Þjóðviljinn - 22.07.1982, Blaðsíða 10
eru
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. júli 1982
Hillir undir lýðræði í Argentínu?
Peronistar
enn í fullu
Eftir ófarirnar í Falk-
landseyjastriöinu stendur
herforingjastjórnin i
Buenos Aires mjög höllum
fæti. Þegar hillir undir að
einhverskonar lýöræöis-
stjórn veröi komið á fót i
Argentínu, beinast augu
manna fyrst að „Peron-
istum".
Juan Peron hóf sinn pólitiska
feril i stjórnarbyltingu ungra her-
foringja 1943. Þessir herforingjar
voru á margan hátt framsæknir,
— þetta voru miklii* þjóðernis-
sinnar sem voru ákveðnir i að rifa
Argentinu upp úr eymd og fátækt.
Hugmyndafræði herforingjanna
stóð á grunni sem var ákaflega
viður, en ekki að sama skapi
traustur. Þar mátti greina áhrif
frá bæði Marx og Mussolini. —
sem sé undarlegt sambland af
frosti og funa.
Fimmti áratugurinn með seinni
heimsstyrjöldinni og öllu þvi sem
henni fylgdi voru Argentinu-
mönnum góð ár. Landbúnaðar-
afurðir þeirra bæði kjöt og korn,
voru i háu verði á Evrópu-
markaði. Auðvclt reyndist þvi
fyrst i stað að skapa þjóðarein-
ingu um framfarir og félagslegar
umbætur. Peron var til þess að
byrja með atvinnumálaráðherra
og hafði sem slikur mikil áhrif
innan verkalýðshreyfingarinnar.
Hann var sá innan herforingja-
stjórnarinnar sem lengst gekk i
umbótakröfum fyrir verkalýðinn.
Varð hann af þessu svo vinsæll
meðal alþýðu, að heita mátti að
hann og kona hans væru komin i
dýrlingatölu þegar hann var kos-
inn forseti i almennum kosn-
ingum 1946.
Á næstu árum eftir forsetakjör
Perons urðu margvislegar fram-
farir og félagslegar umbætur i
Argentinu. Laun verkamanna
jukust verulega, verklýðsfélög
voru leyfð, almennum trygg-
ingum var komið á fót og konur
fengu kosningarétt. Um tima leit
út fyrir, að upp risi i Argentinu
þjóðfélag likt þvi sem við þekkj-
um hér á vesturlöndum og
kennum við velferð og lýðræði.
Meðan efnahagsskilyrði
Argentinu voru jafn hagstæð og
þau voru á fimmta áratugnum
rikti sem fyrr segir þjóöareining.
En þegar liða tók á sjötta ára-
tuginn versnuðu viðskiptakjör
Artentinu, og þess var ekki langt
að biða að einingin brysti. Yfir-
stétt Argentinu, — borgarar og
jarðeigendur, — voru nú ekki
lengur með i baráttunni fyrir
framförum og umbótum. Þessar
stéttir hafa i Argentinu, sem
öðrum löndum Suður-Ameriku,
sterk sambönd innan hersins. Þar
kom að hernum var beitt gegn
Peron og verkalýðshreyfingunni,
og 19. september 1955, eftir fjög-
urra daga borgarastyrjöld, féll
fjori
stjórn Perons. Peron komst
undan og flúði i útlegð til Spánar.
Peronisminn í dag
Þótt Peron væri flúinn til
Spánar lifði minningin um hann
og hin góðu ár hjá argentinskri
alþýðu. Arin eftir 1955 hafa ein-
kennst af ólgu og óstöðugleik i
argentiskum stjórnmálum.
Rikisstjórnir, ýmist herforingja
eða almennra borgara, hafa
komið og farið. Mikið blóð hefur
runnið. Allan þennan tima hefur
peronisminn þraukað. Peronism-
inn varð að mýtu eða nokkurs-
konar trúarbrögðum argent-
inskar alþýðu á timum mislukk-
aðra borgarastjórna og hrotta-
fenginna herforingja.
