Þjóðviljinn - 22.07.1982, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.07.1982, Síða 1
UOBVIUINN Fimmtudagur 22. júli 1982.164. tbl. 47. árg. Flugslysið: Erlent fyrirtœki höfðar mál gegn Eimskipafélaginu Skreiðarinnflytjandi i Nigeriu hefur höfðað mál á hendur Eim- skipafélagi tsiands vegna þess að hann telur að vanti upp á skreiðarfarma, sem Eimskipafélagið Hutti héöan I gámum til Hamborgar. Farmar þessir fóru héðan I fyrrahaust, i fimm ferðum alls, og segir innflytjandinn I Nígeríu, að farmbréf sitt hljóði upp á 6000 balla af skreiö, en Eimskipafélagið kveðst hafa gefið út farm- skirteini upp á 21 gám, en þeir eru 20 fet að lengd og rúma sam- tals ekki nema 4080 skreiðarballa. Eimskipafélagiö telur, að farmbréfi innflytjandans hafi verið breytt. Aðflugsradar ómannaður Rígur milli ráðuneyta veldur þvi að radarinn á Keflavík urflugvelli er ekki notaður við aðflug í Reykjavík Flugslysið á þriðjudags- kvöld hefur vakið menn til umhugsunar um öryggi í flugi og þau tæki sem eiga að aðstoða vélar í blind- flugi. Hér í Reykjavik eru blindflugstæki sem notuð voru er slysið varð, en á Keflavíkurflugvelli er hins vegar mjög fullkominn að- f lugstjórnarradar sem hægt er að nota fyrir að- flug að Reykjavikurflug- velli. Halda margir þvi fram að þessi radar hefði getað afstýrt slysinu sem varð á þriðjudag i Esjunni. Þessi radar er hins vegar aðeins notaður fyrir aðflug að Keflavik- urflugvelli og enginn maður er til aö fylgjast með aðflugi i Reykja- vik. Nauðsynleg öryggistagki Tekið er upp allt sem kemur inn á radarinn og var hægt að sjá eft- ir á þar sem flugvélin lenti á f jall- inu. Eru likur á að hægt hefði ver- ið aö afstýra slysinu ef maður hefði setið við radarinn og fylgst með aðfluginu 1 Reykjavik þetta kvöld er slysið varð. Þrjú ár eru siðan þessi radar kom til landsins og er hann það fulikominn að með honum er hægt að stjórn aöflugi að Reykjavlkur- flugvelli. A honum er hægt að sjá staðsetningu flugvélar og hæð i aðflugi. Siikir radarar þykja svo sjálfsagt og nauðsynlegt öryggis- tæki að þeir eru við flesta alþjóöaflugvelli iheiminum. Fjórir menn af Reykjavfkur- flugvelli hafa þegar lært á radar- inn erlendis en eftir að hann kom til landsins og tveir þeirra ætluöu að fara aö vinna viö hann, neituðu flugumferöarstjórar á Keflavik- urflugvelli að vinna með mönnun- um frá Reykjavik og þeim var til- kynnt I bréfi frá Helga Agústssyni deildarstjóra i utanrikisráðu- neytinu aö þeim væri óheimilt að vinna á Keflavikurflugvelli. Mál- efni flugvallarins i Reykjavik heyra hins vegar undir sam- gönguráðuneytið og þvi virðist Framhald 14. siðu Sumarbúðir á Laugarvatni Sjötiu og fimm manns, ungir sem aldnir, dveljast nú i sumarfrii og samveru á vegum Alþýðubanda- lagsins á Laugarvatni. Þjóðviijinn heimsótti fólkið sem þarna dvelur i fyrrakvöld, og var með þeim á kvöldvöku i Héraðsskólanum, þar sem höfuð- stöövar hópsins eru. i næstu viku veröur annar ámóta hópur á Laugarvatni á vegum Alþýðubanda- lagsins og vegna breytinga eru enn nokkur pláss laus i vikudvöl, er hefst nk. mánudag. Þeir sem hafa áhuga er bent á að hafa samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3. Simi 17 500. — Ljósm. eik. Gunnar Þorvaldsson framkvæmdastjóri Arnarflugs: Ráðherra verður að svara hvort verið sé að hygla einhverjum „Meö þvi að fletta dag- blöðunum geta menn séð hvort það var Arnarflug eða Flugleiðir sem hófu verðstríðið margumrædda Þar kemur í Ijós, að Flug leiðir auglýstu fyrstu ferð ina með lágu fargjöldun um", sagði Gunnar Þor valdsson framkvæmda