Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Helgin 14,— 15. nóvember 1981 sólarhring. Fregnir hafa borist frá Nova Scotia um dálitinn óróa i andrúmsloftinu þar yfir, sem ekki er vitaö af hverju stafar. Þetta hefur haft i för meö sér lágþrýsti- svæöi sem hreyfist hratt yfir NA-rikin og mun orsaka rigningu og hvassviöri. Hitastig veröur á bilinu 48—66 gráöur á Fahren- heit.” „Og nú hefst útsending frá Park Plaza hdtelinu i New York. Þaö eru Ramon Raquello og hljómsveit sem skemmta.” Ekkert var enn komiö fram sem vakiö gæti ugg i brjósti hlusenda, en meö þessum aö- draganda aö tilkynningunni um alvarlega atburöi höföu hlustend- ur, sem fylgst höföu meö frá byrj- un, veriö fengnir til aö gleyma aö þeir voru i raun og veru aö hlusta á leikrit. Raunar fékk þessi dagskrá ekki mikla hlustun. Mercury leik- hópurinn hafði til þessa flutt 16 verk i leikritaröö og fram- kvæmdastjórar CBS viöurkenndu það fúslega aö hún hafði siöur en svo slegiö i gegn. Aöeins 3% hlustenda fylgdust meö en flestir voru á sama tima aö hlusta á The Charlie McGarthy Show á annarri bylgjulengd. M.a. af þessum ástæðum hafði Orson Welles ákveöið að leggja allt undir með flutningnum á War of the Worlds, eftir H. G. Wells. Hann átti það á hættu aö vera rekinn ef ekki fengjust fleiri hlustendur. Welles og samstarfsmenn hans I Mercury leikhópnum, þeir Paul Steward og John Houseman, höföu legiö i handritinu i 5 daga og margsinnis breytt þvi og lag- fært það. A fimmtudagskvöld fyrir útsendingu hlustuöu þremenningarnir á upptöku og voru óánægöir. Orson Welles, sem var aö starfa aö ööru leikriti i New York á sama tima, gat naumast haldið sér vakandi fyrir þreytu þetta kvöld og var afar fáoröur. Hann sagði: „Eina von okkar er aö gera leikritið eins raunverulegt og mögulegt er. Viö veröum að setja eins marga „effekta” inn eins og hugmyndaflug okkar framast leyfir”. Næsta nótt varð vökunótt og búin voru til alls konar fréttainnskot og daginn eft- ir vann Steward aö þvi aö finna viðeigandi hljóö, svo sem eins og hávaöa i hræddum múgi, skothriö og öskur. Þegar leiö aö útsendingu á sunnudagskvöldiö var upptöku- salurinn allur i drasli, pappamál- um og umbúöum utan af mat eftir siöustu lotu i endurskoðun verks- ins. Klukkan 7.59 slokraöi Welles úr bolla af appelsinusafa áöur en opnaö var fyrir útsendinguna. Þá voru allir orönir bjartsýnir á að það tækist að lokka hlustendur frá Charlie McCarthy Show. Og þaö tókst svo sannarlega. Atburöarásin næstu 24 klukku- tima kom Orson Welles og félögum hans i opna skjöldu — svo aö ekki sé meira sagt. Tilviljun réöi þvi aö nýr og óþekktur söngvari kom fram i Charlie McCarthy Show u.