Þjóðviljinn - 23.02.1982, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 23.02.1982, Qupperneq 1
Þriðjudagur 23. febrúar 1982 — 43. tbl. 47. árg. r*-------------- ! Bosko Abramovic teflir í dag I Fjöltefli sem Þjóðviljinn og Flugleiðir efna til I ■ I ■ Þjóðviljinn og Flugleiðir h.f. efna i dag sameiginlega til fjöl- teflis i Vikingasal Hótels Loft- leiöa, þar sem júgóslavneski skákmeistarinn Bosko Abra- movic teflir við 30 manns. Abra- movic varð sem kunnugt er i 2. sæti á 10. Alþjóðlega Reykja- vikurskákmótinu, hlaut 8 vinn- inga og náði þar með áfanga að stórmeistaratitli. Fjölteflið hefst kl. 18.00. Þátttökugjald er 125 kr. og verða menn að koma með töfl með sér. Þar sem reikna má með að margir vilji komast að til að tefla við Abramovic og hann mun ekki tefla við fleiri en 30, þá verða þeir sem taka vilja þátt i fjölteflinu að tilkynna þátttöku sina i sima 81333 i dag. Júgóslavneski skákmeistarinn I Bosko Abramovic, sem teflir I fjöltefli á vegum Þjóðviljans og J Flugleiða h.f. i Vikingasal I Hótels Loftleiða i dag. (Ljósm.- I gel-) Sjá viðtal við Bosko Abra- | maovic á siðu 16. • I Adda Bára Sigfúsdóttir um deilu hj úkrunarfræðinga: Fyrirfram- greidd laun eðlileg krafa „Mér finnst mjög eðlilegt að sú krafa komi upp hjá hjúkrunar- fræðingum, sem vinna hjá Reykjavikurborg, aö þeir fái laun greidd fyrirfram eins og hjúkrun- arfræðingar hjá rikinu,” sagði Adda Bára Sigfúsdóttir borgar- fulltrúi, en hún er formaður stjórnar Borgarspitalans. „Um launakjör starfsmanna borgarinnar fjallar hins vegar launamálanefnd Reykjavikur- borgar og hún er samningsaðili hjúkrunarfræðinga. Launamála- nefndin hefur hins vegar ekki enn sem komiö er viljað fallast á kröfu hjdkrunarfræðinga um fyr- irframgreiðslu launa vegna þess fordæmis, sem það skapar, en aðrir borgarstarfsmenn fá laun sin greidd eftirá. Hjúkrunarfræðingar eru lág- launastétt, enda eru konur þar nær eingöngu. Þeirra mál leysast fyrst og fremst i sérkjarasamn- ingi þar sem f jallað er um röðun i launaflokka,” sagði Adda Bára. — Svkr. Adda Bára Sigfúsdóttir Svavar Gestsson Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins: Heildsalaf j öldinn baggi á þjóðarbúi Gróði heildverslunarinnar ekki áhyggjuefni Sjálfstæðisflokksins Ingólfur Hannesson segir frá HM á skiðum i Osló og leik Manchester United og Arsenal í 1. deild ensku knattspyrnunnar Sjá fþróttir i umræðum á alþingi í gær sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubanda- lagsins/ að full ástæða væri til að fara i saumana á inn- flutningsversluninni. Könnunin sem gerð var á vegum Verðlagsstofnunar hefði leitt i Ijós að innf lutn- ingsverslunin hefði ástundað óhagstæð vöru- innkaup, fengið álögð um- boðslaun erlendis með til- heyrandi gjaldeyristapi fyrir þjóðina. Þannig hefði innfiutningsverslunin ver- ið baggi fyrir þjóðarbúið. Geir Hallgrímsson for- maður Sjálfstæðisf lokks- ins gerði sér þessi mál ekki að áhyggjuefni, enginn þingmaður hefði meiri hagsmuni i jafn mörgum heildverslunum og einmitt hann (að meðtöldum Albert Guðmundssyni). Svavar sagði einnig, að það kæmi vel i ljós við umræöu á borð við þessa um frumvarp um verö- lag, samkeppnishömlur og ólög- mæta viðskiptahætti, hvað þeir Sjálfstæðisflokksmenn vildu. Þeir ættu sér eitt leiöarljós að mark- miði, leiðarljós gróðans. Þegar þeir töluðu um húsbóndavald til neytenda ættu þeir við frelsið til gróðamyndunar. Við þessa umræðu lýsti Geir Hallgrimsson þvi keppikefli Sjálfstæðisflokksins, sem hann nefndi „frjálsa samkeppni á jafn- réttisgrundvelli”. —óg \útboð á innflutningi timburs? ; v U f umræðum á alþingi i gær sagði Svavar Gestsson að það væri nú á könnunarstigi hjá fjármálaráðuneytinu að bjóða út innfiutning á ýmsum vöru- tegundum einsog t.d. timbri og leita þannig meiri hagkvæmni i innflutningi. Innkaupastofnun rikisins hefði nú þessi mál tii at- hugunar, og væri þess að vænta að heppilegri leið fengist mcö þessum hætti fyrir innflutning á stórum vöruscndingum sem hingað til hafa verið fiuttar inn af fjölmörgum aðiljum. —óg. ■ J ‘" rm i 100 ár Siðastliðinn sunnudag var „opið hús” hjá Sambandi Islenskra samvinnufélaga I tilefni af 100 ára afmæli Kaupfélags Þingey- inga og 80 ára afmæli Sam- bandsins. Sambandsmenn mæltu sér mót i Holtagörðum og var þar þröng á þingi þrátt fyrir mikil salarkynni. Hér eru gestir að byrja að „ganga i bæinn” en þeir skiptu mörgum hundruð- ■ um. A myndinni má m.a. sjá | Frlcnd Einarsson forstjóra SfS ■ og konu hans, Margréti Helga- I dóttur, Svavar Gestsson ráð- J herra, Garðar Sigurðsson, al- Iþingismann og Hauk Ingibergs- son, fyrrverandi skólastjóra j^Samvinnuskólans. Mynd:-eik

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.