Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 15
Hélgin 14.—15. nóvember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 r ' I tilefni af 75 ára afmæli kvikmyndasýninga á Islandi: m Kvikmyndahátíð í Nýja bíói Þar verða m.a. sýndar allar þöglar, leiknar kvikmyndir sem tengjast íslandi í tilefni af þvi að 75 ár eru nú liðin frá þvi að reglulegar kvik- myndasýningar hófust hér á landi byrja i dag, laugardag, sýningar á gömlum merkurn myndum i Nýja biói, m.a. öllum þöglum, leiknum kvikmyndum sem á ein- hvern hátt eru tengdar lslandi. Meðal þeirra eru tvær kvik- myndir, sem Kvikmyndasafni islands hafa borist að gjöf frá Nordisk Films Kompagni, Hadda Padda (1924) og Hús i svefni (1926). Um daginn fór fram fyrri hluti afmælisdagskrár á vegum Kvik- myndasafnsins i Gamla biói en nú er komið að Nýja biói sem er reyndar 70 ára um þessar mundir. Þær myndir sem sýndar verða i vikunni eru þessar: Fréttamyndir frá Islandi á þriðja áratugnum, sem gerðar voru til sýningar i bióinu. Þetta eru kvikmyndir um konungs- komur 1921 og 1926 og ennfremur Hnattflugið 1924. Sigrún á Sunnuhvoli.Kvikmynd þessi er gerö af Brunius og byggð á sögu Björnstjerne Björnsson. Hún var sýnd þegar núverandi húsakynni Nýja biós voru tekin i notkun 1920 og naut fádæma vin- sælda I henni Reykjavik i den tid. Grikkinn Zorbaeftir Cacoyann- is, byggð á sögu Kazantzakis. Flestir kannast við þessa mynd sem var gerð árið 1965 og sú mynd sem einna lengst hefur gengið i bióinu. Fjalla-Eyvindur.gerð áriö 1918 af Victor Sjöström og byggð á leikriti Jóhanns Sigurjónssonar. Þetta er merk mynd i sænskri kvikmyndasögu. Saga Borgarættarinnar, tekin 1920 af danska leikstjóranum Sommerfelt á Islandi og byggð á skáldsögu Gunnars Gunnars- sonar. Sigild mynd. Glataði sonurinn eftir Coleby. Mynd þessi er ensk frá árinu 1923 og fjallar um ógæfu drykkjusýk- innar i anda hinnar gömlu dæmi- sögu. Myndin gerist að hluta á Islandi. Fiskimennirnir við tsland, frönsk mynd frá árinu 1924, byggð á skáldsögu Pierre Loti sem lýsir frönskum skútusjómönnum er stunduðu fiskveiðar við tslands- strendur á ofanverðri 19. öld. Dagskráin i Nýja bió verður þannig: Laugardagur 14. nóvember: Fjalla-Eyvindur kl. 7, Hadda Padda kl. 9 (boðsýning). Sunnudagur 15. nóvember: Hadda Padda kl. 17, Sigrún á Sunnuhvoli kl. 9. Mánudagur 16. nóvember: Sigrún á Sunnuhvoli kl. 7 og Saga Borgarættarinnar kl. 9. Þriðjudagur 17. nóvember: Saga Borgarættarinnar kl. 7 og Konungskoman 1921 og fleiri fréttamyndir kl. 9. Miðvikudagur 18. nóvember: Konungskoman 1921 o.fl. kl. 7 og Glataði sonurinn kl. 9 Fimmtudagur 19. nóvember: Glataði sonurinn kl. 7 og Fiski- mennirnir við ísland kl. 9. Föstudagur 20. nóvember: Fiskimennirnir við Island kl. 7 og Hús i svefni kl. 9. Laugardagur 21. nóvember: Hús i svefni kl. 5, Grikkinn Zorba kl. 7 og 9. Leitast verður við að skapa andrúmsloft þöglumyndaskeiðs- ins með þvi að bjóða upp á hljóð- færaleik undir sýningum og mun Jónas Þórir Þórisson sjá um hann. —GFr Hcnonrnfélng Reykjnvíkur Kennarar — Kennarar Kennaraíélag Reykjavikur biður þá kenn- ara i Reykjavik og nágrenni, sem vilja taka aðséríorfallakennslu um lengri eða skemmri tima, að hafa samband við skrif- stofuna á Grettisgötu 89, simi: 2-40-70. Atvinna Tónlistarskóli á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða ritara frá 1. janúar næstkomandi. Heilsdags- eða hlutastarf. Starfssvið: Vélritun, almenn afgreiðsla, simavarsla, gjaldkerastörf o.fl. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt. Laun skv. launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störfum sendist blaðinu sem fyrst merkt „Tónlistarritari — 1982”. Frá töku myndarinnar Sögu Borgarættarinnar i Reykjavik sumarið 1919. Ljósm.: Óskar Gisiason. Við bjoöum skíöaferdir í beinu leiguflugi og opnum um leið nýjar dyr að skfðaparadís Austurrísku al m : tiÉ$$gé Samvinnuferöir-Landsýn flýgur nú íMeinu leiguflugi (án þreytandi millilendin^a) í skiöalönd Austurríkis. Þannig lækkum viö verð og flýtum för, auk þess sem nýir mögu- leikar hafa oþnast á hópafslætti, barna- afslætti, greiðsluskilmálum ogannarri fyrirgreiðslu. Við látum yfirhlaðna ferðamannastaði með alfri sinni örtröð liggja á milli hluta. „Aðeins þaðallra besta" þótti nógugottog viðvonum að farþegarnir verði sammála þeim skíða- sérfræðingum okkar sem völdu Sölden, Zillertal og Niederau. Þar er skíðaaðstaða í senn fjölbreyttog spennandi, skíðakennarar á hverju strái, skíðalyftur í tugatali og síðast en ekki síst einstaklega friösælt og notalegt. Og þegar skíðabrekkunum sleppir ertilvalið að bregða sérá gönguskíði, fara í æsispenn- andi bobsleðaferðir, leika sérá skautasvellum eða bregða sér í hestasleðaferðir um fallega dalina. Þreytanlíðursíðanúrísundlaugumog saunaböðum og á kvöldin bíða þín fjölmargir veitinga- og skemmtistaðir með ósvikinni Tíróla-stemmningu, bjölluspili og harmonikkuleik. Nú er tilvalið að höi saman vinum og kunningjum.næla sér í myndarlegan hóp- afslátt og láta drauminn um skíðapáradis Austurríkis rætast í góðra vina hópi. Brottfarardagar: Des. 19. (jólaferð, heimkoma 2. jan.) Jan. 16,30. Feb. 13,27. (heimkoma 13. mars) Verð frá kr. 5.880 Innifalið: Flug til og frá Múnchen, flutningur til og frá áfangastað, gisting með hálfu fæði i tvær vikur og íslensk fararstjórn. Hópafsláttur kr. 500, barnaafsláttur kr. 1.000 Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.