Þjóðviljinn - 26.11.1982, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. nóvember 1982
Atvinnuleysi fylgir
íhaldsstjórnum
Engin tilviljun að hér er næg atvinna
IMa,
aZna,
'r4n
uni
nnin
ráðhe,
l’Qnt,
n-a
'rn
raust
Óneitanlega var það góð hug-
mynd hjá þingflokki Alþýðuflokks-
ins að bera fram tillögu um van-
traust á ríkisstjórnina. Býsna góð
hugmynd.
Að sjálfsögðu var fyrirfram vit-
að að tillagan yrði felld. Enginn
hefur efast um það. Með flutningi
þessarar tillögu er því Alþýðu-
flokkurinn að tryggja á ótvíræðan
hátt, að Alþingi lýsi yfír trausti á
núverandi ríkisstjórn.
Þetta var flutningsmönnum að
sjálfsögðu fullljóst, þegar þeir
lögðu tillöguna fram. Ríkisstjórnin
hefur líka sannarlega þörf fyrir - á
erfiðum tímum - að fá ótvírætt
traust þingsins. En kannski var það
eitthvað annað sem forystumenn
Alþýðuflokksins sáu í þessum til-
löguflutningi. Þeim var sem sé
ljóst, að ríkisstjórn, er hlýtur form
legt traust Alþingis, rýfur varla
þing strax á eftir og efnir til kosn-
inga. Þetta er því í rauninni kænleg
viðleitni til að draga kosningar á
langinn.
En nú spyr kannski einhver: Er
það ekki einmitt krafa Alþýðu-
flokksins að þing verði rofið og efnt
verði til kosninga sem fyrst?
Að vísu. En áreiðanlega er það
ekki í fyrsta skipti nú að menn
segja eitt og vona allt annað. Engir
hafa jafn takmarkaðan áhuga á því
stjórnarandstöðu eins og gengur,
en miklu oftar í ríkisstjórn og yfir-
leitt forystuafl, innan eða utan
stjórnar.
En á íslandi eru svokallaðir Sósí-
aldemókratar afvelta og utangarðs
í sjálfskipaðri útlegð hvort sem
hægri- eða vinstrisinnuð stjórn er
við völd, svo að helst hlýtur að
minna á óþægan krakka á stóru
heimili.
Á pólitískt
ofstœki að ráða
ferðinni
Það er haft fyrir satt samkvæmt
fyrrnefndri skoðanakönnun, að
rúmlega þriðjungur kjósenda Al-
þýðuflokksins styðji núverandi
rflcisstjórn.
Hvernig á annað að vera?
Hvorki Alþýðuflokkurinn né
Sjálfstæðisflokkurinn í stjómar-
andstöðu hafa komið fram með
neinar tillögur til lausnar þeim gíf-
urlega vanda, sem þeir viðurkenna
þó að við blasi.
Samt sem áður ætla þeir að fella
bráðabirgðalög ríkisstj órnarinnar
af einskæru pólitísku ofstæki, þótt
öllum sé ljóst, að verðbólgan
Samsvarandi atvinnuleysi og er
í Bretlandi og Bandaríkjunum
jafngildir því að allir þeir sem
hér vinna að sjávarafla yrðu
atvinnulausir
um þessar mundir að kosningar fari
fram eins og einmitt þingmenn Al-
þýðuflokksins.
En hvers vegna er þá Alþýðu-
flokkurinn svo skelfilega hræddur
við kosningar?
Jú. Svarið þekkja allir.
í skoðanakönnun sem tvístirnið
nýja á síðdegishimninum, Dag-
blaðið og Vísir, efndi nýlega til,
bentu niðurstöður eindregið til
þess, að fylgi Alþýðuflokksins væri
nú með því allra minnsta, sem sá
flokkur hefði nokkurn tíma haft.
Síðan þetta var hefur það bæst við,
að einn dugmesti slagorðasmiður
flokksins hefur yfirgefið skútuna
með liði sínu og ætlar að skipta upp
þeim stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins sem eftir eru.
Alþýðuflokkur-
inn
í sjálfskipaðri
útlegð
Hlutskipti Alþýðuflokksins í ís-
lenskum stjórnmálum er sannar-
lega athyglisvert. Á seinustu ellefu
árum hefur flokkurinn haldið sig í
stjórnarandstöðu alls í 10 ár og
aðeins setið eitt ár í stjórn.
í öðrum löndum Vestur-Evrópu
eru flokkar Sósíaldemókratar
leiðandi afl, að vísu stundum í
myndi æða upp úr öllu valdi ef það
yrði gert og vandinn yrði nánast
óviðráðanlegur.
