Þjóðviljinn - 30.04.1982, Síða 9

Þjóðviljinn - 30.04.1982, Síða 9
Föstudagur 30. aprll 1982 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 9 um helaina • Leiklist • myndlist • tónlist • kvikmyndir • samkomur Gosi (Arni Blandon) og álfkonan (Margrét Akadóttir) Gosi er að hætta Gosi verður sýndur i Þjóðleikhúsinu i siðasta sinn um næstu helgi, en nú um helgina eru sýningar i dag og á sunnudag. Siðasta sýningin er svo sunnudaginn 9. mai. Leikritið um Gosa er eftir Brynju Benediktsdóttur sem jafnframt er leikstjóri. Heyrst hefur að lögin úr sýningunni séu væntanleg á plötu, en þau samdi Sigurður Rúnar Jónsson, en söngtexta Þórarinn Eldjárn. Enn er hægt að sjá Donka Nú fer sýningum að fækka á Don Kikóta, en hann verður sýndur nú á laugardagskvöld. Aðsókn hefur heldur verið að glæðast að undanförnu, en mönnum er bent á að drifa sig, sem ætla að sjá þessa rómuðu sýningu. Myndin er af Arnari Jónssyni i titilhlutverkinu. kvikmyndir Sovéska kvikmjmdin Mexíkaninn hjá MÍR Kvikmyndasýning verður I MÍR-salnum, Lindargötu 48, n.k. sunnudag, 2, mai kl. 16. Sýnd verður sovéska kvik- myndin „Mexikaninn", sem gerð var 1956 eftir samnefndri skáldsögu Jacks London. Sagan er látin gerast upp úr siöustu aldamótum, þegar Mexikó komst undir einræðis- vald Diasar. Margir and- stæðingar hans og þjóðernis- sinnar flýðu land og segir sagan frá flóttamönnum, sem leituðu skjóls i úthverfum Los Angeles borgar og þó einkum einum þeirra, sem gekk undir nafninu Felipe Rivera. Leikstjóri er V. Kaplunovski, en með aðalhlut- verkið fer 0. Strizhenov. Meðal annarra leikenda er Tatjana Samoilova, sem siðar varð heimsfræg fyrir leik sinn i „Trönurnar fljúga”. Þetta var fyrsta kvikmyndahlutverk hennar. Rússneskt tal er i myndinni og engir skýringartextar en ágrip sögunnar verður kynnt fyrir sýningu. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Ijóðlist Áhorfenda- svæðinu í Iðnó breytt Leikféiagið sýnir um heigina „Hassið” (ikvöld) Jóa (laugar- dagskvöld) og Sölku (sunnu- dagskvöld). Þessar sýningar hafa allar hlotið mjög mikla aðsókn i vetur, en er áhorfenda- fjöldi Leikfélagsins orðinn yfir 62 þúsund manns, sem er met- aðsókn. Nú er verið að gera miklar breytingar á salnum i lðnó vegna sýningar Kjartans Ragnarssonar á „Skilnaði” sem sýnt verður á Listahátið. Verður leikið i salnum, en áhorfendur sitja á fóra vegu umhverfis aðalleiksvæðið. Kjartan leikstýrir þessu verki sinn en tónlist er eítir Askel Másson. Verður tónlist og leik- hljóð flutt i fjögurra rása hljóö- kerfi og er það i fyrsta sinn sem slikt er gert hérlendis i leik- sýningu. c> Hér eru smiðir að breyta áhorf- endasvæðinu i Iðnó, þannig að hægt veröur að sitja á fjóra vegu og leika i miðjum salnum. . Ljósm. —eik— Þetta eru nemendur Leiklistarskólans, sem flytja dagskrá úr ljóðum Laxness á 1. mai, Frá vinstri: Edda Bachmann, Helgi Björnsson, Maria Sigurðardóttir, Kristján Franklin Magnús, Vilborg Halldórs- dóttir, Sigurjóna Sverrisdóttir og Eyþór Arnason. Ljósm. gel— Ljóðadagskráin endurtekin Mikil aösókn hefur verið á dagskrá úr ljóðum Halldórs iLaxness, sem nemendur 3. bekkjar Leiklistarskóla tslands hafa að undanförnu flutt i Norr- æna húsinu. Akveðið hefur verið að flytja dagskrána einu sinni enn, laugardaginn 1. mai kl. 17.00 Dagskráin heitir „ó, hve létt er þitt skóhljóð” og hefur Þór- hallur Sigurðsson tekið hana saman og stjórnað ásamt Fjólu Ölafssóttir. Undirleik Annast Páll Eyjólfsson, gítarleikari. Full ástæða er til að hvetja fólk til að missa ekki af þessu einstæða tækifæri

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.