Þjóðviljinn - 20.04.1982, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 20. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Rakowski: Við þorum ekki
að sleppa Walesa.
V araforsætisráð-
herra Póllands:
Umbóta-
stefnan
á sér
enn von
,,Við sem stjórnum landinu
verðum að koma aftur á við-
ræðum við fölkið og gagn-
kvæmu trausti. Ég held þvi
ekki fram að meirihlutinn
styðji okkur nií, en ýmislegt
bendir til að fólk skilji æ
betur hvers vegna við urðum
að gera þetta”.
Svo segir Rakowski,
aðstoðarforsætisráðherra
Póllands i fróðlegu viðtali
við norska blaðamanninn
Jahn Otto Johanesen, sem
hefur skrifað mikið um mál-
efni Póllands. I viðtalinu
leggur Rakowski mikla
áherslu á að réttlæta setn-
ingu herlaga með tilvisun til
þess að annars hefði allt
endaö i upplausn og stjórn-
leysi. En hann viðurkennir
að „verðið sem við guldum
var hátt, ef til vill of hátt”.
Rakowski er mjög um-
deildur maður. Hann vartal-
inn frjálslyndur og umbóta-
sinnaður meðan hann var
ritstjóri blaðsins Polityka,
og þvi hafa margir vinir
hans nú snúið við honum
baki og telja hann versta
svikara. A hinn bóginn er þvi
haldið fram, að harðlfnu-
menn i pólska kommúnista-
flokknum séu honum mjög
andvigir og telji hann hafa
daðrað um of við umbóta-
sinna. Sjálfur lýsir Rakowski
i fyrrgreindu viðtali stöðu
sinni á þá leið, að hann hafi
þvi mikilvæga hlutverki að
gegna að vera einskonar brú
á milli Jaruzelskis og herfor-
ingjanna annarsvegar og
menntamanna hinsvegar.
„Þess vegna vilja lika
margir hrekja mig frá
völdum.”
Rakowski heldur þvi fram,
að umbótastefna eigi sér enn
möguleika í Póllandi, þdtt
hann sé ekki nema hóflega
bjartsýnn á næstu misseri.
Hann heldur þvi fram aö i
kommúnistaflokknum sé
enginn meirihluti fyrir þvi að
hverfa aftur til hins „harða
kerfis” sem viö lýði var fyrir
haustið 1980.
Rakowski vildi ekki viður-
kenna ásakanir blaða-
mannsins um að menn úr
öryggislögreglunni hefðu nú
notaö tækifærið til aö hefna
sin fyrir ýmsar kárinur sem
þeir máttu sæta á sinum
tima af hálfu Samstöðu-
manna og annarra. Þó væri
ekki hægt að fylgjast með
öllum, eins og hann kvað að
orði. Hitt væri vonlaust að
hræða fólk til hlýðni til lang-
frama. „Það er ekki mögu-
legt i Póllandi eftir þaö sem
gerst hefur að byggja upp
stjórnkerfi á stöðugum ótta
og hermdarverkum”.
Rakowski játaði, að
stjórnin vissi ekki hvað hún
ætti að gera viðLech Walesa
og áræddi ekki aö sleppa
honum úr haldi i bili. Hann
hélt því fram, að 30—40 póli-
tiskir fangar væru látnir
lausir á hverjum degi, en
1000—1500 menn yrðu hafðir i
haldi alllengi enn, vegna
þess að búist væri við að þeir
mundu þegar hefjast handa
um aðskipuleggja nýtt andóf
um leið og þeir kæmu úr
fangelsi. Byggt á Information.
Verður hægt að selja íslenska skreið?
Götumynd frá Lagos: ör vöxtur borga hefur mjög ýtt undir þörf fyrir
innflutning matvæla.
Það hefur mörgum þótt meiri-
háttar áfall fyrir islenskan þjóð-
arbúskap þegar það fréttist, að
Nigeriumenn væru hættir að
kaupa skreið. Astæðurnar fyrir
þvi að Nigeriumenn stöðva nú
innflutning á ýmsum vörum er
blátt áfram sú, að vegna verðfalls
á oliu hafa gjaldeyristekjur
þeirra minnkað um meira en
helming á skömmum tima. Það
eru kannski ekki miklar líkur á
þvi að hertir hausar verði ofar-
lega á blaði, jafnvel þótt hagur
Nigeriumanna vænkaðist.