Eftir þvi sem kjör Argentinu-
manna versnuðu á sjötta og sjö-
unda áratugnum, urðu kröfurnar
um endurkomu og endurreisn
Perons sifellt háværari. Þar kom,
að herforingjarnir létu undan, og
i almennum kosningum 1973 var
Peronsinninn Hector Campora
valinn forseti. Arið eftir sneri
Peron heim úr útlegðinni. Peron
var kjörinn forseti sama ár.
Sem fy rr segir stendur hreyfing
peronista saman af mörgum
ólikum hópum. Þegar Campora
og Peron voru kosnir forsetar ’73
og ’74 var það fyrst og fremst
vinstri armur Peronista sem
studdi þá. Þeir voru menn fólks-
ins. Það kom hinsvegar i ljós eftir
að þeir höfðu náð völdum, að þeir
Peron lifir þótt dauður sé
drógu taum hægri Peronista, —
þeirra sem voru sem hrifnastir að
Mussolini, gegn verkalýðs-
hreyfingunni. Arin 1973 og ’74
logaði Argentina i óeirðum.
Hægri Peronistar stofnuðu sam-
tök gegn ,,kommúnisma” vinstri
Peronista. Þessi samtök höfðu
innan sinna vébanda þjálfaðar
sveitir vigamanna sem beitt var
gegn verkalýðshreyfingunni. Það
fór þó aldrei svo, að þeir Marx og
Mussolini enduðu ekki sinnhvoru
megin við götuvígin!
Þessari seinni stjórnartið
Perons lauk með valdaráni hers-
ins i mars 1976. Þá hafði linnulaus
skálmöld rikt i Argentinu um ára-
bil. A næstu árum hurfu sporlaust
minnst 15000 lýðræðissinnar og
félagar úr verkalýðs-
hreyfingunni. Dagar þessarar
herforingjastjórnar eru nú að
öllum likindum taldir, — slíkur
hnekkir og niðurlæging var út-
reiðin i Falklandsstriðinu. Þegar
aftur er farið að ræða um mögu-
leikann á lýðræði i Argentinu
kemur i ljós, að enn lifir þjóð-
sögnin um Peron meðal
argentinskrar alþýðu, — i hugum
stórs hluta Argentinubúa er
Peron ennþá maður fólksins —
maður framfara og félagslegra
umbóta. Peron virðist merkilegt
nokk vera einn af þessum
mönnum sem lifir þótt dauður sé.
— bv
V estur-Þýskaland:
Ráðherrar eru
bendlaðir við
mútuhneykslið
Margir hafa boðist til að taka að sér vörslu svefnskála drottníngar.
jVandræðin aukast
í höllu drottningar
; Reiðin sýður í konunghollum Bretum
Þrir stærstu bankar Vestur •
Þýskalands hafa nú I vikunni sætt
rannsóknum þýsku rikisendur-
skoðunarinnar. Svo virðist sem
mikið mútumál sé i uppsiglingu.
Þýskir stjórnmálamenn, — bæði
úr stjórn og stjornarandstöðu,
tengjast málinu.
Talsmenn tveggja stærstu
bankanna, Deutsche Bank og
Dresdener Bank, hafa staðfest að
rannsókn hafi verið gerð i bönk-
unum. Rannsóknin gengur útá að
kanna hvort i stofnunum þessum
finnist leynilegir reikningar sem
iðnfyrirtæki noti til að koma
greiðslum til stjórnmálamanna
sem væru þeim hliðhollir við op-
inbera ákvarðanir.
Þýska timaritið Der Spiegel
heldur þvi fram að i Dresdener
Bank hafi fundist gögn sem sanni
að þrir ráðherrar úr stjórn
Schmidts kansiara hafi tekið við
greiðslum frá vestur-þýsku
vopnaframleiðendunum Flick.
Um tima var talið að Willy
Brandt væri einn þeirra sem þeg-
ið hefði greiðslur frá Flick en það
hefur nú verið dregið til baka.
Þýski rikisendurskoðandinn hef-
ur einnig látið til skarar skriða
gegn hinum svokallaða „svarta
reikningi” Flicks fyrirtækisins.
Peningar af þessum reikningi
voru notaðir til aö „gleðja”
stjórnmálamenn óg i gjafir handa
stærstu stjórnmálaflokkum
Þýskalands.
