Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 23
Helgin 14.—15. nóvember 1981 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 23 Upplýsingar Thomas Martin hjá Menningar- stofnun Bandarikjanna um fyrirgreiðslu til islenskra áhrifaaðila — Þaö er óviðjafnanleg lifsreynsla aö gista í flug- vélamóöurskipi — sagði Thomas Martin yfirmaður Bandarísku upplýsinga- þjónustunnar í viötali við Þjóðviljann í gær. Guðjón Sigurðsson blaðafulltrúi upplýsingaþjónustunnar sagðist geta tekið undir M ^ C 'f$g: ■ \ wvmÞ* {'mi í I .5 i t i N> " 8 * #* M 12 » u ví «• tr ííí i<> Tomas Martin sýnir blaöamanni Þjóðviljans „Country plan for Iceland” aö Nesvegi 16 I gær. Ljósm eik. „VIÐ HÖFUM ENGU AÐ LEYNA HÉRNA” þetta, þótt honum hefði ekki orði sérlega svefnrótt um nóttina, en báðir fylgdu þeir þeim íslensku sendi- nefndum, sem boðið var að skoða f lugvélamóðurskipið John F. Kennedy fyrir utan bandarísku flota- höfnina í Napoli. — Þetta er eins og heil borg meö fleiri þúsund manna áhöfn, og þarna er allt til alls, nema konur — sagði Thomas Martin. Erindi okkar i Upplýsinga- og menningarstofnun Bandarikj- anna i Reykjavik var annars aö spyrjast fyrir um þá fyrir- greiðslu, sem stofnunin hefur veitt ýmsum áhrifaaðilum hér á landi meö það að markmiði að efla skilning Islendinga á nauð- syn bandariskra herstöðva á tslandi og „varnarsamstarfinu” i NATO. Afhenda ekki opinber skjöl — Við höfum engu að leyna hér, sagði Thomas Martin, — og ykkur er heimilt að lesa tslands- áætlun okkar fyrir 1982, en ég vil ekki gefa fordæmi meö þvi að af- henda ykkur þessi gögn, þar sem þau eru aðeins vinnuplögg fyrir okkur. Ástæðan er einnig sú að innihald þeirra hefur nú verið gert opinbert án samráðs við okkur og án þess að gengið sé úr Alit Islendinga á Bandaríkjunum of mikið mótað af evrópskum og norrænum viðhorfum skugga um areiðanleik þeirra. Viö afhendum Þjóöviljanum ekki opinber skjöl. Hinsvegar hefur Ólafur Ragnar Grimsson, sem er mætur og tfður gestur á bókasafni okkar, enga þörf fyrir „háttsetta aðila i NATO” til þess að komast að þeim upplýsingum sem hann á rétt á hér á landi sem fulltrúi i Utanrikismálanefnd Alþingis.” íslandsáætlun 1982 tslandsáætlunin fyrir 1982 hjá Upplýsingastofnuninni er annars vegar skýrsla til bandariskra stjórnvalda um helstu vandkvæði sem á þvi eru að skapa skilning meðal tslendinga á bandariskri utanrikis- og efnahagsstefnu, þar með talið nauðsyn tslendinga á bandariskum herstöðvum og aðild að Atlantshafsbandalaginu. Samkvæmt skýrslu þessari eru helstu hindranirnar i vegi fyrir þvi aö slikur skilningur megi Kröfum Læknaþjónustunnar sf. vísað frá Borgar- og ríkis- sjóður sýknaðir A fimmtudag var kveöinn upp dómur i Borgardómi Reykjavikur i máli þvi, er Læknaþjónustan sf. höfðaöi gegn rikissjóöi og borgar- sjóði. Dómur féll á þann veg, aö rikis- og boi-garsjóöir voru sýkn- aöir og málskostnaöur felldur niöur. Eins og menn rekur minni til sögðu læknar upp störfum sinum á timabilinu mars til mai sl. vor, til áréttingar á kaupkröfum sin- um. Þeir stofnuöu siðan Lækna- þjónustuna sf., sem bauð spitöl- um i borginni þjónustu lækna fyrir fastan taxta. Lögmaður borgarsjóðs i máli þessu, Jón G. Tómasson hrl., sagöi i stuttu samtali við Þjóðvilj- ann, að Læknaþjónustan hefði gert kröfu um laun til handa læknum fyrir tæplega vikuvinnu. Krafist var rúmlega 90 þúsund króna af hendi borgarinnar fyrir þessa þjónustu, en mun meira af rikinu. Mál þetta var prófmál — hefði