Þjóðviljinn - 07.10.1982, Side 16
Fimmtudagur 7. október 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285,Jijósmyndir 81257. afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. i 81333 81348
Rekstur nokkurra sjúkrahúsa:
Daggjöld oft
ekki í sam-
ræmi við
kostnaðínn
Rætt um efna
hagskerfið
Alþýðubandalagið í Reykjavík
gengst fyrir fundi í kvöld þar sem
rætt verður um efnahagskernð á
íslandi og er Þröstur Ólafsson hag-
fræðingur frummælandi. Hér er
um annan fundinn að ræða í fund-
aröð félagsins um efnahagsmál.
Fundurinn verður í Sóknarsaln-
um að Freyjugötu 27 og hefst kl.
20.30. Eru allir félagar og stuðn-
ingsmenn Alþýðubandalagsins
hvattir til að fjölmenna.
Flokks-
pólitík í
fyrirrúmi
Borgarstjórn fjallar í dag
um tillögur Davíðs Oddssonar
um tiifærslur cmbættismanna
innan stjórnkerfís borgarinn-
ar og cndurskipulagningu á
embættismannatoppnum.
Ekki er verið að fækka
mönnum, því engum er sagt
upp skv. tillögunum, en sex
embætfísmcnn cru fíuttir til
allt frá fulltrúa skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings til
stöðu borgarritara.
Hefur tillögunum verið líkt
við færiband, flokkspólitískar
hrókeringar og úthlutun launa
fyrir dyggileg störf, en engin
af hinum nýju starfsheitum
verða auglýst skv. tillögu
borgarstjóra.
í bókun Sigurjóns Péturs-
sonar í borgarráði kemur
fram, að með tillögunum sé
gróflega gengið fram hjá
þeirri meginreglu að auglýsa
skuli stöður, en tillaga Guð-
rún'ar Jónsdóttur þar um hlaut
aðeins tvö atkvæði í borgar-
ráði.
Guðrún Jónsdóttir.bendir á
í sinni bókun, að þar sem eng-
in rök fylgi tillögunum og eng-
ar stöður eigi að auglýsa, sé
hér um pólitískar hrókeringar
að ræða og grunur vakni um
að flokkspólitískir hagsmunir
ráði fyrst og.fremst ferðinni.
Tillögurnar leiði hvorki til
einföldunar né sparnaðar í
rekstri borgarinnar.
Sérstök nefnd hefur starfað
frá hausti 1980 til að gera athug-
anir á starfsmannahaldi nokk-
urra sjúkrahúsa og hæla með
það fyrir augum að gera rekst-
uriinn sem hagkvæmastann á
hverjum stað. Þar kom m.a. í
ljós að sveitarstjórnir eru of af-
skiptalitlar um stjórnun og
rekstur sjúkrahúsanna og að oft
er ekki aflað heimilda stjórn-
valda til rekstrarbreytinga áður
en í þær er ráðist.
Nefnd þessi, sem hlaut nafnið
Sjúkrahúsanefnd og var skipuð af
heilbrigðis- ogfjármálaráðherrum,
hefur kannað rekstur Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, sjúkra-
húsanna á Húsavík, Keflavík,
Neskaupstað og Landakoti í
Reykjavík, og var greinargerðum
skilað að hverri og einni könnun
lokinni.
Mjög fáar athugasemdir voru
gerðar við fjölda starfsmanna, en
oft virðist rnikið um hlutastörf sem
gerðu allan rekstur óhagkvæmari
en ella. Þá lagði nefndin til að sum
húsanna þyrftu á sérhæfðara starfs-
liði að halda.
Það, að heimilda skuli ekki alltaf
leitað til stjórnvalda fyrir rekstrar-
breytingum sjúkrahúsanna, leiðir
til ósamræmis í daggjöldum, og
j segir í áliti sjúkrahúsanefndarinnar
' að daggjaldanefnd sjúkrahúsa fái
ekki nauðsynlegar upplýsingar um
raunveruleg rekstrarumsvif sjúkra-
stofnana til þess að ákveða dag-
gjöld þannig, að rekstur verði í
jafnvægi. Er lögð á það áhersla að
endurskoða verði reglur um dag-
gjöldin og hækkun þeirra í sam-
ræmi við verðlag.
Ákveðið hefur verið að sjúkra-
húsanefnd athugi næst rekstur
Borgarspítalans í Reykjavík.
-v.
Atómstöðin
irumsýnd
nyrðra
Fyrsta frumsýning Leikfélags
Akureyrar á þessu hausti cr í kvöld,
en þá verður Atómstöðin frumsýnd
í nýrri leikgerð leikstjórans, Bríet-
ar Héðinsdóttur.