Engum dettur þó í hug í fullri
alvöru, að þessir flokkar vilji valda
slíkum ósköpum í efnahagslífi ís-
lendinga. Það er einmitt ofstæki af
þessu tagi og ýkjukenndur áróður
sem mest heíur grafið undan Al-
þýðuflokknum.
Auðvitað er það ekki með glöðu
geði að við Alþýðubandalagsmenn
tökum þátt í þessum óhjákvæmi-
legu efnahagsaðgerðum. En við
viðurkennum staðreyndir og lok-
um ekki augunum.
Þjóðartekjur landsmanna falla
nú meira og örar en dæmi eru um í
marga áratugi. Efnahagskreppan
um víða veröld sækir að okkur í
margvíslegum myndum.
Til að komast hjá hruni í útflutn-
ingsframleiðslu landsmanna og
víðtæku atvinnuleysi um land allt
höfum við meðal annars orðið að
fella gengi krónunnar mjög veru-
lega á þessu hausti en það er aftur
ástæðan fyrir óvenjumikilli verð-
bólgu um þessar mundir.
Blekkingarnar
um erlendu lánin
Ég tek undir það sem margir
hafa nefnt í þessum umræðum, að
sannarlega er það áhyggjuefni, að
greiðslubyrði af erlendum lánum
fer nú hækkandi. En ég bið ykkur,
hlustendur góðir, að varast marg-
víslegar blekkingar sem hafðar eru
uppi í þessu sambandi, til dæmis að
ríkissjóður gleypi erlend lán í stór-
um stíl eins og Jóhanna Sigurðar-
dóttir leyfði sér að halda fram hér
áðan. Það er alrangt, eins og hún
sjálf veit. Rflcissjóður tekur sjálfur
innlend lán, en hefur þó seinustu
árin borgað miklu meira af göml-
um lánum en nemur nýjum lán-
tökum, enda rekinn með tals-
verðum afgangi.
Hitt er annað mál, að ýmis opin-
ber fyrirtæki hafa tekið erlend lán.
Landsvirkjun tekur meiri lán en
nokkur annar aðili en leggur því
miður ekkert til framkvæmda af
eigin fé, þrátt fyrir gífurlegar
hækkanir gjaldskrár. Hér erum við
að gjalda fyrir misheppnaða stór-
iðjupólitík og lágt raforkuverð til
Áíversins í Staumsvík sem nú kem-
ur fram í stófelldum erlendum lán-
tökum í þágu Landsvirkjunar.
Hins vegar er almennt ástæðu-
laust að óttast erlend lán sem tekin
hafa verið til raforku- og hitaveitu-
framkvæmda víðs vegar um land.
Það væri mikill aulaháttur að
stöðva gjaldeyrissparandi fram-
kvæmdir af þessu tagi, aðeins af því
að við óttumst erlend lán.
Eins komumst við ekki hjá því
að taka lán í miklum mæli til að
framlengja sjö og tíu ára lán sem
tekin voru um miðjan seinasta ára-
tug til framkvæmda en hljóta að
greiðast niður á 20-30 árum, eins
og gildir um orkuver. Sem dæmi
má nefna, að afborganir af Kröflu-
lánum eru fyrst og fremst fram-
lenging lána sem frá upphafi var
vitað, að hlytu að eiga sér stað.
Fjarstæður eins og þær að skatt-
greiðendur eigi að borga hundruð
milljóna króna til Kröflu á næsta
ári, eins og þeir Alþýðuflokks-
menn hafa haldið fram, eru á svo
lágu plani að þær eru ekki svara
verðar.
Vel á minnst: Það er ánægjulegt
til þes að vita, að nú er loks að rofa
til við Kröflu, og aldrei hafa boran-
ir þar gengið jafnvel sem í sumar.
Meðlögin
til Járn-
Ragnar Arnalds: Hvorki Alþýðuflokkurinn né Sjálfstæðisflokkurinn hafa
komið fram með nokkrar tillögur til lausnar þeim gífurlega vanda sem þeir
viðurkenna þó að við blasi.
með erlendum gjaldeyrislánum.
Þegar við íslendingar flytjum inn
vörur frá öðrum löndum fyrir 10
dollara, flytjum við vörur út á móti
fyrir aðeins 9 dollara. Mismunur-
inn er tekinn að láni erlendis. Það
er einmitt megintilgangur bráða-
birgðalaganna að draga verulega
úr erlendri lántöku vegna þessa ugg-
vænlega viðskiptahalla. Þeir sem
þrástagast á því að bráðabirgðalög-
in breyti engu efnahagslega, tala
gegn betri vitund. Bráðabirgðalög-
vestan hafs og austan en nokkurt
annað stjórnmálaafl? Eða mun for-
ystuafl vinstrimanna, Alþýðu-
bandalagið, leggja þar hönd á
plóg?
