Þjóðviljinn - 30.04.1982, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 30.04.1982, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. april 1982 Tölvuöldin í frystihúsunum Tryggir betri nýtingu aflans og hærri laun Það er vart hægt að segja að frystihús og frystihús sé eitt og hið sama lengur. Þegar rölt er um frystihús Síldarvinnsl- unnar i Neskaupstað, blasir við önnur sjón en í öðrum frystihúsum lands- ins: tölvuvæðingin hefur hafið innreið sina, meira aö segja í þennan gamal- gróna iðnað íslendinga — og sumir myndu án efa segja sem svo, að það hafi ekki verið seinna vænna! Þegar blm. Þjóöviljans bar að garði, var allt á fullu eins og vera ber i frystihúsi, en Már Sveins- son, verkstjóri gaf mér samt tima til að fara i skoðunarferð um hús- ið og gera grein fyrir i hverju tölvubyltingin væri fólgin. „Innmötunin i húsið er fullkom- lega rafeindavædd, og hún fer þannigfram, að þær fisktegundir, sem veriö er að vinna hverju sinni, eru geymdar i safnkörum. Þegar flökunarvélarnar panta til sin fisk, fara boð um þaö inn i raf- eindaheila, sem tekur pant- anirnar niður og skráir þær og kemur þeim siðan áleiðis i út- búnaðinn við safnkerin. Þá fer fiskurinn eftir færibandi á vigt, sem tekur við 100-150 kilóum, og þegar búið er að vigta fiskinn, fer hann áfram eftir færibandi i flök- unarvélarnar, þar sem hann er hausaður, flakaður og roðflettur. Siðan fer hann á svonefnda milli- vog, sem kannar nýtingu hrá- efnisins, þ.e.a.s. hve stórt hlut- fallið er af hausum, roöi og hrygg annars vegar og fiskflaki hins vegar. Þessar upplýsingar má kalla fram hvenær sem er, þannig að nýting hráefnisins á alitaf að geta orðið sú besta fáanlega, þvi ef eitthvað er að, getum við komist aö þvi þegar i staö með þvi að fá nýtingarprufur af millivog- inni.” — Hvernig hefur þetta kerfi gefist? „Það hefur gefist ágætlega. Það hafa aö visu verið dálitlir byrjunarörðugleikar i sambandi við uppsetninguna á vélabúnaðin- um og eins hafa færiböndin verið að striða okkur, en rafeinda- búnaðurinn sjálfur hefur unnið með prýöi”. — Hvernig hefur þessari breyt- ingu veriö tekið af starfsfólki? „Þaö hafa ekki orðiö neinir árekstrar út af þessu nýja kerfi. Við héldum vinnustaðafundi þar sem var fjallað um breytinguna og hún útskýrð. En við erum ekki búnir að vera lengi með þetta tölvukerfi i notkun og það er þvi Már Sveinsson, verkstjóri i frystihúsi Sildarvinnslunnar I Neskaupstað. í vinnslusalnum. Rafeindakerfi Slldarvinnslunnar i Neskaupstað hefur orðið til að kaup starfsfólks hefur hækkað. Ljósm.: — jsj. Síldarvinnslan í Neskaupstaö Þetta kerfi er semsagt fyrst og fremst hugsaö til þess aö tryggja betri nýtingu hráefnisins, og það er ekki vanþörf á i rauninni, þvi Hér er vigtað inn. Þessum tækja- búnaði er stjórnað af rafeinda- heila, sem skammtar 100—150 kg af þeim fiski sem veriö er að vinna, og kemur þeim svo áleiðis I fiökunarvélarnar. — Myndin til hægri: Horft yfir fiökunarvél- arnar. Rafeindaútbúnaðurinn fækkar ekki starfsfólki, en trygg- ir betri nýtingu aflans. erfittað segja nokkuð ákveöið um þetta enn.” — Hefur tölvubúnaðurinn ein- hver áhrif á fjölda starfsfólks og laun þess? „Þessi vélasamstæða sparar i sjálfu sér ekki nema einn starfs- kraft, sem var i móttökunni áður. Þetta er fyrst og fremst til aö tryggja hámarksnýtingu ailans. Nú, það er borgað samkvæmt hraða og nýtingu, en var borgað áður eftir svokallaðri premiu, og það hefur að sjálfsögðu haft áhrif á launin. Þau hafa hækkaö veru- lega, og þetta beina ákvæöi sem nú er, nálgast það að vera jafn hátt bónusnum i salnum.” þó að nýting rýrni, þó ekki sé nema um eitt prósent, þá er þar um að tefla miklar fjárhæðir.” — jsj-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.