Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 3

Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 3
Helgin 4. - 5. desember 1982 þjóÐVILJINN — StÐA 3 skráargatrid Prófkjörin hafa margar hliðar og sigur í þeim er ekki bara sigur frambjóðenda heldur einnig auglýsingastofa. Þannig voru þeir þrír sem efstir urðu í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, Albert Guð- mundsson, Friðrik Sóphusson og Birgir ísl. Gunnarsson allir á snær- um einnar og sömu auglýsingastof- unnar. Útvarpsumrœðurnar síðustu, sem reyndar voru sendar út í sjónvarpi líka, vöktu mikla at- hygli á Agli Jónssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins í Austfirðing- afjórðungi og sömuleiðis Alexand- er Stefánssyni framsóknarhetju úr Ólafsvík. Hagyrðingi nokkrum af Norðurlandi varð að orði: Orðsins hvössum brugðið brand' er svo blikna andans tröllin þá Agli bæði og Alexander att er fram á völlinn. Kristinn V. Jóhannsson er forseti bæjar- stjórnar í Neskaupstað. Hann var meðal fundarstjóra á flokksráðs- fundi Alþýðubandalagsins sem ný- lega var haldinn. Það vakti athygli fundarmanna að þegar atkvæða- greiðslur voru gleymdi Kristinn iðulega að leita mótatkvæða. Varð nokkur kurr út af þessu en Kristinn baðst forláts á þessu og sagði að í bæjarstjórninni í Neskaupstað þyrfti aldrei að leita mótatkvæða. Málefni Helgarpóstsins hafa verið mjög í deiglunni að undanförnu og nú á fimmtudag setti Blaðaprent blaðinu úrslitakosti. Annaðhvort yrðu skuldir blaðsins við prent- smiðjuna greiddar eða prentun þess stöðvuð. Helgarpóstsmenn fengu þó prentunina í gegn á þeirri forsendu að um helgina yrði fundur hjá Alþýðuflokknum þar sem m.a. yrði fjallað um málefni Alþýðu- blaðsins og Helgarpóstsins. Að undanförnu hafa verið bundnar nokkrar vonir við Emanúel Morthens, kraftaverkamann Al- þýðuflokksins í fjármálum, að hann mundi koma blaðaútgáfunni á réttan kjöl en slök útkoma hans í prófkjöri Alþýðuflokksins nýverið mun hafa sett nokkurt strik í reikninginn. Nú mun vera legið í Ólafi Jóhanness- yni nær dag og nótt að hann gefi kost á sér á ný til framboðs fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík. Það eru herstöðvasinnar innan Framsóknarflokksins sem standa fyrir þessu en þeir óttast ella að einhver herstöðvaandstæðingur muni ná langt í prófkjörinu í Reykjavík. Ólafur Jóhannesson verður sjötugur í mars n.k. og er nú nýkominn af heilsuhælinu í Hvera- gerði, hinn sprækasti og vís til alls. „Vondir menn með vélaþras" hafa nú kom- ið því svo fyrir að Geir Hallgríms- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, er kominn út í kuldann hjá flokknum, a.m.k. hvað varðar sæti á næsta þingi. Sumir segja líka að Gunnar Thoroddsen sé úti í kuld- anum því að nú eigi hann ekki svo gott með að fara fram með eigið framboð, DD-listann, þar sem hans armur hafi unnið sigur í próf- kjörinu. Ágætur maður benti á leið fyrir þá fjandvini út úr ógöngun- um. Þeir ættu að fara fram saman með DD-lista í Reykjavík. Þannig væru þeir öruggir inn á þing sjálfir og tækju sennilega 2 til 3 menn með sér. Annar möguleiki hefur verið nefndur fyrir Gunnar en hann er sá að hann bjóði fram með Sjálf- stæðiskvennafélaginu Hvöt en konurnar þar munu afar óhressar með slakan hlut kvenna á listanum. Okkur hér á skráargatinu langar til að andmæla því sem félagi Kjartan Ólafsson ritstjóri sagði í leiðara Þjóðviljans s.I. miðvikudag um úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, „að kjölfestan væii ekki lengur fyrir hendi í flokkn- um.