvi er varöar tölu verpandi
arna er þetta ár taliö besta arnar-
varpsár i 80 ár eöa allt frá þvi um
aldamót, en varp heppnaöist aö
þessu sinni hjá 15 arnarpörum og
út komust 16 ungar. Vitað er meö
vissu um niu önnur pör sem urpu,
en varpiö misfórst.
Það var á árunum eftir 1900 að
haferninum var útrýmt úr 3/4
hlutum landsins með refaeitri og
siðan er aldrei vitað um varp hjá
jafn mörgum arnarpörum á einu
sumri. Það sem af er ársins hafa
ernir sést frá Skjálfandaflóa
vestur um að Arnessýslu. Tala
fullvaxinna fugla mun vera
nálægt 70, auk ungfugla, og gæti
tala stofnsins verið um eitt
hundrað auk þeirra unga sem upp
komust i ár, að þvi er segir i frétt
frá Fuglaverndarfélagi islands,
sem annast talningu.
Þrjú arnarhræ fundust á árinu
og höfðu tveir fengið i sig grút úr
hnisuhræjum.
Þá kemur einnig fram, að varp
fálka virðist hafa tekist vel á
þessu ári.
Þeir sem áhuga hafa á að
gerast félagar i Fuglaverndarfé-
iaginu geta gert það gegnum
sima 19995 i Reykjavik eða með
bréfi til félagsins á Bræðra-
* borgarstig 26, R. og fá allir nýir
félagar bók Finns Guðmunds-
sonar, Haförninn, sem er sér-
prentun úr bók Birgis Kjaran með
sama nafni.
Norrænu málnefnd
irnar á fundi:
F æreyska
og íslenska
í norrænu
samstarfi
Stjórnarf undur Nor-
rænnar málstöövar (Nor-
disk sprSksekretariat)
verður haldinn í Reykjavík
nk. fimmtudag og dagana
á eftir ársfundur norrænu
málnefndanna, en á hon-
um verður aðallega f jallað
um stöðu og hlutverk fær-
eysku og islensku i nor-
rænu samstarfi.
Norræn málstöð tók til starfa i
ósló 1. júli 1978 og hefur þvi hlut-
verki að gegna að stuðla að varð-
veislu og eflingu þess, sem
Norðurlandamálunum er sam-
eiginlegt og greiða fyrir þvi, að
Norðurlandabúar geti skilið hver
annan. Málstöðinni ber einnig að
stuðla að samvinnu milli orða-
nefnda, orðabanka og hvers
konar annarra stofnana á
Norðurlöndum, sem afskipti hafa
af Norðurlandamálum.
Stjórn stöðvarinnar skipa full-
trúar 11 málnefnda eða sambæri-
legra stofnana, þ.e. fyrir græn-
lensku, islensku, færeysku,
nýnorsku, norskt bókmál, lapp-
nesku (eða samisku), sænsku i
Sviþjóð, sænsku i Finnlandi,
finnsku i Sviþjóð, finnsku i Finn-
landi og dönsku. Þetta er i fyrsta
sinn sem stjórnarfundur mál-
stöðvarinnar er haldinn á islandi.
30—35 manns munu sitja árs-
fund norrænu málnefndanna, sem
er sá 28. i röðinni. Hafa nú komið
til tals breytingar á tilhögun árs-
fundanna með tilkomu Mál-
stöðvarinnar og verða teknar til
umræðu á fundinum. Framsögu-
menn um stöðu færeysku og is-
lensku eru Baldur Jónsson dósent
og Jóhan Hendrik W. Poulsen
mag. art.
Báðir fundirnir verða haldnir á
Hótel Sögu.
Afleiðing eggja- og
fuglaþjófnaða?:
Haftyrðill
og þórshani
að hverfa
Haftyrðill og Þórshani eru á
mörkum þess að hverfa sem
varpfuglar á lslandi, að þvi er
Fuglaverndarfélagið vekur at-
hygli á, en það stendur fyrir taln-
ingu á varpi hjá þessum teg-
undum og fleiri. Er i tilkynningu
félagsins brýnt fyrir lands-
mönnum að vara sig á eggja- og
fuglaþjófum, sem mjög sækja i
þessar tegundir.
Fræðsluráð
Reykjavíkur
Umsagnir um
skólastjóra-
og yfir-
kennaiastöður
Tvær umsóknir bárust um
stöðu skólastjóra Réttarholts-
skóla, sem auglýst var laus til
umsóknarfyrri sumar, frá Gunn-
ari Ásgeirssyni, settum yfir-
kennara við skólann, og frá
Haraldi Finnssyni yfirkennara
við Hagaskóla. Samþykkti
fræðsluráð Reykjavikurborgar á
fundi sinum i gær að mæla með
Haraldi i skólastjórastöðuna.
A sama fundi samþykkti
fræðsluráð að mæla með Tómasi
Einarssyni i stöðu yfirkennara
við Hliðaskóla.