Er ykkur ljóst, góðir hlustendur,
að samsvarandi atvinnuleysi á ís-
landi eins og er í þessum löndum
jafngildir því, að allir þeir sem hér
vinna að sjávarafla, samanlagt á
sjó og í landi, yrðu atvinnulausir.
Það er engin tilviljun, að þetta
ástand er ekki á íslandi. Ef stefnu
Við skulum draga úr eyðslu, við
skulum draga úr neyslu meðan
hríðin gengur yfir, og við skulum
búa okkur undir að snúa vörn
í sókn
blendiverksmiðju
Hitt er miklu alvarlegra mál, þeg-
ar erlend lán eru tekin í miklum
mæli til að fjármagna taprekstur
fyrirtækja sem komin eru í fullan
gang.
Langstærsta og alvarlegasta til-
vikið af þessu tagi er rekstur Jám-
blendiverksmiðjunnar í Hvalfirði
sem nú er rekin með gífurlegum
halla, eins og margir óttuðust og
vöruðu við á sínum tíma. Rflcið
verður nú með fárra mánaða milli-
bili að útvega tugi milljóna í er-
lendum rekstrarlánum til að halda
verksmiðjunni gangandi. í sept-
ember nam meðlagið frá ríkinu um
38 millj. kr. og næsta meðlag sem
leggja þarf fram í þessari viku nem-
ur um 26 millj. kr. - allt fengið að
láni erlendis.
En þó er það allra lakast þegar
þjóðarbúið sjálft er rekið með
halla og mismunurinn er greiddur
in draga verulega úr verðbólgu en
þó framar öllu öðru draga þau stór-
lega úr erlendum lántökum á næsta
ári. Þeir sem standa gegn bráða-
birgðalögunum axla því þyngri
ábyrgð en allir aðrir á erlendum
lántökum.
Ríkisstjórnin
þarf öflugra
umboð
Góðir hlustendur.
Við Alþýðubandalagsmenn
göngum til næstu kosningar í þeirri
von, að núverandi ríkisstjórn fái
öflugra umboð frá þjóðinni en nú
en fyrir hendi. Enginn efast um, að
ríkisstjómin hefur mikinn meiri
hluta þjóðarinnar að baki sér, en
hún þarf að öðlast þingstyrk í sam-
ræmi við þjóðarvilja. Eins og leikar
standa hefur hún aðeins hálfan
mátt og getur ekki stjórnað af þeim
skörungsskap, sem nauðsyn kallar
á.
Ef núverandi ríkisstjórn nær
ekki meirihluta í næstu kosningum
er harla óljóst hvað við tekur.
Verður það stjórn sem mótuð er
af íhaldssömustu öflum Sjálfstæð-
isflokksins, spegilmynd af íhalds-
stjórn Thatchers í Bretlandi og Re-
agans í Bandaríkjunum, eftirmynd
þeirra ríkisstjóma sem eiga meiri
þátt í heimskreppu og atvinnuleysi
Thatchers og Reagans verður beitt
hér á landi þá skapast þetta ástand.
Það er heldur engin tilviljun að
mesta atvinnuleysi frá stríðslokum
var í valdatíð Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokksins fyrir þrettán árum.
Það einkennir einmitt pólitískt
ástand líðandi stundar að kjósend-
ur hafi ekki hugmynd um, hvað
stjórnarandstaðan vill, eða hvað
hún myndi gera ef hún fengi
völdin.
Hitt veit fólk af fenginni reynslu,
að ríkisstjórn, sem Alþýðubanda-
lagið á aðild að mun gera allt sem
unnt er að gera til að milda áhrif
heimskreppunnar á kjör hins al-
menna manns.
Snúum vörn
í sókn
Við Alþýðubandalagsmenn
göngum til kjósenda og segjum af
fullri hreinskilni.
Við skulum draga úr eyðslu okk-
ar - við skulum draga úr neyslu
okkar meðan hríðin gengur yfir.
Við skulum dreifa byrðunum á
róttækari hátt.
En framar öllu öðru skulum við
tryggja óskerta félagslega þjónustu
og fulla atvinnu fyrir alla lands-
menn.
Og við skulum búa okkur undir
að snúa vörn í sókn, um leið og færi
gefst.