Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. janúar 1983
Norður-
söngvarar
á snœldum
Hinir vinsælu Norðursöngvar
sem útvarpsstöðvarnar á Norður-
löndum áamt Norrænu félögunum
hafa staðið að útgáfu og dreifingu á
eru nú fáanlegir á snældum á skrif-
stofu Norræna félagsins í Norræna
húsinu. Á hverri snældu eru lög
tveggja þjóða og eru snældurnar
alls fjórar. Islensku söngvarnir eru
ekki með.
Kynning á lögunum er sú sama
og þegar söngvarnir voru fluttir í
ríkisútvarpinu á öndverðu þessu
ári.
Snældurnar má kaupa eina og
eina og svo allar fjórar í einu og um
leið ódýrari.
Gætum
tungunnar
Heyrst hefur: Hann hlaut bæði
verðlaunin.
Rétt væri: Hann hlaut hvor-
tvcggju (eða hvor tveggja) verð-
launin.
(Atl Orðið verðlaun er ekki til í
eintölu.)
Bendum börnum á þetta!
Skák_______________
Karpov aft tafli - 73
Bent Larsen gekk mikinn berserksgang í
fyrstu umferðum millisvæðamótsíns í Len-
ingrad. Hann vann fimm fyrstu skákir sínar!
Karpov á hinn bóginn fór sér hægar. I 4.
umferð gerði hann stutt jafntefli við kunn-
ingja sinn Kortsnoj. Það fór vel á með þeim
á þessum árum, þeir bjuggu á sama stað
og rannsökuðu byrjanir saman fyrir mótið! I
5. umferð gerði Karpov svo jafntefli við
Taimanov og var þá í 4,- 5. sæti ásamt
Kusmin með 3'lz vinning. Kortsnoj og
Byrne voru með 4 vinninga í 2. - 3. sæti. Að
6 umferð lokinni varð Larsen að láta sinn
fyrsta 'lz vinning af hendi. Torre hélt jöfnu í
gjörtöpuðu hróksendatafli! Karpov vann
hinsvegar Cuellar:
abcdefgh
Cuellar - Karpov
Andstæðingur Karpovs í þessari skák
varð reyndar neðstur á mótinu, en engu að
síður velgdi hann Karpov undir uggum í
miðtaflinu með glæfralegri taflmennsku
þar sem litlu virtist muna að Karpov lenti
undir mátsókn. En undir lok setunnar sner-
ist gæfuhjólið svörtum i hag, og þegar hér
er komið sögu skömmu eftir að önnur seta
hófst, hefur svartur náð afgerandi tökum á
stöðunni:
48. .. Hb4!
49. Hf3 Dd6
50. f5(eða 50. Hcfl Rh5 o.s.frv.)
50. .. Rxf5
51. a3 Hh4
52. Bd1 De5
53. Df2 He4
54. Kg2 Rh4+
55. Kh3 Rxf3
56. Bxf3
- og hvítur gafst upp um leið. Einfaldasti
leikur svarts er 56. - He3.
Bundið slitlag á
þjóðvegum landsins
Mikil
aukning
síðustu
árin
Bundið slitlag á þjóðvegum hér-
lendis er nú orðið 651 km. Mikil
aukning hefur orðið á síðustu
árum eins og sjá má á stöplaritinu
hér að neðan sem fengið er úr
fréttabréfi Vegagerðarinnar.
Af þeim vegum sem nú eru
þjóðvegir mun Hafnarfjarðar-
Bambus:
Stærsta
gras í
náttúrunni
Bambusjurtin er eitt af furðum
náttúrunnar. Hver einstök planta
getur vaxið um allt að 40 sm. á
sólarhring og náð fullvaxin allt að
30-35 m. hæð. Já, þetta er ótrú-
legt en samt satt. Og hitt er samt
ennþá ótrúlcgra, að vaxtarhraði
bambuss er svo mikill að ef vegur
er gerður í gegnum bambusskóg,
þá tekur aðcins einn mánuð fyrir
bambusjurtina að gróa svo engin
ummerki um vegarstæðið sjáist
lengur.
Um 500 tegundir af bambus
vaxa í heiminum. Allar tegundir
eru með liðaðan holan legg sem
vex óeðlilega skjótt. Bambusinn
blómstrar og ber ávöxt sem er
ekki ólíkur stórgerðu korni eða
smáhnetu. Jurtin vex aðallega í
Asíu, Suður-Ameríku og á
nokkrum stöðum í Afríku.
En hvaða gagn getur maðurinn
haft af bambusviðnum? Í Austur-
löndum er jurtin nýtt upp til
agna. Hús og hýbýli eru úr bamb-
us. Sumar bambustegundir eru
það harðar að hægt er að nýta þær
í ýmis búsáhöld og einnig hnífa,
og vfða er bambus notaður í
veiðarfæri frumskógamannsins,
örvar og spjót. Það má þvf segja
vegur vera sá sem fyrst fékk
bundið slitlag. Lagt var á hann
malbik 1940, en miklu fyrr var
hann steyptur a.m.k. að hluta.
