Þjóðviljinn - 18.08.1981, Page 8
8 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. ágúst 1981
Þriöjudagur 18. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Gengið
um
Heid-
mörk
Heiðmörkin er sá útivistar-
staður Reykvikinga, sem hvað
vinsælastur hefur orðið á undan-
fómum árum. Veg og vanda af
umsjá staðarins hefur Skóg-
ræktarfélag Reykjavikur haft og
sl. miðvikudag bauð félagið
fréttamönnum i skoðunarferð
um Heiðmörk til að kynna sér
það sem þar hefur verið gert að
undanförnu. Meðfylgjandi
myndir tala sinu máli um það
sem fyrir augu bar.
Myndir: Ketill
Skógræktarfélags- og fréttamenn á gönguför um Heiömörk, þar sem mikilogánægjulegævintýrihafagerstá30árum.
Nokkrir hinna ötulu forvigismanna skógræktarfélagsReykjavIkur. F.v.: Jón Birgir Jónsson, Vilhjálmur Sigtryggsson, Vignir Sigurösson, Ólafur
Sæmundsen og Kjartan Sveinsson.
í&' - /
Skógræktarfélag Reykjavikur hefur staöiö fyrir mikilli gróöursetningu I Elliöaárhólmunum og innan
fárra ára veröa þeir orönir sannkallaöur unaösreitur.
Ariö 1975 sameinuöust skógræktarmenn og hestamem um aö reisa f
Heiömörk þetta minnismerki um Einar E. Sæmundsen. Var þaö fram-
tak vel viö hæfi, þvi Einar var bæöi mikill skógræktar- og hestamaður.
Vigsla Heiömerkur fór fram sunnudaginn 25. júni 1950. Vigsluræðuna
flutti Gunnar Thoroddsen, þáverandi borgarstjóri Reykjavlkur. Aö
ræöu sinni lokinni gróöursetti hann litla greniplöntu. Úr henni hefur nú
drjúgum tognaö, eins og sjá má hér á myndinni.
SKATTALÆKKANIR REAGANS:
HÆGRI KROSSFERÐ
Rikisstjórn Ronalds Reagans i
Bandarikjunum stendur i stór-
ræöum þessa dagana. Tilkynn-
ingin um framleiöslu nifteinda-
sprengjunnar var gefin út I miöri
orrustu Reagans, fyrrverandi
formanns stéttarfélags banda-
riskra leikara, viö flugum-
ferðarstjóra, og fáum dögum
áöur haföi frumvarp Reagans um
skattalækkanir komist klakklltiö
gegnum þingiö.
„Newsweek” birti 2. mars sl.
viötal viö tvo kunnustu hagfræö-
inga Bandarlkjanna um efna-
hagsstefnu stjórnarinnar, og voru
þeirlittá einu máli, enda standa
Nóbelsverölaunahafarnir tveir
hvor I sinum armi borgaralegrar
hagfræöi, Paul A. Samuelson
fylgir svonefndri Keynes-linu, en
Milton Friedman sinni eigin pen-
ingahyggju.
Þetta viötal fer hér á eftir I þýö-
ingu Haralds Jóhannssonar.
Blm: Forsetinn og ráögjafar
hans segja tillögur slnar í efna-
hagsmálum marka glöggt frá-
hvarf frá fyrri stefnu. Er þaö
rétt?
Reagan.
Friedman: Já. Undrun vekur,
aö útgjaldamegin eru skilin
gleggri en skattamegin. Þetta er
fyrsta alvarlega tilraunin I
margra áratugi til aö taka saman
sundurliöaöar og yfirgripsmiklar
tillögur til lækkunar á hlutdeild
útgjalda sambandsrlkisins I
þjóöartekjunum. Skattamegin
eru nýmælin löggjöf þrjú ár fram
i tlmann.
Samuelson: 1 40 ár, allt frá upp-
stokkun Roosevelts, hafa Banda-
rlkin horft fram til mannúölegs
þjóöfélags, velferöarrikis.
thaldsmenn hafa haft á þvi
imugust. Nú ætlar Ronald
Reagan aö venda þvi kvæöi i
kross. Já, stefnuskrá Reagans er
atrenna undir aö hverfa frá hinu
umliðna. Til aö ráöa bót á ávæn-
ingi um kreppu I þjóöarbúinu er
boöaö til róttækrar hægri kross-
feröar. Engin sllk kreppa er til
staöar. Til þeirrar krossferöar
ættu þeir landsmenn einir aö
ganga, sem sjá kosti I heimspeki-
legri fhaldssemi hennar. Þeir
ættu ekki aö láta glepjast af svo
ósennilegri forsögn, aö þaö yröi
veröbólgunnar allra meina bót aö
taka aftur upp ójöfnuö þriöja ára-
tugarins.
Blm: Þaö er ein af efnahags-
legum forsendum rlkisstjórnar-
innar, aö settum mörkum á sviö-
um hagvaxtar, veröbólgu og at-
vinnu veröi fremur náö, ef viö-
horfum manna til þeirra hafi áöur
veriö breytt. Eru þau mörk aö
réttu lagi?
