Þjóðviljinn - 12.06.1982, Síða 29
Helgin 12.-13. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 313.
1
Minning
Kristinn J. Guðjónsson
Fæddur 10.6. 1912 — Dáinn 3.6. 1982
Fimmtudaginn 3. júni lést aö
heimili sinu Kristinn J. Guö-
jónsson, Hringbraut 136 i Kefla-
vik.
Kristinn kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Gyöu Hjálmarsdóttur
frá Hofi á Kjalarnesi áriö 1933 og
eignuöust þau lObörn. Atta þeirra
eru á llfi.
Fyrstu búskaparár sin bjuggu
þau hjónin i Reykjavik, en flutt-
ust siöan suöur á Reykjanes og
bjuggu þar fyrst að Kalmanns-
tjörn, en settust siðan að i
Höfnunum. Siöustu árin hafa þau
þö átt heima i Keflavik. Min
fyrstu kynni af þeim hjónum voru
i Höfnum.
Kristinn stundaði ýmis konar
atvinnu á sinum yngri árum,
einkum þó akstur i Reykjavik og
trilluútgerð i Höfnunum. Siöast-
liöna tvo áratugi hefur hann þó
unniö hjá Varnarliðinu á Kefla-
vikurflugvelli.
Heföi hann lifað, hefði hann
orðiö sjötugur i fyrradag. Þar
sem hann var maður félags-
lyndur meö afbrigðum og að
sama skapi kátur og skemmti-
legur, hvort heldur sem var i
stórum hópi eða þröngum, hafði
hann ákveöiö i samráði við eigin-
konuna, aö gera sér nú dagamun
á þessum timamdtum. Hann
ákvaö aö halda veglega afmælis-
veislu og pantaöi samkomuhús til
þeirra nota og skyldi veislan
haldin 12. júni, þ.e.a.s. i dag.
Hann valdi þennan dag fremur en
afmælisdaginn til þess að vinir og
kunningjar ættu auðveldara með
aö koma án óþæginda eöa at-
vinnumissis.
1 þessari tillitssemi Kristins
kemur vel fram rikt skapgerðar-
einkenni hans. Hann vildi ekki
valda fólki fyrirhöfn eöa
óþægindum ef unnt væri að
komast hjá sliku. Sama sjónar-
miöiö endurspeglast i þeirri
ákvöröun hans, að hann þvertók
fyrir það, aö eiginkonan eöa
afkomendurnir önnuðust veislu-
undirbúninginn. Nei, allt skyldi
veröa aökeypt. Hann vildi ekki að
hans nánustu þyrftu að leggja á
sig margra daga erfiði til þess aö
hann gæti gert sér glaðan dag i
góöra vina hópi.
En þvi miðurfara hlutirnir ekki
alltaf eins og við áætlum. Við
förum ekki i afmælisveislu til
Kristins i dag, en engu að siður
munu margir hugsa hlýtt til hans
og er ég sannfærður um, að hann
væri ánægður með að vita okkur
ættingja hans og vini i sinni veislu
i dag e ins og til stóð, þó svo að hún
verði með öðru sniöi en ætlaö var
i upphafi.
Hér fyrr á árum var Kristinn
mikill sjúklingur og lá langtimum
saman rúmfastur og illa haldinn.
Ég þekkti hann ekki á þeim árum,
en hef þó heyrt, að hann hafi ætið
séð einhverjar ljósar hliðar á til-
verunni, enda voru bjartsýni hans
og lifslöngun meiri en almennt
gerist.
Á þessum erfiðu timum voru
þau hjónin með þungt heimili og
mæddi þvi mikið á Gyöu. Hún
brást ekki fremur en fyrri daginn
og lagöi hart að sér að sjá
heimilinu farborða. Þessi við-
brögð hennar hefur Kristinn ef-
laust kunnað að meta og sýndi
hann það ótvirætt á siðari árum.
