Þjóðviljinn - 30.12.1981, Qupperneq 16
djúðvhhnn
Miövikudagur 30. desember 1981.
Abalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til (östudags. Utan þess tima er hægt aö ná 1 blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná 1 af- greiöslu blaösins 1 slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Áðalsimi 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Jámblendiverksmiðjan á Grundartanga:
Vaxandi halli ár frá ári
Eins og fram kom í Þjóö-
viljanum í gær er hallinn á
rekstri járnblendiverks-
miðjunnará Grundartanga
þetta árið um 60 milljónir
króna.
Hallinn á rekstri verksmiðj-
unnar var 22.5 milljónir nýkróna
áriö 1980 og 9.6 milljónir nýkróna
árið 1979. Ef tapið á járnblendi-
verksmiðjunni á árunum 1979 og
1980 er framreiknað samkvæmt
breytingum á framfærsluvisitölu
til meðalverðs fyrir árið 1981
nemur það 35.7 milljónum ný-
króna 1980 og 23 milljónum
nýkróna árið 1979. Hallinn á
rekstri verksmiðjunnar I ár er þvi
þrefalt meiri en 1979 reiknað á
föstu verölagi. ■
Aðeins annar ofn verksmiöj-
unnar er nú i gangi en fyrir ári
siöan töldu sumir ráðamenn
verksmiðjunnar að nauðsyn bæri
til að bæta þriðja ofninum við til
þess að rekstrargrundvöllur yrði
traustur fyrir hana i framtiðinni.
Stjórn járnblendiverksmiðjunnar
hefur horfið frá öllum hug-
leiðingum um þriðja ofn I bráð I
ljósi þess að engar horfur eru á að
breytingar verði til batnaöar á
sölutregðu og lágu verði á
næstunni. Verðið á framleiöslu-
vörunni er langt undir kostnaðar-
verði um þessar mundir og '
spáð að svo muni verða amk.
næsta ár.
Horfur eru á þvi að leggja þurfi
verksmiðjunni á Grundartanga
til mikið fé á næsta ári, ef rekstur
hennar á að halda áfram með
óbreyttum hætti, og mun það mál
koma til kasta Alþingis sérstak-
lega innan tiðar. — Sv.Kr.
öskjuhliöarskólinn stóö fyrir jólatrésskemmtun i Lækjarhvammi aö Hótel Sögu i gær. Fjölmenni var, hópur jólasveina kom I heimsókn og
nemendur Þroskaþjálfaskóians héldu uppi fjöri. Þá voru bornar fram veitingar, súkkuiaöi og piparkökur og fleira gott. Hér sjáum viö gest-
ina syngja og dansa „Göngum viö ikring um...”
Ljósm. eik.
Sigurður Thoroddsen
hlaut heiðursverðlaun
Stjórn Verölaunasjóös Asu
Guömundsdóttur Wright veitti i
gær Sigurði Thoroddsen, verk-
fræðingi, heiöursverölaun sjóös-
ins fyrir áriö 1981. Voru þau veitt
fyrir verkfræöileg störf hans, og
þá sérstaklega fyrir áætlanir og
rannsóknir i sambandi viö nýt-
ingu vatnsorku landsins og hann-
anir orkuvera.
1 álitsgerð sjóðsstjórnar segir:
„Sigurður er meðal fremstu
manna hér á landi, sem byggðu
upp þá tæknilegu og visindalegu
þekkingu, er þurfti til þess að
gera íslendingum sjálfum kleift
aö hanna þau mannvirki, sem
voru nauösynleg til nýtingar á
vatnsaflinu, þessari helstu auð-
lind landsins.”
Stjórn sjóðsins skipa nú dr.
Kristján Eldjárn, dr. Jóhannes
Norðdal og dr. Sturla Friðriks-
son. Þaö er sá siðastnefndi sem,
afhendir Sigurði Thoroddsen
verðlaunin á myndinni.
(Ljósm. — eik -)
Kanada og EBE gera fiskveiðisamning
Tollfríðlndi seld
fyrir veiðiréttindi
í dag veröur undirritað-
ur nýr fiskveiöisamningur
á milli Kanada og Efna-
hagsbandalags Evrópu.
Samningur þessi hefur
lengi verið í undirbúningi/
en hingað til hefur strand-
að á afstöðu trlands sem
beitti neitunarvaldi vegna
andstöðu við stef nu banda-
lagsins í tollamálum. irar
hafa nú fallist á umsókn
Dana um leyfi til aukins
innflutnings á tollfrjálsri
fersksild frá Noregi og
Svíþjóð.
Samkvæmt fréttamanni Reut-
ers mun samningurinn viö Kan-
ada fyrst og fremst koma Þjóð-
verjum til góða, en samningurinn
mun fela i sér veiðirétt til handa
þýskum togurum á 15000 tonnum
af þorski við strendur Labrador
og Nýfundnalands.
1 staðinn munu Kanadamenn fá
leyfi til sölu á frystum fiski til
Efnahagsbandalagsríkjanna.
Vegna ótta breskra sjómanna við
óhóflega samkeppni felur samn-
ingurinn i sér að komið verði upp
ákveðnu verömyndunarkerfi aö
sögn Reuters.
Þaö innflutningsleyfi sem Dan-
ir hafa fengið á toilfrjálsri fersk-
sild frá Sviþjóð og Noregi i tengsl-
um við Kanada-samninginn felur
i sér aö Danir fá að flytja inn
84000 tonn á timabilinu 1982 - 83 og
74000 tonn á timabilinu 1983 - 84 i
Trudeau forsætisráöherra Kan-
ada
stað 30000 tonna aður.
Við höfðum samband viö Þór-
hall Asgeirsson ráöuneytisstjóra i
viðskiptaráðuneytinu og inntum
hann eftir, hvaða áhrif þessir
samningar hefðu á viðskipta-
hagsmuni okkar viö riki Efna-
hagsbandalagsins.
— Það er almennt ekkert við
þessu að segja af okkar hálfu, —
sagði Þórhallur. — Kanadamenn
hafa þarna samið um vissa tolla-
lækkun gegn sölu á fiskveiðirétt-
indum, en þeir búa ekki við sömu
friðindi og við á þessum mörkuð-
um. Það verömyndunarkerfi,
sem talað er um i fréttinni felur i
sér tryggingu fyrir þvi að þeir
undirbjóði ekki fiskinn á óhóflega
lágu verði. Hins vegar er þvi ekki
að neita að samningurinn dregur
nokkuð úr okkar friðindum á
þessum mörkuðum.
Hvað varðar innflutningsleyfið
til Dana á ferskri sild, þá er það
alls ekki bundiö við Noreg og Svi-
þjóð og viö gætum vel notið góös
af þvi, ef við hefðum áhuga á þvi
að selja Dönum ferska eða frysta
sild.
Að lokum sagði Þórhallur að
sér væri ekki kunnugt um að toll-
friðindi Kanadamanna næðu til
saltsildar, en nú sagði hann að
Kanadamenn yrðu að greiða 20%
toll af saltaðri sild á meðan viö
þurfum að greiða 10 af hundraöi.
— ólg.
jíSLAND VANN j
j Island vann Dani 32:21 i handknattleik