Friedman: Ef fallist veröur á
stefnuskrá Reagans og henni
framfylgt, má aö réttu lagi vænta
annars en áöur — einkum af verö-
bólgunni. Og þau breyttu viöhorf
gætu stuðlaö mjög aö lækkun
vaxta, hægari verðbólgu og örari
hagvexti. Sett mörk eru I seil-
ingarfæri.
Samuelson: „Mönnum veröur
aö trú sinni”. A þaö reiöa ráö-
gjafar Reagans sig, þegar þeir
segja: „Oöar og traust hefur
veriö vakiö á ráðstöfunum gegn
veröbólgunni, mun undrum sæta,
hve auöhamiö verölagiö veröur”.
Litum á máliö. England frú
Thatchers segir ekki þá sögu. Né
Þýskaland Schmidts eöa Japan
Suzukis. Atvinnuleysi og ónýtt
framleiöslugeta glæöa veröbólgu
I löndum þessum. I ár verður
fagurgali. Aö ári, þegar ekki
veröur lengur á honum villst,
veröur viökvæðiö án efa: „í þess-
ari kreppu, sem á sér enga hliö-
stæöu, er mikiö atvinnuleysi ekki
tiltökumál”.
Blm: Samrýmast tillögur
Reagans um skatta og útgjöld
þeim tilmælum hans, aö Seöla-
banki sambandsrlkisins haldi aö
sér höndum um aukningu pen-
inga?
Friedman: Já. A milli fjárlaga
og aukningar peninga eru hvorki
náin tengsl I kenningum né fram-
kvæmd, þótt annað sé oft látiö I
veöri vaka. Hitt er alvarlegt
vandamál, hvort Seölabanki
sambandsrikisins veröi fús til aö
umbreyta úreltum starfsháttum
slnum.
Samuelson: Ef Reagan fellur
ekki frá niöurskuröi skatta og
litiö saxast á útgjöld, þarf Seöla-
bankinn aö vera þvi staöráönari
aö halda uppi háum vöxtum.
Seölabanka sambandsrikisins er
ætlaö aö beita upp I vindinn og
riöur meira á því en ella, þegar
rikisstjórnin hafnar þjóöhags-
legri stööugleikastefnu.
Ritstjórnin: Meö tilliti til fyrir-
hugaðrar lækkunar skatta veröur
Friedman: sanngirni er hlutlæg-
ur eiginleiki.
hallinn á f járlögum jafnaöur fyrir
fjárlagaáriö 1984?
Friedman: Enginn niöur-
skuröur er fyrirhugaöur á skatt-
tekjum, aöeins niöurfærsla skatt-
stiga og hægari aukning skatt-
tekna. tltgjöld munu jafnframt
færast i aukana, en hægar en
áöur. Hagstæö áhrif af fækkun
hafta og stööugri aukningu pen-
inga veröa ennfremur fjárlögum
til framdráttar. Upphaflegu
marki Reagans forseta, halla-
lausum fjárlögum, held ég, aö ná
Samuelson: Ég er hátekjumaöur
og vænti mér mikils af lagabreyt-
ingum repúblikana.
megi á fjárlagaárinu 1983, þegar
tillittil alls er tekið, og tiltölulega
auðveldlega á fjárlagaárinu 1984.
Samuelson: Trúlega lætur ekki
i eyrum, aö fjárlög veröi þvl fyrr
hallalaus, þvi lengra niöur sem
Reagan færir skattstigann, nema
úr útgjöldum sé dregiö. Um
árangúrinn láta ihaldsmenn sér
fáttfinnast. Halla á fjárlögum má
jafna fyrir 1984 meö þvi aö skera
stórfelldlega niöur útgjöld, önnur
en til landvarna. Eins og á daginn
kom 1937, 1959 og 1969 er himinn
þá ekki höndum tekinn. Oft á tiö-
um, alltof oft, hefur þaö leitt til
nýs efnahagslegs afturkipps.
Ritstjórnin: Ríkisstjórnin segir
fyrirhugaöar ráöstafanir sinar til
aö draga úr aukningu útgjalda
sambandsrlkisins muni koma
jafnt niöur. Er þaö svo?
Friedman: Nei. 1 ráðagerðum
hennar er boriö blak af ráöstöfun-
um, sem taldar eru vera fátækum
til hagsbóta, en lagst því þyngra á
ráðstafanir, sem fremur eru i
þágu fólks i miö- og hátekju-
flokkum. Sú hlutdrægni er æski-
leg.