Nigeria er eitt af aðildarrikjum
OPEC, samtaka oliusölurikja.
Olia hefur fært landinu 90% af öll-
um gjaldeyristekjum og 85% af
tekjum rikisins. Hiö mikla fram-
boð á oliu, sem hefur lækkað
verðið á oliufati á skyndimörkuð-
um niður i 28 dollara, hefur þvi
geigvænleg áhrif á efnahag
landsins. Tekjumissir Nigeriu-
manna er nefnilega mun meiri en
sem svarar verðlækkun á hvert
oiiufat. Þeir hafa orðið að draga
framleiðsluna mjög saman: fyrir
skömmu framleiddu þeir 2,1 mil-
jón tunnur á dag, en nú voru þeir
fyrir tveim vikum komnir ofan i
650 þúsund tunnur. Þetta þýðir,
að mati sérfróðra manna, að
áætlaðar tekjur af oliuútflutningi
hafa skroppið saman úr 1350 mil-
jónum dollara á mánuði i 500 mil-
jónir dollara. Þetta hefur nú þeg-
ar leitt til þess að Nigeriumenn
hafa orðið að gripa til gjaldeyris-
varasjóða sinna, þvi að þeir þurfa
um þessar mundir að greiða 1800
miljónir dollara á mánuði fyrir
innfluttar vörur. Og gjaldeyris-
Greiösluhallinn
miljardur dollara
á mánudi
forðinn nemur aðeins 3000 mil-
jörðum dollara.
Niðurskurðarstefna
Það var þessvegna sem seðla-
banki Nigeriu skipaði öllum við-
skiptabönkum iandsins að stöðva
allar greiöslur og lán vegna inn-
flutnings um tima. Bandariska
vikuritið Times hefur það eftir
bisnessmönnum i Nigeriu að það
veröi að gripa til enn strangari
innflutningshafta á næstunni.
Stjórn Shehu Shagaris forseta,
sem aðhyllist „frjálst markaðs-
kerfi” hefur lagt i miklar fjár-
festingar til eflingar iðnaöar,
menntunar og til húsnæðisbygg-
inga i þessu stóra og fjölmenna
landi (ibúar Nigeriu eru nú um 90
miljónir). Hún er og mjög sökuð
um gifurlega fjármálaspillingu
og bruðl. Shagari hefur nú boðaö
ýmsar sparnaðarráðstafanir sem
eiga aö draga úr rikisútgjöldum
um 12% frá þvi i fyrra. Övist er
Framhald á 14. siðu
Gcðverntlar-
félagið relsir
áfangastað
Nýlega hóf Geðverndarfélag Is-
lands verkiegar framkvæmdir
við áfangastað fyrir geðsjúkl-
inga, sem félagiö reisir i sam-
vinnu við Kiwanismenn að Alfa-
landi 15, nýju byggingarsvæði i
Fossvogi.
Afangastaðurinn er ætlaður til
félags- og starfsendurhæfingar
þeirra geðsjúklinga, sem hafa
náð þvi marki að þurfa ekki leng-
ur að dvelja á geðsjúkrahúsum,
en eru ekki enn reiðubúnir til að
lifa á eigin vegum i þjóðfélaginu.
Dvöl á áfangastað hefur aðallega
tviþættan tilgang: 1. að veita
nauðsynlegan félagslegan og til-
finningalegan stuðning meðan á
endurhæfingu stendur og 2. að
veita markvissa endurhæfingu til
þess að auka hæfni til starfs og til
daglegs lifs.
Meðan sjúklingurinn dvelst á
áfangastað er reynt að leggja
áherslu á sjálfstæði hans og
stuðla að þvi að hann taki sem
mesta ábyrgð á dvöl sinni sjálfur.
Gert er ráð fyrir þvi, að vistmenn
á áfangastað stundi reglulega
vinnu, vinnuþjálfun eða nám.