Fyrsta verulega átakið í slit-
lagsgerð er þegar Reykja-
nesbraut er steypt árin 1962-65.
Næstaátakergert 1970-74 og lagt
með sanni, að tilvera, stórs hluta
mannkyns byggi á bambusjurt-
inni.
En það er hægt að nota bambus
á fjölmarga vegu til viðbótar. Þær
þjóðir sem lengra eru komnar í
iðnþróun, eins og Japanir, hafa
lengi kunnað að nýta sér bambus-
jurtina í vatnslagnir, og Kínverj-
ar voru fljótir að komast upp á lag
á um 90 km, aðallega á veguni út
frá Reykjavík og á Suðurnesjum.
Var þá olíumalaröld upprunnin,
en steypa og malbik lítið notað.
Frá 1978 hefur slitlag verið lagt á
460 km, að nokkru leyti olíumöl,
tæplega 100 km, en aðallega hef-
ur verið um klæðningu að ræða.
með að búa til pappír úr bambus.
Á Java í Indónesíu smíða menn
stóra báta úr jurtinni, og víða eru
ungar bambusjurtir nýttar til
fæðu.
En livað er þessi merkilega
jurt? Er hún tré aða pálrni? Nei
aldeilis ekki. Bambus er grasteg-
und, réttnefnd stærsta gras
náttúrunnar. ■„
Bardenfleth
tekur til
höndum
Það rættist brátt sú von íslend-
inga að Bardenfleth stiptamt-
maður gerðist athafnasamur á
þann veg sem betur horfði. Þegar
á árinu 1838 var, að tilmælum
hans, gcfin út konungleg tilskipun
um að efnt skyldi þá á næsta ári til
fundar í Reykjavík, þar sem
saman kæmu 10 af atkvæðamestu
embættismönnum landsins,
undir forsæti stiptamtmanns.
Skyldi fundurinn yfirvega ýmis
þau mál, er þjóðinni reið mest á
að sinnt yrði. Meðal þeirra mála,
sem stiptamtmaður taldi nauð-
synlegt að hrinda í framkvæmd
var vátryggingamálið, sem Krie-
ger hafði hreyft 5 árum áður, en
engu fengið um þokað. Sendi
hann kansellíinu allar umbeðnar
upplýsingar með þeim árangri,
að Stéttaþingunum dönsku var
falið að úrskurða hvort tilskipun-
in frá 1832 um brunamál dönsku
kaupstaðanna skyldi einnig ná til
Reykjavíkur. Þessi úrskurður
fékkst 1840 og var á þá leið, að
Reykjavík skyldi enn standa utan
við brunabótafélag dönsku
kaupstaðanna. Var enn borið við
vöntun á upplýsingum, enda þótt
Bardenfleth væri þegar búinn að
senda allar þær upplýsingar sem í
öndverðu hafði verið beðið um.
Samgöngur íslendinga við út-
lönd voru ekki margra fiska virði
um þetta leyti. Sem dæmi um það
má nefna, að póstskip, sem átti
að koma hingað í nóv. 1837, kom
loks til Reykjavíkur 25. mars árið
eftir. Það hafði að vísu verið
komið upp undir Dyrhólaey áður
en jólafasta gekk í garð, en þá
hrakti óveður það austur með
landi og síðan alla leið til Fars-
unds í Noregi. Þar varð það síðan
að bíða byrjar til 9. mars.
Þann 23. nóv. 1838 var í fyrsta
skipti jarðað í hinum nýja kirkju-
garði suður af Hólavellinum. Var
þar á jarðsungin Guðrún Odds-
dóttir, kona Þórðar Sveinbjörns-
sonar dómstjóra.
- mhg
Nóbelsverðlaun
í efnafræði
Lagt til
að Begin
fengi þau
ísraelska efnafræði-
prófessornum Asher Peres hafa
verið veittar harðar ávítur af
vinnuveitanda sínum, ísraelska
tækniháskólanum í Haifa, fyrir
það að leggja til við úthlutunar-
nefnd Nóbelsverðlauna, að Men-
achem Begin forsætisráðherra Is-
raels verði veitt Nóbelsverðlaunin
í efnafræði næsta liaust.
Rökstuðningur efnafræði-
prófessorsins í bréfi til Nóbels-
nefndarinnar var sá að Begin væri
alveg jafn vel kominn að Nóbels-
verðlaununum í efnafræði og
friðarverðlaununum sem nóbels-
nefndin veitti honum ásamt
Anwar Sadat heitnum árið 1978.
Mál þetta hefur vakið mikla at-
hygli í Israel. Margir kíma að til-
tækinu, en aðrir eru ofsareiðir,
eins og stjórnarformaður Tækni-
háskólans, sem sagði samkv.
Reuter-fréttaskeyti, að Peres
hefði ekkert með það að gera að
nota stöðu sína innan háskólans
til að valda pólitískum óróa í
landinu.
- Ig-
Peir vísu sögðu
„Ég hef verið skammaður
vegna misskilnings annarra, en
ég hefði verið hundskammaður
ef þeir hefðu skilið mig.“
Þessi mikli bambusskógur er á Jamaica.