Þjóðviljinn - 22.07.1982, Page 16

Þjóðviljinn - 22.07.1982, Page 16
mavnnNN Fimmtudagur 22. júll 1982 Tvær Akraborg- ir í f örum Frá og með deginum i oag verða tvær ferjur og báðar undir heitinu Akraborg I ferðuin á milli Reykjavikur og Akraness. Astæðan fyrir þvi að gamla Akraborgin hefur á ný verið tekin i notkun er sú, að umferð hefur aukist mjög sjóleiðis til Akraness, eftir að nýtt skip var tekið I notk- un. Svo mikið, að hið nýja skip hefur engan veginn annað flutn- ingunum, þrátt fyrir mun meiri flutningagetu en hið gamla hafði. Forráöamenn Skallagríms hf., sem rekur Akraborgirnar tvær telja að tvö skip geti annað öllum bílaflutningunum á þessari leiö og þvi eigi það að vera úr sögunni aö ökumenn þurfi frá aö hverfa með bíla sina. Tvö skip verða í förum frá fimmtudegi til mánudags, en eitt skip á þriðjudögum og miöviku- dögum. Alþjóða hvalveiði- ráðstefnan: Mælt með kvóta- skerðingu Samþykkt var kvótaskerðing á öllum hvalategundum sem is- Iendingar veiða, á fundi tækni- nefndar Alþjóða hvaiveiðiráðsins i Brighton I Engiandi i gær. Tillagan frá Oman um að minnka langreyðakvóta tslend- inga úr 194 dýrum i 73 var sam- þykkt með 15 atkvæðum gegn 10 og sömuleiðis var tillaga Þjóð- verja um að leyfa engar veiðar á sandreyðum samþykkt. Hrefnu- kvóti Islendinga og Norðmanna var skorinn niður um 32 dýr, úr 320 i 288. Aö sögn Arna Einarssonar, fulltrúa Náttúruverndarráös á ráöstefnunni er litið hægt að segja á þessu stigi hvað muni gerast á aöalfundinum þvl þar á eftir að fara fram mikið leynimakk á óformlegum fundum. Þó er vafa- samt að þessar tillögur tækni- nefndar nái fram að ganga, nema þær þjóðir sem setið hafa hjá taki virka afstöðu með friðunarmönn- um. Tvoþriðju hluta atkvæða þarf á aðalfundinum til að tillögur teljist samþykktar af Alþjóða hvalveiði- > ráðinu. Búist er við að aðalfundur hefjist siðdegis i dag. —úþj Auglýsing friöunarsinna, sem birtist nýiega I Newsweek, þar sem fólk er hvatt til að kaupa ekki vörur frá hvalveiðiþjóöunum. Abalilmi Þjóöviljans er 81333 kl. 8-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiðslu blaösins i slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöid. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Eggert Isaksson hjá Hval hf Komið við í Hval- stöðinni Sjá opnu „Þurfum ekki að réttlæta neitt” Auglýsingar friðunarsinna ekki nýnæmi ,/Viö þurfum ekki að réttlæta eitt eöa neitt í sambandi við hvalveiðar okkar. Þessar veiðar hafa verið stundaðar hér síðan 1948 og við teljum þetta ekki ómerkari þátt í at- vinnusögu þjóðarinnar en hvað annað". sagði Eggert tsaksson hjá Hval hf., er blm. Þjóðviljans spurði hann hvernig þeir réttlættu hva Iveiðar sínar á tímum þegar friðunarsjónarmið virtust eiga vaxandi fylgi að fagna meðal margra þjóða heimsins. „Það er siður en svo, að mati sjómanna okkar, að hvalastofn- inn fari minnkandi”, hélt Eggert áfram, „án þess að maöur geti svo sem sannað það með borð- leggjandi staðreyndum. Þaö virðist einnig vera, aö visinda- menn liti svipaö á málin, allavega hafa þeir ekki mælt með veiöi- banni, en þeir fara varlega I sak- Denis nokkur Barrachin frá Frakklandi var að skoða sig um i Hvalstöðinni hér á dögunum, er blm. Þjóðviljans var þar á ferö. Aðspurður um hver afstaða hans væri til hvaiveiðimála, sagðist hann vera algjöriega á móti öllu hvaladrápi og styðja heilshugar þá baráttu sem Grænfriðungar og aðrir friðunarsinnar hafa uppi til verndunar hvalnum. mynd: gel. irnar og þvl hefur kvótinn veriö minnkaður verulega.” — Hvað viltu