Þjóðviljinn - 08.09.1981, Page 12

Þjóðviljinn - 08.09.1981, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 8. september 1981 Verkamenn Viljum ráða röska og reglusama verka- menn i Mjólkurstöðina i Reykjavik. Upplýsingar hjá verkstjóra. Mjólkursamsalan Tækjamenn - Verkamenn Viljum ráða nokkra tækjamenn og verka- menn til starfa á Svartsengi i einn mánuð. Húsnæði á staðnum. istak, simi 81935 ' - BÓKAÚTGÁFA Bókaútgáfa óskar eftir starfsmanni i hálfsdagsstarf. Almennur rekstur og sölustörf. Þarf að hafa aðgang að bil. Umsókn sendist af- greiðslu blaðsins, merkt: Bókaútgáfa. Laus staða Staða skrifstofumanns við sýslumanns- embætti Vestur-Skaftafellssýslu er laus til umsóknar. Umsóknir, er greini aldur menntun og fyrri störf, sendist sýslumanni Vestur- Skaftafellssýslu, Austurvegi 15, Vik Mýr- dal, fyrir 10. október 1981. Sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu. Kennarar Kennara vantar við Grunnskóla Tálkna- fjarðar. Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 94- 2538. Pétur Sumarliðason kcnnari, i lést á Borgarspitalanum laugardaginn 5. september. Guðrún Gisladóttir. Vikar Pétursson. GIsli ól. Pétursson. Pétur örn Pétursson. Bjarni B. Pétursson. Björg Pétursdóttir. Móðir okkar Dagbjört Guðbrandsdóttir Eskihlið 8 A er látin. Kristin Björgvinsdóttir. Katrin Björgvinsdóttir Faðir okkar Páll Þorsteinsson frá Hofi I öræfum lést i Borgarspitalanum að kvöldi 4. september. Sigrún S. Pálsdóttir Gunnar II. Pálsson Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar og tengdamóður Kristinar Einarsdóttur Elliheimilinu Grund Sigurður Jónsson Hólmfriöur Jónsdóttir Erna Jónsdóttir Dagbjartur Grlmsson Birna Jónsdóttir Iiaraldur ólafsson Barnabörn og barnabarnabörn Sogavegur: Deilt um söluturn Söluskálinn sem Ibúar i kring vilja ekki að verði stækkaöur. tbúar við Sogaveg hafa mót- mælt þvf að söluskálinn við Soga- veg 1 verði stækkaður og fariö fram á ýmsar úrbætur viögötuna. Bréfi þessa efnis var dreift á borgarstjórnarfundi s.l. fimmtu- dag, þar sem tii stóð að afgreiða beiöni Kolbrúnar Svavarsdóttur um nýja lóðarúthlutun fyrir sölu skálann vegna stækkunar. Var afgreiðslu frestað. Borgarráð fjallaði um beiðni Kolbrúnar 11. ágúst s .1. og greiddi Sigurjón Pétursson atkvæði gegn beiðninni en hinir fjórir borgar- ráðsmennirnir voru henni með- mæltir. Kolbriin hefur rekið söluskál- ann undanfarin ár en 1957 veitti borgarráð Axel Norðfjörð leyfi til aö reisa og reka söluturn við Sogaveg 1 og var það leyfi til handa öryrkja og bundiö þvi skil- yrði að leyfishafinn, sem var öryrki, starfaði sjálfur að rekstrinum. Hann seldi söluskál- ann hins vegar fyrir allmörgum, árum en siðari leyfishafar verið öryrkjar. Samningurinn sem var til 10 ára hefur ekki veriö fram- lendur. 1 umsögn Hjörleifs Kvaran, f.h. lóðanefndar, segir aðljóst sé að forsendur leyfisveit- ingarinnar séu löngu brostnar en rétt sé að vekja athygli á að sölu- turn þessi hefur um árabil vieitt stóru hverfi þjónustu. Lagði Hjör- leifur til við borgarráð að leyfiö yrði veitt. Bréf ibúanna er svohljóö- andi: 1. Að lokað verði fyrir umferð frá Grensásvegi um Sogaveg. 2. Að trjágróður verði settur með- fram Miklubraut til að skýla hús- um við Sogaveg vegna hávaða, eða upphækkun eins og gert er við nýja hverfið innst á Miklubraut. 3. Viðhöfum heyrt að til stæði að stækka Söluskálann við Soga- veg 1. Eindregið mótmælum við þvi, þar eð umferð um Sogaveg hefur aukist hans vegna, sérstak- lega siðast liðið sumar. Frá Sölu- skálanum er mikillsóðaskapur og fýkur bréfarusl i alla garða hér i kring. 4. Við viljum að lokum þakka fyrir skrúðgarðinn, sem kominn erhér fyrirofan, en samt væribdt ef hægt væri að ganga upp Ur botnlöngunum upp i garðinn.” Undir þetta rita 35 ibúar. —AI Ráðstefna Alþýðubandalagslns um húsnæðismál Leysum húsnæðisvandann Hreyfilshúsinu við Grensásveg : sunnudaginn 13. þessa mánaðar ! Guðjón Skúli ■ Guðmundur J. I_____________ Ólafur Adda Bára Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til ráðstefnu um ástand húsnæðismála i Reykjavik sunnudaginn 13. september i Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Ráðstefnan hefst klukkan 13 og er áætlað að henni ljúki um klukkan 19. Fundar- stjóri er Adda Bára Sigfúsdóttir. Að lokinni setningu ráðstefnunnar verða flutt stutt framsöguerindi. Málefni leigjenda Jón Ásgeir Sigurðsson Hlutverk félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar i húsnæðismálum Þorbjörn Broddason Framkvæmd húsaleigulaga Skúli Thoroddsen Húsbyggingar í Reykjavik og atvinnumál Guðmundur Þ. Jónsson Framkvæmd nýju húsnæðislaganna Ólafur Jónsson Þáttur verkalýðshreyfingarinnar i bygg- ingu húsnæðis á féiagslegum grundvelli Guðmundur J. Guðmundsson Félagslegar íbúðarbyggingar sem fram- tiðarlausn Guðjón Jónsson Hlutverk rikisins og stefnumótun i hús- næðismálum Svavar Gestsson Stefnumótun i húsnæðismáium og hlut- verk Reykjavikurborgar Sigurjón Pétursson Að loknum framsöguerindum, sem áætlað er að standi i 2—3 klst., munu frummæl- endur taka þátt i pallborðsumræðum. Þar gefst ráðstefnugestum kostur á að beina til þeirra spurningum og athugasemdum bæði skriflegum og munnlegum. Alþýðubandalagið i Reykjavík Svavar Sigurjón Guömundur Þ. Jón Asgcir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.