Þjóðviljinn - 23.02.1982, Síða 3

Þjóðviljinn - 23.02.1982, Síða 3
Þriðjudagur 23. febrúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Búnaðarþing sett í gœr Örvandi að rifja upp þá sögu Búnaðarþing, hið 64. í röðinni var sett í Bændahöll- inni kl. 10 i gærmorgun, af Ásgeiri Bjarnasyni, for- manni Búnaðarf élags islands. Fjöldi gesta var viðstaddur þingsetn- inguna, þeirra á meðal forseti islands frú Vigdís Finnbogadóttir. Asgeir Bjarnason hóf mál sitt með þvi að minnast þeirra Búnaðarþingsfulltrúa, sem látist hafa frá þvi þingið kom seinast saman, en þeir eru þeir Sigmund- ur Sigurðsson, Syðra-Langholti, Gisli Magnússon, Eyhildarholti, Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, Sighvatur Daviðsson, Brekku og auk þeirra Halldóra Bjarnadóttir, en hún var heiðursfélagi Bún- aðarfélagsins. Risu fundarmenn úr sætum i viröingarskyni við hin látnu. A þessu ári er ýmissa merkis- atburða að minnast, sagði Asgeir Bjarnason. Elsta kaupfélagið er 100 ára. Sambandið 80 ára, Bændaskólinn á Hólum 100 ára, stofnaður sumarið sem aldrei kom á Norðurlandi, Búnaðar- samtökin 145 ára þótt ekki næðu þau að spanna landið allt fyrr en 1899. Það er örvandi að rifja upp þá sögu, sem þarna liggur að baki. Þá vék Asgeir að framleiðslu- og markaðsmálum land- Hiúkrunarfræðingar: Felldu sátta- tillögu Hjúkrunarfræðingar hjá Reykjavikurborg felldu sáttatil- lögu þá er sáttasemjari rfkisins lagði fram i siðustu viku. Fór at- kvæðagreiðsla fram sl. fimmtu-. dag og föstudag en atkvæði voru . talin á laugardag. 252 voru á kjör- skrá og greiddu 224 atkvæöi. Voru 219 á móti tillögunni, en 3 voru með. Tveir seðlar voru auðir. Hjúkrunarfræðingar hjá Reykjavíkurborg höfðu boðað verkfall frá og meö 20.febrúar, en á fundinum er sáttatillagan var lögð fram var þvi frestað til mið- nættis 27. febrúar hafi samningar ekki tekist þá. Viðræður munu hefjast milli hjúkrunarfræðinga og viðsemj- enda þeirra i þessari viku. Hefur sáttasemjari boðað deiluaöila til fundar á miðvikudag. Svkr. Frá setningu Búnaðarþings búnaðarins. Otflutningur búvara nam 421,6 milj. kr. á siðasta ári. Þar af var verðmæti unninna ullarvara einna meira en málm- blendi og kisilgúrs til samans. Mjólkurframleiöslan er óðum að aðlagast innanlandsmarkaðin- um. Erfiðlegar gengur meö kindakjötið einkum vegna þess, aö Norðmenn hafa mjög minnkaö kjötkaup sin héðan, og stefna að þvi að verða sjálfum sér nógir. Unnið hefur verið að skipulagn- ingu búvöruframleiðslunnar meö umtalsveröum árangri þótt þar þurfi enn að gera betur. Margs- konar hagræðing hefur átt sér stað i landbúnaöi, þótt þar gerist nú þyngra fyrir fæti vegna niður- skurðar á hagræðingarfé. Stuðlað hefur verið að þvi að nýjar búgreinar næðu fótfestu. Búreikningar sýna, aö mikill munur er á arðsemi einstakra búa. Tók Asgeir sem dæmi um það tvö 20 kúa bú, þar sem munur á arði var um 5 milj. kr. Likt mundi vera upp á teningnum með sauöfjárbúin. En þrátt fyrir.ýmsar blikur á lofti verður þó ekki séð að ungt fólk sé svartsýnt á framtið land- búnaöarins, þvi þeir skólar, sem um þau fræði fjalla, eru yfir fullir. Aö setningarræðu Asgeirs lok- inni ávarpaði landbúnaðar- ráðherra, Pálmi Jónsson, þingið og verður vikið að þessum ræöum báðum siðar. Fundi var siðan frestað þar til seinna i gær. Búist er við aö þing- ið standi I hálfan mánuð og útlit fyrir að ekki verði fjallað þar um færri mál að þessu sinni en oftast áður. — mhg. FÍH Býður í : ! fimmtugs\ \afmœli ! IFélag islenskra hljóm- I listarmanna heldur upp á | fimmtiu ára afmæli sitt ■ Iþessa viku og var afmælis- ! hátiðin sett I gær. Hún mun I standa til 27. febrúar og I verður djassað, sungið og ■ , spilað af hjartanslystút vik- J Iuna. Lúðrasveitin Svanur blés hátiðina i garð á Lækjartorgi , i gær, en kl. 19.30 hófst siðan Isöguleg upprifjun félagsins á Broadway. 