Þau hjónin urðu fyrir fleiri
áföllum og stærri siðar, þvi þau
misstu tvo efnilega syni i blóma
lifsins á sorglegan hátt. Þessum
áföllum tóku þau bæði með ótru-
lega miklu æðruleysi og dugnaöi
og áunnu sér virðingu manna og
aödáun fyrir.
Kristinn var mikill barnavinur
og gaf sér góðan tima til að sinna
börnum og ræða við þau. Hann
var kátur og gamansamur og þvi
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Stundakennara vantar til að kenna al-
mennar greinar og iþróttir.
Iðnskólinn i Reykjavik
Heilsugæslustöð í Hólmavík
Tilboð óskast i að reisa og gera fokhelda
heilsugæslustöð á Hólmavik. Verkinu skal
vera lokið 1. ágúst 1983.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri Borgartúni 7, Reykjavik, gegn 1500,-
kr. skilatryggingu, frá og með þriðjudeg-
inum 15. þ.m. Tilboð verða opnuð á sama
stað þriðjudaginn 29. júni 1982, kl. 11.00
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
fannst barnabörnunum alltaf
ánægjulegt að heimsækja afa og
ömmu i Höfnunum, eins og þau
nefndust lengst af. Hjá minni
eldri dóttur, sem um tima var
mikið hjá þeim hjónum, var afi
yfir alla gagnrýni hafinn. Hann
var alls staöar mestur og bestur
og þannig held ég aö hann sé
einnig i hugum hinna barnabarn-
anna. Sjálfur er ég þakklátur
fyrir hinar mörgu og ánægjulegu
samverustundir okkar Kristins
og á ég eingöngu góðar minningar
frá þeim.
Ég votta Gyðu og börnunum
innilega samúð mina og vona að
bjartar og góðar minningar mildi
söknuð þeirra i framtíöinni.
H.A.
Man ég enn og ekki gleymi
okkar spjalli þar og hér.
Um það hugsa oft og geymi
ofarlega ihuga mér.
Kristinn J. Guöjónsson var
fæddur á Isafiröi 10. júni 1912.
Hann var yngsta barn hjónanna
Mikkalinu Jensdóttur, sem var
fædd I september 1873, og
Guðjóns Gislasonar sem liklega
hefur verið fæddur 1860. Guðjón
dó 65 ára, en Mikkalina komst á
tiræöisaldur. Börn þeirra urðu
sex, tvær dætur og fjórir synir.
Mikkalina og Guðjón fiuttu til
Bolungarvikur, meðan Kristinn
var barn að aldri og ólst hann þar
upp. Atján ára fór Kristinn i
vinnu að Lykkju á Kjalarnesi.
Þaöan komst hann I kynni við
Gyðu Hjálmarsdóttur á Hofi.
Kristinn og Gyöa voru gefin
saman i hjónaband á jóladag
1933. Þau eignuöust 10 börn. Þau
voru þessi:
1. Erla, fædd 24. okt. 1931. Hún
er gift Agústi Sigurþórssyni
tjónabótaeftirlitsmanni, fæddum
23. april 1930.
2. Hjálmar, fæddur 1. jan. 1933.
Hann er þungavinnuvélstjóri og
kvæntur Halldóru Stefánsdóttur.
3. Þórir, fæddur 19. nóv. 1934.
Hann er múrari og kvæntur Alf-
heiði Eiriksdóttur, sem er fædd
28. júlf 1935.
4. Hlööver, fæddur 11. júni 1938.
Hann er vörubflstjóri og kvæntur
: Unni Svanhildi Ragnarsdóttur,
sem er fædd 28. jan. 1940.
5. Högni, fæddur 26. júlí 1939.
Hann er leigubilstjóri og kvæntur
Asdisi Sigmundsdóttur, sem er
fædd 11. okt. 1949.
6. Guðjón, fæddur 25. mai 1943.
Hann er vörubilstjóri og
ókvæntur.
7. Hulda,fædd 18.júni 1947. Hún
er gift Hreini Asgrimssyni. Hann
er skólastjóri og fæddur 31. mai
1947.
8. Sverrir, fæddur 4. des. 1949.
Hann er látinn, hefur liklega dáið
27. mars 1972.