segja um aug- lýsingu friðunarsinna I erlendum blöðum, þar sem þeir hvetja fólk til að kaupa ekki vörur frá hval- veiðiþjóðum, þar á meöal íslandi? „Það er ekkert um þessa aug- lýsingu að segja. Hún hefur komið oft áður og er ekkert ný- næmi fyrir okkur. Það er ósköp skiljanlegt aö þessir hópar reyni aö nota allar aðferðir til aö ná fram sinum málstað.” — Geta ekki svona auglýsingar skaðað annan útflutning okkar tslendinga? „Mig minnir að það hafi verið upplýst I fyrra, I viötali við Þor- stein Gislason, forstjóra sölu- félags SH i Bandarikjunum, að þeir hefðu ekki merkt að þessar auglýsingar hefðu haft nein áhrif, til hins verra, á sölu fslenskra afuröa þar ytra. Það er nú frekar að svona hlutir veki athygli hér heima og komi róti á hugi fólks, en athyglin sem þeir fá úti er mjög takmörkuö.” -áþj Nöfn þeirra sem fórust Meö flugvélinni sem fórst I hllðum Esju á þriðjudags- kvöld fórust fimm manns. Þau voru Jón Þröstur Hlið- berg flugmaður 24 ára, Alf- hólsvegi 31, Kópavogi. Hann lætur eftir sig konu og eitt barn. Hjónin Björn Magnús- son fyrrum slökkviliðsmaður á Keflavikurflugvelli 49 ára og Svanhvit Gunnarsdóttir 47 ára, Faxatúni 5, Garðabæ. Börn þeirra Margrét Auður 25 ára hjúkrunarnemi og Axel Magnús 23 ára nemi. Björn og Svanhvit láta eftir sig tvö uppkomin börn. Menn frá Loftferðaeftirlit- inu og rannsóknarnefnd flug- slysa fóru á vettvang i gær og söfnuðu gögnum um slys- ið. Þeir gátu ekkert sagt um orsakir slyssins og töldu að rannsóknin myndi taka nokkurn tlma. —kjv Norð-Austurland: Slitlag á 33,5 km Ákveðiö er að leggja bundið slitlag á fimm veg- arkafla í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu nú í sumar, alls 33,5 km., sagði Guðmundur Svavarsson, umdæmisverkfræðingur hjá Vegagerðinni á Akur- eyri okkur í gær (miðviku- dag), en of snemmt er að staðhæfa að sú áætlun standist að fullu, bætti hann við. Þessir kaflar eru frá Hrisum aö Dalvik, 2 km., og 1,5 km. um Kálfaskinn á Arskógsströnd, báð- ir á Ólafsfjaröarvegi. A Norð- austurvegi verður lagt á 17 km. kafla frá Skjálfandafljótsbrú að Laxárbrú og svo á veginn frá Laxamýri til Húsavikur en það eru um 9 km. Loks koma svo 4 km. umhverfis þéttbýlið i Reyni- hlið viðMývatn. Að öðru leyti sagði Guömundur Svavarsson að stærstu verkefnin við vegagerö I umdæmi hans nú væri vegurinn um Vikurskarö en til hans er veitt 7 milj.kr. Mun sú fjárveiting væntanlega duga til þess, að undirbyggingu vegarins verði hartnær lokið. Þá er og unniö að vegagerð i mynni Svarfaöardals og er þaö i Ólafs- fjarðar-, Svarfaðardals- og Skíða- dalsvegum. Unnið er I Eyjafjarö- arbraut vestari hjá Melgeröi. Er þaö allmikið verkefni, sem boöið var út. Næst er þá að venda sér austur á Melrakkasléttu. Verður reynt aö ljúka uppbyggingu veg- arins frá Höskuldarnesi til Rauf- arhafnar og þegar það er frá hef- ur uppbyggingu vegarins yfir Melrakkasléttu verið lokið. Minni fjárveitingar eru svo til einstakra vega sem tilheyra þjóð- brautum eins og til Ólafsfjaröar- vegar hjá Vatnsenda, Báröar- dalsvegar vestari um öxará, Staðarbrautar við Eyvindariæk, Uppsveitarvegar i Kelduhverfi, Langanesvegar og fjárveiting er til Miöbrautar hjá Hrafnagili. Þar er og verið að ljúka viö brú yfir Eyjafjaröará, sem byrjað var á i fyrra. Er gert ráö fyrir að hún veröi opnuð til umferðar núna þann 15. ágúst. Einnig brú á Svarfaðardalsá hjá Dalvik, sem lika var byrjaö á árið sem leiö. Stefnt er að þvi að opna hana til umferðar 15. okt. i haust. —mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.