Þjóðviljinn - 22.07.1982, Síða 7
Fimmtudagur 22. júlí 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Fjöldi barna er i hópnum og hér eru nokkur þeirra. 1 fremstu röð
eru Frimann og Arnór, i annarri röð Aslaug, Ljósbrá, og Garðar og i
efstu röð Leó Smári, Helgi og Rebekka.
Svo er hægt að gripa i spil. Carla Halldórsson og Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir.
Starfsliðið i eldhúsinu var fullt af fjöri og scndi gátu i bundnu máli
upp á kvöldvöku. F.v. Elisabct Jensdóttir, Gróa Grimsdóttir, Frið-
gerður Friðgeirsdóttir og Harpa Rós Björgvinsdóttir. t
Kátur hópur Skagamanna og fleiri. Þeir sem sitja viö borðið eru
(taldir f.v.): Lilja Ingimarsdóttir, Halldór Þorsteinsson, Rut Guð-
mundsdóttir, Dagbjört Sigurðardóttir, Bjarnfríður Leósdóttir,
Halldór Backman, Jóhanna Arnmundsdóttir og Arni Ingimundar-
son. Ljósm.: eik.
Millisvæðamótið í Las Palmas
Hverjir komast áfram
í áskorendakeppnina?
skák
Umsjón: Helgi ólafsson
„Ég hef hingað til teflt
vel og horfi bjartsýnis-
augum á framhald móts-
ins", skrifar Bent Larsen f
Ekstrabladet um gang
millisvæðamótsins í Las
Palmas. Á þvi stigi var
hann með 2v. og betri bið-
skák gegn Timman. Hol-
lendingnum tókst þó að
klóra sig framúr vandræð-
unum og halda jöfnu. Eftir
5 umferðir var það sovét-
maðurinn Vladimir Tuk-
makov sem náði efsta sæt-
inu með 3 1/2 vinning og
jaf ntef lislega biðskák
gegn landa sínum Pshakis.
•
Tukmakov var á árunum i
kringum 1970 talinn einn alefni-
legasti skákmaður Sovétmanna
og voru áhöld um hvor væri sterk-
ari Karpov eða hann. Hann náði 2.
sæti á eftir Fischer á miklu móti i
Buenos Aires 1970 og skömmu
fyrir áramótin 1971 fór hann tap-
laus úr geysisterku skákmóti i
Moskvu. Karpov deildi sigrinum
með Stein, Smyslov varð i 3. sæti
og I 4.-5. sæti komu Tukmakov og
Petrosjan.
Eftir það dró ský fyrir sólu og á
meðan Karpov kleif brattann með
eldingarhraða hallaði æ meira
undan fæti fyrir Tukmakov. Það
var ekki fyrr en i byrjun þessa
áratugar að aftur fór að rofa til. A
Sovétmeistaramóti siðasta fagn-
aði hann háu sæti og á svæðamóti
Sovétrikjanna komst hann i hóp 4
skákmeistara sem tefla á milli-
svæðamótunum þremur. Eftir
sigra yfir Petrosjan og Smyslov
má telja fullvist að Tukmakov
komist áfram. Hitt er öllum ljóst
að hann hefur ekkert frekar en
aðrir að gera i einvigi við Karpov
og að þvi leyti skiptir það engu
máli til eða frá hvernig mótinu i
Las Palmas lyktar.
Vitnað var i Larsen i upphafi
greinar og Ijóst er að hann eignar
sér hitt sætið. Fáir hafa hinsveg-
ar veitt þvi athygli að þótt Dan-
ann djarfa skorti ekki áræði til
stórra afreka þá virðist hann á
mikilvægum augnablikum tauga-
veiklaður um of.
Jan Timman, bakkaður upp af
fjölmörgum hollenskum aðilum,
ætti að eiga góða möguleika, en
upp á siðkastið hefur hann verið
Tumakov að tafli á millisvæða-
mótinu i Las Palmas.
Bcnt I.arsen: „Bjartsýnn á
möguleika mina.” Bent hefur eft-
ir 5 umferðir hlotið 3 vinninga.
Breski sállæknirinn David Bo-
adells mun halda tvö helgarnám-
skeið i geðheilsufræði Wilhelm
Reich i Reykjavik dagana 23.-25.
júli og 30. júlí-1. ágúst nk. Nám-
skeiðin eru aðskilin og er há-
marks þátttökufjöldi 15 manns á
sitt hvort námskeiðið.
David Boadells hefur að baki
tuttugu ára reynslu i sállækning-
araðferðum Reich og hefur sið-
astliðin sex ár haldið námskeið
viða um heim fyrir áhugafólk um
likamlegt og andlegt heilbrigði.