“ Þetta teljum við rangt, vegna þess að ekki ber að hafa kjölfe- stuna í siglutoppi, heldur á botni skipsins. Þess vegna er kjölfesta flokksins, Geir Hallgrímsson á réttum stað á listanum. Flœði íslenskra bókmennta til útlanda er töluvert og af og til berast fréttir af nýjum þýðingum sem gefnar eru út. Þannig er nú ungur, þýskur norrænufræðingur, sem reyndar er kvæntur íslenskri konu, búinn að þýða ljóð Stefáns Harðar Gríms- sonar á þýsku og er væntanleg bók þar sem ljóðin verða bæði gefin út á frummálinu og í þýðingunni. Ekki er þó bók þessi gefin út í Þýska- landi eins og vænta mætti, heldur á ítalíu. Þýðandinn heitir Hubert Selow. Og nýlega er Pelastikk eftir Guðlaug Arason komið út á dönsku í þýð- ingu Peters Rasmussen hjá bóka- forlaginu Höst & Sön. í franthjá- hlaupi má þess svo geta að Mál og menning er farin að gefa út bók- menntakver handa skólum og al- menningi þar sem veittar eru upp- lýsingar sem aukið geta skilning á einstökum bókmenntaverkum og gefin verkefni. Fyrsta kverið í þess- um flokki fjallar einmitt um Pela- stikk Guðlaugs. Eins og kom fram í fréttum nýlega var dr. Björn Sigurbjörnsson, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbúnað- arins, ráðinn til þriggja ára í háa stöðu hjá FAO, Alþjóða matvæla og landbúnaðarstofnunar SÞ. Staða Björns hér heima hefur því verið auglýst til umsóknar og stendur nokkur styrr um stöðu- veitinguna. Aðstoðarforstjórinn er Gunnar Ólafsson og hafa nær allir starfsmenn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins skrifað undir bréf til landbúnaðarráðherra og lýst yfir stuðningi við hann í stöðuna. Dr. Sturla Friðriksson hefur líka mik- inn áhuga á þessari stöðu og þrýstir nú fast á ráðamenn að hann verði ráðinn. Hætt er við að pólitík blandist eitthvað inn í málið því að Gunnar mun vera vinstri sinnaður en Sturla er íhaldssamur. Óþarfi er að minna á að landbúnaðarráð- herra er Pálmi Jónsson. Margir gæðingar vilja nú á spenann eftir að íhaldið fékk meiri hluta í borgar-. stjórn Reykjavíkur. Þannig fékk Magnús Jensson, fulltrúi íhaldsins í bygginganefnd, nýlega úthlutað sjoppuleyfi í borginni og Anders Hansen blaðamaður, rithöfundur og bókaútgefandi hefur ennfremur sótt um sjoppuleyfi. Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður hafði mikið við meðan prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra stóð yfir á dögun- urn og raunar lengi fyrr. Hann biðlaði sterkt til fólks um stuðning og bauð fólki í staðinn bók eftir sig, sem nýkomin er út og meira að segja með áritun höfundar. Efni bókarinnar mun ekki vera með því skemmtilegasta sem menn lesa og segja gárungar að rnargir hafi hafn- að stuðnini við Eykon til að losna við bókargjöfina. Jélolilboö sem hlustandi er á... SONY HIGH-TECK 200 samstæðan er ekki bara stórglæsileg heldur býöur hún líka upp á margt þaö nýjasta og besta frá SONY. Beindrifinn, hálfsjálfvirkur plötuspilari. 2x30 sinus vatta magnari meö tónjafnara og innstungu fyrir Digital Audio Disc. 2ja mótora kassettutæki meö rafeindastýröum snertitökkum, Dolby, lagaleitara o.s.frv. 3ja bylgju útvarpi FM steríó, MB, LB. 2-60 vatta hátalarar. Skápur á hjólum meö glerhurð og glerloki. Ævintýralegt jólaverö, aöeins 18.950.00 Stgr. Sendum gegn póstkröfu. P.s. Nú slær fjölskyldan saman í veglegan jólaglaöning. KAUPFELAG HAFNFIRÐINGA STRANDGÖTU 28 #JAPIS hf. Brautarholt 2 Sími 27133 Reykjavik

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.