Samuelson: Ég er I hátekju-
hópnum. Ég vænti mér mikils
ávinnings af lagabreytingum
republikana. Úr þvi að ég trúi
ekki á kraftaverk, hvernig má ég
trúa þvl, aö ráöstafanir Reagans
komi „jafnt niður”? Ekki fremur
en ráöstöfunum Roosevelts áöur
fyrr er þeim þannig fariö. Máliö
snýst um þetta: Telja kjósendur,
aö hverfa eigi frá mannúðar-
stefnu siöustu áratuga, — til aö
heröa keppni um ábata og vegna
þess aö útjöfnun hefur gengib of
langt?
Ritstjórnin: Eru ráöageröir
rikisstjórnar Reagans um skatta-
lækkun sanngjarnar?
Friedman:Þær spanna vltt bil.
Um sanngirni dæmir hver og
einn, hún er ekki hlutlægur eigin-
leiki.
Samuelson: Fólki i lágum miö-
tekju-flokkum og öörum lægri
mun ekki þykja skattalækkunin
sanngjörn. Lýst er yfir, aö til-
gangur lækkunarinnar sé aö örva
fjárfestingu, ekki neyslu... Þar
meö er þó ekki sagt, að þær taki I
hnjúkana. Um jöfnuö og sann-
girni snúast ekki fyrirhugaöar
breytingar.
Ritstjórnin: Sagan sýnir, aö
hægara er aö lækka skatta en
setja skorður viö útgjöld. Ætti
Reaganaöhóta að beita neitunar-
valdi sérhverja lækkun skattstig-
ans án tilsvarandi niöurskurðar
útgjalda?
Friedman: Nei. Neitunarvaldi
ætti hann einfaldlega að beita
fjárveitingar umfram tilskilin
mörk sin. Hvað sem öllu liður,
held ég, aö hömlur á útgjöldum
rikisins eigi viöa pólitiskan
hljómgrunn sem stendur. Mál
kunna nú aö horfa öðru vlsi við en
á liönum dögum.
Samuelson: Já, forsetinn ætti
aö hóta aö beita neitunarvaldi og
standa við þaö, einkum ef lækkun
skatta fer dr böndum og halli (á
rikisreikningi) strikkar á yfir-
spennu I jóöarbúinu.
Ritstjórnin: Hvaöa aörar mik-
ilvægar umbætur hafa oröiö út-
undan I áformum forsetans?
Friedman: Enn önnur skatta-
úrræöi til aö örva framleiöslu-
fjárfestingu, einkum (a) aö jafna
strax hámarksskatta á fjárfest-
ingar- og atvinnutekjum; (b) aö
færa 50% hámarkið á atvinnu-
tekjum niöur um 10% árlega, um
leið og aðra flokka; (c) aö leið-
rétta útreikning fyrninga og höf-
uöstólsauka meö tilliti til verö-
bólgu. t huga þarf aö hafa, aö fyr-
irhuguö fjárlög svara til 12.250
dollara á hverja fjögurra manna
fjölskyldu I landinu — til 18%
hærri upphæðar en á fjárlögum
1980. Betur má duga.
Samuelson: Allar ráöageröir
Reagans tel ég snúast um þaö aö
skeröa almenningsgeirann og
þenja út einkageirann. Aö vanda-
máli stöðnunar og veröbólgu er
aöeins vikið til málamynda. Ég
held ekki, aö þaö sé yfirsjðn for-
setans og samstarfsmanna hans.
Ég held, að þeir séu til þess búnir
aö smeygja veröhjöðnunarskrúf-
um upp á landið að ári, þegar þeir
hafa f engiö breytingar sinar sam-
þykktar og I ljós er komiö, aö þær
duga ekki til þess kraftaverks aö
taka fyrir rætur veröbólgunnar.
Ritstjórnin: Þjóöþingiö gengur
endanlega frá lagabreytingunum.
Hvaða ráð kunniö þiö Þjóöþinginu
viö umfjöllun tillagna Reagans?
Friedman: Aö samþykkja þær
skjótt I heild sinni aö viöbættum
frekari niöurskuröi skatta og út-
gjalda, eins og ég hef tilgreint.
Látiö þvælda smámunasemi lönd
og leiö. Þörfin er brýn. Attir hafa
verið teknar. Því fyrr sem sjúk-
lingurinn tekur inn lyfin, því fyrr
hressist hann. Viöhorf lands-
manna hafa breyst. Þiö munuð
komast aö raun um, aö ykkur er
pólitiskur akkur af því aö hefjast
skjótt og rösklega að, — og vis
pólitlskur dauödagi af hversdags-
legu pólitlsku þrasi.
Samuelson: Þjóöþingið ætti
ekki aö setjast á máliö. En þaö
ætti aö minnast þess, aö hugar-
ástand kreppu hefur veriö skap-
að, ekki sakir þess aö neitt nýtt og
óvænt og slæmt sé af þjóöarfram-
leiöslu og verðlagi aö frétta, held-
ur berum oröum I þvl skyni aö
telja bandarlsku þjóöinni hug-
hvarf I nokkrum grundvallarmál-
um almanna- og einstaklings-
heilla. Þjóöþingiö ætti að halda
uppi langs tlma sjónarmiöum.
H.J.