9. Sæunn, fædd 11. júni 1953.
Hún er gift Einari Bjarnasyni sjó-
manni, fæddum 23. nóv. 1949.
10. Garðar, fæddur 6. febrúar
1955. Hann er látinn, dó 7. april
1971.
Barnabörnin eru orðin tuttugu
og þrjú og barnabarnabörnin eru
orðin fjögur.
Kristinn og Gyða bjuggu i
Reykjavik frá 1932 til 1953, en þá
um vorið fluttu þau að Kalmans-
tjörn I Höfnum. Fáum árum
, seinna að Grund i sama hreppi.
Þau flytja svo til Keflavikur 15.
okt. 1977, og bjó Kristinn þar þaö
sem eftir var ævinnar.
Ýmis störf vann Kristinn um
dagana og öll fóru þau honum vel
úr hendi, meðal annars ók hann á
tlmabili strætisvagni i Reykjavik.
Höfðu menn þá á orði að óþarft
væri að halda sér i, hvort sem
farið væri af stað eða staöar
numið, heldur gætu farþegar
staðið eins og á stofugólfi, svo vel
var ekið. Kristinn ók bifreiö i
næstum hálfa öld án þess að þurfa
nokkurn tima að gefa skýrslu.
Þeim, sem unnu með Kristni
eða kynntust honum á annan hátt,
i varð hann minnisstæður. Hann
var alltaf skemmtilegur. Ég óska
honum velfarnaöar á nýjum
| slóðum.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Framtiöarbyggingarsvæðiö er m.a. viö Lækjarbotna og I Setbergs-
hllöum, þar sem þegar er risin nokkur byggö. Mynd -HG
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Gönguferð um Lækjarsvæðið
og Setberg/ Ásiand
Sunnudaginn 13. júni verður farin gönguferð um Setbergsland og næstu
byggingarsvæði Hafnarfjaröar skoöuð.
Leiösögumenn verða:
Björn S. Hallsson, höfundur skipulags Setbergssvæðis.
Sigurþór Aðalsteinsson, höfundur miðbæjarskipulags.
Siguröur Gislason, fulltrúi ABH i skipulagsnefnd.
Þátttakendur mæti við Lækjarskóla kl. 13.00.Aætlaður ferðatimi 5 klst.
Þátttakendur fá afhent skipulagskort af svæðinu.
Hafnfirðingar kynnist framtiðarbyggingarsvæðinu bæjarins undir leið-
sögn sérfróðra manna. — Alþýöubandalagið I Hafnarfirði
Frá Hallormsstað.
Kjördæmisráðstefna á Austurlandi 19.—20. júni
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi heldur Vorráöstefnu
á Hallormsstaö (Hússtjórnarskólanum) um helgina 19.—20. júni
Rædd veröa m.a., sveitarstjórnarmál, samgöngumál og önnur hags-
munamál kjördæmisins.
Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson veröa á ráö-
stefnunni.
Fulltrúar i kjördæmisráði, nýkjörnir sveitastjórnarmenn og forystu-
menn Alþýðubandalagsfélaganna eru hvattir til aö sækja ráöstefnuna.
Kjördæmisráð
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i lögn hitaveituæðar frá brunni við
Hringbrautaðbrunniámótum Suöurgötu og Starhaga.
Utboösgögn eru afhent á skrifslofu vorri að Frikirkju-
vegi 3 gegn 1500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opn-
uð á sama stað miðvikudaginn 30. júní n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Utboð
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum i
smiði og uppsetningu á innréttingum i
mötuneyti starfsmannahúss við Búr-
fellsstöð.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu
Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68,
108 Reykjavik, gegn óafturkræfu gjaldi
kr. 100,- fyrir hvert eintak útboðsgagna.
Tilboðum skal skilað á sama stað kl.
14.00, miðvikudaginn 23. júni 1982,en þá
verða þau opnuð opinberlega.
Reykjavik, 11. júni 1982.
^LANDSVIRKJUN
_________________________________
Haukur Hlöðvir