þ.b. 10 minútur yfir átta og hann vakti ekki meiri hrifningu en þaö, aö margir svissuöu yfir á CBS til að vita hvort þar væri ekki eitthvað betra á dagskrá. Þeir komu beint inn I Innrásina frá Mars, án þess aö hafa heyrt aödragandánn og gátu ekki haft minnstu hugmynd um aö leikrit væri á ferðinni. Þaö eina sem þeir komust aö var þaö, aö eitthvað mjög undarlegt væri á seyði á austurströnd Bandarikj- anna. Eöa svo sagöi fréttaþulur CBS aö minnsta kosti... „Góöir hlustendur, ég er með mikilvæga tilkynningu. Furöu- hluturinn, sem féll i Grover Mills i New Jersey fyrr i kvöld, var ekki loftsteinn, Þótt ótrúlegt megi virðast komu út úr honum undar- legar verur sem taliö er aö séu framvarðasveit frá reikistjörn- unni Mars”. Aö lokinni þessari tilkynningu kom róleg tónlist, vel fallin til þess aö gera fólk kviöafullt, óöruggt og taugaspennt. Hvaö var eiginlega um aö vera? Þulurinn greip nú á ný fram i og nú mátti heyra taugaóstyrk i rödd hans. Hann sagöi aö ljóst væri aö Marsbúum fjölgaði óöfluga. Þetta væru ógeðfelldar skepnur meö leðurkennda húð. Lögreglan i New Jersey væri aö reyna aö stööva framrás þeirra. Dagskráin hélt siöan áfram Landsbankinn býður nú nýja þjónustu, VISA greiðslukort. Þau eru ætluð til notkunar erlendis til greiðslu á ferðakostnaði svo sem fargjöldum og uppihaldi. VISAINTERNATIONAL er samstarfsvettvangur rúmlega 12 þúsund banka í um 140 löndum með yfir 80 þúsund afgreiðslustaði. VISA greiðslukort eru algengustu greiðslukort sinnar tegundar í heiminum. Upplýsingablað með reglum um afhendingu og notkun liggur frammi í næstu afgreiðslu bankans. Greiðari ieið með VISA greiðslukorti Einnig býður Landsbankinn ferðatékka með merki VISA. Önnur nýjung í gjaldeyrisþjónustu Landsbankans er Alþjóðaávísanir (Intemational Money Orders). Kynnið ykkur gjaldeyrisþjónustu Landsbankans. LANDSBANKINN Banki allra landsmanna Innrásin frá Mars r Utvarpsleikritiö sem olli ofsaskelf- ingu um öll Bandaríkin Klukkan var rétt byrjuö að ganga 9 að kvöldi sunnudagsins 30. október 1938, þegar útvarpsdag- skráin var rofin af þul, sem hafði stór tíðindi að færa: „Góðir hlustendur, ég er með mikilvæga tilkynningu...." Þetta fór út á öldur ljósvakans um allt útvarpsnet Bandarikj- anna og þaö sem á eftir fór olli ofsaskelfingu um landiö. Tilkynn- ingin gekk út á þaö aö Marsbúar heföu gert innrás i Norður-Ameriku og væru á góöri leið með aö brjóta á bak aftur alla mótspyrnu i blóöugum bar- dögum. Menn utan úr geimnum voru aö leggja undir sig Bandarikin. Tilkynningin var reyndar upp- haf útvarpsleikrits, en sett saman á svo snilldarlegan og raunsæjan hátt aö flestir tóku þaö sem heil- agan sannleika. Samt sem áöur var þaö kynnt vandlega áöur sem útvarpsleikrit. Kl. 20.00 þetta kvöld var kynning efnisins á þessa leiö: Næst á dagskrá Columbia útvarpsstöövanna og tengdra stööva er leikritið „War of the Worlds” eftir H.G. Wells i flutningi Orson Welles og Mer- cury útvarpsleikhússins. Þvi næst kom dramatisk rödd Orson Welles: „Viö höfum vitn- eskju um þaö að I upphafi þessar- ar aldar var nákVæmlega fylgst meö jaröarbúum af verum úti i Einn tiöindi. leikaranna flytur Bandarikjamönnum hin válegu skyni geimnum, sem eru betur gæddar en við sjálf”. Nú var gripiö inn I dagskrána af fréttaþul, með veðurspá: „Veöurstofan góöan dag.... Veöur mun haldast óbreytt næsta

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.