Þjóðviljinn - 22.07.1982, Side 11
Fimmtudagur 22. júll 1982 . ÞJOÐVILJINPí' — SlÐA 11 .
íþróttir[/J iþrottirj | iþróttir
Stuttar
fréttir
Siggi Sveins
til Nettelstedt
Sigurður Sveinsson, lands-
liðsmaður i handknattleik úr
Þrótti, leikur með v-þýska 1.
deildarliðinu Nettelstedt
næsta vetur. Með Nettelstedt
leikur annar islenskur lands-
liðsmaður, Bjarni Guð-
mundsson. Þetta er mikið
áfall fyrir lið Þróttar þar sem
Siggi hefur verið mesti
markaskorari þess undan-
farin ár, en á móti kemur að
bróðir hans, Guðmundur
Sveinsson, sem hefur verið i
Sviþjóð, leikur með þrótti i
vetur.
6. flokksmót
á Selfossi
Á Selfossi hófst i gær mót i 6.
aldursflokki i knattspyrnu en
þar leika 10 ára og yngri. Tiu
íið frá sex félögum, ÍÁ, ÍBK,
Tý, Vikingi, Gróttu og Sel-
fossi, taka þátt i mótinu sem
lýkur á mánudag Það er
tþróttamiðstöðin á Selfossi
sem sér um framkvæmd
mótsins og dvelja keppendur i
henni á meðan það stendur.
Arnór frá
Lokeren?
Ekki er vist að Arnór Guð-
johnsen landsliðsmaður i
knattspyrnu verði áfram hjá
belgiska félaginu Lokeren.
Samningur hans við félagið
rann út i sumar og ekkert
hefur gengið i umræðum um
nýjan samning. Þá eru allar
likur á að Janus Guðlaugsson,
landsliðsmaður hjá v.-þýska
félaginu Fortuna Köln, skipti
um félag áður en keppnis-
timabilið hefst i haust.
Huginn vann
á Hornafirði
Huginn frá Seyðisfirði vann
Sindra 3:1 á Hornafirði
i B-riðli 3. deildar i knatt-
spyrnu i fyrrakvöld. Hinn 17
ára gamli Arnar Jónsson
skoraði fyrsta markið fyrir
Hugin og Haraldur Leifsson
bættiöðru við fyrir hlé. Svein-
björn Jóhannsson kom Hugin i
3:0 með skoti af 30 m færi en
Erlingur Grétarsson minnkaði
muninn i 3:1 með marki úr
vitaspyrnu. KS, Huginn og
Tindastóll hafa nú 16 stig
hvert á toppi riðilsins en tvö
þessara fara i urslitakeppn-
ina um sæti i 2. deild.
Eðvard og Guðrún
Fema til Innsbruck
Sundfólkið efnilega, Eðvard
Þ. Eðvardsson úr UMFN og
Guörún Fema Agústsdóttir úr
Ægi, tekur þátt i unglinga-
meistaramóti Evrópu i Inns-
bruck i Austurriki dagana
26.-29. ágúst. Þau halda þann
28. júli til Sviþjóðar þar sem
þau æfa með sænska lands-
liðinu I boði landsliðsþjálfara
Svia fram að mótinu. Miklar
vonir eru bundnar við
frammistööu þeirra i Inns-
bruck og telur sænski lands-
liðsþjálfarinn Eðvard vera
eitt mesta efni sem hann hefur
séð.
Góður sigur
Valsstúlkna
Valsstúlkurnar unnu góðan
sigur á Islandsmeisturum FH
I utanhússmótinu i handknatt-
leik I gærkvöldi. Valur vann
14:10 eftir 8:3 i hálfleik. I
karlaflokki vann FH HK 26:20
(15:9) og Valur sigraði
Breiðablik 27:16 (14:8) 1 kvöld
kl. 19 leika Haukar-IR og kl. 20
Fram-Valur i kvennaflokki og
kl. 21 KR og HK i karlaflokki.
Bikarkeppni
KSÍ:
Bikardraumur Blikanna varð
að engu þegar Skagamenn sóttu
þá heim I Kópavoginn i gær-
kvöldi. 1A fékk óskabyrjun,
mark á 3. minútu, og eftir þaö
var alltaf á brattann að sækja
hjá Breiðabliki. ÍA sigraði 2:1
og fögnuður þeirra Skaga-
manna I leikslok var mikill,
enda hafa þeir ekki að neinu að
keppa nema bikarnum eftir
þetta, og svo aö sjálfsögðu að
halda sæti sinu I 1. deildinni.