Hann hefur gefið út nokkrar bæk-
ur um Reich og er ritstjóri tima-
ritsins Energy & Character.
Þetta er i annað sinn sem Boa-
dells heldur námskeið hér á landi,
en i fyrrasúmar var hann með
námskeið sem þótti takast mjög
vel.
t báðum námskeiðunum mun
David Boadells gera aðferðum
skil sem nota má til að losa
spennta vöðva, leiðrétta ranga
öndun, bæta tjáningaraðferðir og
auka almenna likamlega vellið-
an. Jafnframt verður leitast við
að vekja tilfinningu fyrir lifsorku
likamans og tengsl hennar við lik-
amsástand og tilfinningaleg við-
brögð. Sýnt verður hvernig djúp-
æði mistækur og það er ekki spá
min að hann komist áfram. Ég
veðja á Ungverjann Zoltann
Ribli. Hann stendur sig ævinlega
vel i mótum af þessari styrkleika-
gráðu, hefur sérlega vel þjálfað-
an skákstil og fullkomlega skot-
helt byrjanakerfi. Smyslov og
Petrosjan mega fara að leggja
sig, i þeim skilningi, að þegar
menn eins og Smyslov eru búnir
að vera að berjast um heims-
meistaratitilinn frá 1948, þegar
allflestir þátttakendur i Las
Palmas voru langt frá þvi að vera
fæddir, þá hljóta menn að krefj-
ast þess að aðrir komast að. Pet-
rosjan byrjaði 1953 og gæti þess
vegna haldið áfram út öldina.
Raunar stórmerkilegt hve þessi
göfuga iþrótt fæðir af sér marga
roskna afreksmenn.
Aðrir en þessir sem upp hafa
verið taldir komast tæplega á-
fram. Lev Pshakis sem kominn er
yfir járntjaldið i annað skipti hef-
ur greinilega ekki áttað sig á
breyttum aðstæðum. Hann er
einn stigahæsti skákmaður móts-
ins með 2615 stig en hafði eftir 5
umferðir aðeins hlotið 1 1/2 vinn-
ing.
Sá sem þessar linur ritar hefur
verið að reyna að grafa upp skák-
ir hér og þar um bæinn, en árang-
urslaust. Fréttir berast seint og
illa af þessu móti og er það auð-
vitað mjög miður fyrir fjölmarga
unnendur skáklistarinnar hér á
landi.
— hól.
slökun getur opnað fyrir fólki ný
vitundarsvið. Meö samstarfi inn-
an hópsins verður reynt að skapa
jákvætt umhverfi sem eflir sjálfs-
traust fólks og persónuleg tengsl
við aðra. Námskeiöin eru opin öll-
um sem áhuga hafa á bættri lik-
amlegri og andlegri velliðan.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin eru i sima 86917 frá kl. 20-
23.
Námskeið í geðheflsufræði
V estur-Húnavatnssýsla:
Samvinna um heyskap
— Mjög góð sprettutiö hefur
veriö hér siðustu daga og víðast
hvar er byrjað að slá, sagði Aðal-
björn Benediktsson, ráöunautur á
Hvammstanga. Yfirleitt er komiö
ágætis gras en nokkur ástæða er
til að óttast aö sumstaöar verði
það ofsprottið.
Ef að sæmileg heyskapartið
verður i sumar ætti þvi að verða
nægur heyfengur en ekki er vist
að fóðurgildi hans verði að sama
skapi. Aðalbjörn sagði, að nokkuð
hefði verið þurrviðrasamt þar til
fyrir rúmri viku en þá brá til úr-
fella, einmitt þegar bændur voru
að byrja sláttinn. Suðvestanátt er
nú rikjandi en þá getur brugðið til
beggja vona með heyþurrkinn.
Sólskin er gjarnan annan sprett-
inn en skúrir hinn. Jörð kom vel
undan vetrinum og ber ekki á
nýju kali svo neinu nemi.
Nokkuð er um það, að bændur i
Vestur-Húnavatnssýslu, sem
verka vothey, hafi með sér sam-
vinnu um heyskapinn. Er algeng-?
ast aö þrir vinni saman og nýti i
sameiningu vélakost og mann-
afla. Reynist þessi samvinna á-
kaflega vel og fer þeim bændum
fjölgandi, sem taka þátt i henni.
Með þessu móti er unnt að slá og
hirða um 100 teningsmetra af heyi
á dag og tekur það þá tvo til þrjá
daga að fylla gryfjuna. Og þegar
gryfja hefur verið fyllt hjá einum
er fariö til þess næsta og svo koll
af kolli. Er þessi heyskaparsam-
vinna Húnvetninganna mjög til
fyrirmyndar.
—mhg.