Læknaþjónustan sf. unnið málið fyrir Borgardómi, hefði hún að sjálfsögðu krafist greiðslna fyrir allt timabilið — 4 vikur. Borgarsjóður og rikissjóður töldu hins vegar ekkert réttar- samband vera milli Lækna- þjónustunnar sf. annars vegar og borgar- eöa rikissjóös hins vegar. Læknarnir væru ráönir sem ein- staklingar til spitalanna, en ekki sem meðlimir Læknaþjónustunn- ar sf. eða annarra fyrirtækja. Dóminn kvaö upp Garðar Gislason, borgardómari. Lög- maður Læknaþjónustunnar var Helgi V. Jónsson, hrl., lögmaður Borgarsjóðs Jón G. Tómasson, hrl. og Gunnlaugur Claessen hrl. var lögmaður rikissjóðs. ast skapast „menningarleg þjóð- ernishyggja” Islendinga ásamt með „eyjaskeggjahugarfari” þeirra (island-mentality) og þá er einnig talið að álit tslendinga á Bandarikjunum sé of mikið mótað af evrópskum og nor- rænum viðhorfum. Skipuleggja NATO ferðir Siðari hluti þessarar áætlunar eru hins vegar tillögur til úrbóta, þar sem lögð er áhersla á að auka þurfi menningarleg tengsl, sér- staklega á sviði bókmennta. Þá er fariö fram á að hingaö verði send- ir fyrirlesarar til þess að kynna utanrikis- og öryggismálastefnu Bandarikjanna og bandariskt þjóðlif. Ekki er i áætlun þessari farið fram á fjárveitingu til feröastyrkja handa tslendingum, enda sagði Thomas Martin, að slikar kynnisferöir væru ekki skipulagöar nema samkvæmt beiðni og fjárveitingu frá höfuö- stöövum NATO i Bruxelles. 280 þús. dollarar Við spurðum Thomas Martin um fjárráð Upplýsingastofnunar- innar, og hversu mikið af heildar- veltunni færi i daglegan rekstur stofnunarinnar. — A siðasta ári nam fjárveiting til okkar 203.633 dollurum. A þessu ári nam hún 267.588 doll- urum og áætluð fjárveiting á næsta ári er 278.348 dollarar sem gæti þó minnkaö vegna sam- dráttaraðgerða Reagan-stjórnar- innar. Þetta eru opinberar tölur, sem eru opnar öllum almenningi. Um það bil 75% af f járhagsáætlun okkar fer i fastan kostnað eins og laun, húsaleigu o.s.frv. Aðspurður um kostnað við ferðir tslendinga til flugmóður- skipsins á Miðjarðarhafi, þá sagði Thomas Martin að þeir hefðu skipulagt þessar ferðir fyrir beiðni NATO og að mestu á kostnað NATO. Þingmaður ávallt með — Við leggjum áherslu á að hafa ávallt þingmann með i sendinefndinni til þess aö fá betri þjónustu, sem ekki væri veitt að öðrum kosti um borð. Kostnaður NATO af feröinni 1980 var 12.000 dollarar, en á þessu ári greiddu þeir ekki nema helminginn, ji.e.a.s. 7.000dollara og við urðum að greiða afganginn. I sendi- nefndinni 1980 voru þeir Italldór Blöndal alþingismaður, Helgi Agústsson forstöðumaður varnarmáladeildar Utanrikis- ráðuneytisins, ögmundur Jónas- son fréttamaður, Páll Heiðar Jónsson útvarpsmaður, Alfreð Þorsteinsson forstj. Sölu varnar- liðseigna og Snorri Guðmundsson vélstjóri og fyrrv. formaður Félags ungra jafnaðarmanna. Þessi hópur fékk þó ekki gistingu um borð eins og hópurinn sem fór á þessu ári, en i honum voru þeir Atli Asmundsson starfsmaöur á skrifstofu Framsóknarflokksins, Baldur Guðlaugsson lög- fræðingur, Freysteinn Jóhanns- son blaðamaður, Guömundur Bjarnason, þingmaður Fram- sóknarflokksins og Haraldur Blöndal lögfræðingur. Árlegar NATO-ferðir Slikar hópferöir til kynningar á varnarbúnaði NATO eru skipu- lagðar árlega af Upplýsinga- þjónustu Bandarikjanna auk þess sem um einstök boð getur verið að ræöa. Þannig var t.d. Karli Steinari Guðnasyni þingmanni Alþýðuflokksins og varaformanni Verkamannasambands tslands boðiö i slika kynnisferð á