Þjóðviljinn - 30.12.1981, Page 5
Miövikudagur 30. desember 1981. þjöÐVILJINN — StÐA S
Umheímurinn
og E1 Salvador
Hryöjuverk meö biessun stjórnvalda eru hæpin undirbúningur aö ..kosningum”.
í ágúst sem leið gáfu
stjórnir Frakklands og
Mexíkó út sameiginlega
yfirlýsingu um stuðning
við FAALN-FRD/ vinstri-
fylkinguna í El Salvador,
sem þessar stjórnir telja
„pólitískt afl sem njóti
stuðnings almennings" og
verði að hafa með í ráðum
ef f inna eigi pólitíska lausn
á borgarastyrjöldinni í
landinu.
t þessari yfirlýsingu segir
einnig, aö það verði að „endur-
skipuleggja” vopnaðar sveitir i
landinu áður en þar fari fram
kosningar — og hér er átt við það,
að sú stjórn sem nú situr fái ekki
að útrýma andstæðingum sinum
áður en hún láti fara fram eins-
konar málamyndakosningar.
Veigamikitl stuðningur
Þessi yfirlýsing var veigamesti
stuðningurinn sem vinstrihreyf-
ingin i E1 Salvador hefur hingað
til fengið á alþjóðlegum vett-
vangi. Bandarisk stjórnvöld hafa
eftir getu reynt að réttlæta stuðn-
ing sinn viö valdaklikuna í E1
Salvador með þvi, að vinstrisinn-
ar þar i landi væru útsendarar
Kúbumanna eða sovétkommún-
ismans — en stuðningur áhrifa-
manna eins og hins sóslaliska for-
seta Frakklands við málstað
vinstrimanna gerir allan þann
málflutning i meira lagi tor-
tryggilegan.
Andsvör
Að sjálfsögðu var reynt að
blása til mótaðgerða. Þegar i
september blésu trúfastir vinir
Bandarlkjamanna 1 álfunni til
ráðstefnu i Venesúelu — þar
skrifuðu utanrikisráðherrar
Argentinu, Boliviu, Kólumbiu,
Chile, Guatemala, Honduras,
Dóminkanska lýðveldisins og
Venesúelu undir yfirlýsingu þess
eínis að þessi riki myndu halda
áfram að styðja valdhafa i E1
Salvador — um leiö og þeir for-
dæmdu það sem kallaö var ,,af-
skipti af innanrikismálum E1
Salvador” i fyrrgreindri sam-
þykkt stjórna Frakklands og
Mexikó.
Ekki allir með
En það er áhugavert að skoða
hverjir það voru i rómönsku
Ameriku, sem ekki voru tilbúnir
til að leggja stóra bróður i norðri
lið i þessu máli. Brasilia, sem
hefur ýmsa tilburöi til aö verða
heimsveldi af annarri gráðu, vildi
ekki ganga lengra en að hvetja til
lausnar sem fyrst og fremst
byggði á þvi að „enginn erlendur
aðili hlutaðist til um innanrikis-
mál E1 Salvador”. Perú, Ecuador
og Costa Rica hafa sent frá sér
svipaðar yfirlýsingar — og ekki
nóg með það, þessi riki hafa öll
boðið til sin diplómatanefndum
frá vinstrihreyfingunni i E1
Salvador. Hinn nýi forseti
Panama, Royo, hefur tekið ein-
dregna afstööu gegn ihlutun
Bandarikjanna i E1 Salvador, og
hann hefur einnig boðist til að
miðla málum ef svo bæri undir.
Pólitísk lausn?
Forseti Mexikó, Portillo, var
ekki sérlega hrifinn af samþykkt-
um vina Bandarikjanna og Salva-
dorsstjórnar. Hann spurði: Ef að
þessi niu riki hafa viðurkennt
þetta pólitiska afl (vinstrifylking-
una) með það fyrir augum að út-
rýma þvi — hvers vegna ættum
við þá ekki að viöurkenna þetta
afl með það fyrir augum aö leita
pólitiskrar lausnar? Að þvi er
varðar þá stjórn sem nú situr i E1
Salvador og bandariska verndara
hennar, þá er þeirra „lausn”
fólgin i þvi að brjóta á bak aftur
andstöðuna meö hervaldi og efna
siban til „kosninga” i mars, til
kosninga sem valdhafar gætu
handtéraö að geöþótta. Þaö mat
sem fram kemur i afstöðu stjórna
Costa Rica, Panama, Frakklands
og fleiri aðila gengur hinsvegar i
allt aðra átt og byggir á öörum
forsendum. Þvi verður allvel lýst
i yfirlýsingu Alþjóðasambands
jafnaöarmanna um E1 Salvador,
en þar segir:
„Sú staða sem nú er uppi, þegar
stjórnin leggur blessun sina yfir
starfsemi hryðjuverkamanna,
gerir allt tal um lýðræðislegar
kosningar merkingarlaust. Þaö
er ekki hægt að ná þeim friði sem
getur af sér réttmætar forsendur
fyrir kosningum nema með póli-
tiskum viðræðum”. — Og i þess-
ari yfirlýsingu var aðstoð Banda-
rikjanna viö Ihaldið i E1 Salvador
fordæmt á mjög ótvíræðan hátt.
Styrkur til háskólanáms í Noregi Norsk stjórnvöld bjóba fram styrk handa islenskum stúd- ent eða kandidat til háskólanáms i Noregi háskólaárið 1982—83. Styrktimabilið er niu mánuðir frá 1. september 1982 að telja. Til greina kemur að skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur 2.600 norskum krónum á mánubi en auk þess greiðast 500 norskar krónur til bóka- kaupa o.fl. við upphaf styrktimabils. Umsækjendur skulu vera yngri en 30 ára og hafa stundað nám a.m.k. tvö ár við háskóla utan Noregs. Umsóknum um styrk þennan, ásamt afritun prófskirteina og meðmælum, skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,101 Reykjavik, fyrir 1. febrúar n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntasmálarábuneytið, 22. desember 1981.
Við erum ekki óvanir því að ílytja fyrir aðra
... en nú flytjum við sjálfir.
FUJGFRAKT
FLYTUR
ÞANN FJORÐA JANÚAR 1982.
ÚR: Tollhúsinu við Tryggvagötu.
í: Aðalskriístoíubyggingu Flugleiða á
Reykjavíkurílugvelli.
SÍMI: 27800
AFGREIÐSLA FARMBRÉFA og
FARMSÖLUDEILD eru þœr deildir sem flytja
starísemi sína á Reykjavíkurflugvöll.
STARFSFÓLK okkar tekur á móti ykkur í björtu
og rúmgóðu húsnœði og býður enn betri þjónustu.
BILASTÆÐIN em nœstum óþrjótandi.
FLUGLEIÐIR
FLUGFRAKT