Strax á 3. min. fékk IA auka-
spyrnu um 20 m frá marki
Breiðabliks. Kristján Olgeirs-
son lyfti knettinum snyrtilega
yfir vamarvegginn og i netiö.
Skagamennirnir Jón Askelsson og Sigurður Lárusson stöðva þarna eina Blikasóknina af mörgum I
Kópavoginum i gærkvöldi. Mynd: eik
Blikadraumurmn búinn
Akranes, Keflavik, Vikingur og KR komin í undanúrslitin
Skotið var laust en nokkuð
óvænt og Guðmundur mark-
vörður Ásgeirsson hefur senni-
lega frekar reiknað með aö Arni
Sveinsson myndi skjóta.
A 9. min. átti Sveinbjörn
Hákonarson fallegt skot af um
25 m færi utan af kanti. Knött-
urinn sveigði glfurlega og virtist
stefna I hornið fjær en small I
samskeytum Blikamarksins og
aftur fyrir. Skömmu síðar fékk
Kristján gott færi þegar Guð-
mundur Blikamarkvörður
missti knöttinn en Blikar björg-
uðu i horn. Breiðablik fékk siðan
dauðafæri á 31. mln. þegar
Hákon Gunnarsson skaut fram-
hjá af markteig eftir gegnum-
brot Sigurjóns Kristjánssonar.
A 34. mín. fékk svo Kristján
Olgeirsson knöttinn á markteig
Blikanna eftir fyrirgjöf Arna og
skoraði, 0:2 fyrir IA.
En á 42. mín. minnkaði
Breiðablik muninn. Sigurður
Grétarssonskautaf25m færiog
knötturinn datt niður, enda
skotið gegn sterkum vindi, fyrir
aftan Davið markvörð, 1:2, og
Blikar hurfu vongóðir til leik-
hlés.
Þeir sóttu siöan linnulitið
framan af siöari hálfleik en
sköpuðu sér fá færi. Jóhann
Grétarsson átti gott skot á 60.
mln. en Davið varöi, missti
knöttinn en gómaöi hann siðan.
IA fékk hættuleg skyndiuR)-
hlaup og eftir eitt slikt fékk Sig-
þórOmarsson knöttinn frá Arna
en fyrirgjöf hans rann óáreitt
framhjá Blikamarkinu.
Hinn kornungi Siguröur
Jónsson sýndi oft og sannaöi að
þar er gifurlegt efni á ferö og á
77. mín. átti hann gott skot að
marki Breiðabliks úr þröngu
færi en Guðmundur náði að
verja. Loks á 87. mín. fékk Sig-
þór algert dauöafæri en hnoðaði
tuðrunni framhjá á óskiljan-
legan hátt.
IA hélt þvl slnu gegn
vindinum og siglir I undan-
úrslitin en Blikarnir verða nú að
einbeita sér að 1. deildinni.
Slakir KR-ingar
mörðu sigur
KiRverður aö leika betur i
undanúrslitum bikarkeppn-
innar en gegn 2. deildarliði
Reynis frá Sandgerði i gær-
kvöldi ef þeir ætla sér einhvern
hlut þar. Sandgerðingar komu á
óvart I Laugardalnum I gær-
kvöldi, voru ákveðnari en
Vesturbæjarliöið og hefðu getað
náð hagstæöari úrslitum.
Það var Öskar Ingimundar-
son sem skoraði eina mark
leiksins á 19. mln. Hann fékk
sendingu frá Sæbirni
Guömundssyni og skot hans frá
vltateigs linu hafnaði I horninu
nær. Reynismenn sóttu mun
meir það sem eftir var leiks en
sköpuðu sér engin umtalsverð
færi. Helst var hætta á 34. mín.
þegar Hálfdán Orlygsson bjarg-
aöi á marklinu KR. Besta færi
KR kom hins vegar á 51. mín.,
þegar Magnús Jónsson áttiskot
i þverslá.
Ekki er hægt aö geta þessa
leiks án þess að minnast á aö
hann gat ekki hafist fyrr en 15
mlnútum eftir átta vegna þess
að annan linuvörðinn vantaöi.