stjóri Arnarflugs i viðtali við Þjóðviljann í gær. Gunnar var spuröur hvað væri hæft I þvi að sölumenn Arnarflugs hefðu gengiö á milli ferðaskrif- stofa i V-Þýskalandi og undirboö- iö fargjöld INugleiða og sagöi hann það algjörlega úr lausu lofti gripið. Þegar Kanada-auglýsing- una margumræddu bar á góma sagði Gunnar að þar heföu mistök átt sér stað. Arnarflug hefði ekki ferðaskrifstofuleyfi og þvi mætti félagið fljúga þessa leið, en ekki auglýsa. Hann vildi þó að það kæmi fram, að sú tiltekna auglýs- ing snerti Flugleiöir ekki á neinn hátt. Þarna hefði ekki veriö um neina samkeppni á flugleið að ræða. Vegna viötals viö Erling Aspe- lund I Rikisútvarpinu I gær vildi Gunnar taka fram, aö það væri alrangt aö aldrei hefði komiö fram sú ósk frá Arnarflugi aö fækka þyrfti starfsfólki Flugieiða á Keflavikurflugvelli. „Sannleik- urinn er sá,” sagði Gunnar, ,,aö við höfum keypt ýmiskonar þjón- ustu af Flugleiðum. Við reyndum að komast inn i nýja bókunar- kerfið þeirra, en þvi var hafnaö. Þess vegna keyptum viö okkar tölvutæki frá KLM-flugfélaginu,” sagöi Gunnar. Gunnar sagöi aö Flugleiðir ættu 40% hlutdeild i Arnarflugi og reynt hefði verið að kaupa hlutabréf Flugleiöa. Þann- ig hefði Karnabær, sem á hlut i Arnarflugi, óskaö eftir viðræðum um kaup, en þvl hefði veriö hafn- að. Sagöi Gunnar að það væri skemmtilegt aö fá að vita af hverju svo væri. Aðspurður sagðist Gunnar ekk- ert geta svarað fyrir Steingrim Hermannsson hvort meö skipt- ingu flugsins væri veriö aö hygla einhverjum ákveðnum aðilum. Sagðist hann ekki vera neinn tals- maöur Steingrims og sagði ráö- herrann veröa að svara þeirri spurningu. — hól. . Erling Aspelund um skiptingu j imillilandaflugsins: iPólitísk ólykt af þessu Hér er verið að vernda ákveðna aðila. Altalað að Sambandið vilji komast inn í flugið „Fiugleiöir hafa alla tið boðið farþegum sinum upp á sérfargjöld. Þetta hefur tiðk- ast I áraraðir og þvi er ekki um nein undirboð að ræða. Ástæðan fyrir sérfargjöldun- um er einföld. Viö höfum á stundum verið með tómar vélar hingað og þangaö og þvi er fólki gefinn kostur á þvi að ferðast ódýrt. A hinn bóginn hafa starfsmenn Arn- arflugs gengið á milli ferða- skrifstofa i Þýskalandi og undirboðið fargjöld, sem við höfum auglýst. Það voru þeir sem hófu vcrðstriðiö,” sagði Erling Aspelund fram- kvæmdastjóri stjórnunar- sviðs Fiugieiða, þegar Þjóö- viljinn ræddi við hann i gær um þá ákvörðun Steingrims Hermannssonar samgöngu- ráðherra að skipta milli- landafluginu einhliða upp á milli Arnarflugs og Flug- leiða. „Akvöröun ráöherra er stórfuröuleg. Við höfum ver- ið aö leggja i miklar fjárfest- ingar s.s. meö kaupum á Bo- eing 727 þotunni, höfum stokkað upp bókunarkerfiö og lagt geysilegan kostnað i auglýsingar. Svo kemur ráðherrann og strikar yfir þetta. Mér finnst vera póli- tiskur óþefur af þessu máli. Hér er verið að vernda ákveöna aðila. Hvaða? Sambandið. Þaö er altalaö að um langt skeið hafa sam- bandsfélögin veriö að reyna aö komast inn i flugið. Þá visa ég tali um einokun Flug- leiða algjörlega á bug. Viö erum i raun i harðri samkeppni á öllum okkar leiöum. SAS hefur t.d. aukið sætaframboð sitt hingaö til lands o.s.frv. Hitt er svo ljóst að hér geta ekki starfað tvö flugfélög. Til þess er mark- aðurinn of lltill. Þar höfum viö dæmin með Cargolux, og Air Viking,” sagöi Erling. Þjóðviljinn reyndi að hafa upp á Siguröi Helgasyni for- stjóra Flugleiða vegna þessa máls en hann er I frii um þessar mundir, og ekki var gerlegtaðnáihann. —hól.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.