árinu 1980. Þá var Verkamálaráöi Sjálf- stæðisflokksins veitt fjárhags- og skipulagsaðstoö er fulltrúar þess fóru til Bandarikjanna i október s.l. t þeirri sendinefnd voru þeir Hilmar Guðlaugsson, Kristján Guðlaugsson, Magnús L. Sveins- son, Pétur Hannessonog Siguröur Pálsson. Sendinefnd ASI 1 maimánuði á þessu ári var sendinefnd Álþýöusambands tslands boðiö að heimsækja Bandarikin til þess að mynda sambönd við bandariska verka- lýðssambandiö AFL-CIO. Var sendinefndin valin af miðstjorn Alþýðusambandsins og voru þau Guömundur Hallvarðsson, Jón Kjartansson, Hallsteinn Frið- þjófssonog Guðrún Eggerstdóttir valin i sendinefndina af ASt, en Thomas Martin var leiðsögu- maður i ferðinni. Marghliða sambönd Að lokum vildi Thomas Martin taka eftirfarandi fram: „Þótt NATO-herstöðin, sem er mönnuð bandariskum hermönnum og önnur málefni NATO, séu lykil- atriði hvað varöar sameiginleg hagsmunamál okkar sem aðila að Atlantshafsbandalaginu, þá eiga þau mál einnig þátt i að torvelda þau eölilegu tvihliða sambönd á , milli Bandarikjanna og tslands sem rikt hafa og munu rikja til langframa á sviöi stjórnmála, efnahagsmála, viðskipta og menningar. Ég mundi vilja segja, aö hin marghliða sambönd, sem rikja innan NATO væru oft og tiöum meira áberandi á kostnað hinna djúpu tvihliða samskipta sem rikja á milli þjóðanna.” ólg. Ráðstefna um Þjóðviljann Samkvæmt ákvörðun mið- stjórnar Alþýðubandalagsins er hér með boöað til ráðstefnu um málefni Þjóðviljans þar sem rædd verða fjármái blaðsins, stjórnun þess og efnisöflun. Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 26. nóvember að Grettisgötu 3 (i risinu). Ráðstefnan er opin öllum félög- um i Alþýðubandalaginu. Rekstrarstjórn Þjóðviijans. Aðalfundur Landverndar: Áhrif orku- vinnslu 1 dag, iaugardaginn 14. nóvem- ber hefst að Hótel Heklu aðal- fundur Landverndar, land- græöslu- og náttúruverndarsam- taka tslands. Formaður Land- verndar, Þorleifur Einarsson set- ur fundinn kl. 10 en eftir matarhlé kl. 14 hefjast fyrirlestrar um áhrif orkuvinnslu á umhverfi og fram- tiðarviöhorf. Allir sem áhuga hafa eru vel- komnir til aö hlýða á framsöguer- indin og taka þátt i umræðum. Framsögu hafa: Jóhann Már Mariusson, Arnþór Garðarsson, og Bjarni Guðleifsson. Einnig mun Sylvi Struksnes, frá norsku náttúruverndarsamtökunum halda erindi um þau vandamál sem Norðmenn eru nú að fást viö i virkjunarmálum. A sunnudag kl. 10 veröur fundi framhaldið á Hótel Loftleiöum og lýkur aðalfundinum siðdegis þann dag. Sylvi Struksnes mun tala i Norræna húsinu á mánudags- kvöld kl. 20.30 um náttúruvernd- ar- og umhverfismál i Noregi. Glsli Pálsson Fyrirlestur um breytt viðhorf til fiskveiða: Frá formennsku til fiskifræði A vegum Félags þjóðfélags- fræðinga heldur Gisli Pálsson mannfræðingur, fyrirlestur sem hann nefnir „Frá formennsku til fiskifræði” I stofu 102, Lögbergi Háskóla tslands kl. 14,1 dag iaug- ardaginn 14. október. Fyrirlesturinn fjallar um breytt viðhorf til fiskveiða hér á landi einkum um hugmyndir for- manna og skipstjóra. Reynt verð- ur að skýra breyttar hugmyndir um hlutverk og þýðingu skip- stjórnarmanna með skirskotun til félagslegra, tæknilegra og efna- hagslegra þátta. 10% hækkun á framfærslu- vísitölunni Kauplagsnefnd hefur reiknað út hækkun framfærsluvísitölu frá ágústbyrjun til nóvemberbyrjun- ar og reyndist hún vera 9.92% Verðlagsbætur á laun verða greiddar samkvæmt þvi 1. 1 desember.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.