Ennfremur er gert ráð fyrir, að
þeir greiði leigu og framfærslu-
kostnað og sjái um framkvæmd
heimilishaldsins. Geðheilbrigðis-
fólk er bakhjarl heimilisins, leiðir
starfsemina og veitir stuðning og
aðstoð eftir þvi sem þörf krefur. 1
húsinu verður rými fyrir 8
sjúklinga. Einnig verður i þvi litil
ibúð fyrir húsráðendur, sem sjá
um daglegan rekstur og aðstoð
við ibúana.
Þótt Kiwanismenn hafi safnað
myndarlegri fjárfúlgu til þess að
koma áfangastaðnum upp, er
Geðverndarfélagið enn fjár vant i
þvi skyni. Til þess að afla fjár er
Geðverndarfélagið með happ-
drætti, sem dregið verður i 4. júni
n.k. Heitir félagið á alla velunn-
ara starfseminnar að styðja
byggingu áfangastaðarins með
þvi að kaupa happdrættismiða fé-
lagsins.
SETUR ÞÚ
STEFNULJÓSIN
TIMANLEGA Á?
iJUMFEROAR
Auglýsing um áburðarverð sumarið 1982
Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftirtalinna áburðartegunda er
ákveðið þannig: Viö skipshlið á ýmsum höf num um- hverf is land Afgreitt á bíla í Guf unesi
Ammonium nitrat 34.5%N KR. 3.200.00 Kr. 3.260.00
Kjarni 33% N - 3.040.00 // 3.100.00
Magni 1 26% N+ 9%Ca // 2.500.00f // 2.560.00
Magni 2 20%N+15%Ca ' // 2.180.00 // 2.240.00
Græðir 1 samsvarar 14% N-18% P205-18% K20+6%S 14%N- 8% P -15% K +6%S " 3.680.00 // 3.740.00
Græðir 1A samsvarar 12% N-19% P205-19% K20+6%S 12%N- 8/4%P -15/8%K+6%S " 3.620.00 // 3.680.00
Græðir 2 samsvarar 23% N-11 % P205-11 % K20 23% N- 4,8% P -9,2% K " 3.460.00 // 3.520.00
Græðir 3 samsvarar 20% N-14% P205-14% K20 20% N- 6% P -11,7 K /, 3.480.00 // 3.540.00
Græðir 4 samsvarar 23% N-14% P205- 9% K20 23% N- 6% P -7,5% K " 3.620.00 // 3.680.00
Græðir 4A samsvarar 23%N-14%P205- 9%K20+2%S 23%N- 6% P - 7,5%K+2%S " 3.680.00 // 3.740.00
Græðir 5 samsvarar 17% N-17% P205-17% K20 17%N- 7,4%P -14% K " 3.560.00 // 3.620.00
Græðir 6 samsvarar 20% N-10% P205-10% K20+4%Ca+1 %S 3.400.00 20%N- 4,3% P - 8,2%K+4%Ca+l%S // 3.460.00
Græðir 7 samsvarar 20%N-12%P205- 8%K20+4%Ca+1 %S 3.460.00 20%N- 5,2%P - 6,6%K+4%Ca+1 %S // 3.520.00
Græðir8 samsvarar 18%N- 9%P205-14%K20+4%Ca+l%S 3.320.00 18%N- 3,9%P -ll,7%K+4%Ca+l%S ii 3.380.00
NP 26—14 samsvarar 26%N-14%P205 26% N- 6,1% P " 3.560.00 ii 3.620.00
NP 23—23 samsvarar 23%N-23%P20S 23%N-10%P " 3.960.00 ii 4.020.00
Þrífosfat samsvarar 45%P205 19,6% P " 3.100.00 ii 3.160.00
Kalíklóríð samsvarar 60% K20 50% K " . 2.140.00 ii 2.200.00
Kalísúlfat samsvarar 50% K20 41,7%K + 17,5%S " 2.660.00 / / 2.720.00
Áburðarkalk 4%N + 32%Ca " 580.00 ii 640.00
Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki innifalið i ofangreindu verði
fyrir áburð kominn á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og afhendingargjald er
hinsvegar innifalið i ofangreindu verði fyrir áburð, sem afgreiddur er á
bila i Gufunesi. ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS