Þjóðviljinn - 12.06.1982, Side 24
28 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.-13. júnl 1982
daesurtónlist
Þá er önnur plata Heima-
varnarliðsins, Hvað tefur þig
bróöir?, komin út. Kennir þar
ýmissa grasa og leggur tölu-
verður hópur hönd á plóginn við
gerð plötunnar. .Það er Hima
sem gefur plötuna út en innsti
koppur þar i búri er Sigurður
Rúnar Jónsson.
Það er alltaf ein áleitin spurn-
ing sem vaknar þegar maður
fær plötu sem þessa i hendurn-
ar: Þjónar útgáfa sem þessi
einhverjum tilgangi?
Já, ég tel að svo sé. Sennilega
lendir þessi plata i flestum til-
fellum inn á heimili þar sem af-
staða hefur verið tekin til þeirra
mála sem sungið er um á plöt-
unni. En hún hlýtur alltaf að
slæðast til einhverra þeirra sem
ekki hafa leitt hugann að þess-
um málum og vonandi vekur
þessi plata einhverja til um-
hugsunar og ef svo er þá hefur
hún skilað sinu.
Útsetningar og stjórn við gerð
plötunnar sá Diddi fiðla um og
er i flestum tilfellum ágætlega
gert. En á köflum finnst mér
hann ofhlaða sum lögin.
Heill skari af fólki kemur
fram á plötunni og yrði allt of
langt mál að fara að telja upp
alla sem við sögu koma. Lögin
eru misjöfn en það eru nokkur
lög á plötunni sem heilla mig
sérstaklega. „Hvert afrek bróð-
ir ætlar þú að vinna”, „Klukk-
urnar i Nagasaki” og „Hvað
tefur þig bróðir”. Annars finnst
mér „Þóknunin” eftir Elias
Daviðsson, vera, ef hægt er að
nota það orð, sniðugasta lagið á
þessari plötu.
Albúm plötunnar finnst mér
mjög gott, einfalt og táknrænt.
Og fellur vel að þeim ramma
sem markaður er á plötunni.
Ljóð og textar plötunnar finn-
ast mér i flestum tilfellum góð-
ir, en það er einkum ijóð Jako-
binu Sigurðard.óttur, „Hvað tef-
ur þig bróðir”, og Ljóð Guð-
mundar Hermannssonar,
„Klukkurnar i Nagasaki”, sem
hrifu mig mest:
9. ágúst ár hvert er öllum klukkum samhringt i Nagasaki og þess
siðan minnzt með algerri þögn, að þann dag var kjarnorkusprengju
varpaö á borgina áriö 1945.
Þaö sem geröist þennan morgun var eitthvað alveg nýtt.
— þvi undirstööur heimsins voru aö svigna.
1 leiftursnöggri andrá varö loftið fagurhvitt
og litiu siöar byrjaöi aö rigna.
Þessi hljómplata Herstöðva-
andstæðinga stendur fyllilega
undir þvi hlutverki sem henni er
ætlað og það er jú fyrir mestu.
— jvs
Comsat
Angels
koma
hingað
til lands
r
1
Þau gleðilegu tiðindi hafa nú
verib stabfest að hljómsveitin
Comsat Angels muni koma
hingað i næsta mánuði og halda
hér tvenna tónleika, 8. og 9. júli.
Ekki er enn búið að ganga frá
húsnæðien þau mál skýrast inn-
an skamms. Þeir félagar eru að
halda i hljómleikaferð um
Bandarikin og liggur ísland þvi
vel við höggi. En meira um það
siðar...
JVS
Altered Images voru i nær öll-
um breskum tónlistarblöðum
kosin bjartasta vonin fyrir þetta
ár. Þvi var engin furða að beðið
var eftir þessari plötu með mik-
illi eftirvæntingu.
Saga hljómsveitarinnar er i
stuttu máli eitthvað á þessa
leið: Þangað til fyrir rúmu ári
voru Altered Images ein af
mörgum kráar'hljómsveitum i
Glasgow sem enginn vissi haus
né hala á. Það var ekki fyrr en
meðlimir Siouxsie and the Ban-
shees tóku hljómsveitina með
sér i hljómleikaferð um Skot-
landað hróður hljómsveitarinn-
ar fór að berast. Útgáfufyrir-
tækin fóru að sýna þeim áhuga
og ráðlögðu Siouxsie and the
Banshees þeim eindregið að
gera samning viö eitthvert stórt
útgáfufyrirtæki I staðinn fyrir
„independent” (óháð) fyrir-
tæki. Þessu ráði hlýddu Altered
Altered Images
Images og gerðu samning við
C.B.S.
Stuttu eftir að gengið var frá
samningum var haldið i hljóð-
rita og fyrsta breiðskifa hljóm-
sveitarinnar, Happy Birthday,
varð til. Upptökustjóri við gerð
hennar var Steve Severin,
bassaieikari Siouxsie and the
Banshees. Plata þessi naut mik-
illa vinsælda og gerði það gott á
vinsældalistunum ensku.
Pinky Biue nefnist nýjasta
breiðskifa hljómsveitarinnar en
upptökustjóri er Martin Rush-
ent, einn þekktasti upptöku-
stjóri Breta i dag, meðal annars
þekktur af samstarfi sinu við
Human League.
Tónlist hljómsveitarinnar
hefur breyst töluvert mikið. A
fyrri plötunni svifur andi Si-
ouxsie and the Banshees yfir
vötnum og þykjast menn þar
kenna áhrifa Steve Severin. A
Pinky Blue kveður við annan
tón. Hljómlistin er öll poppaðri
en áöur og senniiegt að Martin
Rushent hafi hér eitthvað komið
við sögu. Hljómlistin er á svip-
aðri linu og Blondie var hér á
árum áður.
Ekki þarf að fara mörgum
orðum um hljóðfæraleik og út-
setningar en þær eru allar mjög
góðar. Söngur
Claire Grogan
skapar þessi sérstöku
blæbrigði semtónlist
Altered Images
kallar fram.
Það er nánast út
i hött
að likja söng hennar
við einhverja ákveðna söngkonu,
það verður hver að finna sina
eigin viðmiðun.
Best er að hafa sem fæst orð
um texta plötunnar. Þeir eru yf-
ir höfuð handónýtir og varpa
nokkrum skugga á plötuna sem
slika.
Mér finnst gaman að Pinky
Blue.Þetta er plata sem kemur
manni i gott skap og yljar
manni á köflum.
— jvs
4. júní sl.
Hafnarbíó
Föstudaginn fjórða þessa
mánaðar voru haldnir tvennir
hljómleikar i Hafnarbiói, þeir
fyrri klukkan 21 en þeir siðari
klukkan 23. Fram komu hljóm-
sveitirnar Vonbrigði, Purrkur
Pillnikk og Þeyr.
Vonbrigði hófu fyrri hljóm-
leikana rúmlega niu og léku öll
sin bestu lög. Þeir voru góðir
framan af en fataðist flugið
seinni partinn. Góð keyrsla og
góður kraftur var i leik hijóm-
sveitarinnar og hef ég það á til-
finningunni að mikils megi
vænta af þeim drengjum á næst-
unni.
Purrkur Pillnikk kom næst á
fjalir Hafnarbiós og var Purrk-
urínn óvenju góður þetta kvöld
Þeir eru eins og þeir segja sjálf
ir fyrst og siðast hljómleika
band og sannaðist það áþreifan
lega á þessum tónleikum.
Þeysarar enduðu hljómleik
ana og léku nokkur af nýju lög
unum sinum sem munu skreyta
prógram þeirra á komandi
hljómleikum erlendis. Þeysarai
voru mjög göðir og auðheyrt aí
þeir hafa æft vel upp á siðkastií
og skörtuðu þeir öllum sinum
bestu fjöðrum.
Stemmningin var mjög góð og
það fóru allir ánægðir út af
þessum hljómleikum.
Jón Viðar
Sigurðsson
skrifar
Af Vonbrigðum má mikils vænta...
Hvað tefur þig, bróðir!