Skammarlegt og óvirðing gagn-
vart leikmönnum og áhorf-
endum.
tBK yfirspilaði
slaka Framara
Fram átti aldrei möguleika
gegn frisku liði IBK suður i
Keflavik I gærkvöldi og mátti
þakka fyrirað sleppa með 3:0 á
bakinu. Var það mál manna þar
syðra að þetta væri einn besti
leikur IBK i mörg ár og liöið er
nú komið i undanúrslit bikar-
keppninnar.
IBK óð I færum og Einar As-
björn átti skalla og skot I stöng
áður en hann skoraöi fyrsta
markiö á 18. mln. Þá björguðu
Framarar á linu og vildu sumir
meina aö knötturinn heföi fariö
innfyrirhana. Á41. min. skoraði
Kristinn Jóhannsson glæsimark
eftir samvinnu við Danlel Ein-
arsson, hörkuskot eftir ,,þri-
hyrning” sem ;illa staðsettur
Guðmundur Baldursson réð
ekkert við. Magnús Garöarsson
braust upp vinstra megin á 62.
mln. og sendi fyrir mark Fram
þar sem Oli Þór Magnússon var
einn, og óvaldaður og skoraði
þriðja markið frá vltapunkti,
3:0 og mörkin hefðu getað orðið
fleiri.
Sigurður Björgvinsson var yf-
irburðamaöur I liði IBK og besti
maður vallarins. Hjá Fram var
Hafþór Sveinjónsson einna
skárstur en liöið var algerlega
heillum horfið i þessum bikar-
leik.
Öruggur Vfkings-
sigur fyrir norðan
Vikingar unnu gööan sigur á
KA á Akureyri, 3:1 og voru mun
betri aðilinn. Eina mark fyrri
hálfleiks skoraöi Heimir Karls-
son fyrir Vfking eftir 15 minútur
og snemma I þeim siðari bætti
Sverrir Herbertsson öðru við,
0:2. Ragnar Rögnvaldsson sem
nú skorar grimmt fyrir norðan-
menn, minnkaöi muninn i 1:2 en
það dugði skammt þvi Sverrir
skoraði aftur og innsiglaði ör-
uggan Vikingssigur 1:3, og Vik-
ingarnir eru i baráttu um báða
bikarana.
Undanúrslitin
komin á hreint
Þaö er þvi ljóst hvaða fjögur
lið berjast um sigur i bikar-
keppni KSl 1982. IA, Víkingur,
IBK og KR eru kotnin i undan-
úrslitin en þau fara fram mið-
vikudaginn 11. ágúst.
—VS/B
1. deild kvenna ... 1. deild kvenna ... 1. deild kvenna 1. defld kvenna....
Skagastúlkurnar voru næstum þvi
búnar að stela sigrinum í lokin
— en það hefði verið ósanngjamt þar sem KR var mun betri aðilinn
KR og ÍA gerðu markalaust
jafntefli I 1. deild kvenna á
tslandsmótinu I knattspyrnu f
fyrrakvöld. Leikurinn var nokkuð
jafn i fyrri hálfleik og sóttu liöin
til skiptis.
KR-stúlkur komu tvíefldar til
leiks i seinni hálfleik og ætluðu
sér greinilega að leggja Skipa-
skagastúlkumar að velli. Þær
sóttu stanslaust en einhvern
veginn vantaöi alltaf að reka
endahnútinn á sóknirnar. Þær
voru mjög óheppnar, áttu ein tvö
stangarskot og tvisvar björguöu
lA-stúlkurnar á siðustu stundu.
1A átti þrár skyndisóknir I
siðari hálfleik. Sú hættulegasta
kom þegar tvær mlnútur voru til
leiksloka. Laufey Sigurðardóttir
fékk stungusendingu fram
völlinn, rak knöttinn áfram, KR-
markvörðurinn hikaði og bakkaði
siðan en þá missti Laufey knött-
inn of langt frá sér og mark-
maðurinn var snöggur út úr
markinu og bjargaði á siðustu
stundu.
EWtí heföi verið ósanngjarnt
eftir 'gangi leiksins að Vestur-
bæjarliið heföi hlotið bæði stigin,
en þaö eru mörkin sem ráða.
— MHM