Samkvæmt tilgátu þýska rikis-
saksóknarans hefur stórum hluta
mútufjárins verið varið I að
greiða þeim ráðherrum rik-
isstjórnarinnar sem gáfu Flick
fyrirtækinu undanþágu frá þeim
gróða sem fyrirtækið komst yfir
nýverið þegar að það keypti
hlutabréf fyrir 1,5 milljarð
þýskra marka. Þar að auki eru
ráðherrarnir grunaðir um að hafa
Schmidt kanslari I þungum þönk-
um. Tæpast vcrður mútumálið til
að bæta stöðu stjórnar hans.
veitt Flick leyfi fyrir vopnaút-
flutningi sem ekki samrýmist
þýskum lögum.
Bankastjórar og háttsettir
embættismenn blandast enn-
fremur inni málið. Þannig er t.d.
bankastjóri Dresdener Bank sem
sjálfur er fyrrverandi fjár-
málaráðherra úr rikisstjórn
kristilegra demókrata grunaður
um að vera i vitorði með vopna-
framleiðendunum Flick. U.þ.b.
100 háttsettir stjórnmálamenn og
embættismenn hafa verið bendl-
aðir við þetta mútumál sem gæti
orðið hið umfangsmesta i sögu
Sambandslýðveldisins. Meðal
þessa 100 eru leiðandi menn úr
öllum fjórum stærstu stjórnmála-
flokkunum, jafnaðarmönnum og
frjálslyndum sem eru i stjórn,
kristilegum demókrötum og
flokki Franz Josefs Strauss sem
eru i stjórnarandstöðu.
Yfirleitt hafa hinir grunuðu
neitað algjörlega allri vitneskju
um málið. Einn forystumanna
frjálslyndra hefur þó viðurkennt
að „vegna óréttlátra skattalaga
sem gilda um stjórnmálaflokka
geti þeir leiðst inná hættulegar
brautir”.
Enn aukast vandræöin
• viö ensku hiröina. I fyrri
| viku varö uppljóst að
I brotist hafði veriö inn hjá
I ElisabetuEnglandsdrottn-
■ ingu hinni annarri með
I því nafni. Og meir en það,
J — innbrotsþjóf urinn
• hafði ekki áhuga fyrir
| neinum minni háttar
| verðmætum í höllu
| drottningar, heldur aðeins
■ þvísem mestu máli skipt-
| ir, — sjálfri drottning-
I unni.
Tókst hinum óboðna gesti að
| komast hjá öllum hindrunum og
| varðmönnum alla leið inni það
I heilagasta af öllu heilögu sem er
■ svefnkammes drottningar. Þeg-
ar drottningin lauk sundur aug-
um um morguninn sat svolinn
delerandi á rúmstokknum.
Hafði honum tekist að verða sér
úti um flösku vins á ferðalagi
sinu gegnum höllina þá um nótt-
ina. Ekki hefur komið fram nein
skýring á þvi hvernig mögulegt
var fyrir næturgest drottningar
að ná fundum hennar né heldur
þvi hvað vakti fyrir honum.
Getgátur hafa verið uppi um
hvort hugsanlegt sé að maður
þessi sem sagður er ástriðufull-
ur konungssinni hafi ætlað sér
að leita lags við drottningu.
Heldur þykir það þó ósennilegt.
Svo miklir hugsjónamenn eru
tæplega til lengur.
Ekki hafði hin konungsholla
breska þjóð fyrr byrjað að
draga andann eftir innbrotið en
að nýr skandall marseraði inná
siður dagblaðanna. Sjaldan er
ein báran stök og The Sun selst
vel þessa dagana. Michael
Trestrail lögregluforingi i Scot-
land Yard, einkalifvörður
drottningar og persónulegur
vinur hirðarinnar er hommi.
Svo napur getur sannleikurinn
oft verið. Ekkert gat verið svi-
virðilegra. Það að Trestrail
hefði verið afhjúpaður sem
kommi, — einsog iðulega hefur
hent góðvini konungsfjölskyld-
unnar, hefði verið létt að
bera samanborið við þessa
smán. Hommi i návist drottn-
ingar er meira en sú siðgæðis-
vitund sem mótuð er af enskri
yfirstétt þolir, — þessari stétt
sem hefur þó fætt af sé bæði
fleiri og betri homma en aðrar
stéttir.