1 gærkvöld var rakin saga áranna 1972— ■ 1982, en i kvöld verða árin 1 1962—1972 á dagskrá i Broadway, Þar munu koma fram m.a. Pops, Hljómar, ■ Ævintýri, Lúdó, Roof Tops, ITempó og Náttúra. Dagskrá hátiðarinnar er afar fjölbreytt, en meöfram ■ sögulegri upprif jun á Broad- Iway öll kvöld verður djassað i kvöld og annað kvöld á Hótel Sögu. Þá munu félagar ■ F.t.H. heimsækja ýmsar Istofnanir aldraðra, — i kvöld verða þeir á Hrafnistu, Landakotsspitala og Borgar- ■ spitala, svo dæmi séu tekin. Kjaradómur í deilu BHM og ríkisins: Engar grunnkaupshækkanir en starisaldurshækkanir Á sunnudaginn felldi Kjaradómur úrskurð i deilu Bandalags háskóla- manna og ríkisins. i úr- skurðinum er ekki gert ráð fyrir grunnkaupshækkun- um, en tveim launaflokk- um er bætt ofan á launa- stigann. Þá er bætt við tveimur nýjum starfsaldurshækkunum, annarri eftir 9 ára starf eftir lokapróf úr háskóla án tillits til hvort unnið hafi verið hjá ríkinu. Þetta ákvæði tekur gildi 1. september næstkomandi. Hin hækkunin verður eftir 18 ára starfsaldur, þá er eins launaflokks hækkun, en tekur ekki gildi fyrr en 1. mars 1982. I dóminum er tryggingaupphæð hækkuð um 15% umfram verö- lagshækkanir. Viðræður um sérkjarasamn- inga eru i gangi hjá nokkrum að- ildarfélögum Bandalags háskóla- manna, en kjaradómur hefur fengið til meðferðar mál sumra þeirra. Kjaradómur skai úr- skurða um sérkjarasamninga fyrir 1. apríl næstkomandi. - Svkr. j Neskaupstaður undir stjórn sósialista: j Hafa fellt niður útsvör \af öldruðum í 35 ár! | „Við höfum haft þann > háttinn á hér á Neskaup- Istað sl. 35 ár að allir sem náð hafa 68 ára aldri I greiða engin útsvör af I tekjum sínum", sagði . Kristinn V. Jóhannsson I forseti bæjarstjórnar á Neskaupstað í samtali við Þjóðviljann i gær. Það kom fram I fréttum fyrir helgina að flutt hafi verið tillaga i bæjarstjórn Selfoss um lækkun gjalda af öldruðu fólki. Þar er lagt til að i tilefni árs fatlaðra 1982, greiði gjaldþegn sem er 70 - 74 ára aðeins helming álagðs útsvars og 75 ára fólk og eldra sleppi að öllu leyti við útsvar. Jafnframt er bent á að verði til- laga þessi samþykkt, muni Sel- foss að öllum likindum fyrsti kaupstaðurinn til aö brydda upp á nýjung af þessu tagi! Sósialistar náðu meirihluta i bæjarstjórn Neskaupstaöar Kristinn V. Jóhannsson árið 1946 og strax áriö eftir voru ■ öll útsvarsgjöld felld niður af ■ ellilifeyrisþegum. Sagði Krist- I inn V. Jóhannsson aö þeir for- | ráðamenn Neskaupstaðar hafi ■ þá talið þetta einn besta stuön- i inginn viö aldraða fólkið og að I þessum álagningarreglum hafi | veriö haldið við siðan. ■ A hitt er og að lita að fjölmörg I sveitarfélög hafa gengið jafn I langt og jafnvel lengra en Sel- | fyssingar ætla sér nú. M.a. hafa ■ Eskfirðingar og Fáskrúðsfirö- I ingar fyrir löngu tekið upp af- I sláttarreglur af þessu tagi og | svo mun afsláttur af fasteigna- ■ skatti vera algengur til ellilif- eyrisþega. 60 manns nutu þeirra kjara aö þurfa ekki að greiða útsvör á Neskaupstaö á sl. ári en bæjar- búar eru um 1700 talsins. ■ _________________________~:j

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.