í fyrra leikstýrði Bríet einnig
eigin leikgerð hjá LA, á Jómfrú
Ragnheiði, og var sú sýning rnjög
rómuð. Sigurjón Jóhannsson gerir
leikmynd, Ingvar Björnsson sér
um lýsingu og Viðar Garðarsson
um leikhljóð. Hlutverk Uglu leikur
Guðbjörg Thoroddsen, en þetta
hlutverk er meðal stærstu kven-
hlutverka í leikbókmenntum ís-
lendinga. Árlandshjónin leika þau
Theodór Júlíusson og Sunna Borg,
en með önnur stór hlutverk fara
Ragnheiður Tryggvadóttir, Bjarni
Ingvarsson, Þórey Aðalsteinsdótt-
ir, Marinó Þorsteinsson, Þráinn
Karlsson, Arnór Benónýsson,
Gestur E. Jónasson, Kjartan
Bjargmundsson og fleiri.
Sala áskriftarkorta er hafin hjá
LA. -þs.
Á þessari klippimynd má sjá húsnefndina sem framkvæmdastjórn skipaði fyrir skömmu en verkefni
hennar er að sjá um að innrétta efstu hæðina á Hverfisgötu 105, hinni nýju félagsmiðstöð Alþýðubanda-
lagsins. Ljósm.-eik.
Takmarkiö er fjöl-
breytt félagsmiðstöð
„Það er Ijóst að við þurfum
að safna verulegum fjármunum
til að geta innréttað og búið
þetta nýja húsnæði eins og best
má verða, og í þeim efnum get-
um við aðeins trcyst á flokks-
menn og stuðningsmenn
hreyfíngarinnar,“ sagði Baldur
Óskarsson, framkvæmdastjóri
Alþýðubandalagsins í gær. Ný-
lega skipaði framkvæmdastjórn
Alþýðubandalagsins 7 manna
húsnefnd til að sjá um innrétt-
ingar í hinni glæsilegu félags-
miðstöð við Hverfísgötu 105, og
hefur nefndin einnig það verk-
efni að afla fjár til framkvæmd-
anna. I henni eiga sæti auk
Baldurs Óskarssonar, þeir Art-
húr Morthens, Grétar Þor-
steinsson, Ingi R. Helgason,
Jónsteinn Haraldsson, Stefán
Sigfússon og Þorbjörn Guð-
mundsson.
„Ég er mjög ánægður með
þær undirtektir sem þessi kaup
hafa fengið,“ sagði Baldur.
„Húsnæði flokksins við Grettis-
götu hefur um árabil sett félags-
starfinu nokkuð þröngar
skorður, en á Hverfisgötunni
höfum við möguleika til að
skapa aðstæður fyrir fjölbreytt
og lifandi félagsstarf á vegum
hreyfingarinnar. Þetta nýja
húsnæði getur því orðið mikið
lyftistöng fyrir starfið, ekki síst
hjá félaginu í Reykjavík. Ég
finn það líka að um staðarvalið,
nálægðina við Hlemm, og að-
stæður allar ríkir óvenjulega
mikil ánægja og samstaða hjá
flokksmönnum."
-Hvenær verður hægt að
taka nýja húsnæðið í notkun?
Við fáum það afhent 1. janú-
ar n.k. tilbúið undir tréverk og
málningu, en vonandi getum
við farið að vinna að innrétting-
um nokkru fyrr. Húsnefndin
hefur fengið arkitektana Sigurð
Harðarson og Magnús Skúla-
son til liðs við sig til að hanna
innréttingar og koma öllu sem
best fyrir, og þeir hafa þegar
skilað fyrstu tillögum. Við
undirbúning málsins hefur ver-
ið lögð á það áhersla að skapa
hinum ýmsu starfseiningum
flokksins góða aðstöðu til fund-
arhalda og vinnu, en árangur-
inn fer að sjálfsögðu eftir því
hversu til tekst með fjársöfnun í
húsið. Fjársöfnunin er í undir-
búningi og hún mun fara fram á
vegum Alþýðubandalagsins og
einstakra félagsdeilda þess.
Sósíalísk hreyfing hefur alltaf
orðið að treysta á stuðning
fjöldans í stórátökum sem þess-
um, og ég heiti á menn að
bregðast vel við þeim félögum
sem til þeirra leita í þessu
skyni,“ sagði Baldur Óskarsson
að lokum. -ÁI
Á heimiii organistans: Gestur E. Jónasson, Arnór Benónýsson, Kjartan Bjargmundsson, Þráinn Karlsson,
Gunnar Ingi Gunnsteinsson, Þórey Aðalsteinsdóttir og Marinó Þorstcinsson. Á innfelldu myndinni er Ugla,
Guðbjörg Thoroddsen.