Þjóðviljinn - 30.04.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 30.04.1982, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. aprll 1982 Rugl dagsins Viö viljum öll byggja upp samfélag þar sem allir hafa jafnan rétt til þess að bæta kjör þeirra sem lifa góðu llfi nú þegar. (heyrt) Höfðingi í Skegglandi með 79 cm. yfirskegg Skeggaldir koma og fara, en þessi höfðingi hér er bersýni- lega á einni slikri miðri. Hann er sigurvegari i skeggkeppni I Bæjaralandi og hefiir upp á yfir- skegg að bjóða sem er hvorki meira né minna en sjötiu og níu sentimetrar á lengd. Geri aðrir betur. Þar að auki státar hann af alskeggi sem er um hálfur metri á sfdd. Það fylgir ekki sögunni hvort maðurinn hefur annað fyrir stafni en að stefna á höfðingdóm i Skegg- landi — kannski er það fullt starf.einsog svomargtannað á okkar sérhæfingaröld. Böm segja sögur Af fiskirfi 1 bekk einum eru menn að lesa um fiskveiðar og kennarinn spyr. Hver vill lýsa þvi fyrir okkiir úr hverju net er búið til? Einn vaskur réttir upp hönd- ina og segir: Neter hellingur af smágötum sem bundin eru saman með snæri. Af þakklæti HefurþU nokkra hugmynd um það hvað þúsundfætlan sagði þegar henni voru gefnir nýir skór? Nei, hvernig ætti ég að vita það? Hún sagði: þúsund þakkir. Af tertum Mamma er reið og spyr ströngum rómi: — Gunna, það voru tveir tertubitar i skápnum fyrir klukkutima og nú er bara einn eftir. Geturðu sagt mér hvernig stendur á þvi? * Já, mamma, það var svo dimmt i skápnum að ég sá bara annan. Náttúru- myndir í Norræna húsinu Litið við á sýningu Steinþórs Marinós Gunnarssonar og Sigrúnar Steinþórs- dóttur Eggen Feðginin Steinþór Marinó Gunnarsson og Sigrún Stein- þórsdóttir Eggen halda sam- sýningu i Norræna húsinu um þessar mundir. Steinþór Marinó Gunnarsson sýnir oliumðlverk og vatnslita- myndir, en Sigrún sýnir list- vefnað unninn f júta-band og ull. Steinþór Marinó er ættaður vestan að fjö-ðum og er af kunnri listamannafjölskyldu þar sem eru m.a. bræður hans Veturliði og Benedikt, báðir list- málarar. Steinþór sýnir annars vegar landslagsmyndir og hins vegar óhlutbundnar vatnslitamyndir sem sýna draumkenndar Svínharður smásál Eftir Kjartan Arnórsson Fugl dagsins: Fugl dagsins Skógarsmpa Fugl dagsins er ekki heima- fugl á Islandi, heldur flækingur. Hefur þú séð þennan ófélags- lynda skógarfugl, sem er eins og visnaðlauf álitinn? Það er erf- itt að þekkja hann frá hrossa- gauk fljótt á litið, en hann er þó miklu stærri og gildvaxnari og með gildara nef. Vængimir eru snubbóttir, en ekki oddhvassir eins og á hrossagauk. Flugið er hratt og hvarflandi. Aberandi gildvaxinn á flugi og virðist hálslaus. A flugi veit riefið niður á við. Rökkurfugl. Röddin er þýtt kvakandi „orrt-orrt” frá karlfuglinum og hátt, hnerrandi „tsi-ú-ikk”. Verpur við trjárætur og vill helstvera I skóglendi. Á heima I Miö-Evrópu og flækist oft til Færeyja og Islands. viðtalið Feðginin Sigrún Steinþórsdóttir og Steinþór Marinó Gunnarsson fyrir framan mynd Sigrúnar „Vetrar ljóð”. stemmningar. Steinþór sagðist að mestu vera sjálfmenntaður I myndlistinni, er við heimsóttum þau feðgin I Norræna húsið á dögunum. Ég hef lengst af stundaö húsa- málun og haft málverkið i hjá- verkum. En þetta er eins og bakterla sem sækir stuðugt á mann. Sigrún Steinþórsdóttir er fædd 1947 og hefur numið listvefnað i Noregi. Hún er nú búsett I Nor- egi, gift rithöfundinum Bernt Eggen. Hafa þau ferðast mikið um Evrópu auk þess sem Sigrún hefur sýnt vefnað sinn á fjölda sýninga. MyndirSigrúnar eru unnar að miklu leyti úr grófri ólitaðri ull og óverkuðu júta, sem fiutt er hingað frá Pakistan. Myndir hennar eru oft efriismiklar og nærri þvl að geta kaliast riss- myndir og hún sækir sér fyrir- myndir og likingar I náttUruna. Myndireinsog „Frumæxlun” og „Úr norrænni jörðu” bera vott um hugvitssemi og mikla tæknilega verkkunnáttu og sömu leiðis myndirnar „Kjarni” og „Á öræfum”. SigrUnsagðist leita sér efnis i náttúrunni bæði I eiginlegum og óeiginlegum skilningi, og bera margar mynda hennar vott um næma tilfinningu fyrir þeim náttúruefnum sem hún notar i vefnaðinn. Sýning þeirra feðgina verður opin til 9. mai. — ólg. Bvll bk ftprue ume/íÐfi um ^öome- OfíeuUINS! tíBLÞÚfe P& A£> /ne/V/V Séo KOroNWR- fiF öPUr,o? EK\*\ \ miNO TILFELLI?? BH5 HVAC? ðAeiNAOE'O CV)£f> F>vP ? ...iHHOVLFS~Ut T5L é(F uKLEá-ef), 5t> séu Kom^F- fip Þéfcl _

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.